Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2012

Held þá að Kópavogsbær ætti að hætta að eyða peningum í þessar auglýsingar sem eru hvern dag í Sjónvarpa

Þessar auglýsingar eru svo 2007. Við erum enn að fást við skuldir vegna fasteignaspengju Ármanns og Gunnars frá því fyrir 2008. Svo vinnsamlegast hættið þessari auglýsingaherferð. Nú er tími til að taka því rólega og borga upp skuldirnar. Ég sem Kópavogbúi í 40 ár hef engan hag af því að hér séu auknar skuldir til að koma fleira fólki til bæjarins. Og kem ekki til með að hafa neinn hag af þeirri fjölgun sem varð hér. Ekki lækkar útsvarið hjá mér eða önnur gjöld á meðan að við erum að drukkna í skuldum.
mbl.is Erum ekki að brjóta lög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða bara að vera smá ósammála Andreu

Bara að benda á að þarna erum við að tala um stúlku hana Grétu í fjarlægu landi þar sem hún þekkir ekkert til. Ætla henni að fara og tjá sig um mál sem hún veit ekkert um án þess að með henni séu einhverjir fulltrúar til að hjálpa henn er bara út í hött. Það er eins og fólk sé búið að gleyma því að þarna er 25 ára stelpa með hópi tónlistarfólks sem hefur ekkert kynnt sér málin. Og fólk hér heima að dæma hana fyirir eitthvað sem  það vildi að hún segði eða gerði. Sorry hvað hefði fólk sagt ef hún hefði verið barin eða fangelsuð? Fyrir málstað sem hún vissi ekkert um bara af því að einhver forsetaframbjóðenda og þingmönnum datt það í hug. Af hverju fór þetta fólk bara ekki sjálft þarna út og mótmælti?  Gréta var kjörinn og lag hennar til að taka þátt í þessari keppni. Við höfum ekki hingað til ætlast til þess að fólk okkar mótmælti. T.d. eins og þegar keppnin var í Úkraníu. Og ekki ætluðumst við til þess af Friðriki Þór Friðrikssyni þegar hann fór á Óskarsverlaunahátíðina. Þó að USA brjóti mannréttindi um allan heim. Ekki ætlumst við til þess að landsliðum okkar þegar þau keppa í íþróttum.
mbl.is Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er stjórnarandstaðan undrandi á þessu?

Hvað ætli þau séu búin að eyða mörgum þingdögum á þessu þingi frá síðasta hausti í málþóf. Það var málþóf fyrir jólafrí, það var málþóf fyrir Páska og það var málþóf núna. Ætli þetta sé ekki farið að leggja sig á 15 daga sem þau í raun hafa tafið þingið. Nú síðast í nokkrar vikur til að náttúruverndarfrumvarp um utanvegaakstur færi ekki í gegnum þingið.

Ragnheiður Elín þingflokksformaður þeirra farið hamförum í að reyna að tefja mál eins og hún hefur mögulega getað. Og verið ósveigjanleg í samningum.

Svo er þetta fólk að kvarta.

Finnst að þau og allir þingmenn ættu bara að sitja í allt sumar nema kannski 5 vikna sumarleyfi og halda áfram að ganga frá stærstu málum svo að þau geti sagt að þau hafi einhverju áorkað þegar þau fara í næstu kosningabaráttu eftir 10 mánuði. 


mbl.is Verður þingað fram í júlí?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað vilja þau í staðinn

Nú er tunnuliðið farið að safna undirskriftum um þingrof og nýjar kosningar. Þetta vekur spurningar um:

  • Hvað vilja þau í staðin. Nú skv. skoðanakönnunum eru Sjálfstæðismenn með um 35% fylgi og Framsókn með um 15%. Eru það þessir flokkar sem þau vilja að komist að aftur?
  • Ef þau eru að reyna að koma að nýjum framboðum þá eru þau að mælast með nokkra% fylgi og fæst þeirra einu sinni tilbúnin með stefnuna eða búin að móta flokkstarfið
  • Hvða halda þau þá að kosnngar á þessum tímapunkti skili? 
  • Og hvað halda þau að nýtt þing geri? Skíti peningum, geri kraftaverk. Minni á að eftir kreppunna upp úr 1990 var ekki hikað að setja staðgreiðsluskatta upp í 42% um leið að lækkaður var skattur á fyrirtæki og auðmenn. Er það kannski það sem þetta fólk vill?
Ég hef óvart ekki séð neina skynsemi í þessu fólki. Nema náttúrulega að þau sé á vegum Sjálfstæðisflokks? Þá segi ég bara verði fólki að góðu!
mbl.is Þúsund vilja þingrof og kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Bragi ætti nú stundum að hugsa málin aðeins.

Svona til að byrja með þá væri ágætt að einhver benti Gunnari á að það voru kröfuhafar í bankana sem eignuðust þá alla. Þ.e. að þeir áttu bankana eða þrotabú þeirra. Það voru stofnaðir nýjir bankar og eigendur þrotabúana þe.. gömlubankana þurftu að samþykkja það. Það þurfti að leggja Nýja Landsbankanum til mesta  peninga til að kaupa erlendu kröfunar í þeim banka. Aðrir bankar eru í eigu gömlu bankana sem jú erlendir kröfuhafar eiga. Hvort sem það eru upprunalegu kröfuhafarnir eða einhverjir sem keyptu þær kröfur. Ef ekki hefði verið farin þessi leið hefðu innistæður og lán landsmanna verið fastar í þrotabúunum og við ekki haft aðgang að þeim.

En auðvita þarf Gunnar að bulla um þetta eins og allt annað.  Ef eitthvað þyrfti að skoða varðandi bankamálin eftir hrun þá er SPkef eitthvað sem væri gott að kæmist á hreint. 

 


mbl.is Vilja ekki rannsaka eigin einkavæðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja stjórnarandstaðan.

Held að fólk sé búið að kalla þetta yfir sig. Það vill bara engin tala við þau!  Þau vilja ekki vinna með stjórnarliðinu að neinu máli og því ætti þá að ræða við þau? Enda verið að tala um peninga sem okkur bjóðast skuldbindingalaust. En stjórnarandstaðan er á móti þeim. Frekar að vera hér einhver ár eða áratugi t.d. á eftir með að leita að eiturefnum í matvælum og svo framvegis.
mbl.is „Ræðum við tóman sal og við hvort annað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessari ríkisstjórn verður allt til ama!

Eins og ég hef verið ánægður með vinnubrögð og staðfestu Steingríms J og varnarvinnu t.d. Björns Vals, Árna Þórs og Lilju Rafney þá er mér fyrirmunað að sjá tilgang margra annarra þingmanna VG.

Manni verður t.d. hugsað til þess að fyrir 3 árum þá voru þau öll með í því að samþykkja samstarf við Samfylkinguna um ákveðin mál. Þar með talið að sótt yrði um ESB og fenginn niðurstað þ.e. samningur sem síðan yrði borinn undir þjóðina. Síðan þá hefur látlaust verið hér barist af harðsnúnu liði gegn ESB aðildarviðræðum. Upp til hópa hefur ESB og hugsanleg staða okkar þar verið afvegaleidd með dylgjum og lygum af fólki sem veit bara ekkert um þessi mál. Heldur tekur upp vitleysuna eftir hvort öðru og dælir á netið. Og þessi þrýstingur allt í einu núna korter fyrir kosningar er farinn að skila þeim árangri að fólk eins og Guðríður og Ögmundur eru farin að huga að kosningum og að kaupa sér vinsældir hjá þeim sem harðastir eru gegn ESB. 

Maður hefði nú haldið að þau gerðu sér grein fyrir því að þetta verður hamrað í hausinn á þeim í kosningabaráttunni ef að hætt verður við ESB aðildarviðræður. Það verður rætt um að ekkert af því sem þau ætluðu sér í upphafi kjörtímabils hafi staðist. Og eins þá hljóta þau að verða í ömurlegri stöðu ef að þjóðin myndi samþykkja að klára aðildarviðræðurnar. En þau hlaupa til og frá og valda því að ríkisstjórnin er í ömurlegir stöðu og kemur ekki í gegn neinum erfiðum málum. 


mbl.is Kosið verði um ESB fyrir árslok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáfulegt eða hitt þó heldur

Finnst alveg svakalegt að þingmaður geti látið svona. Hún boðar í hverri ræðu að ungtfólk sé bara nærri allt farið til Norðurlanda. Að ungt fólk finni enga sumarvinnu. Að allt ung fólk sé að fara á hausinn. Og svo boðar hún fjármagnslausar framkvæmdir sem þýða þá auknar lántökur. Og svo held ég að engir fjárfestar séu tilbúnir að fjárfesta ef að þeim er bara hótað til þess. Af hverju ættu þeir að selja ríkisskulabréf með háum vöxtum til að fjárfesta hér.  Þetta er ekki eins og í Asíu og hún er bara ekki raunveruleikatengd.

Væri ágætt að einhver benti henni á að atvinnuleysi hér stefnir í að verða um 4% í sumar er um 6% nú og lækkar alltaf yfir sumarið.  Finnst þessi málflutningur henar út í hött og er fenginn að hún er ekki að stjórna fjármálum hér. Held að við værum í látlausum málaferlum og allt hér stopp með lögbönnum á öllum gjörningum og peningum ef hún væri fjármálaráðherra. Og jarðgöng svona af handahófi sem verða kannski lítið notuð eru atvinnubótavinna sem skilar okkur engu til lengdar.


mbl.is Vill hóta eigendum snjóhengjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bændur ættu nú að kynna sér þetta blað!

Þarna kemur fram að ESB er fyrirfram tilbúið að segja að gætt verði að hagsmunum Íslenska landbúnaðarins. Sem og að menn ættu að skoða hvernig við komum út úr Finnska módelinu.

 

stu_ningur_vi_landbuna.jpg
 
Lesið nú blaðið og fáið almennilegar upplýsingar sjá hér

 


mbl.is Nýtt blað um áhrif aðildar að ESB á landbúnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að þingmönnum væri holt að muna eftirfarandi!

  • Meirihluti þjóðarinnar vill nýja stjórnarskrá.
  • Orð þingmanna nú í málþófi eru skrá og verða til bæði sem texti, hljóð og videóupptökur það sem eftir er. Því væri holt fyrir fólk að vanda það sem það segir sem og að bullið í þessu málþófi verður alltaf til.
  • Eins þetta bull í þingmönnum um að atkvæðgreiðslan nú sem er ráðgefandi varðandi stjórnarskránna sé á einhvern hátt að binda vinnu Alþingis er náttúrulega út í hött. Það er verið að kalla eftir nokkrum meginþáttum sem fólk hefur deilt um. Eins og varðandi þjóðkirkju og fleira svo að þingið hafi eitthver viðmið frá þjóðinni við það að klára vinnuna næsta haust.

Framsókn verður bara að sætta sig við að Þjóðfundur vildi að vægi atkvæða okkar væru jöfn um allt land en ekki að ákveðnir landshlutar hefðu meira vægi. Framsókn verður bara að reyna að höfða betur til þéttbýlisbúa en ekki treysta á að misvægi atkvæða tryggi þeim fleiri þingmenn en þeir eiga skv. heildaratkvæðum.

Sjálfstæðismenn verða að sætta sig við að þjóðin vill að auðlindir eins og fiskur og fleira sé í þjóðareign. 

Og stjórnarliðar verða að hafa þolinmæði í að semja sig ekki frá þessu málþófi heldur leyfa þessu fólki að verða sér til skammar við að verja sérhagsmuni. 


mbl.is Talað í rúmar 35 klukkustundir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband