Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2012

Er ekki rétt að einhver bendi Lilju á eftirfarandi!

Lilja er:

  • Hætt í Vg
  • Hún hefur því ekkert með málefni Vg að segja. 
  • Hvorki Steingrímur né Jóhanna hafa alræðisvald. Því gátu þau 2 ekki stoppað þessar frábæru hugmyndir Lilju ef að hún hefði haft meirihluta fylgi við þær á Alþingi.
  • Það er orðið dálítið þreytt að sífellt hlusta á að hún viti allt betur en allir aðrir og hennar hugmyndir séu betri en allra annarra.
  • Og eins hvað allir eru vondir við hana og leyfa henni ekki að ráða.

mbl.is Vill sömu yfirlýsingu frá Steingrími
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona að velta fyrir mér - Hvað ef?

Ef við segðum að að Vaskurinn yrði áfram 7% en á móti myndi krónan hækka í gengi um 17% - Hvað þá?  Á ég að trúa því að um 50% lækkun á gengi krónunar og þar með mun hagstæðari skilyrði hafi ekki gefið hótelum neitt tækifæri á að taka eitthvað af hækkun vsk. á sig. Hvernig var þetta þá 2006 þegar krónan var 50% hærri og það var 14% vsk að minnstakosti? Þá hljóta þessi hótel og gististaðir að hafa verið tómir.
mbl.is Afbókanir gesta dynja yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni farin að stunda : „Let them deny it" Þ.e. ljúga þar til annað er sannað

Í þessir frétt lýgur hann bara blákalt vitandi betur. Sbr.

26.9.2012

Í Morgunblaðinu í dag er viðtal við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, um skattbyrði.

Viðtalinu fylgir línurit þar sem sýnt er að skattbyrði hafi vaxið hjá öllum tekjuhópum frá árinu 2007. Þetta línurit og þeir útreikningar sem það byggir á eru alrangir enda munu hinir tekjulægri að minnsta kosti ekki kannast við það sem þar er verið að sýna.

Línuritið sýnir skattbyrði eftir tekjum fyrir árið 2012 annars vegar og árið 2007 hins vegar.  Línan um skattbyrði ársins í ár er rétt og engar athugasemdir við hana. Það er útreikningurinn fyrir árið 2007 sem er meingallaður. Hann er gerður þannig að í stað þess að reikna skattbyrði miðað við skatthlutfall ársins 2007 og þann persónuafslátt sem þá var í gildi hefur sú tala verið færð upp til verðlags dagsins í dag með vísitölu neysluverðs. Þannig greiddi enginn maður skatt árið 2007. Línuritið hér fyrir neðan sýnir skattbyrði þessara tveggja ára eins og hún var í raun og veru:

Skattbyrði í staðgreiðslu (tekjuskattur og útsvar) 2007 og 2012
 
Þarna sést svo ekki verður um villst að skattbyrði fólks með tekjur allt að um 500 þúsund krónur á mánuði er lægri nú af hverri krónu í tekjur en hún var árið 2007 og munar mestu hjá þeim sem lægstar hafa tekjurnar. Skattbyrðin hefur vaxið hjá þeim sem hafa hærri tekjur enda hefur það verið ætlun ríkisstjórnarinnar að nota skattkerfið til að jafna ráðstöfunartekjurnar. (http://www.fjarmalaraduneyti.is/almennar_frettir/nr/15876)

 


mbl.is Allir borga hærri skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski rétt að benda á Birni Bjarnasyni á að kynna sér málin.

Svona til að byrja með er hægt að benda honum á að lesa eftirfarandi rit.:

ÁGRIP AF ÞRÓUN
STJÓRNARSKRÁRINNAR

Þar segir m.a. á bls 14 og 15

Samkvæmt endursamþykkt þingsályktunartillögunnar um skipun milliþinganefndarinnar
í stjórnarskrármálinu, er gerð var hinn 8. sept. 1942, skilar nefndin
með þessu stjórnarskrárfrumvarpi og greinargerð fyrri hluta þess verkefnis, er
henni var falið, en mun áfram vinna að seinni hluta verkefnisins, sem sé að
„undirbúa aðrar breytingar á stjórnskipulaginu, er þurfa þykir og gera verður á
venjulegan hátt“. Má ætla að það starf verði öllu víðtækara og þurfi þar til að
afla ýmissa gagna, er nú liggja eigi fyrir, svo og að gaumgæfa reynslu þá, er
lýðræðisþjóðir heimsins óefað öðlast í þessum efnum á þeim tímum, sem nú líða
yfir mannkynið.
Þangað til því verki yrði lokið, ætti sú stjórnarskrá sem hér er
lögð fram, að nægja, enda eru ákvæði hennar mestmegnis þau, er nú gilda í
stjórnskipunarlögum hins íslenska ríkis, að breyttu hinu æðsta stjórnarformi, frá
konungdæmi til lýðveldis o.s.frv.18

Og svo segir áfram

Þær breytingar, sem gerðar voru á stjórnskipuninni 1944, voru í samræmi við þetta
fyrst og fremst að felld voru út ákvæði um konung og innleidd ákvæði um forseta.
Hlutverk forseta í stjórnskipun landsins var að flestu leyti mjög sambærilegt við
hlutverk konungs áður. Þó voru gerðar vissar breytingar á þessum ákvæðum hér og
þar – t.d. voru meiri takmarkanir á synjunarvaldi forseta en áður höfðu verið á
neitunarvaldi konungs og eins voru sérstök ákvæði um frávikningu forseta. Að öðru
leyti stóð stjórnarskráin óbreytt.
Stjórnarskrárnefndin starfaði, eins og fram kemur í áliti hennar, áfram að
heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Árið 1945 ákvað Alþingi að skipa 12 manna
nefnd til ráðgjafar eldri nefndinni og tveimur árum síðar var samþykkt
þingsályktunartillaga um skipan nýrrar sjö manna nefndar til að endurskoða
stjórnarskrá þar sem starfsemi hinnar fyrri hafði lognast út af. Gerðarbækur stjórnarskrárnefndanna
frá þessum tíma er ekki að finna í Þjóðskjalasafni og gögn, sem starfi
þeirra tengjast, eru rýr.

Væri svo ekki hægt að minnka aðeins tilvitnanir í Björn Bjarnason eins og hann einhver sérfræðingur um þessi og önnur mál.  Og Björn hefði nú fundið þessi göng með því að googla þau.

 


mbl.is Spyr hver hafi lofað nýrri stjórnarskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta það sem Birni finnst vera aðalhlutverk þingamanna?

„Hið undarlega er að þingmönnum flokksins tekst ekki að ná þeim vopnum sem þeim eru rétt á hverjum degi til að berja á ríkisstjórninni. Þá var kjörinn sérstakur varaformaður flokksins síðla síðasta vetrar með það sem höfuðverkefni að blása lífi í starf hans,“ segir Björn og vísar til kjörs Kristjáns Þórs Júlíussonar, alþingismanns, sem 2. varaformanns flokksins.

Á maður sem sagt að trúa því að Björn Bjarnason telji nú á tímum efnahagsþrenginga og deilna um leiðir að það sem besta sem stjórnarandstaðan geti gert sé að "berja á ríkisstjórninni"? 

Hefði einhvern vegin haldið að það væri heldur að leita samstarfs við stjórnarflokkana um þau mál sem Sjálfstæðisflokkurinn teldi til framfara. Og finnst mönnum málþófið sem Ragnheiður Elín stóð fyrir hafi hjálpað Íslandi til frambúðar? Sá ekki betur en t.d. um Jólin hafi samningar um þinghlé einmitt náðst þegar hún þurfti að fara erlendis. 


mbl.is Segir Sjálfstæðisflokkinn ekki ná vopnum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðlaugur Þór - Kann hann ekki að lesa?

Sagði Björn Valur ekki að Ögmundur ætti að hafa frumkvæði að því að leita sátta, fara með málið fyrir dóm. En ef hann tapaði málinu fyrir dómi bæri honum að segja af sér.

Svo fer Guðlaugur að blanda Jóhönnu í málið. Jóhanna viðurkendi úrskurð kærunefndar sagði að sér þætti þettta mjög miður og leitaði sátta með boði um bætur. Viðkomandi kona þáði það ekki og fór með málið fyrir dóm. Það er bara allt annað en það sem Björn er að tala um.  Og konunni voru dæmdar bætur í tilfelli Jóhönnu sem voru á pari við það sem hún hafði boðið vegna sátta í málinu


mbl.is „Fer fram á afsögn Svandísar og Jóhönnu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband