Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2013

Smá innlegg í umræðu um verðtryggingu og lán.

Tekið af facebooksíðu Hjálmars Gíslasonar.

Einhverjum kann að þykja súrt að hafa árið 2001 tekið 3.5m.kr. lán sem stendur nú í 4.233.000.

Það er ekki vinsælt að segja þetta, en vísitala neysluverðs hefur farið úr rúmlega 200 (eftir því hvenær árs var) í 410,7 í dag (sjá: http://data.is/ZD4zQp ). 3,5m krónur árið 2001 jafngilda því 7,0m krónum í dag. Eftirstöðvarnar af láninu eru því um 60 prósent af láninu sem viðkomandi tók á raunvirði, sem er líklega nokkurnveginn í samræmi við upphaflega greiðsluáætlun.

Að auki: Hafi laun lántakandans þróast í takti við almenna launaþróun (sem er auðvitað mjög einstaklingsbundið) hafa þau á sama tímabili hækkað um 120% (sjá: http://data.is/ZD5ujC ) , þannig að greiðslubyrðin af láninu hefur lækkað umtalsvert sem hlutfall af launum frá þeim tíma sem lánið var tekið.

Vandinn er verðbólgan, ekki lánsformið!

 


Kosningabomba Framsóknar og fleiri að hvellspringa í andlit þeirra.

Nú síðustu daga og vikur hefur Sigmundur Davíð og félagar farið hamförum um að hér sé í gangi eitthvað ferli sem eigi að stela peningum frá þeim sem þeir ætluðu að taka af erlendum kröfuhöfum til að borga niður öll lán í landinu og gott betur. En úps það neita bara allir að þetta standi yfir. En fjölmiðlar hafa gripið þetta upp og álitsgjafar og verkalýsðleiðtogar komið með hástemdar yfirlýsingar.

Vilhjálmur Birgirsson sem hefur jú fundað með Framsóknarmönnum síðustu misseri um alla þá eintómu gleði og velsæld fyrir alla sem fylgir afnámi verðtrygginar sagði.

Hafi þeir skömm fyrir og þetta skulum við stoppa af og það með góðu eða illu. Ég skora á alþýðu þessa lands að mótmæla þessum áformum harðlega og ég trúi því ekki að stjórnvöld ætli að láta forsvarsmenn lífeyrissjóðina ganga frá samningum við þessa aðila.

Vilhjálmur segist raunar spyrja sig hvernig það megi vera að þessar viðræður eigi sér stað núna í ljósi þess að það verður kosið eftir 33 daga og ný ríkisstjórn taki við í kjölfarið.

Ef lífeyrissjóðirnir ætla að koma í veg fyrir að hægt sé að nota þetta svigrúm sem hægt er að ná í gegnum samningi við þessa hrægammasjóði til að koma til móts við skuldsett heimili þá kallar það á blóðuga byltingu í mínum huga.

Hann talaði eins og þetta væri í fullum gangi og ætti að svíkja fólk.

Síðast í nótt sagði Eygló: 

Hún sagði að framsóknarmenn hefðu áhyggjur af því að fjármálaráðherra væri kominn fram úr sér í viðræðum við kröfuhafa hinna föllnu banka.

Sigurður Ingi:

Varaformaður Framsóknarflokksins segir það stórkostlega varasamt að nota framtíðarlífeyri landsmanna til að kaupa banka, sem að margra mati eru allt of hátt verðmetnir. Með því séu erlendir vogunarsjóðir að koma gróða sínum í skjól á kostnað heimilanna og atvinnulífsins.

Og svona gæti ég rakið áfram. En úps nú hafa bæði Fjármálaráðherra og lífeyrissjóðir sagt að þessar virðræður eru ekki í gangi. Framsókn búin að búa til stóra bólu úr engu og nú eru hún sprungin. 

 

 


mbl.is Ekki í viðræðum um kaup á bönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til væntanlegra kjósenda Framsóknar - Kafli 6

Framsóknarmenn gátu ekki stutt sérstakar vaxtabætur til heimila með lánsveð! Þarna kemur grímulaus tvískinngur þeirra fram. Þau segjast í örðu orðinu styðja allt sem kemur heimilum til hjálpar en svo:

Eygló Harðardóttir sagði að þetta væri „bara plástur“ en ekki varanleg lausn á skuldavanda heimilanna. Þessir peningar dygðu kannski bara til þess að ungar barnafjölskyldur gætu „kannski keypt sér barnavagn eða bleyjur“. Þess vegna ætluðu framsóknarmenn ekki að styðja málið.

Og Gunnar Bragi. 

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins kallaði þetta dúsu sem dygði heimilunum ekki. Núna ætti að hjálpa hrægammasjóðum. Þetta væri blekking og það trúði þessu enginn.

Þetta er fólki sem sennilega verða ráðherrar hér næsta kjörtímabilið. 

Tilvitnanir teknar af smugan.is 


Fagna þessu! - Loks er hafin uppbygging á Landspítalnum!

Fyrir fólk sem er á móti byggingu á nýju húsnæði Landspítalans.

Ef fólk væri með bilaðan bíl mundi það fara með bílinn í viðgerð í gamalt fjós sem væri búið að breyta í verkstæði þar sem bifvélavirkjar gerðu við hann með hamar og meitil sem megin verkfæri?  Heldur það að hæfustu bifvélavirkjar fengjust til starfa á slíku verkstæði? Þá kannski sérstaklega ef að hæfum bifvélavirkum biðist störf við mun betir aðstæður í öðrum löndum og meira að segja hærra kaup.  
Og heldur fólk að þær viðgerðir væru viðunandi?


mbl.is Hlutafélag um nýjan spítala samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sama hvað hver segir. Ríkisstjórnin hefur náð árangri við erfiðar aðstæður.

Eftirfarandi er tekið af bloggi Egils Helgasonar:

Ríkisstjórninni tókst ekki:

Að koma í gegn nýrri stjórnarskrá. Það er reyndar nokkuð langt síðan var útséð með það – en tilraunir til að reyna að ná einhverri lendingu í stjórnarskrármálinu hafa stórskaðað Samfylkinguna. Þetta sem átti að vera sigurstund fyrir hana, virkar nánast eins og banabiti.

Að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu nema að litlu leyti. Heildarlög um stjórn fiskveiða náðu ekki fram að ganga, einungis hækkun á veiðileyfagjaldi, sem sjálfsagt lækkar aftur í tíð nýrrar ríkisstjórnar. LÍÚ reyndist sterkari en ríkisstjórnin.

Að koma Íslandi í Evrópusambandið. Eins og staðan er núna er líklegast að viðræðum við ESB verði slitið eftir kosningar.

Að endurskipuleggja fjármálakerfið í anda vinstri, félagshyggulegra, sjónarmiða.

Ríkisstjórninni tókst – að nokkru leyti:

Að standa vörð um velferðarkerfið. Það var ekki sjálfgefið á tíma bankakreppu, skuldakreppu og gjaldeyriskreppu.

Að ná tökum á efnahagsmálunum þannig að Ísland varð aftur nokkurn veginn gjaldgengt meðal þjóðanna – og fær hrós fyrir á alþjóðavettvangi.

Að halda niðri atvinnuleysi.

Að standa vörð um náttúruna –  í anda stefnu Vinstri grænna.  Sumir myndu reyndar telja þetta stöðnunarstefnu, aðrir gætu sagt að VG hafi söðlað um á síðustu metrunum með kísilmálmverksmiðju á Bakka og virkjun í Bjarnarflagi.

Svo eru það skuldamálin sem sífellt er deilt um. Það var ábyggilega óheppilegt orðalag að tala um skjaldborg um heimilin. Þetta er frasi sem hefur orðið býsna dýrkeyptur, það er auðvelt að snúa út úr honum og efast um efndirnar.

Það er náttúrlega ekki svo að ekkert hafi verið gert. Gríðarlegar fjárhæðir hafa verið greiddar út í vaxtabætur, ákveðinn kúfur var tekinn af með svokallaðri 110 prósenta leið. Það var svo ekki ríkisstjórninni að þakka, en gengistryggð lán sem höfðu tíðkast í tíð fyrri stjórna voru dæmd ólögleg.

Verðtrygging er enn við lýði, en nú eru 60 prósent nýrra lána óverðtryggð. Það þýðir að verðtryggingin er að afnema sjálfa sig – hvernig sem það á eftir að reynast.

Kosningarnar nú virðast að miklu leyti snúast um að gera meira fyrir skuldara – það á alveg eftir að koma í ljós hvernig það gengur eftir og hvort ný ríkisstjórn hefur betri úrræði en sú sem er á förum. Frammistaða hennar verður að sumu leyti dæmd af því.

 Sammála að það voru sett full viðamikil markmið í stjórnarsáttmálanum. Flótti manna úr stjónarmeirihluta hjálpaði ekki. Og skærur Framsóknar og Sjálfstæðismanna eru sennilega búin að eyðileggja Alþingi eins og við þekkjum það. Og held að þrátt fyrir vilja manna að laga þetta þá verði nokkur misseri í að menn fari að vinna þar eins og þeir ættu að gera. Þannig held ég að 26 ákvæðið verði mikið notað þ..e að fólk skori á forseta að skrifa ekki undir og safni til þess undirskriftum.  Þar er búið að opan leið fyrir minnihluta Alþingis að ráða í raun miklu um stóru átakamálin. 


mbl.is Framsókn með 28,5%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þetta er rétt hjá Framsókn þá vill ég bara fá minn hlut! 4 milljónir takk!

Ef það er rétt sem maður les úr skrifum og tali Framsóknarmanna um að hægt sé að ná í allt að 400 milljörðum frá vondu körlunum frá útlöndum, þá vill ég bara fá minn hlut.

Nú átti ég íbúðir á árabilinu 1989 til 1995. Þá var dúndrandi verðbólga og því hafa þá færst eigur frá mér til ríkisins sem ég hef aldrei fengið til baka.  Um 1995 þá hrökklaðist ég út úr seinni íbúðinni áður en ég varð gjaldþrota. Seldi hana og sat uppi með skuldir sem ég síðan hef verið að greiða niður beint og óbeint.  Síðan þá hef ég ekki átt íbúð og búið í Búsetuíbúð.  Skuldirnar eru litlar í dag kannski 1 milljón sem ég get tengt við gömlu skuldirnar mínar. Og skulda allt í allt um 2,4 milljónir í dag. En það hefur enginn hjálpað mér við þetta nema að sparisjóður og banki hafa ráðlagt mér og hjálpað mér að ráða við þetta og lifa samt ágætu lífi. 

En ef að þessar upphæðir nást hér úr úr kröfuhöfum  upp á 400 milljarða þá heimta ég að mitt heimili fái það sem okkur ber af þessari köku. Þ.e. það eru hvað um 110 þúsund heimili og því ætti upphæð á hvert heimili að vera um 3,8 milljónir á hvert þeirra.  Svona í ljósi umræðunnar síðustu misseri um flata lækkun lána þá eru það þeir sem hæstar hafa tekjur og stærstu eignirnar sem mundu fá mest af þessum upphæðum ef það þeir eru með hæstu lánin líka eðlilega þar sem þau hafa mörg hæstu tekjurnar líka.  Ég er því bara orðinn frekur líka og vill fá mína 4 milljónir af þessum tekjum sem framsókn ætlar að skaffa okkur ókeypis. Ég sætti mig ekkert við að þetta fari bara til sumra. Og kannski á kostnað eldri borgara.

Og svo vill ég að sýnt verði fram á að 400 milljarða innspýting þeirra hækki ekki hér verðbólgu, þenslu og komi hér á gríðarlegum vöxtum til að berjast gegn því.  Hefði haldið að ef að það næðist eitthvað út af krónuhengjunni ætti að minnka hagkerfið sem því næmi til að ná froðu héðan út.


Ekki lýst mér á þetta!

Svona í fljótu bragði þá sýnist mér að kosnigaloforð Framsóknar séu svona:
* Þeir ætla að afnema verðtryggingu á nýjum lánum. En bíddu það geta allir sem hafa greiðslumat til þess tekið óverðtyggð lán. Og þetta gildir ekki fyrir eldri lán.
* Þeir ætla í stríð við alla erlenda fjármagnseigendur sem eiga hér lán og inneignir og ætla að græða á því nóg til að lækka öll lán. Þeir ætla um leið að fá hingað erlenda fjárfestingu.
* Þeir ætla að virkja m.a. í Þjórsá þó að engin sé enn til í að kaupa um 200 mw sem eru nú þegar ónotuð í kerfinu.
* Þeir ætla að auka veiði umfram ráðleggingar og festa kvótann óbreyttan til framtíðar.
* Þeir ætla að lækka hér skatta á fyrirtæki
* Þeir ætla að auka heilbrigðisþjónustu um allt land og skv. ræðum þeirra koma öllum sjúkrahúsum til fyrri tíma.
* Þeir ætla að hafa hér krónu og telja lítið mál að koma samt á stöðugleika.
* Þeir ætla að standa vörð um bændur með tollkvótum og takmörkun á innflutningi á matvöru. Allt á kostnað neytenda. Þannig standa vörð um hagsmuni 5% þjóðarinnar á kostnað okkar hinna.
* Þeir ætla samt um leið að auka matvælaframleiðslu til útflutnings þó að við séum með kvóta við flest lönd og ofurtolla á þessar vörur í flestum löndum þannig að þær eru ekki samkeppnishæfar.
 Er nema von að ég hafi ekki trú á því að það séu bjartir tímar framundan. Þetta er svo langt frá því að vera raunhæft.

Smá viðbót. 

Það er eins og kjósendur haldi að Framsókn ætli að taka verðtryggingu af þegar teknum lánum. Svo er ekki. Þeir hafa einmitt sagt að þetta eigi bara við ný lán. Það sé eins og fleiri hafa sagt að um þegar tekin lán gilda ákvæði í stjórnarskrá sem banna það að ríkð fari í löglega samninga og færi þá með lögum niður.  Þannig að ef fólk hugsar málið þá getur það í dag tekið óverðtryggð lán. Það er flestir bankar sem bjóða þau. Þau eru með 7 til 8% óverðtryggðum vöxtum í dag og svo breytilegir vextir á lánstíma. Þaðan sem bankarnir munu sækja verðbólguáhrifin þ.a. með því að hækka vexti ef verðbólga er há of fólk þarf þá að staðgreiða hækkuniinna.  Svo ég sé ekki hvað þetta virðist skipta fólki máli nú í dag þegar það getur hvort eða er tekið þannig lán. Það engin að tala um að lán sem fólk hefur þegar tekið verði tekin og endurreiknuð aftur í tíman óverðtryggt.  Framsókn er hinsvegar að boða að þeir ætli að finna peninga til að lækka lán þeirra sem tóku lán frá 2006 til 2008 aðallega. Dreymir um að þeir geti náð í þetta af kröfuhöfum bankana. Sem mér finnst ótrúlegt þar sem þeir eru jú varðir af stjórnarskrá einnig. Þannig að allar líkur eru á að þetta verðum bara við sem borgum þessa leiðréttingu með sköttunum okkar eins og allt annað. Hvort sem fólk skuldaði fyrir eða ekki. 


mbl.is Framsóknarflokkurinn stærstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamál nýju framboðana!

Held svona af reynslunni af þessum nýju framboðum sem eru að reyna að koma sér á koppinn nú um stundir að nokkur atriði séu lágmark.
  • - Það er ekki hægt að stofna flokk og ætla sér að sameinast bara um eitt mál. Að vinna á Alþingi er ekki bara eitt mál og ef menn ætla að vinna saman sem heild þýðir ekkert að þeir ætli sér að hver og einn hafi svo bara sína hentisemi. Það gengur ekki upp og verður til þess að uppúr slitnar jafnvel fyrir kosningar

  • - Það gengur ekki að það séu nokkrir menn sem komi saman og safni einhverjum sem hafa Alþingismanni í maganum, en hafa í raun engan sérstakan áhuga á þeim málum sem viðkomandi hópur er að vinna að. Og í raun að verið sé að smala á lista svo að þeir sem upprunalega datt þetta í hug komist á þing.

  • -Það er allt í lagi að hafa ríka trú á einhverri hugmynd eða lausn en það verður þá að tryggja að hún sé framkvæmanleg. Og hún sjaldnast réttlætir að heilum flokki sé komið á til að framkvæma hana ef að menn hafa ekkert um allt hitt sem kemur til kasta Alþingis að segja. Það er ljóst t.d. að framboð sem er bara á móti ESB en hefur ekkert annað raunhæft til málana að leggja annað en að copera bara það sem aðrir eru að segja inn í stefnu sína hafa ekkert að gera á Alþingi því að þegar eru þá aðrir með þessa stefnu sem eru kannski búnir að vinna betur að sínum málum.
Sýnist svona í fljótu bragði að um 90% af litlu framboðunum séu þannig. Sbr. að í dag er maður að átta sig á að Flokkur heimila er víst hægri flokkur. Þeir hljóma ekki þannig? Lýðræðisvaktin beitti furðulegum aðferðum við að velja á lista. Þeir Lýðræðisflokkurinn gátu ekki einu sinni boðað til fundar félagsmanna til að samþykkja lista heldur var þetta uppstillingarnefnd sem skilaði tillögum sem stjórn flokksins breytti að vild. Hvaða lýðræði er það? Og svo framvegis.

Jú Bjarni það hafa margir gert! Þ.e. skattlagt sig út úr kreppu.

Finnar t.d. eftir seinni heimstyrjöld skattlögðu auðmenn til að komast út úr kreppu sem þeir voru í þá. Í flestum löndum sem hafa gengið í gengum kreppu hafa verið hækkaðir skattar. Því það er annað hvort að gera það eða skera niður alla opinbera þjónustu. Bjarni hlýtur að vita að hún er rekin af skattfé. Og þegar tekjur fólks rýrna og skatttekjur með þá er skorið niður eins og hægt er en annars verður að finna tekjustofna ef að ekki á að ganga af henni dauðri.  Bendi t.d. á Kýpur, Spán, Grikkland og allar þjóðir sem eru að ganga í gengum kreppu þær eru að hækka skatta. Ekki alla en samt. Eins er Obama að berjast fyrir nýjum sköttum á hæsta tekjuhópinn. 

Finnst að svona vitlausum frösum eigi að svara með að sérfræðinga bara skoði hvernig aðrar þjóðir bregaðst við. Hef engan áhuga á að Hannes Hólmsteinn og Bjarni Ben ljúgi bara einhverjum hlutum að okkur sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. 

 


mbl.is Enginn skattlagt sig úr kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ályktun Alþingis um viðbrögð við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis frá 2010

 
alyktun_althingis.jpg
Mynd fengin að lán á facebook
 

 Svona til að byrja með þá var þetta samþykkt 63 -0. En síðan má segja að Framsókn og Sjálfstæðismenn hafi barist gegn nær öllum þessum atriðum sem þarna eru sett upp. 

  • Fólk veit alvega hvernig þessir flokkar láta í stjórnarskrár málinu
  • Menn hafa heyrt Sjálfstæðismenn tala um það fari allt of mikill peningur í eftirlitsstofnanir og Framsókn tekði undir það.  
Og skv. þessari ályktun þá hafa hvorki Framsókn né Sjálfstæðisflokkur leyfi til að tala um að ekki verði unnið að endurskoðun á stjórnarskrá á næsta kjörtímabili og í raun ekkert leyfi til að stoppa þá vinnu sem nú er í gangi því þetta er í ályktun sem samþykkt var á Alþingi og hún gildir yfir kjörtímabil.
mbl.is Enginn þingfundur á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband