Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2014

Kjósendur góðir! Flokkarnir ykkar kjósa sig ekki sjálfir!

Allir út á að kjósa! Það verður hræðilegt ef að flokkar sem þið viljið ekki við völd komast að af því þið mættuð ekki til að kjósa!

 

lelegir.jpg

 


Nokkur góð ár án Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi! Er það til ofmikils mælst?

Af hverju að kjósa Samfylkinguna í Kópavogi ?

Finnst nauðsynlegt að fólk muni það að síðustu ár hefur Samfylkingin ásamt fleirum tekið nokkra slagi í bæjarstjórn Kópavogs sem hafa leitt til þess að hlutir hafa færst til betri vegar.  Allir Kópavogsbúar hljóta að muna eftir spillingarorðinu sem lág yfir Kópavogi. Við munum öll eftir fjölmiðlaumræðum þegar Samfylkingin hefur bent á tengsl t.d. velunnarra Sjálfstæðisflokks sem fengu án mikilar fyrirhafnar lóðir og verk í Kópavogi. Fyrirtæki jafnvel kjörinna fulltrúa fengu að margra mati óeðlilega mikið af verkum án útboða. Og jafnvel fjölskyldur kjörina fulltrúa fengu óeðlilega mikð af ýmsum verkum og úr varð mikil fjölmiðlaumræða. Þeir sem fóru fremstir í flokki Samfylkingarinnar þurftu að taka á sig hreinlega hatur frá Sjálfstæðismönnum og orðbragðið var ekki vandað í garð þeirra. En þau stóðu það af sér! Jafnvel málaferli!

 

Með því að vera dugleg að benda á þettta virðast ríkjandi flokkar láti að mestu af þessu og ekki þorað að hverfa til baka. Enda fundu þeir fyrir þessu í kosningunum 2010.

 

Samfylkingin ásamt fleirum tók við bænum þegar hann var næstum gjaldþrota 2010. Lögðust i mikla tiltekt sem Sjálfstæðismenn ásamt hækjum sínum hrósa sér nú af.

 

Ég má ekki til þess hugsa að sjálfstæðismenn og framsókn fái góða kosningu aftur og hverfi til fyrri iðju að hygla ættingjum og vinum. 

 

Því held ég að fólk ætti að horfa til fyrri kjörtímabila þegar Sjálfstæðismenn og Framsókn réðu hér um áratugi og muna hvernig þetta var hér í bæ.  Þegar að aðalmetnaðurinn var að þenja út bæinn minnir að þeir hafi verið farnir að láta sér dreyma um byggðir upp í Lækjabotnum. Byggðu iþróttahallir eða þurftu að taka þær fyrir vegna gjaldþrota ævintýramanna. Keyptu ónýt hesthús á okurvirði til að redda fjárfestum og svo mætti lengi telja. Fólk ætti að muna  að þetta skildi bæinn eftir i skuldasúpu!

 

Held að það sé Samfylkingunni að þakka að hér hefur þó orðið betri stjórnsýsla og vinum er ekki hyglað eins og var.  Þau hafa verið óhrædd að taka slagin og náð árangri.

 

Framsókn og Sjálfstæðismenn hafa sýnt það í kosningabaráttu sinni að þeir hafa engar hugmyndir varðandi velferð bæjarbúa heldur þurfa að fá þær lánaðar frá stefnskrá Samfylkingarinar.  Öll þeirra sýn snýst um að halda völdum og byggja bæinn upp í fjöll!

 

Er þá ekki betra að kjósa flokkinn sem er þó með frumhugmyndirnar

 

Ég set X við S


Hugmyndasnauðir Sjálfstæðismenn - Kosningabaráttan í Kópavogi kafli 2

Í fyrri færslu fjallaði ég um að Framsókn í Kópavogi hefði stytt sér leið varðandi kosningastefnuskrá sína og bætt við hana nærri því beint frá Samfylkingu þegar þeir sáu að ekki dugði að bjóða Kópavogsbúum bara að þeir ætluðu sko að tryggja að Sjálfstæðisflokkurinn héldi hér völdum.  Því er ekki úr vegi að fjalla aðeins um Sjálfstæðisflokkinn og kosningabaráttu hans!

Nú Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið sömu leið og Framsókn. Svona um það bil þegar hann fattaði að bæjarbúar væru ekki ginkeyptir fyrir að nýjar lóðir og flott íþróttarhús væru það sem væri nauðsynlegt til að auka lífsgæði þeirra sem þegar búa í Kópavogi. Sérstaklega þar sem nær allar íbúðir sem byggðar hafa verið í Kópavogi síðustu ár og áratugi hafa verið langt fyrir ofan kaupgetu þeirra sem ekki eru með mjög há laun og sérstaklega þeirra sem eru að kaupa í fyrsta skipti. Fólk vill fá stuðning við börnin og þétta innviðina m.a. þjónustu við aldraða. 

Eins og með Framsókn er hægt að fara yfir það að þeir hófu kosningabaráttunna og kynningu á henni og þegar þeir fengu ekki nægar undirtektir þá fóru þeir að tíma upp atrið úr stefnuskrá Samfylkingarinnar a.m.k. hef ekki skoðað hvernig þeir nýttu sér stefnu annarra flokka. 

Þannig hafa Sjálfstæðismenn um árabil lagst gegn því að frístundakort/styrkir til barna væru hækkaðir eða nýta mætti þá í fleiri en eina grein en viti menn - Síðustu vikur hefur þetta þróast hjá þeim úr að fjalla ekkert um það í að það þurfi að endurskoða þá! Og svo hefur þetta þróast áfram í það að nú eru þeir komnir upp í 54 þúsund svona til að toppa Samfylkinguna! Auðvita ágætt að menn vakni en er þetta trúlegt þegar flokkar hafa verið við völd í áratugi og ekki viljað breyta þessu í a.m.k. áratug. 

Eins gæti ég sýnt ykkur dæmi um þegar sjálfstæðismenn gleypa upp leiðir Samfylkingar við að kynna sig fyrir kosningar. Þannig koma þeir með sömu viðburði og videó alltaf nokkrum dögum eða vikum eftir að Samfylkingin hefur framkvæmt eitthvað.  Ég sýndi þetta í fyrri færslu með Framsókn og þetta er alveg eins. 

En lengst ganga þeir í að stela leturgerð sem Samfylkingin notar í öllum sýnum gögnum og hefur gert síðan 2013 m.a. man ég að það byrjaði á landsfundi. Þetta er sérstök leturgerð og það vekur furðu mína að Sjálfstæðisflokkur hafi ekki meira hugmyndaflug  en þetta.

 

_n_titils.jpg
 
 
xdrastr.jpg
 
Kópavogsbúar varist eftirlíkingar!
 

 

 


Þetta er dálítið fyndið!

Veit ekki betur en að Ómar Stefánsson hafi nú síðasta misseri haft allt á hornum sér gagnvart þeim meirihluta sem hann er í. Þetta vitum við sem hlustum reglulega á bæjarstjórnafundi í Kópavogi. Og annars höfum við ekki heyrt í Framsókn í rúm 2 ár. Jú þegar þeir vildu kanna hvort breyta ætti Kópavogsbæ í borg og setja Silung í Kópavogslækin. 

Eins er þetta fyndið þegar við horfum til þess að þessi trausti meirihluti þeirra og Sjálfstæðismanna sigldu Kópavogi nærri í þrot 2009 eftir meira en 2 áratugi við völd.  Kópavogur á kafi í skuldum og mest af þeim komnar til vegna þess að fulltrúar Sjálfstæðismanna og Framsóknar fengu mikilmennskubrjálæði og stóðu í ótrúlegum lóða og braskæfingum.  Þetta eiga Kópavogbúar að vita.

Þetta heitir á mannamáli að þeir eru að lofa sama meirihluta áfram og í raun að þeir styðji Sjálfstæðisflokkinn áfram. Því þeir hafa um árabil verið hækja hans. 


mbl.is Snýst um traustan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndaskortur Framsóknar í Kópavogi! - Kosningabaráttan í Kópavogi kafli 1

Eins og ég hafði boðað í fyrra bloggi ætla ég að fjalla um ótrúlegt hugmyndaleysi sumra flokka í Kópavogi. Byrjum á Framsókn. Það er nokkuð ljóst að þeir hafa í stað þess að vinna að sínum hugmyndum um stefnu og markmið fyrir Kópavog, sparað sér sporin og þess í stað bara lesið efni sem hefur komið frá Samfylkingunni og coperað það eða reyna að toppa það.

Kíkjum á dæmi. 

Í byrjun mars þá birtist grein eftir oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi þar sem hann talaði um Betri Kópavog sem síðar varð slagorð og stefna Samfylkingarinnar í Kópavogi.  t.d. má nefna þessa grein: 

betri_kopavogur.jpgOg síðar hefur allt efni frá Samfylkingunni sem ég hef séð verið merkt þessu slagorði

Framsókn var ekki að flækja hjá sér málin. Höfðu reyndar gefið út flokksblaðið sitt Framsýn í apríl þar sem  þar sem ekkert slíkt stóð. En allt í einu í mái fara þeir að birta auglýsingar og slagorð þar slagorðið þeirra er. X B fyrir ennbetri Kópavog.  Ekki voru þeir að leita langt heldur stunda það sem þeir eru vanir að toppa allt hugsunarlaust sem aðrir segja og treysta á að fólk gangi ekki á þá um hvernig þeir hafa unnið skv. þessu t.d. á kjörtímabilinu. Hvar er þeirra árangur?

 

 

 betrikop.jpg

 

 

ennbetri_kopavogur.jpgHér sjáið þið svo hvernig Framsókn auglýsir nú í Maí Eins foringi, einn flokkur og svo toppum við Samfylkinguna því við höfum aðeins hugmyndir um að breyta nafni Kópavogsbæ í borg, silung í Kópavoglæk og svo smá læti í lok tímabilsins til að sýna eftir veru okkar í meirihluta síðustu tæpu 3 árin. Og svo 20 ár þar á undan. 

 

Eins þá er vert að velta fyrir sér öðru úr kosningabaráttunni áður en fjallað er nánar um stefnumálin hjá Framsókn

Nú skulum við aðeins kíkja á videó. Samfylkingin hóf 15 maí að birta á youtube stutt grínmyndskeið með frambjóðendum. Sem ekkert framboð hafði gert áður. En viti menn um 3 dögum síðar byrja Framsóknarmenn á því sama. Hér er held ég fyrsta myndband frá Samfylkingu

Hér má svo sjá nokkrum dögum seinna að Framsókn vaknar og fera að gera svipað

https://www.facebook.com/photo.php?v=641311039277904&set=vb.605178106224531&type=2&theater  Vildi síður birta það enda styð ég þau ekki þannig að þið kíkið bara á hlekkinn. 

 Kíkjum nú aðeins og á stefnumálin.  Samfylkingin samþykkti stefnuskrá sína fyrir komandi kosningar 14 apríl og birti hana á heimasíðu sinni þann 22 apríl!  Þar skulum við taka nokkur dæmi um vinnu framsóknarmanna.

Í stefnuskrá Samfylkingarinnar segir:

„Hækka frístundastyrk á árinu 2015 í 30.000 krónur. Hvert barn á aldrinum 5 – 18 ára í Kópavogi fái frístundastyrk til íþrótta, tómstunda eða listnáms, óháð fjölda greina. Á kjörtímabilinu skal stefnt að því að frístundastyrkur verði 50.000 krónur á ári.”

 

 

Framsókn hafi ekki minnst á þetta í sínum ritum fram að þessum tíma. Þeir höfðu talað um Íþróttabæinn Kópavog en ekki um styrki til annars frístundastarf. En úps. eftir að fréttir fóru að birtast af þessu kosningamáli Samfylkingarinnar þá fóru að birtast fréttir og auglýsingar þar sem Framsókn lofar hækkun á frístundastyrk upp í 40 þúsund og fjölga þeim greinum sem eru styrkhæfar. Höfðu ekkert hugsað um þetta áður. Og kannski verst er að Framsókn hefur verið við völd í Kópavogi með smá  hlé vegna hruns bæjarins í 2 ár meðan var tekið til eftir þá og vini þeirra.  Og um frístundastyrki má segja að þeir sem hafa fylgst með í Kópavogi vita að þessir styrkir hafa verið veittir hér í Kópavogi í hvað um 10 ár. Ítrekað hefur verið lagt til að þeir yrðu bæði hækkaðir og gætu nýst t.d. í við iðkun fleiri en einnar greinar og fleiri greinar væru styrkhæfar. En Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hafa allaf fellt þetta. 

En nú skv. skrifum Framsóknar er þetta orðið forgangsmál hjá þeim 

http://kfrettir.is/40-thusund-krona-fristundarkort-kopavog/

Samfylkingin segir í stefnuskrá sinni:

Samfylkingin í Kópavogi mun stofna öldungaráð sem skipað verður fulltrúum frá hinum ýmsu samtökum aldraðra í Kópavogi. Öldungaráðið á að vera ráðgefandi við öll málefni sem snerta málefni eldri borgara og getur komið með tillögur um úrbætur og skipulag mála til bæjarstjórnar.

Framsókn stelur þessu nærri orðrétt og segir:

oldungara.jpg Og hafa síðan bætt um betur. En úps ekki orð um þetta á kjörtímabilinu sem er að ljúka og ekkert um þetta fyrr en þeir lásu þetta hjá Samfylkunni. 

 

 

 

 

 

  En nú er ég hættur að velta mér upp úr Framsókn! Þeir hafa sýnt sig sem hugmyndasnauður flokkur í Kópavogi. Hafa um árabil verið hækja Sjálfstæðisflokks og virðast ekki hafa neinar hugmyndir heldur þrífast á að taka loforð annarra og nota þau án þess að hafa hugsa eitt einasta mál til enda. 

 Sjá fyrstu færslu mína um þett mál


Furðuleg kosningabarátta í Kópavogi

Búinn í morgun og gær liggja yfir kosningabaráttunni í Kópavogi sem hefur nú reyndar ekki farið hátt í umræðunni. Það er reyndar furðulegt í ljósi þess að hér um næststærsta sveitarfélag landsins! Og nú skil ég betur af hverju ekkert heyrist af baráttunni.  Það sýnist sem að a.m.k. þeir 2 flokkar sem eru í meirihlutanum nú hafi tekið upp þau vinnubrögð að skoða hvað Samfylkingin leggur til og toppa það svo eða a.m.k. jafna nokkrum dögum síðar.  Svo langt gengur þetta að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur nota sömu aðferðir. Allt upp í það að nota sömu leturgerð í slagorðin.  Hér síðar í dag mun ég sýna fram á hermikeppni þessara flokka.

t.d. mun benda á:

Samfylking byrjaði fyrst á að tala um "BETRI KÓPAVOGUR"

Framsókn toppaði það með "ENN BETRI KÓPAVOG"

 

Verð að segja að mér finnst þetta ódýrt. Það er eins og vinnufundirnir hjá þessum flokkum snúist um að skoða allt sem Samfylkingin er að setja fram sem stefnumál í Kópavogi og a.m.k. jafna það eða toppa. 

Ég mun síðar í dag sanna þetta með skjáskotum sem ég er að safna mér og tímasetningum. 

En Kópavogsbúar þurfa þá að hugsa um hvort þau vilja kjósa flokka sem hafa ekki hugmyndaflug til að leggja fram nein mál fyrir velferð Kópavogsbúa nema að fá þau að láni frá öðrum. Og Samfylkingin getur þá eftir kosningar hugsað um það að fyrir utan bæjarfulltrúa sem þau fá kosin þá lögðu þau línurnar fyrir aðra flokka í bænum. Er ekki betra að kjósa frumgerðina heldur en þá sem kópera bara það sem aðrir leggja til 

En ég skal sýna ykkur þetta nánar síðar í dag (og morgun hugsanlega)

Kafli 1 Framsókn


mbl.is Skipta verður um meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn að bjóða sig fram sem hækju í Kópavogi!

Síðustu daga hef ég heyrt auglýsingu frá Framsókn í Kópavogi  sem vekur mér furðu. Hún er eitthvað á þessa leið:

XB fyrir tryggan meirihluta í Kópavogi

Svona ef ég skil þetta rétt eru þeir að óska eftir því að fá að vera hækja Sjálfstæðismanna næsta kjörtímabil eins og þeir hafa verið hingað til!


Bestu kostirnir fyrir kjósendur í Kópavogi!

Búinn að skrifa nokkur blogg um hvaða flokka ég ætla ekki að kjósa í Kópavogi sem má sjá hér á undan.  Flestir vita náttúrulega hvað ég ætla að kjósa en ég ákvað það sem ekki fyrr en bara fyrir nokkrum vikum endanlega!  Nú ætla ég klára þessar pælingar:

Þegar Björt framtíð tilkynnti framboð sitt fannst mér það áhugavert þar sem ég átti erfitt með að sætta mig við ákveðin atriði varðandi val á lista í Samfylkingunni. En þegar ég fór að heyra af því að slatti frambjóðenda væri af gamla Y listanum (Listi Kópavogsbúa) sem fór hamförum hér á miðju kjörtímabili þegar samstarf þá verandi meirihluta sprakk og gekk svo í samstarf við fyrri meirihluta Framsóknar og Sjálfstæðismanna fékk ég andúð á því fólki sem stóð að því framboði þar sem þau gengu gegn öllu sem þau höfðu lofað. Þannig að Björt framtíð er út úr myndinni hjá mér og ég sé líka að stofnandi Y listans sjálf ætlar ekki að kjósa þetta fólk Sjá hér

Oddviti Y- listans vildi ótrúlega fljótt í samstarf við fyrrverandi meirihluta, þrátt fyrir að fyrsta loforð listans yrði svikið.  Okkar prinsipp sem fólk kaus okkur útá var þverbrotið, þ.e. óplitískur bæjarstjóri. Helmingur listans sagði nei en hinn helmingurinn með nokkra meðreiðarsveina fór með oddvitanum, þrátt fyrir að hafa hafa sent yfirlýsingar í tölvupósti um að öll okkar prinsipp væru brotin og það væru svik við kjósendur að endurreisa gamla meirihlutann.  Það var greinilega gott að fara í vel greiddar nefndir. Hluti þeirra sem endurreistu gamla meirihlutann  er nú í fremstu röð á lista Bjartrar framtíðar og eru að mínu mati því „úlfar í sauðagæru“ á þeim lista.

Þannig að þá er Björt framtíð í Kópavogi komin af listanum hjá mér. 

Næstbesti flokkurinn. Þar fer Hjálmar Hjálmarsson fremstur í flokki og með m.a. fólk af erlendum uppruna  með sér á lista sem er flott. Hann hefur unnið ágætlega í bæjarstjórn og vakið athygli á ýmsum málum en ég get bara ekki sætt mig við að hann fór gjörsamlega á taugum þegar að segja átti bæjarstjóra upp störfum þar sem fólk var ekki ánægt með störf hennar og átti því stóran eða stærsta hlut í að meirihlutinn sprakk þarna 2012 og kom fyrri flokkum aftur til valda. 

Því er Næstbesti ekki möguleiki fyrir mig.

Um Framsókn þarf ég ekki að ræða því allir vita hug minn til þess flokks. Fulltrúi hans hefur á þessu kjörtímabili helst unnið sér til afreka svona fram á síðustu mánuði að hann gerði samning við fráfarandi Bæjarstjóra þega hann tók við sem tryggði henni full laun í tæp 2 ár við að gera ekkert! Og svo vill hann silung í Kópavoglæk, breyta Kópavogbæ í borg og banna reykingar í bændum.  Svona það helsta sem hann hefur lagt til.

Held ég sé búin að fjalla um alla flokka nema Samfylkingu og Vg og félagshyggjufólk. Ég get skilið og mælt með að fólk kjósi þessa 2 flokka fyrir Kópavog. Ólafur Þór og fólk sem er með honum á lista er held ég gott og öflugt fólk. Enda margir komnir þangað nú frá Samfylkingu. 

En ég kýs Samfylkinguna! Það sem höfðar til mín er ákveðin endurnýjun á forystunni þó ég hefði kosið að hún yrði valin örðuvísi þá ákvað félagsfundur að þessi leið yrði farin og ég var ekki á þeim fundi og sætti mig því við það. Þarna er hópur fólks sem starfað hefur vel inni í félaginu og í nefndum og ráðum bæjarins og þekkir því vel til. Þarna eru líka Kópavogsbúar sem haf ekki komið beint að starfinu áður en eru brennandi í baráttu fyrir betri Kópavogi. Og því er það niðurstaða mín engum á óvart að kjósa Samfylkinguna í Kópavog um næstu helgi. 


Er þetta ný auglýsing frá Framsókn?

Mannætumúslímar ætla að byggja sovétmosku í Húsdýragarðinum
Svona mun moskan pottþétt líta út.

Öfgasinnaðir mannætumúslímar hyggjast byggja risavaxna sovétmosku í miðjum Húsdýragarðinum í sumar, verði ekki tafarlaust gripið í taumana.

Þetta fullyrða samtök umburðarlyndra rólu- og flugvallarvina (URF) sem vilja koma í veg fyrir byggingu moskunnar.

„Þeir ætla að hreiðra um sig þarna og gelda öll litlu dýrin og starfsmennina í Húsdýragarðinum. Síðan taka þeir þeir til við að lokka íbúa í nágrenninu inn í blokkina og éta þá. Sannið þið til,“ segir talsmaður URF.

Hann telur víst að fleiri sovétmoskur muni fylgja í kjölfarið „með tilheyrandi mannáti, gæludýrageldingum, bænakvaki, blokkapartýum og almennum múslímakommúnisma,“ eins og það er orðað.

Nei úps þetta var þá baggalutur.is sem ég var að lesa. En óþægilega nálægt málflutningi Framsóknarflokksins í Borginni. 


mbl.is Sterkari í kosningum en könnunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki kjósa Framsókn, eða Sjálfstæðisflokkinn..

Maður verður að setja inn málefnalegar færslur öðruhverju!

 

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband