Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2014

ESB er málið!

Bara varð að setja þessa færslu inn því það hefur verið frekar dauft yfir þjóðernisrembum og besservissum hér á blog.is síðustu vikur

 

esb_1238220.jpg

 


Eitthvað rímar þetta illa við það sem Heimssýn og Páll Vilhjálmsson hafa verið að segja!

Skv. Heimssýn og bloggurum á þeirra línu er Bretlands rétt um það bil að kveðja ESB! En úps:

 Sam­kvæmt könn­un­inni eru nú 44% Breta hlynnt ver­unni í Evr­ópu­sam­band­inu en 36% henni and­víg. Þetta mun vera mesta fylgi við áfram­hald­andi veru í sma­band­inu frá því í sept­em­ber 2010.

Hvernig væri svo að menn sem eru andvígir samvinnu okkar við önnur lönd reyndu nú að segja okkur rétt frá. SKv. því þetta lið hér hefur verið að blása yfir bloggið og fleiri staði var svo yfirgnæfandi Brata sem vildu ekki vera í ESB áfram að þetta væri bara spurning um dagsetningu á brotför.  Og þeir hafa komist upp með að ljúga þá sem ekki nenna að kynna sér málin fulla um þetta mál. 


mbl.is Fleiri vilja vera áfram í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin bjargar laxveiði!

Hélt að svona hefði nú hætt eftir hrun. Fyrri ríkisstjórn var með siðareglur sem bönnuðu svona. En Bjarni og Sigmundur Davíð ætla að fórna sér og þiggja veiði í rándýrri á. Sbr.

For­sæt­is­ráðherra og fjár­málaráðherra hafa báðir þegið boð um að opna Norðurá á fimmtu­dags­morg­un. Sölu­stjóri Norðurár seg­ir það til fyr­ir­mynd­ar og til þess gert að breyta til batnaðar ímynd­ar­vanda sem laxveiði á Íslandi hef­ur glímt við eft­ir hrun í hag­kerfi þjóðar­inn­ar.

Og svo þetta óborganlega:

Hann seg­ir að laxveiðin hafi verið kom­in með ímynd bruðls og óhófs en því ættu Sig­mund­ur Davíð og Bjarni að geta breytt með nær­veru sinni.

Hélt fyrst að þetta væri óvart frétta af baggalutur.is sem mbl.is hefði tekið sem raunverulega fyrir mistök.

 


mbl.is Ráðherra að bæta ímynd laxveiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veit Sigmundur Davíð ekkert hvað flokksfélög hans eru að gera? Held að hann viti það alveg!

Eftirfarnandi var haft eftir Guðfinnu sem var númer 2 á lista framsóknar á kosninganótt:

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, önnur kona á lista Framsóknarflokksins og flugvallavina, segir að borgarstjórnaflokkur Framsóknarflokksins muni leggja til að lóðaúthlutun til byggingar Félags múslima á Íslandi verði dregið til baka komist flokkurinn í borgarstjórn.

Svo hann getur ekki falið sig bakvið að þær væru bara að opna á umræður! Þetta var eitthvað sem var ákeðið í flokknum og mundi standa til ef flokkurinn kæmist í aðstöðu til þess. Alveg sama hvað Sigmundur reynir að ljúga sig út úr þessu. Og þetta er ekki að koma einhverri umræðu af stað, heldur er þetta að draumur þeirra var að múslimar einir trúarbragða yrðu sviptir lóð sem var búið að úthluta þeim fyrir nokkrum árum eftir um 14 ára vandræðagang. Lóð sem engin hefur viljað vegna mengunar af hraðbrautum. Um 800 fm hús með 9 metra turni sem er lægri en ljósastaura almennt. 

Sjá t.d. hér http://kvennabladid.is/2014/05/28/er-thetta-framsokn-framtidarinnar/


mbl.is Sigmundi Davíð misboðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband