Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2015

Hvernig er hægt að taka svona bloggara alvarlega!

Var að lesa blogg eftir Jón Val Jensson áðan eftir að hafa rekist á tengil á það á facebook. Þar segir hann:

Samanlagt fylgi Samfylkingar (5,2%), VG (0,7%) og Bjartrar frt. (0,6%) í 1187 manna könnun á vef Útvarps Sögu, sem birt var í dag, var 6,5%, en með Pírötum (9,6%) 16,1%. Framsókn og flugvallarvinir slógu öllum við með 401 atkvæði eða 33,8%. Sjálfstæðisflokkur var með 24,4% (ríkisstjórnin þannig með traustan meirihluta), en næststærsti hópurinn var þó sá, sem var síðasti kosturinn sem menn gátu merkt við: "Annað", með 305 atkvæði, 25,7%.

Vinstri menn verða eflaust fljótir að vefengja þessa skoðanakönnun eins og fleiri sem sýna fráhvarf fólks frá vinstrimennskunni.

Finnst honum það skrítið að einhver véfengi svona niðurstöðu?  Til að byrja með er þetta ekki skoðanakönnun sem slík heldur frekar flipi á síðunni hjá Útvarpi Sögu þar sem að menn geta leikið sér að vild að greiða atkvæði á netinu. Fann t.d. könnun þar sem gerð var rétt fyrir síðustu kosningar til borgarstjórnar og þar voru um 41% fylgi við að Sveinbjörg Birna yrði Borgarstjóri. Eins þá finna könnun fyrir síðustu kosningar þar sem að Samfylkingin átti að fá 5% og Framsókn 33,8%.

Þessi maður bloggar út í eitt um hvað ESB séu vondir, vinstri menn séu vondir, hvað múslímar séu hræðilegt fólk og hvað kristni er góð. Og vitnar því til stuðnings í margar áttir en held að menn sem nýta könnun á vefsíðu Útvarps Sögu sem heimild um stöðu mála séu bara gjörsamlega ómarktækir.


Nú er Sigmundur Davíð kominn í lið með okkur sem viljum flytja flugvöllinn!

Helstu rök manna fyrir að Reykjavíkurflugvöllur eigi að vera þar sem hann er og alls ekki megi hrófla við honum hafa verið varðandi sjúkraflug og nálægð flugvallarins við sjúkrahús. Það er því undrun að Forsætisráðherra og formaður Framsóknar  blæs á þau rök. Og nú væri kannski rétt að skoða að byggja nýja spítala á Vífilstaðasvæðinu eða jafnvel í nágreni IKEA og svo flugvöll í Hvassahrauni!

Sigmundur Davíð segir á RUV:

Ódýrara og fljótlegra að byggja annars staðar

Sigmundur Davíð lýsti annarri skoðun í Kastljósi kvöldið áður. Þá sagði hann að það gæti verið miklu ódýrara og hraðvirkara að byggja nýjan hátæknispítala frá grunni á nýjum stað heldur en að tjasla upp á gamlar byggingar í miðbænum og púsla við þær. „Ég hef lýst þeirri skoðun minni og það hafa margir fleiri gert að ýmis rök mæli með því að menn byggi bara nýjan flottan hátæknispítala frá grunni á betri stað. Með betri stað á ég við stað sem liggur betur við samgöngum, er meira miðsvæðis, býður upp á meiri þróunarmöguleika og svo framvegis," sagði Sigmundur Davíð í Kastljósi. „Hins vegar er það eitthvað sem ég nefndi til sögunnar og aðrir hafa nefnt líka sem leið sem menn ættu að fara út í ef þeir sæju fram á að með því væri hægt að gera hlutina hraðar og á hagkvæmari hátt. Ekki til þess að tefja framkvæmdir eða gera þær dýrari," sjá hér

En þetta er dálítið spaugilegt í ljósi þess að framsókn er jú í samstarfi við flugvallarvini í Reykjavík.


Hvað á maðurinn við?

Sigmundur Davíð segir:

Það væri var­huga­vert ef Evr­ópa send­ir þau skila­boð að til að fá aðstoð þurfi flótta­menn að leita ásjár glæpa­hópa og leggja sig í lífs­hættu við að reyna að sigla til Evr­ópu eða kom­ast eft­ir öðrum hættu­leg­um leiðum. Geri menn það geti þeir átt von um aðstoð en ella búi menn við hörmu­leg­ar aðstæður og svelti jafn­vel í flótta­manna­búðum.

Er hann þá að segja hvað? Reka þessi 200 þúsund til baka?  Hvernig á að senda fólki sem þegar er farið að streyma til Evrópu að þeim sé hollast að halda sig heima. Er hann að skammast sín fyrir að hafa ekki hjálpað til í fóttamannabúðum þarna í kring um Sýrland fyrr?  Nú eða hvað er eiginlega verið að segja. Kannski að við ættum ekki að gera nokkuð? Þannig að fólki detti ekki í hug að koma hingað?


mbl.is Talan 50 var aldrei föst í hendi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlaði ekki að blogga um þetta mál en er Kjartan ekki aðeins að rugla!

Ég er ekki að draga úr því að það þarf náttúrulega alþjóða aðstoð í flóttamannabúðum í löndum í kring um Sýrland. En held að á styrjaldarsvæðum eins og í Sýrlandi sjálfu væru flóttamannabúðir eisn og tilbúin skotmörk fyrir ISIS og aðra brjálaða flokka manna og þvi engin greiði gerður þar.

En það sem Kjartan áttar sig ekki á og þó er að jú 2% þeirra sem hafa lagt á flótta eru komnir til Evrópu! Þeir eru þar og eru ekki á förum heldur streyma þeir eins og þeir komast norður eftir Evróu í leit að landi til að búa á þar sem ekki er stríð og þeir eigi möguleika á að hefja nýtt líf eða búa við öryggi þar til að komið verið friði á hjá þjóð þeirra.

Það er þessu fólki sem verður að koma til hjálpar! Þessi hópur er að sliga þjóðir eins og Grikki sem máttu nú ekki við meiru og fleiri lönd. Nema náttúrulega að menn vilji standa að því að setja þau í skip og senda til baka til Sýrlands eða Lýbíu.

Og nú verða allar þjóðir í Evrópu að taka á sig einhvern skerf að þessu vandamáli og það er það sem fólk hér er að tala um. 500 manns er kannski ekki mikið af heldinni á næstu 2 árum. En þó eru það 500 manns sem þá eiga einhverja framtíð í augsýn. 

Finnst stundum út í hött hvernig menn tala hér á landi. T.d. þetta að það muni ekkert um 500 einstaklinga og það leysi ekki vandamálið. Finnst þetta svipað og sjá sökkvandi skip og segja að það sé ljóst að við getum ekki bjargað öllum og þvi látum við það bara sökkva!

Sýnist að flesti flóttamenn sem við höfum gefið kost á að flytja hingað hafi spjarað sig ágætlega sem og að við höfum fullt af störfum sem Íslendinar líta varla við lengur sem í dag eru mönnuð með útlendingum og þar vantar enn fólk. Sbr. ræstingar, fiskvinnsla, sláturhús og fleira og fleira. Og ef við ætlum að fara hér í rosa framkvæmdir á næstu árum þá vantar hér vinnufúsar hendur.

Held að tölur eins og 5 þúsund séu kannski of mikið fyrir okkur að ráða við ef við ætlum að gera þetta vel. En 2 til 300 á ári gætum við auðveldlega ráðið við næstu árin og sennilega hagnast á því að fá fleiri vinnandi menn og konur sem og að þau skila þá auknum sköttum fljótlega í staðinn.


mbl.is Rétt að byrja á réttum enda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband