Leita í fréttum mbl.is

Er fólk alveg að missa sig?

Fólk hlýtur að gera sér grein fyrir að svona mál ef mun auðveldara í rannsókn en mál fjármálabrjálæðingana.

Og svo virðist fólk gleyma því að þarna voru starfsmenn og lögregluþjónar bitnir, konu kastað á ofn og fleira. Einn starfsmaður er með 8% varanlega örorku eftir þetta. Og á bara að sleppa þessum brjálæðingum sem voru að þessu? Held ekki! Það er ekki hægt að réttlæta lögbrot og ofbeldi með því að einhver önnur mál séu ekki svona langt komin.

Þessu fólki var fullkunnugt um það að þeim var ekki heimilt að ryðjast inn á Alþingi enda gilda um það sérstök lög að Alþingi er friðhelgt.

Það er nú sérstakur saksóknari að vinna að því að rannsaka tugi eða hundruð mála tengd hruninu. Eva Joly hefur sagt að þessi mál taki langan tíma því þau séu flókin. Og mistök í þeim geta kostað að engin verði dæmdur. Sérstakur saksóknari hefur sagt að hugsanlega um mitt þetta ár komi fram fyrstu ákærur.

En það réttlætir ekki að aðrir sem ekki fari að lögum sleppi. Enda gekk þetta fólk allt of langt.


mbl.is Mál mótmælenda þingfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kastað á ofn??? Alþingi friðhelgt??  KOMMON!!!!

Þessi þingvörður sem slasaðist því miður, slasaðist vegna þess að hún stóð bak við hurð þar sem um 30 manns voru að hópast inn um, og einum mótmælenda var hrint og lennti hann á henni, og hún DATT á ofnin...var ekki hent á ofnin!!  

Alþingi er hús okkar Íslendinga, og það sem fór fram þar inni á þessum tíma var einn stór brandari..og síðast er vissi var lýðræði á íslandi, og því höfum við fullan rétt til þess að fara þangað inn og krefjast réttar okkar og koma frá vanhæfum þingmönnum, sem gerðu ekkert annað nema að klúðra málunum ítrekað!!!!

Og það sem ekki kemur fram hjá þér er að sumir lögreglumenn beittu okkur ofbeldi, það eru jú svartir sauðir hjá lögregluni jafnt og hjá mótmælendum!!

Þannig að ekki dæma alla sem tóku þátt í þessari aðgerð...sem saman stóð af ólíkum einstaklingum en ekki skipulögðum hóp!!!

Eva (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 13:28

2 Smámynd: Jón Óskarsson

Eva:  Hvað gefur fólki rétt til að fara inn í opinberar byggingar og valda því að saklaust fólk slasist.  Lögreglumenn voru ekki í öfundsverðu hlutverki og eingöngu að vinna sína vinnu.  Ég efast ekkert um að margir þeirra hefðu frekar viljað vera í þeim sporum að mótmæla heldur en að þurfa að berjast við mótmælendur.  En eftir stendur að lög verða að standa og aðstæður sem uppi voru á þessum tíma réttlæta ekki að lög séu brotin.  Og ég spyr hvar eru þessir mótmælendur núna.  Ekki er núverandi ríkisstjórn að gera neitt í málunum.

Jón Óskarsson, 21.1.2010 kl. 13:44

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Eva nei við höfum það ekki. Það gilda lög um Alþingi og í stjórnrskrá stendur:

36. grein

Alþingi er friðheilagt. Enginn má raska friði þess né frelsi.

Það réttlætir ekkert að fólk hafi talið sig vera með góðan málstað að ryðjast inn á Alþingi og slasa við það fólk.

Lýðræði er ekki sama og sjórnleysi og ofbeldi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2010 kl. 14:05

4 identicon

Ef þetta er Eva sú em lék aðalhlutverkið í guð blessi Ísland (gerði sig að athlægi) þá skil ég þetta komment.  Að voga sér að segja að konan sem var ráðist á hafi dottið er bara bull.  Þá væri ekki ákært ef um slys hefði verið að ræða.  Þessi fámenni skríll ofbeldisseggja og bjálfa á að fá þyngsta dóm.

Frábær pistill, hverju orði sannara.

Baldur (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 14:07

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Smá viðbót. Í frétt af ákærunni segir m.a.

Þá eru þeir ákærðir fyrir að hafa veist að þingvörðum og lögreglumönnum. Fjórir þingvarðanna meiddust í átökunum. Einni þeirra var hrint á ofn, svo hún tognaði á hálsi og hrygg. Hún krefst tæplega 600.000 króna skaðabóta vegna árásarinnar. Þrír lögreglumenn slösuðust, þar af hlaut einn átta prósenta örorku vegna áverka á þumli og hné. Hinir lögreglumennirnir voru bitnir í hönd og öxl.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2010 kl. 14:10

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

Lýðræðið virkar nú þannig að engin hefur rétt til þess að beita ofbeldi til að koma kjörnum fulltrúum þjóðarinnar og ríkisstjórn Íslands frá. ofbeldi í pólitík er bara beitt af þeim sem hafa ekki áhuga á lýðræði en vilja ná völdum með því að beit valdi. þeir sem komast til valda með valdi er oftar en ekki komið frá völdum með valdi.

ofbeldi getur af sér meira ofbeldi. 

þess vegna eru kosningar í landinu á fjögura ára fresti. til þess að hægt sé að skipta um þá sem fara með völdin án þess að það sé beitt ofbeldi. 

Fannar frá Rifi, 21.1.2010 kl. 14:20

7 identicon

Sjáðu til Magnús Helgi: Það er ekkert náttúrulögmál sem segir að aðgerðir auðvaldsins sé illransakanlegra en aðgerðir aðgerðarsinna. Það er svona erfitt að dæma útrásarvíkingana einfaldlega vegna þess að kerfið er þannig. Það veitir fjármagnsglæpamönnum meira stikk en anarkistum. Sjáðu til, þú getur ákært anarkista fyrir að búa í óleifilegu húsi en þú getur ekki ákært kvótakóng banka fyrir að taka hús eignarnámi þrátt fyrir að fólk búi þar fyrir. Lögin um búsetuskilyrði eru skýr en ekki um eignarnám banka einfaldlega vegna þess að þau voru búin til á þann hátt.

Það sama er að gerast núna. Aðgerðarsinnar sem fengu hvergi áheyrn nema með beinum aðgerðum gegn valdstjórninni þurftu að brjóta lög í leiðinni. Um brot gegn valdstjórninni eru til skýr lög sem auðvelt er að dæma eftir. Á hinn bóginn eru ekki til skýr lög um hagsmuni stjórnmálamanna, viðleitni og sanngjarna valdstjórn og því ekki hægt að ákæra stjórnmálamenn í þeim efnum. Lög um auðvaldið eru líka fá og ruglingsleg einfaldlega vegna þess að þau voru búin til þannig.

Sá hópur sem réðst á Alþingi vissi (sennilega) að það þau voru að brjóta lög þegar þau gerðu það. En þau gerðu það samt. Og væntanlega eru þau reiðubúin að taka afleiðingum gjörða sinna. En þau gerðu það sem þau gerðu væntanlega vegna þess að þau viðurkendu ekki þessi lög sem þau brutu. Hvort það réttlæti brotið veit ég ekki. En allavega er það aukaatriði þar sem að aðalmálið var vanhæfni alþingis á þessum tíma og sú staðreynd að ekki var mögulegt að gera neitt í þessari vanhæfni nema með því að brjóta lög. Þetta hefur enn ekki verið bætt og þess vegna tel ég þessa hegðun vera réttlætanlega, þó hún sé sakhæf. Og að lokum  vill ég benda á að réttlæti og sakhæfi eru ekki andstæðir pólar sem útiloka hvorn annan.

Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 15:56

8 Smámynd: Jón Óskarsson

Sammála þér Fannar.

Hins vegar finnst mér sem friðelskandi manni mjög einkennilegt að fólk sem hvetur til ofbeldis geti síðan orðið stuttu síðar ráðherrar í ríkisstjórn.

En við eigum að nýta kosningaréttinn til þess að koma þeim að sem við viljum eða fella þá sem við erum ósáttir við.  Ofbeldi leysir aldrei neinn vanda og ofbeldi getur af sér meira ofbeldi. 

Jón Óskarsson, 21.1.2010 kl. 15:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband