Leita í fréttum mbl.is

Er nú ekki viss um að Eiríkur hafi rétt fyrir sér, þó þetta hljómi flott.

Bara ef við hugsum þetta út frá öllum hótunum fólks og mótmælum um skuldir þeirra, atvinnuleysi og svo að fari ástandið ekki að batna þá flytji það burt. Þá held ég að Íslenska þjóðin hafi breyst töluvert frá því við slitum okkur frá Danmörku eða stóðum í þorskastríðunum. Fólk sættir sig ekki við að bera miklar birgðar held ég til lengdar. Fannst grein Sölva Tryggva um stærsta hrunið á Íslandi lýsa þessari þjóð eins og hún er vel. Og síðan bendi ég á framhald hennar í dag hjá Sölva. Stærsta hrunið á Íslandi - Annar hluti. En hér fyrir neðan er fyrri hlutinn.

01. mar. 2010 - 07:30Sölvi Tryggvason

Stærsta hrunið á Íslandi

Gildismatið á Íslandi er ónýtt. Handónýtt. Það snýst allt um peninga. Jafnvel meira en árið 2007, sem allir horfa nú til með hneykslunar. Ætlum við ekkert að læra? Hefur einhver orðið hungurmorða á Íslandi? Eru margir í þeirri stöðu að hafa ekki þak yfir höfuðið? Vantar einhvern klæði?

Þegar ég skrifa fréttir sem snúast um peninga hafa allir voðalega sterkar skoðanir og fólk hneykslast upp úr skónum. Allir aðrir eru svo ómögulegir og hræðilegir og lífið væri miklu betra bara ef allir hinir væru ekki svona siðblindir.

Þegar ég geri fréttir um réttarmorð á litlu barni og hræðilegar brotalamir í kerfinu er minna um hneykslun frá þessu sama fólki. Peningar eru mikilvægari en mannréttindi lítilla barna. Það er verra að geta ekki farið á McDonalds og Smáratorg heldur en að ala upp skaðaða einstaklinga. Hvað er að?

,,Hví sérðu flísina í auga bróður þíns en ekki bjálkann í þínu eigin“ á betur við en nokkurn tíma á Íslandi árið 2010.

Þetta er eitthvað sem má ekki segja en ég ætla að segja það samt. Kreppan á Íslandi er að langstærstu andleg kreppa. Við vorum upp til hópa orðin svo illilega „uppfokkuð“ í hausnum af stöðugum hugsunum um efnisleg gæði að þegar þau voru tekin var sjálfsmyndinni kippt í burt í leiðinni. Eftir stendur fólk sem veit ekkert hvað það er þegar það þarf að hafa ofan af fyrir sjálfu sér með öðru en raðgreiðsluferðum á Korputorg.

Heimtufrekjan er svo rosaleg að efsta lagið af rjómanum er flokkað undir grundvallar mannréttindi.

Hvar á byggðu bóli er það regla að fólk undir þrítugu eigi húsnæði? Hvar í heiminum er það eðlilegt að allir eigi bíl þegar þeir eru 18 ára? Ahh...já auðvitað veðrið er svo vont hérna. Kjaftæði! Það er miklu verra veður í stórum hluta Evrópu á veturna. Samt notar fólk þar strætó eða gengur. Þar er víða ekki hægt að fara í sturtu nema örstutt í senn. Heita vatnið er svo dýrt. Ríkisstjórn Austurríkis tilkynnti með bros á vör fyrir ári síðan að það væri tryggt að það tækist að kynda öll hús í landinu út veturinn. Hvenær hafa Íslendingar staðið frammi fyrir slíku undanfarið?

Forfeður okkar voru harðduglegir og lygilega þrautseigir. Þar liggja rætur okkar. Eftir sjálfsmyndarhrunið sem fylgdi Kentucky-kynslóðinni og Smáralindarbörnunum vitum við ekki lengur hvaðan við komum. Við erum að breytast í vælukjóa og aumingja upp til hópa.

Hættum þessu rugli og gerum Ísland aftur að friðsælu og góðu landi. Við erum óendanlega rík og langtímahorfur okkar eru miklu miklu betri en flestra annarra þjóða. Stöndum saman í að vinna bug á langalvarlegustu kreppunni sem steðjar að Íslandi. Sú kreppa er andlegt hrun þjóðar sem þarf að líta í eigin barm.

 
Held að þjóð með þessu hugarfari sé ekki tilbúin í afleiðingar þess að standa í löngu stríði við Breta með þeim afleiðingum stöðnunar og erfiðleika sem því fylgdi.

mbl.is Sama aðferð og í þorskastríðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Ekki vanmeta þjóðarstoltið.

Carl Jóhann Granz, 2.3.2010 kl. 10:03

2 Smámynd: Héðinn Björnsson

Aldrei vanmeta þrjósku Íslendinga. Við erum seinþreytt til vandræða en þau baráttumál sem við bítum í okkur gefum við ekki eftir.

Héðinn Björnsson, 2.3.2010 kl. 10:32

3 identicon

Tja, þetta er góð grein. "Kentucky-kynslóðin" og auraspillta liðið er þó ekki öll þjóðin, sem betur fer. Þeir sem ég þekki, sem eru harðastir í afstöðu sinni fyrir því að gefa eftir tilheyra hvorugum hópnum. Oft fólk úr grunn-atvinnuvegum, og fólk sem hefur átt sína erfiðu daga. En hefur hver sitt hugarfar, og mér sýnist bloggarinn skipa sér á kemtucky bekkinn.

Jón Logi (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 11:29

4 identicon

Þetta fór vitlaust. Hérna leiðrétt.

Tja, þetta er góð grein. "Kentucky-kynslóðin" og auraspillta liðið er þó ekki öll þjóðin, sem betur fer. Þeir sem ég þekki, sem eru harðastir í afstöðu sinni fyrir því að gefa EKKI eftir tilheyra hvorugum hópnum. Oft fólk úr grunn-atvinnuvegum, og fólk sem hefur átt sína erfiðu daga. En hefur hver sitt hugarfar, og mér sýnist bloggarinn skipa sér á kemtucky bekkinn.

Jón Logi (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband