Leita í fréttum mbl.is

Furðuleg stjórnarandstaða

Ég var að lesa á www.visir.isfrétt sem ég set hér fyrir neðan. Skv. henni virðist stjórnarandstaðan hafa hafnað 2 tilboðum sem stóð til að leggja fyrir Breta og Hollendinga! Finnst þetta allt hið furðulegasta mál. Geri ráð fyrir að samninganefndin með þessum fræga Lee Bucheit sem formanni hefur væntanlega samið þessi tilboð! Get ekki skilið af hverju stjórnarandstaðan bregst svona við. Nema að hún vilji tryggja að málið leysist ekki strax fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu? Eða hún vilji sjálf leggja til atriði í nýtt tilboð þannig að þeir geti svo baunað á ríkisstjórnina að allt gott sé komið frá stjórnarandstöðu? Eða að þau vilji biða með lausnina þar til að stjórnin sé fallin?

Furðuleg frétt:

Vísir, 02. mar. 2010 22:08

Stjórnarandstaðan kom í veg fyrir nýtt Icesave-tilboð í kvöld

Tilboðið sem átti að leggja fyrir hollensku og bresku samninganefndirnar í kvöld var ekki lagt fram vegna þess að stjórnarandstaðan lagðist gegn því. Þeim þótti tilboðið bæði lélegt og vanhugsað.

Meðal skilyrða í samningaviðræðunum er samstaða stjórnar og stjórnarandstöðunnar hér á landi. Stjórnarandstaðan var ekki sátt við tilboðið sem varð til þess að það var ekki lagt fyrir erlendu samninganefndirnar.

Samkvæmt heimildum Vísis þá stóð til að gera annað tilboð um helgina en stjórnarandstaðan fékk klukkustund til þess að fara yfir það áður en það átti að leggja það fyrir samninganefndir Hollendinga og Breta. Stjórnarandstaðan sætti sig ekki við það og því var fallið frá að senda tilboðið.

Halda átti símafund á milli íslensku sendinefndarinnar og formanna þingflokkanna í kvöld en því var aflýst. Vonir standa til að sá fundur geti orðið í fyrramálið.

Ekki er ljóst hver staðan er í samningaviðræðunum en Bretar og Hollendingar eru fúsir til viðræðna í ljósi þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem á að fara fram að óbreyttu á laugardaginn.

 


mbl.is Bretar vilja ræða málin áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Spældur Maggi minn.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 00:12

2 Smámynd: Óskar

Ég held það sé kominn tími til að hætta að hafa stjórnarandstöðuna með í þessu.  Þetta samansafn landráðahyskis er eingöngu á móti samningum til að þvælast fyrir ríkisstjórninni, það er ekki að hugsa um þjóðarhag og hefur aldrei gert. 

Óskar, 3.3.2010 kl. 00:19

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það virðast eingin takmörk fyrir því hve langt á að ganga í skemmdarstarfsemi í þessu landi. Ég er eiginlega að verða orðlaus yfir þeim asnaskap sem viðgengst hjáþeimsemvalist hafa á Alþingi fyrir Hrun-flokkana, svo ekki sé talað um liðið sem liggur við opiðþ

Hólmfríður Bjarnadóttir, 3.3.2010 kl. 00:25

4 identicon

Er í lagi að samþykkja lélegt og vanhugsað tilboð bara til að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna? Af hverju óttast þú niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar? Sérðu ekki eins og nánast allir aðrir samningsstöðuna sem íslendingar eru komnir í? Hugsaðu þér Magnús, mannstu þegar þú og vinir þínir sögðuð að það ætti að samþykkja fyrra Icesave-frumvarpið án fyrirvaranna? Og mannstu þegar þú barðist fyrir samþykkt seinna Icesave-frumvarpsins og sagðir að þetta væri besti samningurinn sem völ væri á. Bara að saþykkja og þegja.

Miðað við það sem hefur áunnist síðan þá, ættir þú vera farinn að sjá að kannski hafa aðrir meira vit á  hvernig á að stunda samningaviðræður.

dengsi (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 00:29

5 identicon

Hólmfríður og Óskar. Viljið þið og ykkar afkomendur ekki bara taka þetta að ykkur, að borga bretum og hollendingum það sem ykkur finnst þið skulda þeim? Ég skulda þeim ekki neitt svo ég mun að sjálfsögðu segja nei á laugardag.

assa (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 00:59

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Dengsi það er samninganefnd okkar sem var að vinna þetta samningstilboð. Eru þar ekki töluvert færari menn en strákarnir Sigmundur og Bjarni og við tölum ekki um Birgittu?

Skv. ruv.is var það nefndin sem vann þetta tilboð og hún á að vera leidd af mjög færum samningamanni Lee Bucheit var stjórnarandstaðan ekki að tala um að við ættum að treysta þeim. En hér er fréttin af ruv.i s

Hætt við að senda tilboð í kvöld

Íslenska Icesave-samninganefndin hugðist senda Bretum og Hollendingum nýtt formlegt tilboð vegna Icesave-deilunnar í kvöld, en hætti við það. Ákveðið hefur verið að funda í fyrramálið um næstu skref.

Samninganefndin hefur unnið að nýju tilboði í kvöld eftir að síðari fundi þjóðanna lauk síðdegis. Nefndin hugðist senda Bretum og Hollendingum tilboðið, en ákveðið hefur verið að halda símafund í fyrramálið áður en lengra verður haldið. Birgitta Jónsdóttir formaður Hreyfingarinnar sagði í kvöld að nýja tilboðið væri byggt á upprunalegu tilboði Íslendinga, en höfuðstóll skuldarinnar væri nú mun hærri en hún gæti sætt sig við. Einsýnt væri að þjóðirnar myndu ekki ná samkomulagi og Íslendingar ættu að hætta að mæta með ný tilboð í sífellu, á meðan Bretar og Hollendingar sýndu engan samningsvilja.

Lárus Blöndal, fulltrúi stjórnarandstöðunnar í Icesave-samninganefndinni, sagði í samtali við fréttastofu RÚV að formlegt tilboð hefði ekki verið lagt fram á fundi þjóðanna í dag, einungis hafi verið um óformlegar tillögur að ræða. Hann sagði að staðan yrði tekin í fyrramálið og nefndin ætti allt eins von á því að halda heim á leið á morgun.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.3.2010 kl. 01:10

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

assa hvernig sem allt fer verðum við löngu búin að greiða þessi lán áður en afkomendur okkar þurfi að borga. Enda borga þau ekki neitt beint heldur er það hagvöxtur hér sem borgar ef eitthvað verður að borga. Minni þig á að nú er stefnt að því að lánin verði uppgreidd 2016 skv. nýjum hugmyndum. Annars var það 2024 og þá verður það 100 til 200 milljarðar ef það verður svo mikið sem dreyfast á 8 ár sem gerir um 12 til 22 milljarðar á ári. Og ef miðað við verðbólgu verður þetta enn minna. Því þessi upphæð er ekki verðtryggð. þetta eru um það bil 1% af landsframleiðslu. Svona í mesta lagi sem svarar til tónlistarhúss.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.3.2010 kl. 01:15

8 identicon

Magnús, fyrir hvern er samninganefndin að vinna? Númer eitt tvö og þrjú fyrir ríkisstjórnina. 'Rikisstjórnin gefur þau fyrirmæli að gera nýtt tilboð sem Bretarnir og Hollendingarnir geta ekki hafnað. Allt gert til að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það er alþekkt að þegar fólk er í flýti og í kappi við tímann eru meiri líkur á að gerð séu mistök. Það sem Bjarni og Sigmundur hafa fram yfir ríkisstjórnina er að þeir eru ekki í eins miklum spreng og stjórnin að semja.

En ertu ekki annars feginn að við séum að ná þetta betri samningum en fyrri ósköpin voru?

Dengsi (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 01:26

9 identicon

Þetta er mjög einfalt. Stjórnarandstaðan hefur engan áhuga á því að semja um Icesave málið. Þeir sem eru í vafa ættu að tékka á fréttum og meta síðan hegðun þessa fólks.

Jón Frímann (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 01:27

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Dangsi. Það var valið í þessa nefnd eftir beiðni Stjórnarandstöðunar m.a. Lárus Blöndal og svo Lee Bucheit sem stýrir nefndinni. Ef að hann telur að það sé ekki þess virði að leggja fram tilboð þá setur hann væntanlega ekki nafn sitt við það. Og nefndinn eins og segir í þessari frétt hefur 2 sinnum verið tilbúin með gagntilboð en stjórnarandstaðan stoppað það.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.3.2010 kl. 02:00

11 identicon

Það sem ég er kannski að reyna að segja Magnús er að hvorki þú né aðrir af okkur almúganum, eru í aðstöðu til að gagnrýna Bjarna eða Sigmund. Við vitum ekki út á hvað þetta nýja tilboð gekk. það skýrist kannski síðar.

En þú ert ekki búinn að svara spurningunni minni. Ertu ekki annars feginn að við séum að ná þetta betri samningum en fyrri ósköpin voru?

Dengsi (IP-tala skráð) 3.3.2010 kl. 08:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband