Leita í fréttum mbl.is

Afskriftir hafa allaf verið skattskyldar - Því er einmitt verið að breyta

Finnst þessi fréttaflutningur með afbrigðum. Mogginn kemst í einhver drög að frumvarpi og blæs þetta út.Afskriftir hafa alltaf verið skattskildar. Því afskriftir þýða í raun að verið er að færa skuldurum peninga með því að færa niður skuldir. 

Í lausnum ríkisstjórnar frá því í fyrradag stendur:

7. Skatturinn spilar með Endurskoðaðar reglur um niðurfellingu skattkrafna:  

  • Skatturinn tekur þátt í sértækri skuldaaðlögun og í frjálsri greiðsluaðlögun.  Frumvarp væntanlegt um skattlagningu niðurfellinga skulda:  
  • Hóflegar skuldbreytingar skattfrjálsar. 
  •  Stórfelldar niðurfellingar skattlagðar.

 

Á www.ruv.is  má lest þetta


Minni afskriftir skattfrjálsar


Steingrímur J. Sigfússon Mynd: Getty Images.
Afskriftir af húsnæðis- og bílalánum verða að hluta skattfrjálsar samkvæmt hugmyndum sem fjármálaráðherra kynnti ríkisstjórninni í morgun. Ætlunin er þó ekki að efnafólk fái stórfellda niðurfellingu skatta.

Eftirgjöf skulda er skattskyld samkvæmt núgildandi lögum rétt eins og venjulegar tekjur enda batnar staða skuldarans. Á þessu vill fjármálaráðherra taka og samkvæmt drögum að nýju frumvarpi verða þessar afskriftir skattfrjálsar fari þær ekki yfir ákveðna upphæð. Síðan myndast skattskylda í þrepum allt eftir því hversu miklar afskriftirnar eru. Svipuðu kerfi á síðan að koma á varðandi fyrirtæki. Hugmyndirnar er enn í mótun og endanlegar tölur og hlutföll liggja ekki fyrir.

 Og minni fólk aftur á að drög að frumvarpi er ekki frumvarp til laga fyrr en það hefur verið lagt fyrir Alþingi. Drög eru bara vinnugagn.


mbl.is Afskriftir verða skattlagðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já hóflegar. Þegar kemur að því að gera eitthvað fyrir lántakendur er hóflegt einhver smánarleg upphæð sem skiptir ekki nokkru máli en þegar kemur að ríkinu hans Steinka þá er hóflegt einhver geggjuð upphæð sem gerir málið en verra fyrir lántaka. Þessi ríkisstjórn hefur bara eitt á stefnuskránni að setja sem flesta á hausinn. Hálfvitar

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 18:37

2 identicon

Er verið að færa mér peninga með því að afskrifa hluta af stökkbreyttum höfuðstól?  Þessa peninga sem verið er að rukka mig um hef ég aldrei séð og mun aldrei sjá.    Hvernig færðu það út að ég eigi að borga skatta af því?

Greiða útrásarvíkingarnir skatta af niðurfellingunum sem þeir fengu upp á milljarða króna eftir 2007 partýið?   Það efast ég um því þeir skildu fyrirtækin eftir með ekkert nema skuldirnar.

Ríkisstjórnin leggur fram tillögur að úrlausn um skuldavanda heimilanna, snýr sér svo við og skattleggur hjálpina. 

Hverskonar fáráðlingar eru þetta?

Hrafna (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 18:42

3 identicon

Síðan er auðvitað ljóst að hér er ekki um afskriftir að ræða og ert þú ljós lífs þíns að misskilja málið svakalega. Hér er um að ræða að skila aftur ílla fengnu fé sem rænt hefur verið af glæpamönnum. Ef þú ert rændur og færð þýfið aftur tilbaka þá er ekki venjan að löggan rukki þig um 40% skatt.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 19.3.2010 kl. 18:44

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er hárrétt ábending að skattskylda afskrifta er ekki ný af nálinni. Í rauninni er því um sértæka skattalækkun að ræða í ljósi aðstæðna.

En ósköp er orðinn þreytandi þessi söngur um rán og glæpamenn rétt eins og fall krónunnar sé afleiðing af einhverju samsæri gegn skuldurum. Og alveg er það furðulegt að aldrei virðist réttlætiskennd forsöngvaranna ná fram fyrir nefið á sjálfum þeim: "Ég var rændur, þess vegna eiga skattgreiðendur að skila mér pening - þótt þeir hafir reyndar ekki rænt honum!".

Þorsteinn Siglaugsson, 19.3.2010 kl. 21:53

5 Smámynd: Haraldur Rafn Ingvason

Ef þetta fólk lætur verða af því að skattleggja leiðréttingu stökkbreytts höfuðstóls, verður það sennilega kornið sem fyllir mælinn. Það er ljóst að afskriftir verða í húsnæðislánakerfinu og það er algerlega óskiljanlegt af hverju þær meiga ekki vera í því fólgnar að stökkbreyttir höfuðstólar verði einfaldlega færðir niður í eðlileg horf.

Haraldur Rafn Ingvason, 19.3.2010 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband