Leita í fréttum mbl.is

Heimurinn er óvart bara ekki sammála okkur!

Og áfram halda menn að rugla um vonda útlendinga og fleira. Dominique Strauss-Kahn var að segja að starfsmenn AGS og forstöðumenn telja að það sé ekkert þvi til fyrirtöðu að taka endurskoðunina á dagskrá óháð Icesave.
En því eru meirihluti stjórnar AGS ekki sammála. Hverjir skipa stjórn? Það eru fulltrúar eigenda. Og hver eru eigendur? Það eru 186 ríki. Og hvað er hægt að lesa út úr þessu?
Það er nauðsynlegt fyrir okkur að ganga frá Icesave því að ríkjandi þjóðir í heiminum telja að það sé nauðsynlegt bæði fyrir okkur og eins fyirir þau. Og þangað til verða mál okkar ekki tekin fyrir þar sem að mál eru ekki lögð fyrir stjórn AGS ef að líkur eru á því að þau séu feld.

Þetta er jú búð að liggja fyrir lengi þrátt fyrir áróður Indefence og Framsóknar um að staða okkar veriði alltaf betri og betri.

Minni á þetta af www.visir.is


“Þó takist að eyða óvissu vegna Icesave og framkvæmdir við stóriðju fari á fullt í júní, er engu að síður samdráttur í landsframleiðslu á milli ára. Verg landsframleiðsla færi úr 1.500 milljörðum árið 2009 í 1.442 árið 2010. Hún mundi aukast lítillega og verða 1.481 milljarður árið 2011 og 1.572 árið 2012.
Þetta er bjartsýnisspá og gerir ráð fyrir að semjist um Icesave og fjármögnun gangi hratt og snurðulaust fyrir sig í kjölfarið. Allsendis er óvíst hvort svo verður.
Tefjist þessar framkvæmdir um eitt ár og þær fari á fullt árið 2011 líta málin mun verr út. Landsframleiðslan verður þá 12,5 milljörðum lægri árið 2010, 16,5 árið 2011 og tæpum 13 milljörðum árið 2012. Þetta þýðir að á þessum þremur árum verður landsframleiðslan 48 milljörðum minni en ella.
Verði stóriðjuframkvæmdirnar slegnar af hækkar sú tala umtalsvert. Uppsöfnuð lægri landsframleiðsla, árin 2010 til 2012, yrði 133 milljarðar króna. Þá má nefna að heildarfjármunamyndum yrði 205 milljörðum minni en í bjartsýnisspánni.”

Og svo þetta úr sömu frétt:

“Fleira er hægt að taka með í reikninginn þegar kostnaður við Icesave er reiknaður, til dæmis atvinnuleysi. Hver atvinnuleysisprósenta kostar 2,8 til 3 milljarða í atvinnuleysisbætur, samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun. Við það bætist minni verðmætasköpun, sem gera má ráð fyrir að kosti að minnsta kosti sömu upphæð. Hvert prósent er þá að lágmarki 5,6 til 6 milljarðar króna.”

Þannig að það fer að verða spurning um hvað við erum að græða á þessum töfum á Icesave, Reyndar er ég viss um að við séum að tapa gríðarlega. T.d. þar sem atvinnuleysi hér er meira en það þyrfti að vera og verður hátt lengur. Þar með missum fólk út í þá stöðu að missa viljann til að vinna. Og það á eftir að kosta okkur til framtíðar auk alls hins sem getið er hér að ofan.


mbl.is Ísland kann að skorta stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú þegar ég skrifa þessa athugsemd við bloggið þitt Magnús, þá hafa verið skrifuð 12 önnur blogg um þessa frétt.

Fjalla þau um allt annað en iðrun í Icesave málinu, þvert á móti eru bloggin nú meira forhert og algjörlega úr takt við veruleikan sem blasir við öllum þeim sem vilja sjá.

Allar spár um það hvað myndi gerast ef ekki yrði samið um að bæta tjónið sem hinn íslenski banki olli, hafa meira og minna ræst.

Ekki stendur snefill eftir af fyrrum orðspori þessa lands, og fólk hikar ekki við frekari eyðileggingu á því.

það virðist ekki rista djúpt þjóðarstoltið hjá þessari þjóð, ef það er mælikvarðinn á stolt að standa ekki við samninga og loforð á alþjóðlegum vettvangi.

Ragnar Thorisson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 10:39

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Mun það auðvelda íslenska ríkinu að draga úr hallarekstri og óráðsíu að fá lán frá AGS? Sennilega.

Mun það auðvelda íslensku atvinnulífi að fá fjármagn ef ríkið tekur á sig hundruð milljarða skuldaklafa vegna Icesave sem engin lög kveða á um að séu á ábyrgð íslenskra skattgreiðenda? Varla.

Það væri því fyrst og fremst til að auðvelda ríkisvaldinu að safna skuldum sem Icesave-málið þarf að leysast. 

Geir Ágústsson, 30.3.2010 kl. 11:46

3 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Að mínu mati er þetta hárrétt ábending með að það eru fleiri þjóðir í IMF en B&H og N-Lönd.  Það eru fleiri sem koma að þessu.

Hefur fól heyrt um eitthver ríki eða sálfstjórnarsvæði í heiminum sem styður þennan fíflagang íslendinga í kringum þetta mál ?  Sorrý, eg hef bara eigi heyrt af neinu !

Ekki einu sinni nojara stjórnvöld styðja fíflaganginn !  (þó stundum mætti ætla annað af umræðuni hérna uppi)

That said, þá var reyndarathyglisvert að SJS talaði um að "þoka málinu áfram" o.þ.h, - þ.e. ekki alveg gott að átta sig á hvað hann nákvæmlega meinti.

En er ekki bara málið að halda áfram á ródsjói í Europe og "kynna málstað"  Íslands ? 

Íslendingar:  Skiljið þér enn eða hvað ?

Ómar Bjarki Kristjánsson, 30.3.2010 kl. 11:49

4 identicon

Nú er það svo að fólkið sem afneitar Icesave, ætlar líka að afneita stuðningi AGS.

Hvað vill þetta fólk gera svo þegar búið er að skera á öll venjuleg samskipti við umheiminn?

Hvers virði yrði íslenska krónan ef ekki væri til gjaldeyrisforði til að styðja hana?

Hvað er það sem þetta fólk vill gera yfir höfuð á þessu skeri?

Ragnar Thorisson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 12:03

5 identicon

Það verður erfitt að fjármagna atvinnuskapandi verkefni ef samstarfinu við AGS verður hætt. Ekki eingöngu vegna þess að fjármagnið eigi að koma þaðan, heldur vegna þess hve mikið vantraust hefur skapast.

Þess utan er staða utanríkismála hjá okkur ekkert sérlega góð. Eftir að herinn fór fórum við út á jaðarinn sem áhrifasvæði Bandaríkjanna. Með því síðan að reita Bandaríkin enn frekar til reiði með heimskulegu orðuveitingaklúðri og skjalaleka höfum við enn frekar dregið úr líkum á að fá stuðning frá þessum fyrrum öflugustu stuðningsmönnum okkar.

Athugið að árangurinn af baráttu Íslendinga fyrir hagsmunum sínum á erlendum vettvangi hefur alltaf oltið á því að geta fengið stuðning við sinn málstað frá öðrum ríkjum. Það getur aldrei orðið öðruvísi vegna þess að við erum smáríki og höfum ekki bolmagn til þess að berja vilja okkar í gegn gagnvart sterkari aðilum. Árangurinn af þorskastríðunum valt á stuðningi Bandaríkjanna á vettvangi NATO. Þegar Bretar (Stærsti markaður okkar fyrir fiskafurðir) settu löndunarbann á íslensk skip á 6. áratugnum gátum við stundað vöruskiptaverslun við Rússa í staðinn og fengið nauðsynjar fyrir okkar vörur. Það er enginn sérstakur stuðningur við okkar málstað hjá þessum ríkjum í dag.

Menn verða að átta sig á því að ef okkur tekst ekki að afla stuðnings í þessari deilu frá öðrum ríkjum sem eitthvað kveður að þá er enginn sigur hugsanlegur. Þeir sem halda öðru fram veðja öllu á að þróun í almannaáliti í heiminum á næstunni muni breytast okkur í hag og andstæðingar okkar skipti um skoðun. Það er veikur grunnur að byggja á.

Til Geirs: Við getum allavega séð að raunveruleikaskynið er ekki að þvælast fyrir þér. Það er svosem flott að halda sig við þessi "siðferðisprinsipp" þín ef stuðning við þau væri einhversstaðar að finna í heiminum. Við hin sjáum að það er pólitík í þessu sem við ráðum ekki við ein og að það þarf pólitíska lausn. En það er einmitt einkenni á veruleikafirrtum ofstækismönnum að þeim er illa við pólitískar lausnir.

Þorgeir Ragnarsson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 12:20

6 Smámynd: Sævar Guðbjörnsson

"The Executive Board (the Board) is responsible for conducting the day-to-day business of the IMF. It is composed of 24 Directors, who are appointed or elected by member countries or by groups of countries, and the Managing Director, who serves as its Chairman. The Board usually meets several times each week. It carries out its work largely on the basis of papers prepared by IMF management and staff." segir á vef IMF.

Vertu ekki sjálfur að rugla og koma með villileiðandi upplýsingar!! Þú ert stórhættulegur með þínar "niðurstöður" . Eins og það væri öll 186 ríki að kjósa um okkar efnarhagsstöðu, þvilíkt rugl. 

Sævar Guðbjörnsson, 30.3.2010 kl. 15:02

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hvernig afsannar klausan eða ruglkennir 186 ríki

"who are appointed or elected by member countries or by groups of countries"

Þetta er samvinna.  Auðvitað býst maður alveg við að stærstu og voldugustu ríkin séu áhrifamest þarna.

Trúið mér, eg hef nú fylgst nokkuð vel með IMF síðunni frá þarna 2008 er þeir komu hingað - og þetta er vanmetið. 

Það eru miklu fleiri ríki sem hafa um þetta að segja en B&H og N-lönd.

Því miður þá eru fjölmiðar hérna útá túni.  Því miður.

Málið fjallar í gruninn um að staðið sé við alþjóðlegar skuldbindingar  og sú skuldbinding snýst núna um að endurgreiða skuli B&H lánið.

Það finnst öllum ríkjum að ísland eigi að endurgreiða B&H !  Finnst það bara sjálfsagt og eðlilegt og í framhald mjög óeðlilegt og óheiðarlegt að gera það ekki.

Þýðir ekkert að láta svona.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 30.3.2010 kl. 15:24

8 identicon

Vá allir vælukjóarnir mættir á sömu síðu Magnús, Ragnar og Ómar. Manni svimar að lesa bullið úr þeim

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 16:57

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Æji Sigurður Þegið þú! Skil ekki hvernig þú lest væl úr þessu hjá okkur. Held að þið sem vælið allstaðar um að allir séu svo vondir við okkur, séuð þeir sem raunverulega væla. Aumingja litla Ísland sem allir eru vondir við. Aumingja Ísland sem eitt landa í heiminum skilur ábyrgð sína! Allir hinir eru fávitar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.3.2010 kl. 17:21

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ó nei Magnús,ekkert aumingja væl hjá okkur sem krefjumst réttlætis,við bara herðumst. Hvaða allir hinir eru fávitar? Nefndum við þá fávita? Lögfræðingar takast á í vörn og sókn,varla er það aumingja legra en hjá þeim sem sækja að hafna dómsmálaleiðinni, við erum meira en tilbúin í það.    Ísland ól þig og mig, land mitt á stuðning minn óskoraðan

Helga Kristjánsdóttir, 31.3.2010 kl. 03:46

11 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Dómstólaleiðinni (leiðrétting)

Helga Kristjánsdóttir, 31.3.2010 kl. 03:48

12 identicon

Hvað er þetta annað en sama vælið og venjulega í ykkur félögum. Sama og þið hafið verið að hamra á síðustu mánuði. Við íslendingar erum í í ykkar augum fábjánar sem kunnum ekki að skammast okkar. Fyrir hvað ættum við svo að skammast okkar, jú fyrir að vera íslendingar og vilja ekki borga einhverjar undarlegar kröfur frá Bretum og Hollendingum. Magnús bara svo þú farir ekki í grafgötur með það þá er ég stoltur af því að vera íslendingur og mér þykir vænt um þetta land og þessa þjóð. Það er ekki af einhverjum þjóðarrembingi né vegna þess að mér sé ílla við útlendinga sem ég segi þetta heldur vegna þess að ég er íslendingur og ég skammast mín ekki fyrir þjóðernið né fyrir fortíðina eða að ég beri einhvern sérstakan kvíðboga fyrir framtíðinni.

Sigurður Sigurðsson (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband