Leita í fréttum mbl.is

Ef að fólk fer inn á vef Ríkisendurskoðunar þá sjá menn að ýmsir eru að sleppa vel í umræðunni.

T.d má sjá þetta úr uppgjöri þingmanna vegna prófkjara og kosninga 2007

Frambjóðandi: Guðlaugur Þór Þórðarson
Sjálfstæðisflokkur
Reykjavík
Framlög Skýr. 2007
Framlag frá lögaðilum ........................................................................... 1 17.730.000
Framlög einstaklinga ............................................................................. 2 7.100.000
24.830.000
1 Framlög lögaðila 2007
Óskar nafnleyndar..............................................500.000
Óskar nafnleyndar............................................. 750.000
Óskar nafnleyndar............................................. 1.000.000
Óskar nafnleyndar..............................................1.000.000
Óskar nafnleyndar............................................. 1.000.000
Óskar nafnleyndar..............................................1.000.000
Óskar nafnleyndar............................................. 1.500.000
Óskar nafnleyndar............................................. 1.500.000
Óskar nafnleyndar............................................. 2.000.000
Óskar nafnleyndar..............................................2.000.000
Óskar nafnleyndar............................................. 2.000.000
Framlög lögaðila undir 500 þús.kr. hvert.............3.480.000
Framlög lögaðila samtals 17.730.000
2 Framlög einstaklinga
NN.............................................................500.000
NN.............................................................500.000
NN............................................................ 1.000.000
NN............................................................ 1.000.000
NN..........................................................   1.000.000
NN............................................................ 1.000.000
NN............................................................ 1.500.000
Framlög einstaklinga undir 500 þús. kr. hvert................. 600.000
Framlög einstaklinga samtals 7.100.000

Og þó nokkrir þingmenn með mjög háa styrki.

Steinun Valdís er með á þessum tíma:

1 Framlög lögaðila
Landsbanki Íslands......................................2.000.000
Baugur.......................................................1.000.000
Fl Group hf.................................................1.000.000
Framlög lögaðila undir 500 þús.kr. hvert......650.000
Framlög lögaðila samtals 4.650.000

En síðan bætast við styrkir sem hún fékk vegna sveitastjórnakosninga árið áður.

Skrítið að engin sé að mótmæla hjá öllum hinum. Margir fengu háa styrki en komast upp með að stíla þá á góðkunningjana "Óskar nafnleyndar" og "NN"

En það sem mér finnst skrítið er að þessar upplýsingar lágu frami fyrir síðustu kosningar. Og fjallað um þær þá. Hvað verður þess að verkum að þessi óþjóðalýður byrjar að ráðast að Steinunni nú? Það er hlýtur að vera skipulagt. T.d. af hverju frekar hún en t.d. Árni Johnsen sem ráðstafaði ríkiseignum eins og þær væru sínar eigin eða Ásbjörn Óttarsson sem er á þingi og á fyrirtæki sem á skuldsettan kvóta upp á milljarða og borgar sér úr arð af tapi. Og af hverju komust t.d. þessir ekki á dauðalista Hreyfingarinnar.

Hvet fólk til að lesa pistil Þráins Bertelssonar og eins þessa grein

P.s. Gleðilegt sumar!

Gleiðilegt Sumar


mbl.is Segir ásakanir á hendur sér rangar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hamarinn

Það má kanski benda þér á að Arni Johnsen hefur tekið út sína refsingu.

Það var byrjað á Þorgerði Katrínu. Hún er hætt í bili. Næst er Steinunn. Þegar hún hættir, verður einhver annar tekinn fyrir , þar til búið er að koma öllu hrunahyskinu í skilning um að við viljum það ekki sama hvar í flokki það er. Ef þetta lið sér ekki að sér og fer með góðu, þá safnast fólk fyrir utan hjá því, þar til það fer. Þeirra er valið.

Hamarinn, 22.4.2010 kl. 22:53

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og er honum þá treystandi honum Árna? Furðulegt! Sem þýðir þá væntanlega að ef að útrásarvíkingingar verða dæmdir sitja inni þá er þeim treystandi aftur í bankana!

Þessar upplýsingar um Steinunni og Þorgerði lágu frami fyrir síðustu kosningar! Þær voru kosnar á þing þrátt fyrir það eins og Árni. En hann sannarlega tók út vörur fyrir sig persónulega á kostnað ríkisins. Þorgerður er gift manni sem fékk há lán frá banka sem hann vann hjá til að kaupa hlutabréf í bankanum. Steinun Valdís og stuðningfólk hennar safnaði í 2 prófkjör samtals um 12 milljónum. M.a. frá Landsbanka sem virtist reynar styrkja alla sem til hans leituðu eftir styrkjum í framboð.  En þetta gaf hún upp og var fjallað um 2008 og nú allt í einu er hún óvinur þjóðarinnar númer 1. Guðlaugur Þór safnar um 24 milljónum þar af 17 frá fyrirtækjum og fullt af öðrum frambjóðendum líka. Og þeir eru bara stykk frí.

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.4.2010 kl. 23:15

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og hvaða sérstaka þátt átti Steinun í hruninu?

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.4.2010 kl. 23:16

4 Smámynd: Einar Þór Strand

Magnús hún var á þingi þá og það ætti að nægja, en auðvitað eiga þau öll að fara ekki bara hún.

Einar Þór Strand, 22.4.2010 kl. 23:20

5 Smámynd: Hamarinn

Árna er treyst af sínum kjósendum því miður. Ekkert hægt að gera við því, hann hefur tekið út sína refsingu.

Steinunn var stuðningsmaður ríkisstjórnar sem gerði allt rangt, og þáði tugmilljóna styrki. En þegar hún fer, þá verður sá næsti tekinn fyrir. Það er vonandi að þetta fólk átti sig og láti sig hverfa af þingi áður en mótmælendur mæta heima hjá þeim. Þorgerður ætlaði ekkert að segja af sér, en þegar hún áttaði sig á að fólkið myndi mæta dag eftir dag, þá fór hún.

En ekki skil ég af hverju þú þarft að verja svona sukklið. Burt með það allt, sama hvar í flokki það er.Þjóðin á betra skilið, en endalausar nauðganir frá aumingjum sem þykjast vera í pólitík.

Hamarinn, 22.4.2010 kl. 23:31

6 Smámynd: Hamarinn

Eitt enn.

Það hefðu orðið mikil læti, og sjallarnir hefðu nýtt sér það til hins ýtrasta, ef að Guðlaugur hefði verið tekinn fyrir strax á eftir Þorgerði. Það þarf að huga að ýmsu við svona aðgerðir.

Hamarinn, 22.4.2010 kl. 23:33

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Steinun Valdís tók ekki sæti á þingi fyrr en 2007. Fyrir þær kosningar fékk hún stryrki eins og segir í blogginu hér fyrir ofan upp á 4 milljonir og 600 þúsund. Aðrir þingmenn hafa verið á þingi mun lengur og fengið hærri styrki en þetta. Hún var ekki í ríkisstjórn. Hvað með Árna Johnsen, Ásbjör Óttarsson, Einar Guðfinnsson, Og þá þingmenn sem hafa ekki gefið upp sína styrki. Hvað með Sigmund Davíð faðir hans er jú einn af þeim sem hafa verið í umræðunni um félög í Luxemborg, hafa eignast Kögun fyrir lítið á sínum tíma þegar hann var þingmaður og formaður Þróunarfélagisns. Hvað með Ólöfu Nordal sem er gift forstjóra Reyðaráls. Hvað með nær alla þingmennina. Er ekki réttara að halda kosningar nú sem fyrst. Þannig að það verði þjóðin fremur enn einhver örhópur sjálfskipaðra dómara og böðla sem taki ákvörðun um þetta. Finnst fólki t.d. í lagi að þar sé einn af fremstu mönnum maður sem var sjálfur í úrrásar braski eins og Björn Þorri sem skildi skuldir eftir í gjaldþrota félögum en fékk nýjar kennitölur og hirti allar eignirnar. Hverjir halda menn að borgi fyrir það? Og viðtöl við annað fólk og videó frá mótmælum finnst mér sína að þar fari nú ekki neinir snillingar. Því að rök fyrir að ráðast að heimilum þessa fólks halda ekki. Fólk talar eins og Steinun Valdís hafi gert heimili gjaldþrota perónulega. Þetta finnst mér kjaftæði. Það væri kannski ef hún hefði haft völd og setið lengur á þingi. En hún fór ekki á þing fyrr en í maí 2007 og hóf ekki formlega þingsetu fyrr en í október 2007. Réttu ári fyrir hrun.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.4.2010 kl. 00:08

8 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Þessi "afsagnarkapall" gengur illa upp.  Ef að farið yrði að kröfu þingmanna Hreyfingarinnar, þá kæmu inn á þing 12-15 varaþingmenn, auk þess sem að 3 af 5 ráðherrum Samfylkingar myndu hætta og þá væntanlega einhverjir "hreinir" úr þeirra þingliði taka við.  Ég held að þrátt fyrir að þeir sem kæmu í staðinn nytu kannski meira trausts en þeir sem færu, þá myndi það of róttækar breytingar á þingliði í för með sér og það kæmi verulega niður á störfum þingsins.

Fólk annað hvort áttar sig ekki á því eða vill ekki átta sig á því að þingið fékk þungan dóm í skýrslunni, vegna þess hversu það hefur brugðist löggjafar og eftirlitshlutverki sínu.

 Skást í stöðunni núna, væri að framlengja þingið út júní. Nota tímann þangað til að koma hlutum þannig fyrir að við "höldum sjó", fram í október hið minnsta, ásamt því sem að unnið verði að því að stórbæta nefndarsvið Alþingis, þannig að Alþingi gæti tekið við lögskipuðu hlutverki sínu og farið að semja þau frumvörp sem að ráðuneytin hafa annars gert árum saman.  Rjúfa svo þing í júnílok og boða til kosninga í fyrstu eða aðra helgina í september.

 Væri þessi leið farin þá gæfist þjóðinni tækifæri til þess að grisja burt þann hluta þingmanna sem hún telur vera illgresi auk þess sem að sú stjórn sem tæki við að loknum kosningum, hvort sem hún væri mynduð sömu flokkum og nú, eða einhverjum öðrum fengi skýrara umboð frá þjóðinni til áframhaldandi starfa.

 Ég held að með þessu, gæti myndast mun meiri sátt, með þær aðgerðir sem framundan eru auk þess sem að þjóðin yrði sáttari, eða ætti að vera sáttari með þá aðila sem sitja á þingi.

Kristinn Karl Brynjarsson, 23.4.2010 kl. 00:08

9 Smámynd: Valgeir

Hvaða rugl er þetta, benda á aðra flokka til að réttlæta eigin gjörðir.   Árni J er auðvitað fyrirmynd hvers sem er, er það ekki?  Hann hefur þó tekið út sína refsingu (rétt svo) og að benda á hann hljómar eins og angistarvæl frá einhverjum sem á engin rök og er króaður af.

Þess fyrir utan þá segir þingmaður sjálfur sjá http://www.althingi.is/altext/hagsmunir.php?faerslunr=695 að hún hafi ekki fengið krónu.  Þetta er auðvitað ekki hægt og svona manneskju ber að víkja.

En eru þið virkilega búin að skoða vef Ríkisendurskoðunnar???Eða var þetta smjörklípa sem talsmenn/aðdáendur Samfylkingar(hvaða flokkur sem er) er svo gjörn á að nota, og treystir á að fólk kanni ekki staðreyndir sjálft?

Athyglisvert er að Samfylkingin virðist vera að eyða 180 milljónum í kosningarnar - þó eru einstaka þingmenn að fá 5-20 milljónir til að koma sér á framfæri, samtals svipað og allur flokkurinn er að eyða í kosningar???? En það sem er athyglisverðast er að Glitnir og Landsi eru sagðir styrkja Samfylkinguna um 300.000 hvor (hljómar ekki trúverðugt í ljósi milljóna sem einstaka þingmenn fengu - hvað er verið að fegra) Hvað er Samfylkingin að fá í styrki og því eru ekki 120 milljónir frá ríkinu nóg?  250-300 milljónir í kosningar er brjálæði hvernig sem á það er litið og hvenær sem á það er litið.

En nú hlýtur einhver endurskoðandinn að svitna all svakalega.  Þetta eru bókhaldsbrellur og ég vænti þess að aðrir flokkar stundi slíkt hið sama til að fela slóð styrkja. En það réttlætir ekki gjörðir Samfylkingarmanna.  Sem virðast miða sitt vinnulag út frá Sjálfstæðismönnum, alveg kostuglegt.

Valgeir , 23.4.2010 kl. 10:16

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Valgeir ég er búinn að lesa vef ríkisendurskoðunar enda eru þessar upplýsingar þaðan. Hún fékk fyrir kosningar 2007 4,9 milljónir og hér getur þú séð nákvæmt bókhald hennar. Það er ekki hjá sjálfstæðisþingmönnum þar eru allir NN og Óskar Nafnleyndar.

Ég undarast hinsvegar að einhverjir 30 -40 einstaklingar hafi fengið þá flugu að þeir séu sjálfskipaðir dómarar og böðlar við að taka alla af lífi sem Hreyfinginn setti á dauðalista sinn. Og skil ekki af hverju þeir sleppa þingmönnum eins og Árna, Ásbirni og fleirum af þessum lista. Og eins af hverju þeir einbeita sér að Steinunni Valdísi frekar en örðum þingmönnum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.4.2010 kl. 11:24

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Eins finnst mér fuðruleg rök að af því að Árni er búinn að taka út sína refsingu (hann var jú dæmdur af dómsstólum) þá sé hann bara orðinn allt í lagi. Mundu menn fela fjármálastjóra sem hefur verið dæmdur fyrir fjárdrátt og setið inn, fjármál sín?

Magnús Helgi Björgvinsson, 23.4.2010 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband