Leita í fréttum mbl.is

62% Ekki er það afgerandi stuðningur!

Finnst nú ekki hægt að segja að 62% stuðningur sé afgerandi stuðningur eins og Bjarni Ben sagði. Pétur bauð sig fram í morgun. Hélt eina ræðu og fékk um 35% fylgi. Enda kannski hægt að segja að það er nokkurn vegin hægt að treysta að Pétur Blöndal standi við það sem hann segir en Bjarni skoppar í hringi eftir því sem vindur snýst.
mbl.is Bjarni kjörinn formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bjarni fékk nú samt 80% meira fylgi en hvað Pétur Blöndal fékk. Það myndi nú flestum þykja nokkuð góð kosning. Pétur Blöndal hefur alltaf mikið fylgi. Menn vita fyrir hvað hann stendur.

Það verður líka að hafa í huga að Sjálfstæðisflokkurinn heldur landsfund og efnir til formannskjörs. Það er meira en hægt er að segja um aðra flokka sem halda þing sín núna um helgina. Þar hafa þingmenn grátbeðið um að forystan verð tekin og fylgi hennar mælt sbr. yfirlýsingar Sigmundar Ernis.

 Mér er til efs að Jóhanna fengi afgerandi kosningu sem formaður hjá Samfylkingu, hvað þá að Dagur B. fengi yfir höfuð kosningu sem varaformaður samfylkingar.

Hvað varðar VG, þá líta málin einfaldlega þannig út á þeim bænum að forystan heldur í hefðina og er búin að kljúfa flokkinn sem er lengst til vinstri niður í amk tvær fylkingar. Það verða tveir VG flokkar í boði þegar kosið verður næst.

Framsókn er búin að endurnýja sinn flokk frá a-ö. Nýtt þinglið, nýr frambjóðandi í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Þar sýndi sig að ekki var mikil eftirspurn. Einnig eru þar þingmenn sem eru búnir að hverfa frá flokkssamþykktum frá síðasta aðalfundi flokksins. Ófriður í uppsiglingu í Framsókn?

Borgarahreyfingin lifði í tæpa þrjá mánuði, þá var hún búin að vera. Síðan hefur ekkert til hennar spurst.

joi (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 14:58

2 identicon

þetta er barasta skrípaleikur út í gegn og ansi margir í S,flokknum ættu að skammast sín og hætta í polutík. Þeir ættu að skila peningum til baka sem þeir hafa þegið sem mútur. þetta er flokkurinn sem keyrði ísland til heljar ásamt framsókn. Burt með spillingu og mafíustarfsemi. Ég held að það sé enginn heiðarlegur í S,flokknum, einhverjir var það kannski í byrjun en lærðu að svíkja og pretta.

Einar Már G (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 15:17

3 identicon

Framsókn og Sjálfstæðisflokkur segirður Einar, en hvaða flokkur hefur setið í ríkisstjórn síðustu þrjú árin? Er það ekki Samfylking? Hefur sá flokkur ekki líka setið nær sleitulaust síðan í lok síðustu aldar í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur, sem hefur fram til þessa þótt ráðherraígildi, með Orkuveituna og Reykjavíkurhöfn sem peningamaskínur? Af hverju kýst þú að nefna ekki þennan flokk á nafn? Af hverju sagði Björgvin G. af sér? Af hverju sagði Steinunn Valdís af sér? Af hverju missti samfylking rúmlega 30% fylgi á milli kosninga í Rvk.?

Þarftu ekki að líta þér aðeins nær?

joi (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 15:58

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

joi! Aðrir flokkar gerðu það á síðsta ári. En nærri 2 af hverjum 5 landsfundagestum voru ekki tilbúnir að kjósa Bjarna. Og Pétur tilkynnti framboð sitt klukkan 9 í morgun

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.6.2010 kl. 16:00

5 identicon

Jói að sjálfsögðu er Samfylkingin líka spillt en xD og xB eru þeir flokkar sem keyrðu allt í kaf og svo settist S,fylking í bílstjórasætið með hverjum, jú S flokknum. Það verður að viðurkennast að xD er sá versti af þessum þrem flokkum. Ég þarf ekki að líta mér nær, ekki er ég S,fylkingarmaður Ó NEI. Heiðarlegt fólk á þing er það sem þarf.

Einar Már G (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 16:57

6 identicon

Magnús Helgi, Sjálfstæðisflokkurinn kaus sér formann á síðasta ári, eða þann 29. mars 2009, fyrir 15 mánuðum síðan. Jóhanna var hins vegar kosinn formaður árið 2009, degi á undan, eða 28. mars. Þú réttlætir það sem sagt að Samfylking haldi í Lady Gaga af því hún hafi setið degi lengur á formannsstól en Bjarni hafði gert, þar til hann var kosinn aftur í dag?

Miðað við úrslit samfylkingar í stórum bæjarfélögum í kosningunum fyrir mánuði síðan, þá hefði maður haldið að eitthvað yrði gert á þeim bænum, en það á greinilega að láta reka á reiðanum þar eins og vanalega. Þora Samfylkingarmenn og konur ekki að bjóða þau Jóhönnu og Dag upp aftur?

Einar Már segir að Það þurfi heiðarlegt fólk inn á þing. Ég er sammála. Það á að vera heiðarlegt fólk inni á þingi, eins og reyndar annars staðar. Hvernig þú mælir spillingu er einhver undarleg mæling. Sjálfstæðis og Framsóknarflokkur voru t.d. búnir að vera í stjórn í 13 ár samfleytt þegar ný stjórn var mynduð. Þessi sem nú situr hefur verið í tæp 2. 'A þessum stutta tíma hafa þó tveir þingmenn samfylkingar sagt af sér. Það er ansi hátt hlutfall flokks sem hefur verið í stjórn í svo skamman tíma finnst þér ekki?

Í stjórn Samfylkingar eru enn margir ráðherrar sem hafa setið þar áður, og við misjafnan orðstír svo ekki sé meira sagt. Þeir sitja sem fastast.

joi (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 18:39

7 identicon

2 Samfylkingar menn sagt af sér, sem segir mér að það sé gott að þeir hverfi á braut vegna sóðaskap. En sóðaskapurinn er meiri hjá S,floknum og ekki EINN hefur sagt af sér, sem segir ansi margt. Ég nenni ekki að telja þá upp sem ættu að fara í sturtu, en 2 hafa tekið sér tímabundi leyfi, sem er ekki nóg. xD og xB voru við stjórn 13 ár samfleitt segir þú Jói, og þeir (Davíð 0g Halldór) einkavæddu bankana til vina sinna og + Halldór með kvótalöginn,sem leiddi til þessara vittleysu sem er nú í gangi. Þannig að mælingin á spillingu er ekki svo undarleg. Að fylgjast með umræðum á þingi er ekki okkur bjóðandi, þar er oft verið að rífast um ORÐALAG í einhverju máli, bara til að vera á móti, BARNASKAPUR. Það þarf að fá fólk sem vinnur fyrir mig, þig og okkur, en ekki fyrir sjálfan sig og fjölskyldur sínar.

Einar Már (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband