Leita í fréttum mbl.is

Held að fólk sé ekki í lagi!!!!!!!!!!!!

Held að fólk sé ruglað. Halda menn að ef það væru til einhverjar töfralausnir á ástandinu í dag að stjórnvöld myndu ekki beita þeim? Stjórnmálamenn er þess meðvitaðir að heimilin er rekin af kjósendum þeirra og ef þeir gætu þá væri auðvita allt gert sem hægt væri. Bankar og kröfuhafar kjósa ekki stjórnmálamenn og eigendur eru jafnvel ekki Íslenskir. En það er óvart hluti af uppbyggingu að þessar stofnanir séu ekki veiktar frekar. Því án þeirra verður hér ekkert gert. Það verða ekki borguð laun nema fyrirtæki eigi einhverja sjóði. Því annað er bundið því að fyrirtæki hafi aðgang að fjármagni.

Það er nú augljóst að stjórnmálamenn kjósa ekki að vera óvinsælir. Það var vitað frá hruni að við þyrftum að taka á okkur lífskjaraskerðingu en mér finnst hún ekki hafa verið eins mikil og ég reiknaði með. Ef að ríkisstjórnin gæti væru náttúrulega allir skattar lækkaðir, öll lán feld niður og svo framvegis. En sorry þá gætum við allt eins lokað hér. Því allir bankar, ríkissjóður og fyrirtæki færu þá á hausinn. Og þá væri hér enginn grunvöllur lengur fyrir sjálfstæðu samfélagi.


mbl.is Telja stjórnvöld hugsa meira um banka en heimili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Guðjónsson

Það er einhver villa í þessu hjá þér. Stór hluti af þessu er getu og kunnáttu og áhugaleysi stjórnmálastéttarinnar og hennar klíku. Hefðu kaupgreiðslur verið stöðvaðar til þingmanna og ráðherra strax í nóvember 2008 þá væri hér öðruvísi umhorfs og þeir tekið við sér.

Þá eru allir bankar, ríkissjóður og fyrirtæki á hausnum. T.d. niðurgreiðir ríkissjóður bankastarfsemi í landinu um að minnsta kosti hundrað milljarða á ári. Landbúnaður kemst ekki nærri bankastarfseminni.

Einar Guðjónsson, 21.7.2010 kl. 18:43

2 identicon

Hvernig er það að vera illa haldinn af 'allir eru ruglaðir nema ég'- heilkenninu Magnús Helgi Björgvinsson?

Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 18:59

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Skv. stjórnarskrá er það Alþingi sem tekur ákvarðandir hér. Það er kosið af fólki. Utanþingstjór, Þjóðstjórn eða hvað sem mönnum dettur í hug sem einhver töfralausn getur ekki sett lög, ekki samið fyrir okkar hönd eða neitt. Allar ákvarðanir Utanþingstjórnar þyrftu að fara í gegnum alþingi. Ríkð greiðir ekki niður bankastarfsemi. Ríkið lagið bönkum til fjármagn við endurreisn bankanna. Þeir eru allir reknir nú með einhverjum hagnaði. Ríkisábyrgð á innistæðum þjónar hagsmunum einstaklinga. Það er hvergi rukkað inn eftir gjöldum vegna skíkra yfirlýsinga.

Ég er ekki að segja að ég viti neytt betur en þessi kór Hilmar um að ríkistjórn og Alþingi sé fyrst og fremst að hugsa um bankana er bara þreytt. Það er óvart nauðsynlegt fyrir okkur að hafa banka. Og það var nauðsynlegt eftir að ríkið fékk bankana í fangið að semja við kröfuhafa. Minni menn á að þessir kröfuhafar hafa tapað þúsundum milljarða á því að við höfðum ekki aðhald á þessum bönkum.

Landbúnaður er jú varinn hér af innflutningshömlum sem kosta neytendur töluvert auk þess sem við styrkjum hann beint og óbeint.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.7.2010 kl. 19:44

4 Smámynd: Einar Guðjónsson

Ríkið niðurgreiðir bankastarfsemi og það gerist þannig að aðeins þeir mega taka við peningum til geymslu. Þeir peningar koma aðallega frá lífeyrissjóðum. Þá peninga fara bankarnir með í Seðlabankann og parkera þeim þar. Fyrir það greiðir seðlabankinn þeim '' leigu'' og sá styrkur nam 90 milljörðum í fyrra.

'' Það er óvart nauðsynlegt fyrir okkur að hafa banka'' það er alveg rétt en hér eru bara engir bankar og hafa ekki verið lengur því er miklu betra í stöðunni að heimila almenningi og fyrirtækjum að skipta beint við Seðlabanka.

Hér eru hinsvegar auglýsendur sem kalla sig banka en þeir leigja út peninga á 900% hærra verði en almenningur í Evrópu leigir þá á. 

Mjólkin hér er aðeins um 50% dýrari en í Evrópu og niðurgreiðslur til landbúnaðarins eru samtals aðeins um 10 milljarðar  og hann hefur færri starfsmenn en '' bankageirinn'' sem býr við um hundrað milljarða niðurgreiðslur úr almannasjóðum. 

Einar Guðjónsson, 21.7.2010 kl. 20:09

5 Smámynd: Einar Guðjónsson

Fyrir utan að almenningur þarf að vinna 900 sinnum lengur fyrir peningaleigu vegna íbúða heldur en t.d. almenningur í Evrópu. Bankarnir lama því bæði efnahagslífið og heimilin.

Einar Guðjónsson, 21.7.2010 kl. 20:13

6 identicon

Hvaða fólk er ekki í lagi ?

Það fólk sem starfar í íslenskri pólitík er ekki í lagi !

Þá veistu það !

JR (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 20:19

7 identicon

Gott og vel Magnús Helgi. Tökum þetta lið fyrir lið.

"Utanþingstjór, Þjóðstjórn eða hvað sem mönnum dettur í hug sem einhver töfralausn getur ekki sett lög, ekki samið fyrir okkar hönd eða neitt. Allar ákvarðanir Utanþingstjórnar þyrftu að fara í gegnum alþingi."

Ef forseti skipar utanþingsstjórn er hann auðvitað búinn að tryggja að fjórflokkurinn á þingi verji hana falli - þann tíma sem sá fjórflokkur starfar á þingi. Utanþingsstjórnin verður því sannarlega starfandi stjórn.

"Ríkð greiðir ekki niður bankastarfsemi."(!)

"Það er óvart nauðsynlegt fyrir okkur að hafa banka. Og það var nauðsynlegt eftir að ríkið fékk bankana í fangið að semja við kröfuhafa. Minni menn á að þessir kröfuhafar hafa tapað þúsundum milljarða á því að við höfðum ekki aðhald á þessum bönkum."

Við erum með þrjá risastóra gervibanka í dag: Landsbankann, sem er svo eitraður að enginn kröfuhafi (les: skilanefnd) kærir sig um hann og svo Íslandsbanka, sem rænt var af skilanefnd Glitnis í nóvember 2009 og Arion banka sem heyrir undir skilanefnd Kaupþing.

Staðreyndin er að skilanefndir bankanna hafa ekki hugmynd um raunverulega 'kröfuhafa' bankanna. Þær vinna í einskismannslandi og eru samsafn siðlausra lögfræðinga sem mata krókinn á ógæfu þjóðarinnar. Flestir þessir kröfuhafar sem þú virðist vorkenna svo mjög eru löngu búnir að selja sinn hlut til áhættufjárfesta.

Hilmar Þór Hafsteinsson (IP-tala skráð) 21.7.2010 kl. 20:35

8 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Við skulumn ekki gleyma því Magnús að gríðarlegar afskriftir áttu sér stað milli gömlu og nýju bankanna. Afskriftir lána vegan fyrirtækja haf verið miklar og ég man ekki eftir að bankarnir hafi hljóðað svo undan því.Það er því ekki nema eðlilegt að heimilin njót afskriftanna einnig. Bankarnir spiluðu líka mjög djarft að veita lánin með hinnu svokölluðu gengistrygginu, sem þeirra yfirmenn hafa trúlaga vitað allan tímann að væru ólögleg.

Hafa annað hvort stólað á að enginn mundi kæra og til vara að Hæstiréttur mundi dæma þeim í hag. En sorrý og nú verða fjármálafyrirtækin að taka afleiðingunum.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 22.7.2010 kl. 00:35

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Vissulega voru lán flutt yfir í nýju bankana með afslætti. Það átti nú líka að mæta þeim lánum sem tapast algjörlega. En við skulum líka muna að það snertir óvart ekki ríkisstjórnina beint þar sem þetta eru einka fyrirtæki. Og skv. fréttum þá strokast nær allt eigið fé bankana út við að lánakjör gengislána breytast eftir hæstaréttardómin. Við skulum líka muna að ríkið á ekki bankana. Og ríkið getur því ekki einhliða ákveðið afslætti á lánum.

Varðandi utanþingstjórn þá get ég ekki séð hvernig ætti að koma á stuðningi allra flokka við hana eða stuðnig. Sorry er það ekki málið að fólk er ekki sammála um leiðir.

Málið er að það er búið að telja fólki trú um að til séu patentlausnir. Minni fólk á að skoða hvernig þetta var t.d. í Finnalndi í bankahruninu þar. Þeir voru um 10 ár að ná sér alveg og sumir segja að þeir séu ekki búnir að því enn. Þar þurfti að loka 4 hverjum barnaskóla, súpueldhús voru með kílómetersröðum, atvinnuleysi var það miklu hærra en hér. Í Svíþjóð varð líka mikið atvinnuleysi. Göran Person sem leiddi endurreisnina þar er hataðst stjórnmálamaður Svía þó allir viðurkenni að hann hafi skila þeim fyrr upp úr kreppunni en reiknað var með.

Svo ég spyr hvaða land getur fólk nefnt mér þar sem ríkisstjórn hefur bara afskrifað skuldir upp á kannski 50% af fólki og þá sérstaklega þegar að bankakerfið var ekki í opinberri eigu?

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.7.2010 kl. 01:02

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Síðan gott að benda fólki á að það var kosið til Alþingis 2009 og ný ríkisstjón tók við fyrir 13 mánuðum. Það eru náttúrulega takmörk hvað hægt er að gera þegar að fólk lætur stjónarandstöðuna og hluta Vg telja sér trú um að allt sem er gert sé vitlaust og aðrar leiðir betri. Yfirleitt einhverjar leiðir sem fólk hefur lesið um á netinu og hafa hvergi verið reyndar í raun og veru. Svona leiðir eins og:

  • Lýsa landið gjaldþrota og leita til Parísarklúbbsins. Sem við skoðun koma aldrei til greina.
  • Neita að greiða eða semja um skuldir okkar. Argentína nefnd sem dæmi. Við skoðun eru þeir enn í algjörum vandræðum eftir 9 ár þar sem þeir fá ekki erlendi lán og þurfa að þreysta á velvilja nágranalanda.
  • Afskrifa hér skuldir einhliða á heimilum og fyrirtækjum og láta það lenda á erlendum  kröfuhöfum. Það var jú gert þegar bankarnir hrundu en fólk vildi bæta þar við. Sigmundur Davíð kallar þetta einstakt tækifæri.  En fólk gleymdir því að við þurftum að semja við þessa kröfuhafa til að viðhalda hér bankastarfsemi.
  • Hér var talað um fjöldagjaldþrot heimila og húsnæðislaust fólk í þúsunda tali sem hefur ekki ræst.

Og um margt hefur hér farið miklu betur en fólk spáði og batamerki getur fólk séð ef það keyrir um og sér öll húsin sem nú er farið að vinna við að endurbæta. Maður sér iðnaðarmenn út um allt að störfum nú. Atvinnleysi að minnka, kaupmáttur að aukast, verðbólga að minnka, vextir að lækka, störfum hefur fjölgað um 2000 og fleira og fleira. Lán fara að lækka vegna dóms hæstaréttar og enn fleira. En fólk sér bara myrkur og nær ekki hausnum upp úr rassinum á sér.

Magnús Helgi Björgvinsson, 22.7.2010 kl. 01:14

11 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Hólmfríður nú er ég samála þér og það var mikið

Sigurður Haraldsson, 22.7.2010 kl. 03:16

12 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Sigurður.

Þar kom að því og bara gott mál.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 22.7.2010 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband