Leita í fréttum mbl.is

Upphlaup af litlu tilefni.

 Bendi á frábæra samantekt um gang þessa máls hér. http://tbs.blog.is/blog/tbs/entry/1084904/  

Ef fólk kynnir sér gang málsins þá sér fólk að ekkert nýtt er að koma fram núna. Eina sem hugsanlega er nýtt er lögfræðiálit LEX sem eins og ég hef áðursagt er ekki dómstóll.  En það er einmitt það sem flest af þessum gögnum sem nú er rætt um koma inn á. Þ.e. að það séu uppi álitamál sem verði að fara fyrir dóm. T.d. ekki ljóst hvaða lán eru sannarlega í krónum og svo framvegis. Þetta kemur fram hjá lögfræðing Seðlabankans sem og lögfræðingi viðskiptaráðuneytis og er það sem Gylfi segir á þingi.

Í minnisblaði lögfræðings Seðlabanka segir

Hafa verður þó í huga að ekki eru allir lögfræðingar sammála um þessa túlkun og munu dómstólar eiga síðast orðið reyni á álitaefnið fyrir dómstólum sem allt virðist stefna í að geri."

Í minnisblaði lögfræðings viðskiptaráðuneytis segir:

 Hins vegar kann það að vera álitaefni hvort lánssamningur er raunverulega í íslenskum krónum eða í erlendum gjaldmiðli. Niðurstaða veltur á atvikum hverju sinni, efni samnings og atvikum við samningsgerð og eiga dómstólar lokaorðið um hana."

Í svari á Alþingi segir Gylfi:

Ef það réttarágreiningur í máli sem þessu er það dómstóla þannig að ég tel að telji einhverjir að þessi lán séu ólögmæt þá liggi beinast við að dómstólar skeri úr um það. Það er alla vega hvorki á valdi viðskiptaráðuneytisins né annarra arma framkvæmdarvaldsins að gera það.

Er það nema von að manni finnst þetta vera stormur í vatnsglasi. Upphlaup og aðför að stjórninni stýrt af andstæðingum hennar á Mogganum svo og af Hreyfingunni sem finnst allt svona frábært til að geta komið sér í fjölmiðla.

Ef fólk les álit LEX þá fjalla það um endurgreiðslur á Krónubréfum og ekki beint um þessi gengistryggðu bílalán. Þeir eru beðnir um álit vegna auglýsinga Seðlabanka um þessi Krónubréf og gjaldeyrishöft og fleira. Þar kemur samt fram í lokaorðum að gengistrygging sé að þeirra mati ólögleg. En eðlilegt að þetta hafi ekki sjálfkrafa verið túlkað yfir öll gengistryggð lán þar sem að þá var óljót hvort að þau væru í krónum eða erlendri mynt.

Og ef að fólk les samantektina  hér þá geta Alþingismenn ekki komið núna og sagt að Gyll hafi leynt sig neinu því þeim átti öllum að vera ljóst að það var vafi um að gengistrygging væri lögleg.


mbl.is Ekki kappsmál að vera ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Svo má benda á að skv. þingsköpum þurfti Gylfi ekki einu sinni að svara Ragnheiði. "Fyrirspurn" hennar var athugasemd þingmanns í fyrirspurn um annað viðfangsefni (umfang erlendra bílalána) en ekki eiginleg fyrirspurn. Í raun var Gylfi aðeins að sýna henni kurteisi að svara henni, áður en hann vék að aðalumræðuefninu í seinni ræðu sinni um efni fyrirspurnar Birkis Jóns. Ef hægt er að tala um storm, þá er vatnsglasið ekki stærra en þetta.

Ómar Harðarson (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 10:18

2 identicon

Þegar maður les önnur blogg moggabloggara hér, þá sér maður hvurslags redneck ruslaralýður eru pennar hér.

Þetta er fólk sem finnst skemmtilegast að gala og góla, kynnir sér ekki málið en líður alveg rosalega vel með þetta, því þegar það er búið að saura yfir fólk, þá koma fleiri sem einnig eru á barmi þess að vera greindarskertir og bakka þá upp með "JÁ HANN ER SKO ALGJÖR HÁLFVITI, BURT MEÐ RÍKISSTJÓRNINA OG BURT MEÐ GYLFA!!! VÚHÚÚÚÚ VIÐ ERUM SKO REIÐA FÓLKIÐ Í LANDINU !!!"

Ég vona að heilvita fólk sjái hvaða hrikalega öflugu áróðursmaskínu sjálfstæðisflokkurinn er að reka, hér ætla ég að nefna nokkur dæmi um þetta:

IceSave kosningin... ÖLL umræðan, sérstaklega hér á mbl var í þá átt að við ættum að segja nei við samningnum því við ætlum sko ekki að borga! Endalaus viðtöl og greinar og blogg um það að við ættum sko að segja nei, því við ætlum ekki að borga! "NEI VIÐ ÞVÍ AÐ BORGA SKULDIR ÓRÁÐSMANNA!!!" var eitthvað sem heyrðist oft. Fólk safnaðist fyrir framan alþingishúsið og lét heyra í sér og svo opinberaði þetta fólk heimsku sína í live sjónvarpi, Fréttamaður: "Ætlar þú að segja nei við icesave samningnum?" mótmælandi: "JAHÁ! Við borgum sko ekki icesave!!! VÚHÚ!!!"

Lengi lifi fáfræðin, við vorum EKKI að kjósa um að borga eða ekki, við vorum að kjósa um hvaða aðferð við ætlum að nota við að borga...Það var búið að samþykkja lög 3 mánuðum áður um að við ætluðum að borga...þannig að kjósa að borga ekki, well það var of seint í rassinn gripið :)

En áróðursmaskínan náði að láta allt þetta reiða og óupplýsta fólk verða alveg klikkað, bara til þess að ná höggi á ríkisstjórnina og þið flónin félluð fyrir því.

Síðan er svo fyndið hjá þessum reiða parti þjóðarinnar...Þið kallið og kallið á afsagnir hjá fólkinu sem er að taka til eftir partýið...hlutirnir eru slæmir hér því aðrir kúkuðu á sig...Samfylking + VG eru að taka til eftir stórt partý og þið sitjið í sófanum, búin að æla á sjálf ykkur, með saur og þvag í buxunum, öskrandi á fólkið sem er að taka til að það sé að standa sig ömurlega

Girðið ykkur í brók og hættið að vera sjálfum ykkur til skammar með fáfræði ykkar

Bjössi (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 14:02

3 identicon

Það er bara nokkuð gaman að lesa blogg þeirra sem eru vel heilaþvegnir. Gallinn er bara sá að þeir sem framkvæma þvottin geta valdið öðrum miklu tjóni.

Björn (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 15:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband