Leita í fréttum mbl.is

Þetta er bara hárrétt hjá Össuri!

Fólk getur ekki nefnt einn flokk á þingi sem ekki hefur sagt þetta. Indefence sagði þetta! Ríksistjónin hefur sagt þetta. Forsetinn sagði þetta líka. Það hafa allir sem að þessu máli hafa komið sagt að Ísland ætlaði að standa við skuldbindingar sínar. En menn hafa deilt á kjörin á samningunum.

Svo ég bið menn að vera ekki að tala Össur niður í þessu. Hann segir það sem allir hafa sagt hér á landi.

Bjarni Ben sagði við Cameron: "Á fundinum tjáði Bjarni Cameron að ástæðan fyrir því að Íslendingar höfnuðu Icesave samningnum væri sú að hann hafi verið ósanngjarn og ekki hægt að fallast á að Íslendingar tækju á sig allar byrðarnar."


mbl.is Aldrei spurning um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert ótrúlegur.  Það verður ekki tekið af þér og Samfylkingunni.  Og alltaf skaltu vera öfugu megin við réttlætið.  Icesave er ólöglegt, hvað er það sem þú skilur ekki eftir þau 2 ár sem fólk hefur reynt að skýra það út fyrir þér og Samfylkingunni?

Ólafur (IP-tala skráð) 9.10.2010 kl. 01:33

2 identicon

Enda hefur það legið ljóst fyrir frá fyrsta degi að það væri okkar að greiða þessa skuld. Lagalega hefur aldrei leikið neinn vafi á því. Viðurkennd staðreynd í raunheimum. En í bloggheimum er fjöldinn allur sem telur sig ekki þurfa að borga skuldir, enga skatta og engin gjöld. Bloggarar sem vilja fá meiri þjónustu, hærri bætur og það sem þá vantar mest...hinn helminginn af heilanum.

sigkja (IP-tala skráð) 9.10.2010 kl. 01:57

3 identicon

My opinion is that Ossur is a professional liar and an unbelievably bad person. He definately does not have the peoples best interest at heart. Perhaps he is working for the dark side.

http://www.youtube.com/watch?v=rJe9T2FU2w8

http://www.youtube.com/watch?v=rJe9T2FU2w8

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 9.10.2010 kl. 02:04

4 identicon

Engin ríkisábyrgð hefur nokkru sinni verið á Icesave. Þó þú spinnir upp lygar, sigkja. Sérfræðingar í Evrópurétti og lögum hafa oft fært rök fyrir þessu. Þú lýgur ekki Icesave upp á þjóð þína, þér og Össuri mun ekki takast það.  Úti er um hann sem stjórnmálamann. Úti er um esb-inngöngu ykkar Magnúsar og Össurar. Prófið að segja sannleikann í þessu máli.

Ólafur (IP-tala skráð) 9.10.2010 kl. 02:28

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Standa við skuldbindingar?? Það höfum við alltaf gert,en að greiða ´ólögvarðar kröfur!;*NEI.     Það verður ekki mikill dynkur þegar Össur fellur,þrátt fyrir þungan skrokk,söðullinn er á ösnu.

Helga Kristjánsdóttir, 9.10.2010 kl. 03:43

6 identicon

Það er rétt hjá sérfræðingum í Evrópurétti að engin ríkisábyrgð hefur nokkru sinni verið á Icesave reikningunum. Það er líka málinu óviðkomandi. Samkvæmt lögum og dómafordæmum er það Íslenska ríkisins að greiða þessar skuldir hins Íslenska Innistæðutryggingasjóðs. Skuldir sem áttu ekki að geta orðið til ef Íslensk stjórnvöld hefði gert rétt og staðið sig sem skildi.

sigkja (IP-tala skráð) 9.10.2010 kl. 18:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband