Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú auma þjóðin!

Það eru allir að blaðra um "Nýtt Ísland" "nauðsynlegan aðskilnað framkvæmdar-, löggjafar og dómsvalds. Við skulum ekki einu sinni minnast á eignarhald á auðlindum. En svo þegar að fólk hefur tækifæri á að taka þátt í að breyta grundvallarforsendu Lýðveldisins Íslands þá nennir það ekki að taka þátt.  Er alveg sama. Nennir ekki að fylla út 25 númer og kynna sér hvað fólk hefur fram að færa. Þetta var kannski klukkutíma vinna að finna 25 einstaklinga á listann og svo 5 mínútur að skrá niður númerin á seðil á kjörstað. En nei þetta var allt of erfitt fyrir fólk. Þetta áhugaleysi er æpandi. 6 af hverju 10 nenntu þessu ekki
mbl.is Kosningaþátttaka líklega um 40%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mæti Maggi !

 Það var ekki að "fólk nenntu ekki" - nei, ástæðan er að meirihluti þjóðarinnar var búinn að sjá fyrir löngu, að hér væri um skrípaleik að ræða - samkvæmisleik fyrir fjöldann á sama tíma og gífurleg vandamál sækja að samfélaginu.

 Þetta var spuni til að dreifa hugum almennings - spuni sem kostar skattborgarana 700 MILLJÓNIR.

 Gleymdu svo ekki, að það stjórnlagaþing sem nú sest að störfum, mun skila í marz á næsta ári , sínum niðurstöðum til 63 vitringa niðri við Austurvöll.

 Vitringarnir munu rifa hvert eitt einasta atriði í tætlur sem frá nefndinni kemur.

 Niðurstaðan verður eitt stórt NÚLL !

 P.S.

 Hinsvegar er athyglisvert að Jóhanna kaus í þessari kosningu - sat hinsvegar heima þegar yfir 60% kjósenda greiddu atkvæði í Icesave kosningunni.

 Já, umhugsunarefni !

Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 00:16

2 identicon

Auma þjóðin, 4 af hverjum 10 létu plata sig í tilgangslausar kosningar. Blekkingar virðast virka vel á stóran hluta þjóðarinnar. 4 af hverjum 10 trúa hvaða bulli sem að þeim er rétt. Rökhugsun og skynsemi hefur þar vikið fyrir slagorðum, lýðskrumi og merkingarlausum frösum.

sigkja (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 00:24

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Æ ekki láta svona. Það væri gaman að sjá það þing sem færi ekki eftir því sem stjórnlagþing ákvæði! Enda verður þessum peningum eytt hvort sem fólk kýs eða ekki. Jóhanna var búinn að segja að samningur sá sem greitt væri atkvæði um í þjóðaratkvæðinu væri í raun úreltur þar sem Bretar og Hollenidngar voru búnir að bjóða betri kjör. Og Ólafur forseti kynnti að þá tæki fyrri lög gildi sem Alþingi samþykkti í ágúst 2009. Það eru meiri aumingjarnir sem halda að taka ekki þátt í kosningum sé einhver lausn. Það er svona svipað og reyna ekki að bjarga sér þegar menn eru að drukkna af því að þeir séu vissir um að bandið sem hent er til þeirra sé örugglega fúið.

Sé ekki hvaða lausn þið ágætu menn teljið að sitja heima sé. Ef að Stjórnarskrá verður breytt þá er það ekki ykkur að þakka. Ef ekki þá þarf Alþingi að mæta þjóðinni. Og sé ekki ef Ísland er svona ömurlegt af hverju þið bara pillið ykkur ekki í búrt og finnið ykkur fyrirheitnalandið þar sem allt er fullkomið?

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2010 kl. 00:47

4 identicon

Tel að ástæðan fyrir lélegri þátttöku sé einfaldlega sú að stór hluti landsmanna er sannfærður um stjórnlagaþing sé einungis pólítískt samsæri. Með því slær ríkisstjórnin þrjár flugur í einu höggi:

Fyrsta flugan: Láta líta út sem svo, að ólýðræðislegasta ríkisstjórn í sögu landsins, sem mest allra hefur brotið á bak aftur eigin hugsjónir og kosningaloforð, og staðið fyrir mesta valdaráni af þjóðinni í manna minnum, sé einhver talsmaður "umbóta" og "breytinga" sem vilji færa "fólkinu", sem hún hefur svikið, arðrænt og hunsað "vald." Blekkja lýðinni og slá ryki í augu hans.

Önnur flugan: Losna við forsetan með að leggja áherslu á að gera "breytingar" á forsetaembættinu, með öðrum orðum, gera forsetan, eina talsmann lýðræðis sem eftir er í þessu landi, fyrir utan kannski Gnarrinn, ónýtan og óvirkan og með öllu valdalausan. Þá stendur enginn eftir í vegi fyrir þeim þegar þau vilja troða Icesave, ESB, forréttindum banka og stórfyrirtækja, AGS etc kjaftæðinu upp á þjóðina, þjóðin hefur þá engan að skjóta máli sínu til og stendur ein síns liðs.

Þriðja flugan: Losna við kirkjuna. Forsætisráðherra hefur lýst því yfir hún hafi margíhugað úrsögn úr Þjóðkirkjunni, Össur er bróðir draugavinakallsins fræga og nú hafa þessir draugavinir og trúleysingjar tekið sig saman til að reka kirkjuna, spara smá pening og auðvelda stórlega Islamovæðinguna þegar við göngum í ESB-stan Islamska ríkið verðandi, ef barneignamál fara ekki að breytast, sem ekki er útlit fyrir, þegar óheftur Islamo innflutningur mun skella hér á (nema við forðumst ESB)

 Þjóðin kaus ekki afþví það var um lítið að kjósa nema málpípur og talsmenn ríkisstjórnarinnar. Og afþví hún sér í gegnum blöff og valdaránstilraunir í sauðargærum.

NÚ ER KOMIÐ NÓG AF GERFILAUSNUM ! ÞJÓÐIN LÆTUR EKKI HAFA SIG AÐ FÍFLI FRAMAR! NÚ ER KOMINN TÍMI Á ALVÖRU BYLTINGU!

Andspyrnuhreyfing Íslands - Segjum nei við frekara valdaráni! (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 00:53

5 Smámynd: Heiðar Sigurðarson

Sæll Magnús.

Fólk er fífl.

Með bestu kveðju,

Heiðar Sigurðarson, 28.11.2010 kl. 01:01

6 identicon

Vorum það við sem skunduðum á kjörstað í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga einhverju sem við teljum ömurlegt, eða varst það þú?

Það verða litlar eða engar breytingar vegna þess að það er ekki þörf á  breytingum. Stjórnarskráin er nokkuð góð eins og hún er. En ef þú ert ekki sáttur við hana ættir þú ef til vill að pilla þig burt í leit að þínu fyrirheitna landi.  Við, 60% þjóðarinnar, teljum ekki þörf á breytingum og sitjum sem fastast - en þú mátt fara þín er ekki þörf.

sigkja (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 01:06

7 Smámynd: Sigurjón

Sælir. Þið, sem hafið kosið að sitja heima, hafið fyrirgert því að tuða og nöldra um stjórnmál eða stjórnarskrá í nánustu framtíð.  Hafið það til marks.

Bið að heilsa þér Maggi.

Sigurjón, 28.11.2010 kl. 01:06

8 identicon

Það höfðu nú ekki allir kosningafærir menn möguleika á því að kjósa. 

Maður spyr sig sem sjómaður hvers konar fíflagangur þetta er í vestrænu lýðræðisþjóðfélagi.

Af hverju mátti ég ekki kjósa?

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 01:23

9 identicon

Þegar fólk á ekki til hnífs og skeiðar, veit ekki hvað það skuldar og sér ekki ljós í myrkrinu, hvaða ljós er í þessari vitleysu !

Ég held að almenningur sé uppteknari að því hvað morgundagurinn beri með sér, hvort það eigi að flytja úr landi heldur en einhver helv... stjórnarskrá !

Leysum vandamál dagsins í dag áður en við förum í 101 gæluverkefni listaelítunnar í VG

Neytandi (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 01:34

10 Smámynd: Sigurjón

Stefán hafði tækifæri til að kjósa frá því er talið er eðlilegt að sjómenn og aðrir sjófarendur hafa til að kjósa til Alþingis og sveitastjórna.  Athugasemdir hans eru því ekki við hæfi!

Sigurjón, 28.11.2010 kl. 01:50

11 identicon

Sigurjón:  Það er lengri tími gefinn til að kjósa utankjörstaðar í "venjulegum" kosningum.

Hér voru það 10 dagar.

Ert þú sjómaður?

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 01:54

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hluti af lausn hlýtur að vera endurskipulagning. Og þar með grunnstoðir lýðveldirsins. Það var jú það sem fólk mótmælti. Svo leiðist mér að þó að viss prósenda fólk eigi vissulega erfitt núna þá tali allir eins og það sé þjóðin. Og svona dramatík eins og að fólk almennt eigi ekki til hnífs og skeiðar er náttúrulega út í hött. Við vitum að það eru kannski 10 til 15% þjóðarinnar sem eiga í þannig erfiðleikum. Kannski 30% sem eiga erfitt með að kaupa ný sjónvörp og þurfa að spá í hvað þau eyða í.  Þó það séu ekki miklir penignar til nú og bankar og kröfuhafar séu erfiðir í samningum þá er það engin afsökun fyrir því að halda ekki áfram á fullu að móta nýjan sáttmála um Lýðveldið Íslands. Bendi þér á að þegar Lýðveldið Ísland var stofnað vorum við fátækast þjóð Evrópu. Og fram til 1970 eða 80 vorum við það enn. Þá lfiði fólk oft á kartöflum og öðru sem þau ræktuðu sjálf sem og fiski sem þá var ódýr. Fólk fékk ekki lán og ef það vildi kaupa eitthvða erlendis frá eða fara erlendis þurfti það sækja um sérstakar heimild til þess. En þetta fólk kaus um nýja stjórnarskrá og þátttaka var nærri 100%. Svona hugsun eins og er hér að ofan er aumingjaskapur.

Ég hef lifað það að verða tæknilega gjaldþrota og lifa af hrísgrjónum eingöngu í seinni part mánaðar. Ég þurfti að selja íbúðir og átta mig á að ég var ekki í stöðu til að eiga íbúð. Enda kunni ég ekkert með peninga að fara. Og þetta var 1995 sem ég þurfti að selja íbúðina mína búinn að eyða öllu eignifé og sat uppi með skuldir. Þetta lentu margir í á þessum tíma eftir verðbólgu 1989 upp á nærri 100% á tímabili. Ég heyrði ekki um að fólk hafi ekki lifað þetta almennt af. Síðan hef ég verið í Búsetu íbúð og greitt niður skuldir síðan þá og gengið vel. Held að fólk mikli þetta fyrir sér. Það er allskonar aðstoð í boði sem ekki var þá en samt gat fólk almennt komið sér áfram og lifað sæmilegu lífi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2010 kl. 01:57

13 Smámynd: Sigurjón

Eru það færri dagar en venjulega?  Ert þú kerfisfræðingur?

Sigurjón, 28.11.2010 kl. 01:58

14 Smámynd: Sigurjón

Þessi orð beindust til Stefáns.

Sigurjón, 28.11.2010 kl. 01:59

15 identicon

Sigurjón.  Þú veist að ég er sjómaður.  Það er allavega einn mánuður í venjulegum kosningum.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 02:01

16 Smámynd: Sigurjón

Ég spurði nákvæmlega jafn heimskulegra spurninga og þú.  Ég veit að þú ert sjómaður og þú ættir að sama skapi að vita að ég er kerfisfræðingur.  Þú hins vegar svaraðir ekki spurningunni, þar sem ég spurði hvort varðandi þessar stjórnlagaþingskosningar væri gefinn e-n sérstakur minni tími fyrir sjófarendur til að kjósa.  Svaraðu því.

Sigurjón, 28.11.2010 kl. 02:06

17 identicon

Það er ástæða fyrir því af hverju það er hægt að kjósa utankjörfundar.

Það er vegna þess að menn komast ekki á kjördag.

Ef vitað er fyrirfram að hluti kjörbærra manna geta ekki kosið vegna þess að 10 dagar er of stuttur tími, þá á að lengja hann.

Það höfðu allir sömu 10 dagana til að kjósa en vitandi fyrirfram að hluti kjörbærra manna gat ekki nýtt sér þessa 10 daga.

Það er ekki lýðræðislegt að stytta tíman út frá því sem er venjan í öðrum kosningum.

Það hefði eins verið hægt að sleppa utankjörstaðaratkvæðum.  Hvað telja þau svo sem?  Er ekki eins hægt að segja það?

Eða eigum við að ákveða fyrirfram að atkvæði sjómanna séu það fá að þau telji hvort sem er ekki.  Eða þá að þeir hefðu hvort sem er ekki nýtt sér rétt sinn.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 02:17

18 Smámynd: Sigurjón

Það var fyrir löngu ákveðið að kjósa 27. nóvember.

Ekki fyrir 10 dögum síðan.  Ég kaus fyrir 10 dögum síðan og það var ekki fyrsti dagurinn sem utankjörfundaratkvæðin voru tekin.  Þú ert í ruglinu Stefán, sem endranær!

Sigurjón, 28.11.2010 kl. 02:22

19 identicon

Fyrirgefðu.  Klukkan er orðin svo margt;)  Það var 10. nóvember. 

Þakka þér fyrir að leiðrétta mig, en í mínu tilviki eins og margra annara hefði það engu breytt.

En þakka þér fyrir að segja hér að ég þurfi ekki endilega að hafa möguleika á að kjósa þó að ég vildi.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 02:32

20 Smámynd: Jóhannes H. Laxdal

Sigurjón,  Sjómenn geta verið allt uppundir mánuð á sjó ef ekki lengur.

Það sem þú ert að segja er að ef Sjómenn vilja kjósa þá gátu þeir alveg sleppt því að mæta í vinnuna,  Mér þætti gaman að sjá þig sleppa mánaðarlaunum til þess að geta kosið.

Jóhannes H. Laxdal, 28.11.2010 kl. 03:08

21 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Maggi, er það ekki jákvætt að 60 % þjóðarinnar treysti algjörlega okkur 40% hlutanum til að sjá um sín mál ?

Aðalsteinn Agnarsson, 28.11.2010 kl. 13:28

22 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Jú auðvita er það ágætt. En svo eru þessi 60% alltaf röflandi um að það þurfi breytingar og "nýtt Ísland" en nenna svo ekki að reyna að gera neitt í því sjálf. Nema að kvarta og kveina hér á netinu.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2010 kl. 14:11

23 identicon

Jóhanna skilur ekki hvað hún er orðin óvinsæl, né hversu verðskuldaðar óvinsældir hennar eru þegar hún hefur látið leiða sig um eins og sauð.

Ef Jóhanna hefði struntaðð í lýðræðið og gefið skít í það, eins og í Icesave kosningunum, þegar hún sagðist bara ætla að skrópa á svipinn eins og bólugrafin gelgja með tyggjó, og þetta væri bara rugl og fólk ætti ekkert að mæta..........þá hefði verið met kosningaþáttta í þessa kosningu, afþví þjóðin vantreystir henni svo rosalega hún gerir alltaf öfugt við það sem hún segir.

Enda óhreint mjöl í pokahorni þessari kosninga. Skrattinn segir þér aldrei að leika einhvers staðar nema hann ætli að reyna að leiða þig í gildru. Hvet þá sem geta til að hafa augun úti varðandi allt sem viðkemur þessu stjórnlagaþingi...

Anti Jóhanna (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 14:46

24 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Icesave þjóðaratkvæði kemur þessu bara ekki við. Það var náttúrulega brandari þar sem við vorum þegar komin með betra tilboð en við vorum að greiða atkvæði um. Stjórnlagaþing snýst ekkert um Jóhönnu. Eru menn ekki í lagi. Stjórnlagþing snýst um Stjórnarskrá til famtíðar sem öll lög, regur og réttindi okkar verða byggð á. Held að Ísland sé í stórhættu ef að fólk hefur svona hryllilega barnalegar hugmyndir að það geti hefnt sín á Jóhönnu með því að taka ekki þátt í að velja fulltrúa til að endurskoða stjórnarskrá. Og eins þá minni ég menn á að Jóhanna stjórnar ekki ein hér. Hún hefur ekki ótakmarkaða peninga til að kaupa fylgi hjá fólki með því að létta af þeim öllum skuldum. Held að fólk ætti að muna að hún er að stjórnar landi sem er á kafi í skuldum. Og ekki ljóst ef að ekki næst að skera niður og auka tekjur hvort við við getum staðið við skuldir okkar.

Icesave verðum við að borga hvort sem Jóhanna er forsætisráðherra eða einhver annar. Bendi síðan á að það er Steingrímur sem fer með Icesave málið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.11.2010 kl. 15:14

25 Smámynd: Tómas H Sveinsson

Tæpleg 38% kjörsókn. Þetta er andlit þjóðarinnar sem vildi láta verkin tala. Er að koma í ljós að um er að ræða verk annarra, ekki fólksins sjálfs? Getur verið önnur skýring á því að fólkið lætur ekki í sér heyra þega það getur það?  Þessi lélega kjörsókn mun hafa tvennt í för með sér, þ.e. að Alþingi mun ekkert gera með tillögur Stjórnlagaþings þar sem það þing hefur ekki meirihluta landsmanna að baki sér, en þingmeirihluti getur alltaf haldið því fram að hann hafi meirihluta þjóðarinnar að baki sér. Hitt sem mun e.t.v. gerast er að ÓRG gæti hæglega komið í veg fyrir hvað sem er, og mun örugglega ekki skrifa undir neitt sem hann álítur að minnki áhrif og völd sín. Hann mun örugglega beita sömu rökum og Alþingi, þótt það verði e.t.v. með annarri túlkun. Þetta er ennþá einn skrípaleikurinn sem þjóðin er að láta leiða sig úti. Trúið mér. Og ÓRG mun sitja áfram á ofurlaunum suðue á Bessastöðum og fara í lúxusferðir út um allan heim, blaðra þar tóma vitleysu við erlenda blaðamenn, allt á kostnað gjaldþrota íbúum þessa lands.

Tómas H Sveinsson, 28.11.2010 kl. 15:27

26 Smámynd: Hreinn Sigurðsson

Fyndinn alltaf Maggi að vitna í þetta "betra tilboð" í icesave. sem enginn hefur fengið að sjá en Jóka og Steini voru eitthvað að röfla um. Samt vildu þau skötuhjú ekki greiða atkvæði um hina glæsilegu niðurstöðu Svavars Gestsonar.

Hreinn Sigurðsson, 29.11.2010 kl. 17:21

27 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það var í febrúar fyrir Icesave kosingu þá kom tilboð frá bretum upp á lægri vexti lengra vaxtahlé og fleira. Skoðaðu bara fréttir frá feb og mars 2010 varðandi þessi mál: Þetta sagðir t.d. Guðbjartur þá:

Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður fjárlaganefndar Alþingis, sagði við erlenda blaðamenn í gær, að ekki væri hægt annað en segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun í ljósi þess að Íslendingar hafi fengið betra tilboð frá Bretum og Hollendingum en Icesave-lögin fela í sér.

Því var það að margir sögðu þessa atkvæðagreiðslu út í hött því að þjóðin hlyti að vera sammála um að þessi lög yrðu ekki samþykkt þar sem búið var a bjóða annan semning sem fólk í sér lægri greiðslubirgði.

Síðan væri gaman að menn veltu fyrir sér hvað Icesave er búið að kosta okkur nú þegar t.d. í formi hærri vaxtarkjara, fælni fjárfesta og nær engum áhuga á að lána okkur til fjárfesta sökum þessarar óvissu í nærri 2 ár varðandi Icesave. Held það hafi verið Guðumundur Gunnarsson sem sagði að það væru þúsundir af þeim sem eru atvinnulausir í dag sem eru það vegna afleiðiinga af óleystu Icesave

Magnús Helgi Björgvinsson, 29.11.2010 kl. 18:37

28 Smámynd: Sigurjón

Sælir.

Betra tilboð (sem reyndar enginn fékk að sjá) kom á borðið vegna þess að forsetinn hafnaði lögunum og þjóðin átti að fara að kjósa um þann þrælasalasamning.

Hvað er Icesave búið að kosta?  Tja, þar sem ríkið hefur ekkert tekið að láni á almennum markaði, skiptir vaxtastigið litlu máli.  Fælni fjárfesta grunar mig að hafi lítið með Icesave að gera, heldur frekar skatta, gjöld og óhæfa stjórn landsins.  Svo getur enginn sagt með neinni vissu að ástandið væri hér betra, hefðu þrælasamningarnir verið samþykktir.  Það hefur enginn forsendur til þess.

Góðar stundir.

Sigurjón, 30.11.2010 kl. 01:08

29 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sigurjón þú veist að ákveðið var að skipa nýja samninganefnd sem fór í viðræður við Breta og Hollendinga eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þannig að tilboðið var grundvöllur að frekari samninga viðræðum. Þannig að stjórnarandstaðan fékk að sjá það tilboð og fullt af fólki en menn voru alltaf að vonast eftir betra og betra tilboði á meðan allt sat fast hér í fjárfestingum og fleiru vegna Icesave

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.12.2010 kl. 15:35

30 Smámynd: Sigurjón

Sæll.

Hvenær var ný samninganefnd skipuð?  Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.  Nú virðist svo komið að miklu betri kjör eru í boði og er það að sjálfsögðu vegna þess að forsetinn stóð í lappirnar og meirihluti þjóðarinnar einnig.  Ef ríkisóstjórnin hefði fengið sínu framgengt, værum við að fara að borga 5,55% vexti af yfir 100 milljörðum í stað líklega 3% af 60.  Það eitt og sér ætti að vera nóg til að stefna þeim fyrir landsdóm.

Svo er ekki allt fast hér vegna Icesave, eins og áður sagði.  Það er óhæf stjórn með sínar dillur sem veldur framkvæmdaleysi.

Sigurjón, 3.12.2010 kl. 14:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband