Leita í fréttum mbl.is

Það verður að segjast að undirskriftarsöfnun á netinu er bara ekki lagi með þessu formi.

Nú les maður á síðu Teits Atlasonar að hann skráir sig inn sem Bart Simsson og undir fleirum tilbúnum nöfnum. Sem gerir þessa undirskriftarsöfnun ómarktæka. Það verður náttúrulega að vera samkeyrsla með þjóðskrá svo þetta teljist marktækt.

IFA6y 

Svo skil ég ekki hvað átt er við með:

"Fölsun undirskrifta og misnotkun kennitalna varðar við lög.  Þessi síða vistar IP-tölur í öryggisskyni.  Fjöldi mögulegrar misnotkunar kennitalna tilkynnt lögreglu"

Þetta er engin formleg undirskrift heldur er fólk að gefa upp nafn og kennitölu í eitthvað form. Þannig að það ætli að vera hluti á einhverjum lista. 

Lista sem er ætlað að koma af stað Þjóðaratkvæðgreiðslu og þá fella ríkisstjórn verður að vera hægt að treysta. Og helst að þeir séu undirritaðir eigin hendi.  Og fólk verður að geta kannað hvort það sé skárð á þann lista geng sínum vilja.


mbl.is Árásir á vefsíðu tilkynntar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér er um að ræða hryðjuverkaárás. Rétt eins og Bin Laden og slíkir vilja grafa undan vestrænu lýðræði, er hér um að ræða einstakling og fylgismenn hans sem í pólítískum tilgangi ráðast á sjálft lýðræðið. Slíkar árásir á aldrei að líða. Fangelsisvist er eina viðeigandi lausnin fyrir að ráðast gegn sjálfu lýðræðinu.

Rétt skal vera rétt. (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 15:56

2 identicon

Það er nauðsynlegt til að tryggja hag lýðræðisins til frambúðar að þessir einstaklingar verði sóttir til saka og vistaðir í fangelsi eins lengi og viðeigandi má teljast þegar ráðist er á sjálft lýðræðið. Búi þeir erlendis eins og virðist vera raunin, ber stjórnvöldum viðkomandi landa að framselja þá. Góðar stundir.

Jóhann Jóhannsson (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 16:00

3 identicon

Ég vil bæta við að það verður að sækja DV til saka, blaðið sem hefur fjallað um undirskriftasöfnunina minnst allra fjölmiðla, og lengst af ekkert, og er greinilega ekki hlutlaust pólítískt séð. "Frjálsa, óháða dagblaðið" er eitthvað allt annað en það. Það er andlýðræðislegt verkfæri sem auglýsir starfsemi hryðjuverkamanna sem hvetja aðra til að feta í fótspor sín. Slíkt ber að taka jafn alvarlega og hefðu þeir auglýst sprengjuaðferðir frá Al Qaida og leyft einhverjum hryðjuverkamanninum að básúna þær í grein sem "frétt" og hvetja aðra menn til að ráðast gegn lýðræðinu. Árás á sjálft lýðræðið er hryðjuverkaárás sem skal ekki láta óhengt. Of miklir hagsmunir eru í húfi.

Jóhann Jóhannsson (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 16:03

4 Smámynd: Umrenningur

Ég geri ráð fyrir að Samstaða þjóðar gegn Icesave samkeyri listann við þjóðskrá áður en hann er afhentur Forseta Íslands og hreinsi út mikka mús og aðra andlíðræðissinna.

Umrenningur, 16.2.2011 kl. 16:25

5 identicon

Það er aðför að lýðræðinu að ætla sér að hafa áhrif á forsetann, þing og almenning með undirskriftarsöfnun þar sem hver sem er getur sett eins mörg nöfn inn og hann hefur tök á að finna kennitölur fyrir. Undirskriftarsöfnun þar sem maður getur ekki kannað hvort einhver hryðjuverkamaður hafi skráð mann og þá ekki afskráð sig.

Það er nauðsynlegt til að tryggja hag lýðræðisins til frambúðar að þeir einstaklingar sem standa fyrir þessu verði sóttir til saka og vistaðir í fangelsi eins lengi og viðeigandi má teljast þegar ráðist er á sjálft lýðræðið. Árás á sjálft lýðræðið er hryðjuverkaárás sem skal ekki láta óhengt.

Hér er um að ræða einstaklinga og fylgismenn þeirra sem í pólitískum tilgangi ráðast á sjálft lýðræðið. Slíkar árásir á aldrei að líða. Fangelsisvist er eina viðeigandi lausnin fyrir að ráðast gegn sjálfu lýðræðinu.

sigkja (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 17:15

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Held að undirskriftarlistar á netinu verði ekki marktækir fyrr en að allir verða komnir með rafræn skilríki eins og nú er verið að koma á. Og þá um leið að allir hafi aðgang að lesara fyrir þau. Þetta er víst að koma í gagnið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.2.2011 kl. 18:58

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Hér er líka hugmynd frá kerfis- og tölvunarfræðingi þ.e. Valgarður Guðjónsson http://blog.eyjan.is/valgardur/2011/02/16/netundirskriftasafnanir/

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.2.2011 kl. 19:00

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Búið að finna að þessu formi undirskriftasöfnunar og framkvæmd hennar: http://eyjan.is/2011/02/16/sendir-personuvernd-erindi-vegna-kjosum-is-lenid-i-eigu-stjornmalaflokks/

Magnús Helgi Björgvinsson, 16.2.2011 kl. 19:23

9 identicon

Við erum dauðadæmd um alla framtíð ef forsetinn lætur þetta viðgangast. Ég treysti á lýðræðishetjuna Ólaf Ragnar Grímsson

Íslendingurinn (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 20:54

10 identicon

Við verðum að notast við það besta sem við eigum eins og staðan er. Vefræn skilríki verða að raunveruleika bráðum, en þangað til er nauðsynlegt að tryggja persónuvernd. Ég veit sjálfur um fólk sem hefur misst vinnuna út af stjórnmálaskoðunum sínum. Slíkt er ekki fyllilega bannað á Íslandi ennþá, í Bandaríkjunum myndi hver sá yfirmaður sem hegðaði sér svona þurfa að sitja í áralöngu fangelsi...eins og réttlætið krefst og eðlilegt væri!!!!! Íslendingar eiga langt í land þarna, og því mikilvægara að lýðræði hér þróist áfram og við lærum það besta af lýðræðishefðum allra annarra þjóða, eflum það besta í okkar eigin lýðræði og tökum á móti hugmyndum til lýðræðisumbóta frá okkar besta fólki. Það sem vex ekki hnignar og deyr. Fasisminn breytir sífellt um gerfi, og birtist oft í gerfi þykjustu lýðræðissinna, en þeir eru þó nokkrir í Samfylkingunni. Lýðræðið verður að vaxa í átt að fyllra, beinna og raunverulegra lýðræði. Annars er það dáið og "Frelsi, Jafnrétti, Bræðralag" með því og Vestræn menning í heild sinni og hjarta hennar hætt að slá. Íhaldsmenn sem hræsnarar taki það til sín. Framfarir eða dauði! Það er valið! Alvöru fólk fari á http://www.kjosum.is  .....fasistar sleppi því, afþví karma-lögmálið sér um þá fyrr eða síðar og þeim mun refsað. Lifi lýðræðið!!!

George Washington (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 20:59

11 identicon

Þeir sem rægja með órétti þessa góðu vefsíðu skal gert ljóst að það er lögbrot sem kallast "libel" og er refsingarvert, nokkura ára fangelsi, hér að Íslandi, en áratugalangt fangelsi, sem eðlilegra er, í mörgum löndum með þróaðra lýðræði en við. Aðstandendur vefsíðunnar eru góðir og grandvarir menn með gott mannorð, og viðhafa þar stökustu varúð, til dæmis er sérstaklega gengið úr skugga um ef fleiri kennitölu en eðlilegt má teljast að ein heimilistölva sendi frá sér berast frá einni ip-tölu, en þá er málið rannsakað, haft samband við alla á listanum, og kært til lögreglunnar komi eitthvað misjafnt upp. Sem betur fer er meirihluti Íslendinga ekki and-lýðræðislegir fasistar. Ég þekki marga fylgismenn Icesave sem samt búa yfir nógri lýðræðisást til að skrá sig á þennan lista, og er ég þeirra á meðal og öll mín fjölskylda og flestir mínir vinir. Fylgismenn Icesave III eru sem betur fer ekki allir fasistar, tilbúnir til að beita lúalegum brögðum eins og að reyna að eyðileggja síðuna, eða bera libel og mannorðsmorð, refsivert athæfi og glæpur, upp á hina góðu menn sem standa fyrir þessari síðu. Hvorugtveggja ber að skoðast sem sama hryðjuverkið og glæpastarfsemin og vera sótt til saka með fullum þunga.

Virðingarfyllst, Sigurður Einarsson, lýðræðissinni og fylgismaður Icesave III.

Sigurður Einarsson (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 21:06

12 identicon

Eða eins og lýðræðiselskandi alvöru fólkið á kjósum.is segir, Kjósið snemma og kjósið oft.

Abraham Lincoln (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 21:08

13 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Magnús sannfærðu mig um að þetta sé það eina rétta í stöðunni. Við verðum betur sett á eftir.

En í guðs bænum ekki fara með þessa umræðu í eitthvert vandræðalegt snakk um kennitölur

Sigurður Sigurðsson, 17.2.2011 kl. 02:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband