Leita í fréttum mbl.is

Rétt að benda fólki á hvað Elvira Méndez Pinedo segir um þetta

Af www.eyjan.is

Elvira Méndez Pinedo, doktor í Evrópurétti og dósent við Háskóla Íslands, segir í svari við fyrirspurn Eyjunnar að það sé sitt mat að það myndi vera klárt brot á EES samningnum að fylgja ekki niðurstöðu EFTA dómstóls í hugsanlegu dómsmáli vegna Icesavesamninga.

Pinedo segir að það verði að gera greinarmun á beinum og óbeinum aðgerðum dómstólsins. Með beinum aðgerðum sé átt við niðurstöður dómsmála sem höfðuð eru fyrir dómnum, en með óbeinum aðgerðum sé átt við leiðbeinandi álit dómssins. Hún segir að niðurstaða dómsins í samningsbrotamáli sem ESA kynna að höfða gegn Íslandi myndi teljast bein aðgerð, og því samkvæmt bindandi fyrir Íslendinga frá sjónarhóli Evrópuréttar með aðild landsins að EES, EFTA dómstólnum og ESA.

Hún segir jafnframt að þó EFTA dómstóllinn geti ekki beitt neinum sektarákvæðum líkt og heimild er fyrir hjá dómstól Evrópusambandsins, þá teljist það skýlaust brot á ákvæðum EES samningsins að fylgja ekki niðurstöðu dómsins. Þá hafi dómar dómstólsins kveðið skýrt á um bótaskyldu yfirvalda vegna brota á tilskipunum EES samningsins. Þessu til stuðnings nefnir hún meðal annars mál Erlu Maríu Sveinbjarnardóttur og mál Þórs Kolbeinssonar, þar sem kveðið er á um skaðabótaábyrgð ríkisins fyrir að innleiða ekki tilskipanir EES samningsins til fullnustu.


mbl.is Samningsbrotamál líklegast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Refsing?? uppsögn EES,sem er hið besta mál. Ég vel dómstólaleiðina.

Helga Kristjánsdóttir, 24.2.2011 kl. 23:24

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ég líka Helga. Það er alveg með ólíkindum hvað Magnús er hollur því að borga bara þó að okkur beri það ekki...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 25.2.2011 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband