Leita í fréttum mbl.is

Rangfærslur/misskilningur "Nei" sinna

Hlustaði á þáttinn Vikulokin á Rás 1 í gær. Þar var m.a. annarra Dóra Sif Tynes, lögfræðingur  sem m.a. hefur unnið hjá ESA - Eftirlitsstofnun EFTA.

Hún hafði ýmislegt til málana að leggja:

  • Hún hafði leitað dómafordæma um það að karfa fyrir Íslenskum dómsstólum væri í Íslenskum krónum en hafði hvergi fundið þau. Og hafði kannað þetta hjá m.a prófessorum í lögum og sérfræðingum og þeir fundu þess hvergi neinn stað.
  • Hún lýsti því að málflutningur "Nei" sinna um að við hefðum verið svo góð við Breta og Hollendinga að láta innistæður eiga forgang með Neyðarlögum að ESA myndi taka tillit til þess. Það átti sér engin rök þar sem að Icesave væri sjálfstætt mál og sjálfstætt btot á EES samningnum.
  • Hún fræddi Hall Hallsson og fleiri á því að að þar sem að EES samningurinn er lögfestur hér á landi frá Alþingi þá gildir hann að Íslenskum lögum.  Og því gætu íslenskir dómsstólar ekki dæmt án þess að taka tillit til álits ESA.
  • Ef að dómsstól hér dæmir að okkur beri ekki að greiða skaðabætur til Breta og Hollendinga þá myndi málið ekki hverfa því að það myndi aftur fara fyrir EFTA dómsstólinn því að þetta er samningsbrot á EES samningi.
  • Þó okkur yrði ekki endilega vísað úr EES þá eru í samningum úrræði fyrir EFTA og ESB sem ganga út að t.d. heimila þeim að rjúfa hluta samning gegn okkur til að þvinga okkur til að ganga frá þessum máli. M.a. aðgerðir þá eins og að afnema tollfrelsi okkar, eða hefta fjármagnsstreymi til okkar sbr. að við fengum tímabundið að beita gjaldeyrishöftum.

Margt annað fróðlegt sem þarna kom fram. Það má heyra hvað hún sagði þegar hún fékk að komast að fyrir Halli Helgasyni í seinnihluta þáttarins http://dagskra.ruv.is/ras1/4539899/2011/03/26/ byrjar ca. um miðja upptöku.

Vek athygli að þegar "Nei" sinnar rökstyðja mál sitt en eingöngu nú vitanð í Reimar Pétursson eins og hann sé eitthvað lögfræðigúrú. Áður var vitanað mikið í Lárus Blöndal en því er nú alveg hætt.

Held að fólk ætti líka að velta því fyrir sér að setja fyrirvara þegar að Hallur Helgson og fleiri eru með lögskýringar og tala eins og þeir viti þetta alveg. Það er hægt að rökstyðja allt með tilvitnanir í lög og lagaframkvæmdir sem skilja takmarkað og rangtúlka.

 


mbl.is Icesave-hópar stækka ört
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þú hittir naglann á höfuðið Magnús með að segja að ESB muni þvinga okkur það er rétt og nú þegar komið á daginn að með því að kjósa já við IcesaveIII er lykilinn komin að ESB, það er stærsta ástæðan fyrir að ég mun kjósa nei við samningum og einnig að það er ekki hægt að samþykkja eitthvað sem við vitum ekki hvað er!

Sigurður Haraldsson, 27.3.2011 kl. 18:25

2 identicon

Málið er afar einfalt. Nei og aftur Nei við Iceslave 3 og síðan þarf að kjósa strax á eftir til alþingis.

Vanhæf ríkisstjórn !!!

Kristinn J (IP-tala skráð) 27.3.2011 kl. 18:39

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

ESA er eftirlitsaðili með því að ríki standi við EES samninginn.  EFTA dómsstóllin er sá dómsstóll sem ESA rekur mál sín fyrir. Ef að við erum ekki að standa við þann samning eða tilskipanir hans þá eðlilega verður EFTA að bregðast við. Því svona samningar væru ganglausir ef að þjóðum væri frjálst að túlka þetta eins og þær vilja. En það er t.d. ESA sem hefur farið yfir Neyðarlögin og samþykkt að við höfum heimild til að hafa hér tímabundið Gjaldeyrishöft og setja innistæður í forgang sem og að skipta bönkunum í upp í nýju og gömlu bankana. Þetta eru samt allt bort á EES en litið er til stöðu okkar. En hinsvegar lýðst okkur ekki að mismuna innistæðueigendum sem og að hafa ekki eftirlit með og sjá til þess að kerfi eins og innistæðutrygginarkerfi sé ekki virkt og þjóni tilgangi sínum

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.3.2011 kl. 18:52

4 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Magnús Helgi þú gleymir því að það er ekki eins og að við Íslendingar höfum ekki boðið vilja okkar fram í því að gera það sem við getum...

Bretar og Hollendingar hafa hafnað allri samvinnu segi ég og endanlega drullað upp á bak sitt í græðgi með því að hafna því síðasta EINGREIÐSLU...

Það er ekkert annað en að segja NEI og láta reyna á þetta fyrir dómsstólum...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 27.3.2011 kl. 19:12

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hvers konar lögfræðingur (íslenzkur?) er það, sem ber á móti því, sem segir skýrum stöfum í 9. gr. laga nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta? Þar er þetta orðrétt: "Ávallt skal heimilt að endurgreiða andvirði innstæðu, verðbréfa eða reiðufjár í íslenskum krónum, óháð því hvort það hefur í öndverðu verið í annarri mynt."

Það þýðir ekkert fyrir ykkur að bera á móti þessu, hvort sem þið eruð kölluð Maggi eða Dóra.

Ennfremur hefur aðeins fundizt eitt fordæmi, þar sem leyft var að borga í erlendum gjaldeyri, þ.e. dönskum krónum, en það var reyndar ekki skv. dómi, heldur gagnkvæmri sátt eða samkomulagi málsaðila.

Alltaf þarft þú, Magnús Helgi, að lepja upp allt sem virðist mæla með málstað andstæðinga okkar í þessu máli. Er svona gaman að veifa röngu tré fremur en öngu?

Svo talar ÞÚ um "rangfærslur/misskilning nei-sinna"!

Jón Valur Jensson, 27.3.2011 kl. 22:15

6 identicon

Enn gelltir hundur Össurs og dillar rófunni fyrir gömlu nýlenduherrunum.

Páll (IP-tala skráð) 27.3.2011 kl. 23:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband