Leita í fréttum mbl.is

Þetta verður grafskrift Ásmundar Einars í Pólitík

Hann verður minntur á þetta þegar:

  • Hætt verður við breytingar á kvótakerfinu
  • Hækkaðir skattar á lægstu laun og persónuafsláttur frystur
  • Þegar að skattar á hátekjur verða afnumdir
  • Skattar á fyrirtæki afnumdir
  • Þjónustugjöld á sjúkrahúsum verða hækkuð.
  • Þjónustugjöld á annarri þjónustu verða hækkuð.
  • Markvisst verði hér virkja án tillits til náttúruverndar og allt fyrir álver. Eins og framsóknarmenn vilja.  Gengi svo hart fram að ekkert verði hér eftir fyrir komandi kynslóðir sbr. vilja þeirra til að nýta skatta framtíðarinnar með því að skattleggja inneignir fólks í séreignarsparnaði.

Alveg með ósköpunum að hann skuli láta brjóta á að samningar við ESB verði kláraðir og kosið um þá.

Ömurlegur lýðskrumari. Sem markvisst leiðir Sjálfstæðismenn til valda hér aftur.


mbl.is Styður ekki lengur ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ásmundur er heiðarlegur og fylginn sér. Hann hefur kjark, þor og dug til að standa við sína sannfæringu.

Það er meira í hann einan spunnið en heila smálest af svikulum Samfylkingarfroðusnökkurum.

Birgir (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 20:09

2 identicon

Mér finnst hann hugaður að standa með sannfæringu sinni gegn Safylkingunni, VG og Magga.

Þetta er ekki svarthvítur heimur, en þessi stjórn er ekki nógu góð og reyndar ekki sjálfstæðisflokkurinn heldur.  Ég vona að það komi gott nýtt fólk í kosningunum.

Andri (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 20:13

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og hver er sannfæring hans? Að frekar en að þjóðin fái að greiða atkvæði um ESB aðildarsamning þá sé betra að koma Sjálfstæðismönnum og framsókn að? Hvað er að því að klára þennan samnig og þjóðinn svo fái að fjalla um hann og greiða atkvæði. Var þetta ekki það sem hann sagði um Icesave? Að þjóðin fengi að skoða samningin og hann treysti svo þjóðinni til að taka rétta ákvörðun.

Magnús Helgi Björgvinsson, 13.4.2011 kl. 20:21

4 identicon

  • Hætt verður við breytingar á kvótakerfinu

Hvaða breygingar?

  • Hækkaðir skatta á lægstu laun og persónuafsláttur frystur

Núverandi ríkisstjórn gerði að fyrstu verkum að hækka bæði tekjuskatt og alla aðra skatta ásamt því að afnema verðtryggingu á persónuafslátt.

  • Þegar að skattar á hátekjur verða afnumdir
  • Skattar á fyrirtæki afnumdir

Hátekju og fyrirtækjaskattar verða ekkert afnumdir.

  • Þjónustugjöld á sjúkrahúsum verða hækkuð.

Eitt af fyrstu verkum núverandi ríkisstjórnar var að hækka þessi gjöld.

  • Þjónustugjöld á annarri þjónustu verða hækkuð.

Eitt af fystu verkum núverandi ríkisstjórnar var að hækka öll gjöld.

  • Markvisst verði hér virkja án tillits til náttúruverndar og allt fyrir áver. Eins og framsóknarmenn vilja.  Gengi svo hart fram að ekkert verði hér eftir fyrir komandi kynslóðir sbr. vilja þeirra til að nýta skatta framtíðarinnar með því að skattleggja inneignir fólks í séreignarsparnaði.

Voru ekki síðustu fjárlög, og efnahagsspár miðaðar við álver í Helguvík, og jafnvel Húsavík líka?

Var það svo ekki núverandi ríkisstjórn sem leit undan og steig til hliðar á meðan HS Orka var seld til Kanada?

Hvað er að óttast þó núverandi stjórn fari frá?

Það versta sem getur gerst er að áfram verði leyft að auglýsa léttöl í fjölmiðlum.

Sigurður (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 20:22

5 identicon

aðildarviðræðurnar kosta meira á hverju ári en niðurskurðurinn í heilbrigðikerfinu

Samúel Guðmundur Sigurjónsson (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 20:28

6 identicon

Meira ruglið sem maður þarf að lesa hér frá þeim sem vilja ekki að við fáum að kjósa um aðild að Evrópusambandinu.  Við hvað eruð þið svona hrædd?  Að við fáum samning sem sé góður fyrir fólkið, að LÍÚ og aðrir auðmenn og hagsmunahópar kunni að missa einhver völd??

Margrét S. (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 20:33

7 identicon

Ég, einsog margir aðrir erum hræddir um að ef kosið yrði um aðild að ESB samning, þá myndi þessi svikula stjórn horfa frammhjá þeim úrslitum sem þar yrðu, og gera bara það sem þeim sýndist.

Svona er nú traustið sem hún nýtur hjá almenningi !

Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 20:50

8 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ég held að þetta sé upphafið á nýrri byrjun hjá honum Björgvin og hann á alveg örugglega eftir að  vinna stóran sess fyrir þetta innan flokksins síns...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 13.4.2011 kl. 21:02

9 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Ég er orðin þreyttur á bullinu í þér Magnús! Gengur gegn vilja meirihlutans og vilt viðhalda samá flokksræðinu til glötunar!

Sigurður Haraldsson, 13.4.2011 kl. 21:06

10 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Nú, er þetta bull í Magnúsi? Ég sé ekki betur en hann sé einn af fáum sem skrifa eitthvað af viti hér á moggabloggið. 

Eiga menn ekki að vera samkvæmir sjálfum sér? Menn heimta kosningu um Icesave en vilja ekki kjósa um ESB. Treysta menn ekki þjóðinni til að kjósa rétt?

Sveinn R. Pálsson, 13.4.2011 kl. 21:32

11 identicon

Menn treysta aðeins þjóðinni í þjóðaratkvæðagreiðslu þegar menn vita niðurstöðuna.

Þess vegna skil ég ekki Ásmund Einar.  Hann veit að þjóðaratkvæði um ESB verður kolfellt.

Hann sagði "já" vegna þessa eina máls.  Það væri nú áhugavert Alþingi og ríkisstjórn ef hver og einn fengi öll sín mál í gegn.

Menn verða að læra að gefa eftir í sumum málum.

Ásmundur Einar getur það ekki.  Honum finnst mikilvægara að vera formaður Heimssýnar en að vera þingmaður flokks í ríkisstjórn.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 13.4.2011 kl. 22:51

12 identicon

Maggi: Það er eðlilegt að draga þessa umsókn um aðild að ESB strax til baka. Umsóknin gengur þvert gegn vilja meirihluta Alþingis og vilja meirihluta þjóðarinnar. Um það vitna fjölmargar skoðanakannanir. Það vita allir Íslendingar hvað felst í inngöngu í ESB og hvað ESB er. Þar af leiðandi átti að kjósa um umsóknina á sínum tíma til að fá það fram hvort þjóðin hefði yfirhöfuð áhuga á skoða aðild að ESB. Þau rök að það þurfi betri upplýsingar og að kíkja í pakkann eru tómar lygar og falsrök. Með sömu rökum má alveg eins halda því fram að ekki sé yfirleitt hægt að kjósa til alþingis vegna skorts á upplýstri umræðu um stefnu stjórnmálaflokkanna. Þá mætti t.d. fresta almennum þingkosningum endalaust á þeirri forsendu að kjósendur þekki ekki stefnumál Samfylkingarinnar nægjanlega vel, helst að kjósendur þyrftu að sanna þekkingu sína á þeirri stefnuskrá með próftöku. Þetta dettur engum að sjálfsögðu í hug þegar kemur að taka afstöðu til framboðslista til Alþingis. Það hefur verið talið eðlilegt og sjálfsagt að kjósendur fái að kjósa það sem þeim hentar jafnvel þó vitað sé að stór hluti kjósenda lætur ekki svo lítið einu sinni að kíkja á stefnuskrár flokkanna. Jafnvel ekki einu sinni stefnuskrá Samfylkingarinnar þó ótrúlegt sé Maggi minn. Á þessari sömu lýðræðislegu forsendu er 100% eðlilegt að kjósendur á Íslandi fái að kjósa um það hvort lengra skal haldið í þessu aðlögunarferli að ESB eða ekki. Nægjanlegar upplýsingar til að mynda sér afstöðu til þess liggja alveg klárlega fyrir eins og áður sagði.  

Rekkinn (IP-tala skráð) 14.4.2011 kl. 01:20

13 identicon

Þú ert sjálfur lýðskrumari og það á fullum launum sem slíkur, sannfæring þín til sölu fyrir gig í tölvuviðgerðarbransanum. Af þeim ofmentnast þú svo og telur þig menntaðan og vitran mann, afþví einhver slúbbertinn fann upp á því að fara að gefa út háskólagráður fyrir tækninám og annan páfagaukalærdóm sem enga sjálfstæða hugsun þarf í að læra, og ekki einu sinni meðalgreind. Svo agnúast þú út í manninn fyrir að hafa sinnt búskap, sjálfur kominn mest af fólki sem gerði það þúsund ár aftur í tíman og meira, eins og allir Íslendingar (kíktu bara á islendingabok.is) ,og vanvirðing þín á þessum störfum því álíka virðuleg og svarta mannsins sem reynir að slá um sig með því að tala illa um "helvítis negra". Sveitó í neikvæðu merkingunni er hinn viðkunnalegi Ásmundur þó ekki, en það ert þú. Heimóttarlegur maður sem sér ekkert út fyrir Samfylkingargarðinn sinn, hefur aldrei lært að hugsa, og er ófært að horfa hlutlaust á hlutina og sjá þá í sínu rétta ljósi, heldur stjórnast alfarið af hver borgar launaseðilinn hverju sinni. Ég myndi hætta þessu gaspri hér, því það varir og verður að eins konar grafskrift, þinni eigin. Farðu nú að sá betri fræjum en þetta illgresi hér.

The Truth (IP-tala skráð) 14.4.2011 kl. 02:14

14 identicon

Sigurður. Það eru allir orðnir þreyttir á þessu manni. En við getum prísað okkur sæl að vera ekki í hans sporum. Hann hlýtur að vera enn þreyttari á sjálfum sér. Það er þreytandi að standa í sölumennsku á eigin sál og samvisku 24/7 bara til að vera boðið í drepleiðinleg partý hjá Samfylkingunni og fá að gera við tölvurnar þeirra.

The Truth (IP-tala skráð) 14.4.2011 kl. 02:17

15 identicon

Ásmundur er langt í frá að vera hugrakkur. Hann hefur afar þröngt sjónarhorn. Sérhagsmunir hans sem bónda og hluta af forystu bænda móta hans skoðanir. Hann er ánægður með núverandi styrkjakerfi landbúnaðarins. Hann er ánægður með allar beingreiðslurnar. Hann er ánægður með ríkisstyrkt samtök bænda og að þau eru ráðuneytisígildi. Þetta er sjóndeildarhringur Ásmundar. Aðild að ESB gæti truflað þessa þægilegu veröld. neytendur landbúnaðarvara eru Ásmundi ekki ofarlega í huga. Hans heimur er búið heima í Dölunum.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 14.4.2011 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband