Leita í fréttum mbl.is

Bara svona að benda Ásmundi og co hvað þau eru að kalla yfir Ísland

Þ.e. að þau eru markvisst að koma Sjálfstæðisflokk til valda aftur. Og á heimasíðu eins af hugmyndafræðingum þeirra í kvöld mátti lesa eftirfarandi þar sem hann sagði frá framsögu sinni á fundi ungra sjálfstæðismanna:

Ég kvað margt fleira sameina sjálfstæðismenn en sundra þeim og taldi fullvíst, að núverandi forysta flokksins myndi læra af þessu máli. Verkefnið framundan væri að þétta raðirnar og stöðva þau skemmdarverk, sem núverandi vinstri stjórn væri að vinna á atvinnulífinu.

Draugar frá nítjándu öld gengju hér ljósum logum, til dæmis hugmyndir Karls Marx um stighækkandi tekjuskatt og Henrys Georges um innheimtu sérstakrar rentu af auðlindum.

Og svo talaði hann um:

Dr. Þráinn Eggertsson prófessor hefði síðan í nýlegu og yfirgripsmiklu viðtali í Frjálsri verslun útskýrt, hversu mikilvægar margar stofnanir væru hverri þjóð. Íslendingar hefðu til dæmis myndað eina skilvirka kerfið, sem til væri í fiskveiðum, kerfi ótímabundinna og framseljanlegra aflaheimilda.
 

Það er að þá fyrst væri farið að verja forréttindahópa hér á landi. Ekkert andskotans auðlindagjald og þrepaskipti tekjuskattur afnuminn og það gert með því að lækka skatta á efstu tekjurnar og hækka á móti á þá sem lægstir eru. Og áfram ættu kvótaeigendur að fá að hirða hagnaðinn af auðlindum okkar í hafi án þess að greiða neitt sérstaklega fyrir það.

Þetta er það sem Ásmundur og co eru auðsjáanlega að stefna að. Að sjálfstæðisflokkurinn komist hér aftur til valda að mala undir flokkseigendur sína. Það er nokkuð ljóst að stjórnin fellur líklegast með haustmánuðum nema að hún nái að styrkja sig. Og þar verður Ásmundur Einar og fleiri þau sem geta þakkað sér það sérstaklega.


mbl.is Ásmundur Einar segi af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Þetta er kolrangt mat hjá þer Magnús. Ásmundur Einar og co eru ekkert að hugsa um Sjálfstæðisflokkinn heldur reyna að vera trú sinni skoðun og sannfæringu (eins og stjórnarskráin býður) öfugt á við önnur flokkssyskin sín og alla Samfylkinguna sem virðast hafa að eina markmið að sitja í ríkisstjórn eingöngu af ótta við að Sjálfstæðisflokkurinn taki af þeim stólana.

Finnst þér annars að öllu sé fórnandi til að koma í veg fyrir að Sjallar komist til valda og þá meina ég ÖLLU, þess vegna landi og þjóð og hornsteinum þess, fjölskyldunum í landinu? Bendi þér á þær gífurlegu eignatilfærslur og eignaupptökur sem þessi stjórn stendur nú fyrir með skjaldborginni um fjármálaelítuna. Hvar er skjaldborgin um heimilin sem lofað var. Jú við vitum hvar hún er. Hun er á sínum stað en snýr bara öfugt. Heimilin lentu óvart öfugu megin, eru utan við hana.

Viðar Friðgeirsson, 15.4.2011 kl. 02:41

2 identicon

Þið Samfylkingarmenn eruð svo illa heilaþvegnir að þið hafið breytt þessum flokki í einhvers konar sértrúarsöfnuður. Samkvæmt afaróvísindalegum kenningum þess safnaðar, sem haldið er fram af miklu ofstæki, er allt illt fyrr og síðar Davíð Oddsyni að kenna, og hver sem ekki lýst nógu vel á aðgerðir ykkar hlýtur að vera á vegum Satans, þar sem hann tilheyrir ekki ykkar "einu réttu trú", en Satan kallast Sjálfstæðisflokkurinn á máli Samfylkingar-safnaðarins. Það er eins og þið hafið engar heilasellur og hafið aldrei heyrt um ólíkar skoðanir, ólík siðferðisviðmið, og stofnun nýrra stjórnmálaflokka. Það eru hundruðir þúsunda stjórnmálasamtaka í heiminum. Lífið snýst ekki kringum ykkur og Sjálfstæðisflokkinn eins og í ykkar sveitó litla heimi sem sér ekkert nema sjálfan sig, hina heilögu, versus "Skrattan", fáránlega heilaþvegna fólk! Þið eruð meiri ofstækismenn en nokkur annar á Íslandi og forhertari í dúalískri heimsku ykkar og svart-hvítri heimsmynd en nokkur annar!

Jónas (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 04:33

3 identicon

Það er hægt að ætlast til þess að samræmi sé milli orða og athafna. Bæði Atli og Ásmundur tilgreina ESB málin sem ástæðu úrsagnar úr þingflokki.Ef þetta er  og hefur verið lykilmálið í þeirra huga hefðu þau átt að segja sig úr þingflokknum við stjórnarmyndun. Í stjórnarsáttmála er kveðið á um aðildarviðræður. Það er rétt Viðar að endurreisn fjármálakerfisins hefur kostað of fjár. Þyngst vegur gjaldþrot Seðlabanka. Gjaldþrot sparisjóðanna er að mínu mati tilefni rannsóknar hjá Sérstökum saksóknara. Jónas- persóna Davíðs er hvorki mikilvæg né merkileg. His vegar var sjálfstæðisflokkurinn við völd hér á landi í 16 ár. Allir vita hvernig fór. Þessu hefur verið lýst prýðilega í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Ef naf  Davíðs er oft nefnt er það tákn eða stytting fyrir litla en vel skipulagða valdaklíku sem viljandi/óviljandi tókst næstum að leggja landið í rúst. Til þess eru vítin að varast þau.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 07:34

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Magnús Helgi. Ekkert er öruggara en að Ásmundur Einar hjálpar ekki Sjálfstæðisflokknum til valda aftur. Þú getur verið áhyggjulaus yfir því! Svo mikið veit ég fyrir víst!

 Sjálfstæðisflokkurinn nær ekki að halda skoðunum og framvindu mála í gíslingu með ótta-áróðri eftir krókaleiðum eins og sumir halda, og fólk á ekki að tala Sjálfstæðisflokkinn upp á þennan hátt! Sá flokkur er búinn með sitt tímabil í langan tíma!

 Og kvótakerfisins bíður ekkert annað en að landsmenn taki það til sín, annaðhvort með aðstoð ríkisstjórnar-valdsins, eða því valdi sem er miklu öflugra en ríkisstjórnin, sem er samhentur almenningur! Jón Bjarnason getur ekki ráðið við ógnaröfl Hafró og LÍÚ ef við almenningur styrkjum hann ekki með samtakamættinum og stuðningnum.

 Þetta getum við Íslandsbúar og við gerum það ef ekki fer að gerast eitthvað með fisveiðarnar á næstunni, því hér eykst eymdin dag frá degi vegna vannýtingu á verðmætum fiskinum og kvótinn í röngum höndum. Tímabundnar frjálsar veiðar og srandveiðar er fyrsta skrefið og fyllir hvert þorp/bæjarfélag/borg af atvinnu og lífi. Svo kemur restin smátt og smátt í kjölfarið og ekki verður við almennings-þrýstinginn réttláta ráðið þegar svo langt er komið að atvinna hefur byrjað að blómgast um allt land. 

 Það er búið að sýna sig á ó-vefengjanlegan hátt í Icesave-kosningunni hversu samtakamáttur almenningur er öflugt vald, við þurfum bara að standa saman um að nota það. Þeir sem berjast gegn eða heltast úr þeirri baráttu-lest almennings fyrir kvótanum og yfirráðunum yfir fiskveiðinni undirstrika sín óheilindi með að fylgja ekki almenningi í þeirri óhjákvæmilegu baráttu! 

 M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 15.4.2011 kl. 09:03

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bendi á að ef að stjórnin fellur þá eru sjálfstæðismenn nú að mælast með um 40% eða meira. Ef það yrðu kosningar nú væri nærri ómögulegt þó það kæmu ný framboð a mynda stjórn öðruvísi en að Sjálfstæðismenn yrðu í stjórn. Því að ég sé ekki miðað við málflutning þeirra flokka sem nú eru á þingi sem og þeirra sem eru í burðarliðnum að þeir gætu ekki hugsað sér að vinna með þeim flokkum sem nú eru í stjórn.  Þannig að ég segi að það er nokkuð ljóst miðað við hegðun þeirra sem nú hafa klofið sig frá stjórnarmeirihlutanum að þeir komi til með að fella þessa ríkisstjórn ef ekki nú í vor þá næsta haust í við gerð fjárlaga.

Og þá fyrst yrði farið í að kanna með myndun nýrrar stjórnar milli flokka og síðar þá yrðu konsingar þar sem þjóðin með sitt gullfiskaminni myndi koma Sjáflstæðismönnum hugsanlega með Framsókn sem er mjög að laga sig að stefnu miðjuaflana í Sjálfstæðisflokknum myndu taka við hér aftur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 15.4.2011 kl. 09:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband