Leita í fréttum mbl.is

Alltaf bjartsýn og uppbyggileg - hún Lilja!

Hún gleymir alveg að segja okkur hvernig ríkið á að geta greitt af sínum skuldum? Nei alveg rétt hún vill að við hættum bara að greiða þær, hendum út AGS, skattleggjum séreignarsparnaðinn (sem er nú óvart stöðugt minnkandi). Næst verður það að fyrirframskattleggja lífeyrisgreiðslur fólks sennilega. Jú og svo vill hún að við drögum úr niðurskurði og dreifa honum á lengri tíma. Þá vill hún að við  tökum upp nýja minnt og notum hana til að hirða sem mest af erlendum mönnum sem eiga inneignir hér.

Og ef allt fer eins og hún leggur til þá verða kjör okkar eins og í Argentínu sem skv. henni er fyrirmyndarlandið.

Hvernig væri í staðinn að hvetja fólk til að spara t.d. í bensín kostnað með að samnýta ökutæki, nota almenningssamgöngur. Lækka hjá sér greiðslur með því að semja um endurfjármögnun lána sinna eða lengingu ofan á það sem þegar er búið að lækka þau með þeim leiðum sem eru í boði.

Held að til framtíðar sé það einmitt notkun okkar á olíu sem þarf að dragast saman!

Smá viðbót eftirfarandi rýmar ekki alveg við sönginn í Lilju og Hagsmunasamtökunum sem halda því fram að þúsundir  ef ekki tug þúsundir einstakinga sé nú þegar orðnir gjaldþrota!394624a811-456x196_o


mbl.is Þrengra í búi hjá þúsundum heimila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Þú ert einfaldur Magnús minn.

Hvers vegna heldur þú að séreignasparnaðurinn fari minnkandi? Það er auðvitað vegna þess að fólk gengur á þann sparnað sinn til að seðja óseðjandi skattafíkn Steingríms!

Og dettur þér virkilega í hug að fólk sé ekki búið nú þegar að draga saman sinn akstur, farið að samnýta farartæki, nota almenningsfarartæki í meira mæli og gera tilraunir til að semja við sinn banka um lægri greiðslubyrgði? Vissulega hefur fólk gert þetta eftir mætti.

Það vill bara svo til að sumt fólk hefur ekki aðgengi að almenningssamgöngum, sumt fólk verður að hafa bíl til að geta stundað vinnu, sækja sér nauðsynjar og læknishjálp. Ísland er nefnilega stærra en bara Reykjavík! Þetta fólk hefur þó dregið saman eftir mætti sinn akstur, einungis er farið það sem bráð nausynlega þarf.

Það vill einnig svo einkennilega til að bankar og lánastofnanir eru ekkert allt of viljugar til að hjálpa fólki í neyð þess, enda kannski ekki í þeirra verkahring. Meðan lántaki getur staðið í skilum við sinn banka og meðan bankinn sér að eignir viðkomandi eru meiri en lánin, er enga hjálp að fá frá þeim. Þökk sé "aðgerðarpakka" Jóhönnu!

Sú ríkisstjórn sem nú er við völd hefur algerlega brugðist fólkinu í landinu. Það er staðreynd sem ekki verður hrakin, því miður. Margir gerðu sér miklar vonir þegar þessi stjórn tók við en þær vonir urðu fljótlega að engu, allt vegna eins og sama málsins, ESB aðlögunarferlisins!

Það mál klauf annan stjórnarflokkinn strax í upphafi stjórnarsamstarfsins og þar með stjórnina. Síðan hefur hún verið óstarfhæf!

Sú ákvörðun Jóhönnu að gera þetta að úrslitamáli fyrir stofnun hreinnar vinstristjórnar, eyðilagði þann möguleika að þessi stjórn gæti unnið eftir þeim gildum sem hún lofaði og að hér gæti nokkurntíman orðið slík stjórn aftur. Það ber ekki mikið vitni um góða innsýn á íslenskt stjórnmálaumhverfi hjá blessaðri manneskjunni!!

Gunnar Heiðarsson, 3.5.2011 kl. 14:47

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Varðandi viðbót þína er rétt að benda þér á að fólk getur orðið eignalaust og í raun gjaldþrota án þess að lenda á nauðungaruppboði.

Bankar og lánastofnanir stunda þann ljóta leik að gera árangurslaust fjárnám og láta þar við sitja. Ekki er farið fram á nauðungaruppboð.

Ástæðan er einföld, þá er hægt að halda kröfum til streytu og koma þannig í veg fyrir að einstaklingurinn getu nokkurn tímann eignast nokkuð, ekki einu sinni nóg til að óska sjálfur eftir gjaldþroti.

Þegar bankinn fer fram á gjaldþrot falla þær skuldir sem eignir finnast ekki fyrir, niður og einstaklingurinn getur byrjað nýtt líf eftir ákveðinn tíma. Þetta þóknast bönkum ekki og því fara þeir fram á árangurslaust fjárnám og leggja þar með framtíð einstaklingsins í algera auðn.

Því er tafla um fjölda gjaldþrota algerlega marklaus í þessari umræðu!

Gunnar Heiðarsson, 3.5.2011 kl. 14:58

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Nákvæmlega Gunnar fólk getur orðið eignalaust án þess að fara í gjaldþrot. Ég lenti í því 1994 eða svo. Eftir að hafa lent í 80% verðbólgu. Náði að selja áður og semja um skuldir. Það voru margir á þessum tíma í sömu sporum og ég. Ég hins vegar í samvinnu við bankan minn var ekki nema svona 7 ár að koma mér upp í betri stöðu en ég var fyrir íbúðakaupin. Tók reyndar meðvitaða ákvörðun að kaupa mér búseturétt hjá Búseta í stað þess að taka verðtryggð lán.

Eins tók ég meðvitaða ákvörðun um að halda mig við minn viðskiptabanka í stað þess að hlaupa eftir gylliboðum annarra. Og eins að tala alltaf við bankan þegar ég sé fram á vandamál. Fá ráðleggingar og gera samninga í samráði við þá um að bestu lausninna. Ég hef það í dag 16 árum seinna mjög gott. Skulda líðið og er í öruggu húsnæði án þess að skulda persónulega mikið. Læt búseta um lánin.

Ekki það að fólk hafi ekki verið að ýta við mér fyrir hrun að fara nú að taka erlend lán því að þau væru í raun þannig að maður eignaðist íbúð á nokkrum árum. Og allskonar svona bull. Oft sama fólkið sem talaði um að ég ætti að fjárfesta í hlutabréfum í decode. Síðar í hlutbréfum í bönkunum því þau möluðu gull og myndu bara alltaf hækka. Eins að setja fé í skuldabréfasjóði sem lánuðu fyrirtækjum því þar væri ég að fá svo háa vexti jafnvel 20 til 30% á ári. Allir voru að gerast verktakar og kaupa allar vélar á erlendum lánum. Fólk var að rífa nýjar innréttingar úr húsum til að kaupa eins og það sá í INNLIT/ÚTLIT. Fólk var farið að keyra búslóðir sínar í Góða Hirðinn því það vildi allt nýtt í nýju íbúðinna.

Ég var frekar svona farinn að ímynda mér að ég væri svona ferleg raggeit. Því ég trúði ekki á að fólk gæti bara orðið ríkt á að taka lán. En þetta var fólk að gera? Og sorry ég reyndist hafa rétt fyrir mér.

Fólk hlýtur að lýsa sig gjaldþrota ferkar en að hafa innheimtumenn á eftir sér endalaust. Eins getur fólk gert sig eignalaust. Ef það bregst við áður enn allt er komið til andskotans.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.5.2011 kl. 17:04

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það eru miklu fleiri gjaldþrota í reynd en að lögum.

Alveg eins og það eru miklu fleiri öryrkjar en þiggja bætur.

Og fleiri iðjulausir en eru á atvinnuleysisskrá.

Valkvæm blindni á þessar staðreyndir lífsins er svosem þér lík Maggi.

Guðmundur Ásgeirsson, 4.5.2011 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband