Leita í fréttum mbl.is

Held bara að SIgmundur Davíð sé ekki í lagi

Maðurinn er uppfullur af patent lausnum sem hann veit ekkert hvort virka en er tilbúinn að láta þjóðina vera tilraunadýr.

Svona væri gott að einhver benti honum á t.d. að það eru ekki nokkrar líkur á öðru en að ESB komist út úr þeim þrengingum sem það á í um þessar stundir enda eru það ekki nema 3 til 5 ríki af 28 sem eiga í miklum erfiðleikum. Eins er ekki nokkur von til annrs en að EVRAN lifi því annars væru líkur á að hagkerfi heimsins færu á hliðina svona almennt. Þá er eins og hann og fleiri gleymi því að í ESB eru nú nærri 500 milljónir manna. Nærri helmingi fleiri en í USA. Heldur hann virkilega að þjoðir ESB væru ekki löngu farnar að huga að slitum á ESB ef þær hefðu ekki trú á ESB hugmyndinni?

Það verður að svara þessum bullukollum Bjarna og Sigmundi Davíð því að fólk almennt sem hefur ekki kynnt sér málið trúir þessari vitleysu sem þeir láta frá sér. Því þeir gera út á fáfræði í baráttu sinni við að koma núverandi stjórnvöldum frá.


mbl.is Vill ESB-umsóknina á ís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Magnús Helgi:

Hlustaðu á Delors sjálfan föður EVRUNNAR:

Fyrrum forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Jacques Delors, segir í samtali við belgíska dagblaðið Le Soir í dag að sambandið standi nú á barmi hengiflugs og til þess að falla ekki fram af því verði ríki þess að framselja meira af fullveldi sínu til Brussel. AFP fréttaveitan greinir frá þessu í dag.

„Opnið augun ykkar, evran og ESB standa á brún hengiflugs,“ segir Delors í viðtalinu. Hann gefur ekkert fyrir nýlegar yfirlýsingar Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, og Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseta, um samræmingu á stjórn efnahagsmála innan evrusvæðisins og segir að þær muni ekki róa markaðinn.

Delors sagði að evruríkin yrðu að deila ábyrgð á skuldum sínum upp að 60% af landsframleiðslu. Það væri eina leiðin til þess að koma á ró á mörkuðunum.

Gunnlaugur I., 18.8.2011 kl. 14:14

2 identicon

Sæll Magnús,

Bara að benda þér á tvö atriði sem stinga svolítið í augun:

- 3-5 ríki af 28 eru 11-18% af öllum ríkjum í sambandinu... mér finnst það bara frekar mikið.

- 500 milljónir eru 67% meira heldur en 300 miljónir... sem sagt 17% meira heldur en "helmingi meira".

Bjarki (IP-tala skráð) 18.8.2011 kl. 14:47

3 Smámynd: Benedikt V. Warén

Ég veit að Sigmundur Davíð er í lagi, og það góðu.  Efast hins vegar um að það sam gildi um bloggritstjóra þessarar síðu.

Ef M.H. leggði frá þér ESB-bjórkrúsina þá gætu hlutirnir æxlast þannig að það mundi rofa ögn til í Brussellþoku hans og gæti jafnvel endað á því að hann færi að hugsa rökrétt, - alveg af sjálfsdáðum. 

Hugsanlega setur sú tilhugsun í hann verulegan hroll, vegna þess að þá mundi hann sjá alveg skýrt hvaða bull er í gangi hjá núverndi stjórnvöldum. 

Að lokum vil ég upplýsa það, ég er hjartanlega sammála færslu Gunnlaugs #1.

Benedikt V. Warén, 18.8.2011 kl. 14:47

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

það eru ekki nokkrar líkur á öðru en að ESB komist út úr þeim þrengingum sem það á í um þessar stundir

Og hvað hefurðu fyrir þér í því? Það væri gaman að sjá rökstuðning fyrir þessari fullyrðingu. Eða trúirðu þess kannski bara í blindni?

Guðmundur Ásgeirsson, 18.8.2011 kl. 16:08

5 Smámynd: Óðinn Þórisson

65 % þjóðarinnar eru á móti því að ísland gangi í esb.

Þjóðin fékk ekki að segja til um hvort farið yrði í þetta ferli.

Það er mikilvægt að stoppa núna og senda málið í þj.atkvæðagreiðslu um hvor skuli halda þessu áfram

Óðinn Þórisson, 18.8.2011 kl. 17:40

6 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

óðinn

Meirihluti námsmanna vilja klára ferlið.

þannig rök þín eru dauð og ómerk.

Sleggjan og Hvellurinn, 18.8.2011 kl. 19:36

7 identicon

Sigmundur er í  lagi, þó svo að hann sé í  röngum flokki, en er í lagi með þig kæri vin?

Guðmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 18:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband