Leita í fréttum mbl.is

Þetta er meiri aumi málflutningurinn!

Það væri gaman að vita af hverju að einkabankarnir afskrifuðu ekki þá bara lánin. Því ég man ekki betur en hér hafi verið stíf fundahöld milli ríkisstjórnar og fjármálafyrirtækja um þessar afskriftir þar sem að beita þurfti þrýstngi til að fá þessar fjármálastofnanir til að samþykkja 110% leiðina. En ég efast stórlega um að Jóhanna hafi fyrirskipað bönkunum um að lækka lán ekki meira en 110%.

Eins var það augljóst öllum að afskriftum íbúðalánasjóðs hefði ríkið þurft að mæta með því að bæta honum það upp. Þetta var öllum ljóst.

Og þetta að taka Sigríði Ingu alþingismann eina fyrir held ég sýni hversu vitlaust þetta er hjá Guðmundi Andra. Hversu mikil völd heldur hann eiginlega að hún hafi varðandi þetta mál?

En þetta er svona svipaður málflutningur eins og hjá Ögmundi. Bullukollur sem koma nú og hafa svona eftir á skýringar á öllu um að málin hefðu verið hér svo miklu betri og fólk skuldlaust ef að þetta og hitt hvefði verið gert. 

En eðlilegt að GUðmundur Andri vilji skapa sér aftur stöðu eftir ófarir hans sem talsmanns Borgarahreyfingarinnar.

 


mbl.is Jóhanna vildi ekki afskriftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Miðað við allt sem hefur gengið á þá gæti ég alveg trúað Jóhönnu til að standa á hálsinum á bönkunum og skipa þeim að fara ekki neðar en 110% svo að Íbúðalánasjóður hafi ekki þurft að fylgja sort.  Íbúðalánasjóður og Tryggingastofnun eru jú þær stofnanir sem hún hefur barist harðast fyrir í þessi 30 ár sem hún hefur þegið skattpeninga í laun.

Mundu það að það voru stórnvöld sem töngluðust mest á 110% leiðinni þegar hún kom uppá borðið.  Ekki viðskiptabankarnir.

Stebbi (IP-tala skráð) 31.8.2011 kl. 02:07

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Maggi mikið rosalega hlýtur þú að elska vinstri helferðarstjórnina því allt sem hún gerir og framkvæmir er svo frábært í þínum augum!

Sigurður Haraldsson, 31.8.2011 kl. 02:33

3 Smámynd: Magnús Ágústsson

Já Sigurður hann nafni blindaður af flokkgleraugunum

Magnús Ágústsson, 31.8.2011 kl. 04:41

4 identicon

Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Maggi segir (IP-tala skráð) 31.8.2011 kl. 06:57

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Nafni, ertu ennþá það vankaður að gera þér ekki grein fyrir að það er verið að tala um að leiðrétta lánin (skila þýfi) en ekki að afskriftir (fella niður skuldir). 

Magnús Sigurðsson, 31.8.2011 kl. 07:47

6 identicon

Geisp! Mogginn birtir viðtal við eitthvað nóbodí sem hefur allt á hornum sér og kennir vitaskuld öðrum um. Moggabloggarar fara úr límingunum (sér í lagi þessir til hægri, ekki mikið eftir af öðrum hér).

Geiiisp! Enn einn gúrkudagurinn á Mogganum.

BR (IP-tala skráð) 31.8.2011 kl. 08:12

7 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Gap BR

Sigurður Haraldsson, 31.8.2011 kl. 09:14

8 Smámynd: Sandy

Fljótlega eftir hrun bankana 2008 var Jóhanna Sigurðardóttir spurð af fréttamanni ,,man ekki hvort hann var frá stöð2 eða RÚV'' hvort til stæði að afnema verðtrygginguna eða setja tak á hana á meðan þessi fjármálalega holskefla gengi yfir. Svar Jóhönnu var að það kæmi ekki til greina nema við gengjum í ESB,einnig kastaði hún fram spurningu um hver ætti þá að borga.

Allar aðgerðir ríkisstjórnar til þessa hafa miðað að því að almenningur greiddi alla summuna á einn eða annan hátt. Við munum einnig hvernig var staðið að endurútreikinigi bílalána ekki var réttlálega að staðið þegar sum fjármálafyrirtæki komust upp með að draga lappirnar í því máli.

Sandy, 31.8.2011 kl. 11:00

9 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Áhyggjur Jóhönnu og Steingríms voru af tvennum toga, yrði farið í almenna niðurfellingu eða afskriftir, eða í raun leiðréttingu eins og Maggi bendir á hér að ofan.

Ef bankarnir færu í það að leiðrétta eignasöfn sín þá yrði íbúðalánasjóður að fylgja og það gætu einhverjir "grætt" meira en aðrir og það er óheimilt í útópísku jafnaðarþjóðfélagi...

Hver á að borga var spurningin, sem kastað var fram sem eina svarinu við þeim vangaveltum að fara í almennar aðgerðir.  Nú er komið á daginn að sennilega væri Íbúðalánasjóur ekki í verri málum ef að farið hefði verið í almenna leiðréttingu, því að hann sæti uppi með færri íbúðir til að að reka tryggja og umsýsla, en vegna dugleysis Jóhönnu hafa fjölmargir skilað lyklum af sínum ´híbýlum til sjóðsins og bankana og þessar stofnanir sitja uppi með illseljanlegar fasteignir engum til gagns og öllum til ama..

Sennilega er þetta orðið mun dýrara í dag en það hefði verið ef að hugrekki hefði verið til staðar til að ráðast á hnútinn og höggva á han í stað þess að láta möléta hann á löngum tíma..

En í lokin spyr ég.. Kemur þetta einhverjum á óvart ?? ef ferill Jóhönnu er skoðaður þá hefur hún aldrei gert neitt... Og mér fyrirmunað að skilja hvernig hún varð forsætisráðherra í þessari ríkisstjórn..

Eiður Ragnarsson, 31.8.2011 kl. 12:42

10 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála Eiður og það með Jóhönnu þá var það loforð um að hún skildi standa vörð um almennan borgara sem kom henni í stólinn en því miður þá hefur hið gangstæða komið í ljós aftur og aftur hún eins og allir aðrir stjórnarliðar bæði fyrr og nú standa vörð um fjármagneigendur og bankastofnarnir fyrst og fremst!

Sigurður Haraldsson, 31.8.2011 kl. 13:14

11 identicon

Eins og Eiður bendir réttilega á að þá var hræðslu Helferðarhjúanna mest við að bankarnir tækju af skarið og lækkuðu skuldastöður og þá fengju einhverjir bitlinga sem ekki lægju fyrir dauðanum.

Ferill skarnsins í stjórn er fyrst og fremst litaður af því að halda í árina og kenna örðum um að kunna ekki að róa, ekki að hún ætli að gera það heldur fremur til að koma í veg fyrir að þeir sem henni þóknast ekki komist ekki að til að róa.

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 31.8.2011 kl. 16:33

12 identicon

Af hverju er sumt fólk, eins og Maggi, alltaf sammála ákveðnum flokki... sama hvað?

Ég er kannski að alhæfa of mikið, ég þekki Magga ekkert.  En ég fylgist aðeins með bloggfærslum sem tengjast fréttum og hef tekið eftir því að sumir aðilar eru bara alltaf á sömu skoðun og sinn flokkur.  Maggi er alls ekkert sá eini sem ég hef tekið eftir, en mér þykir þetta merkilegt.

Jóhanna getur alveg gert mistök þó þú sért í Samfylkingunni Maggi.  Það er reyndar pottþétt að allir gera mistök, það þarf ekki alltaf að réttlæta alla vitleysu út frá sínum flokki.  Svo getur vel verið að þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá henni, þó ég sé ósammála því.  Ég held það hefði verið best að afskrifa flatt strax... taka eina góða framsóknarhugmynd á þetta... jafnvel þó hún komi frá Framsóknarflokkinum.

Andri (IP-tala skráð) 31.8.2011 kl. 17:50

13 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Andri þetta kallast flokksræði og alræði flokksins allri fylgja honum í blindni það er þekkt fyrirbæri samanber Nasisma Hitlers á sýnum tíma allir vita hvernig það fór en samt heldur þetta áfram ár fram af ári og eins og sumir vilji ekki breytingar vegna blindu á flokkinn!

Sigurður Haraldsson, 1.9.2011 kl. 08:55

14 identicon

Mestu mistök í efnahagstjórn frá því að land byggðist, er að vísitalan skyldi ekki hafa verið tekin úr sambandi stax við hrunið, þetta viðurkenna allir málsmetandi menn í dag, nema yfir Simpansinn hjá ASÍ. Því það var algjör Forsendubrestur fyrir útreykningi hennar við hrunið.

Í sambandi við ESB, þá hef ég aldrei vitað til þess, hvorki hjá mönnum eða dýrum, að þau leyti sér skjóls, í brennandi húsi.

Jón Ólafs (IP-tala skráð) 1.9.2011 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband