Leita í fréttum mbl.is

Eigum við nú ekki að bíða og sjá áður en fólk dæmir

Steigrímur sagði jú í viðtölum:

Í samtali við RÚV segir Steingrímur að farið verði gaumgæfilega yfir allar mótbárur og gagnrýni en staðreyndin sé engu að síður sú að skattlagning vegna kolefnis sé minni hér á landi en í nágrannalöndunum. Slík mengandi starfsemi sé orðin skattlögð víða og engir Íslendingar vilji að landið verði skattaparadís fyrir mengandi starfsemi.

Nú ekki vill ég að hingað streymi fyrirtæki sem sæki hér í að fá að menga ódýrt sem þeir fá ekki í öðrum löndum nema gegn gjaldi.


mbl.is Ekki starfi sínu vaxinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tillögur Steingríms miða að því að skattpíningin verður meiri en í nágrannalöndum, í raun það mikil að viðkomandi fyrirtæki "leggja upplaupana" eða hætta við starfsemi hér.  Slíkt er ólíðandi og hreint út skelfilegt. 

Baldur (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 13:02

2 identicon

Sæll.

Því meiri skattlagning = þeim mun minni líkur á fjárfestingu sem leiðir til aukins atvinnuleysis. Þetta er lögmál alveg eins og þyngdarlögmálið. Steingrímur nota þetta bara sem afsökun, hann vill bara skattleggja nógu mikið svo hann geti slegið um sig með peningum. Hvernig á öðru vísi að borga fyrir rugl eins og kyngreiningu fjárlaga?

Sósíalismi eins og Vg og Sf aðhyllast er auðvitað ekkert annað en hugmyndafræði vanþekkingar og öfundar. Sósíalistar hafa ekki hugmynd um það hvernig verðmæti verða til. Nú finna Íslendingar það á eigin skinni og margir kjósa auðvitað að flýja land alveg eins og gerðist í A-Evrópu á sínum tíma.

Skattar eru auðvitað ekkert annað en löglegur þjófnaður.

Helgi (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 13:43

3 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Ekki veit ég hvort gott sé að bíða og sjá, því þá bíða bara fyrirtækin með sína uppbyggingu hér á landi, eða hætta bara alveg við. Ef þessi skattur verður settur á, ja þá verður að líkindum engin uppbygging á Bakka né Helguvík, og eins og heyrst hefur að þá muni járnblendiverksmiðjan leggja upp laupana, og hundruð manna missa atvinnu. Ansi er ég þá hræddur um að verði viðsnúningur í kassa skattmann, þegar hundruð manna bætast við á bótum.

Hjörtur Herbertsson, 24.11.2011 kl. 21:57

4 Smámynd: Jón Óskarsson

Þetta er skattur !  Hefur ekkert með mengunarvarnir að gera !   Undir óstjórn Steingríms og sífellt hringl í skattamálum þá er það nánast útilokað að hefja nýja starfsemi á Íslandi og löngu komið að þolmörkum hjá þeim fyrirtækjum sem hér eru fyrir.   Loforð Steingríms sjálfs og samkomulag sem hann skrifar undir eru svikin af honum um leið og hann snýr sér við.   Tekjuskattar á fyrirtæki hafa verið hækkaðir um 33% í tíð hans í fjármálaráðuneytinu og fyrirtæki flúið land.  Hvað kostar það t.d. þjóðfélagið að höfuðstöðvar Actavis séu ekki lengur hér á landi og margar annarra fyrirtækja sem ekki eru alltaf í fjölmiðlum.   Hvað kostar það þjóðfélagið ef járnblendiverksmiðjan hættir starfsemi ?   Hvað er verið að setja mikla hagsmuni í formi skatta frá fyrirtækjum og einstaklingum, minnkandi atvinnuleysi og fleira með því að koma í veg fyrir að kísilverksmiðjurnar á Bakka og í Helguvík ?

Kolefnisgjöld eru hækkuð um 32% núna á einu bretti.  Hvað réttlætir svo mikla hækkun ?

Nýr skattur á kolefni í föstu formi er enn ein árásin á fyrirtækin.  

Víða erlendis er verið að draga úr þessum skattheimtum vegna efnahagsástandsins í heiminum.   Á meðan hamast Steingrímur við að hækka allt sem mögulegt er og helst tvískatta fyrirtæki, allt með það að markmikið að fjarlægja héðan allt sem heitir stóriðjan og allt sem á einn eða annan hátt má túlka sem mengandi starfsemi.

Gegn mengun má ráðast með allt öðrum tækjum.   Gera á miklar kröfur til mengunarvarna og starfsleyfi að vera háð því að fyrirtæki geri allt sem hægt er til að lágmarka mengun og hafi upp áætlanir sem fylgt er eftir hvernig dregið verði enn frekar úr mengun á komandi árum.

Að skattleggja mengunina er ekki að draga á neinn hátt úr mengun.  Því fylgja engar kvaðir um mengunarvarnir.   Með svona skattheimtu er verið að segja "ef þú borgar kolefnisgjöld og hliðstæða skatta, þá máttu menga eins mikið og þú vilt með tilheyrandi umhverfissóðaskap og áættu fyrir heilsu fólks, borgaðu bara þennan skatt og okkur er sama".

Þetta er alröng stefna !

Jón Óskarsson, 25.11.2011 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband