Leita í fréttum mbl.is

Ólafur Ragnar hefur verið Forseti nærri 1/4 af lýðveldistíma Íslands

Ólafur Ragnar varð forseti 1996.  Fólk hér á landi er að krefjast endurnýjunar í öllum embættum af hverju þá ekki á Bessastöðum?

  • Skömmu eftir að Ólafur varð forseti voru bankarnir hlutafélagavæddir. Og Ólafur gerði ekki athugsemdir við það.
  • Síðar voru bankarnir seldir og Ólafur gerði ekki athugsemdir við það. Jafnvel þó ljóst væri að verið væri að einkavinavæða þá.
  • Ólafur gerðist í raun starfsmaður bankana og fyrirtækja þeirra við útrásir um allan heim og skrifaði meðmæli hægri og vinstri fyrir þau, talaði við og heimsótti lönd til að tala máli bankana.
  • Fór um heimin og talaði um Íslenska fjármálasnildina sem hann gaf sig út fyrir að vera sérfræðingur í.
  • Hann meira að segja veitt sumum útrásarvíkingum og bankastjórum Riddarakross.
  • Eftir hrun baðst hann reyndar afsökunar en mótaði sér síðan leið til að vinna upp vinsældir. Hann gerðist lýðskrumari. Þ.e. að málflutningur hans fór að mótast eftir því sem hann taldi að myndi skapa honum gott umtal.
  • Hann fór í fullt af viðtölum og hafið ekkert fyrir því að kynna sér stefnu stjórnvalda í utanríkismálum heldur talaði bara eins og hans skoðanir væru skoðanir Íslands.  Man fólk t.d. eftir því þegar allt varð vitlaust í Þýskalandi þegar hann sagði að allar innistæður í Kaupþingi væru tapaðar og fólk fengi ekkert af þeim því að Íslands væri nær gjaldþrota.  En óvart hafði aldrei staðið annað til en að allar þær innistæður yrðu borgaðar enda til eignir fyrir þeim. Eins var viðtal við Kanadískt tímaris þar sem þurfti að leiðrétta snarlega.
  • Hann fór í fullt af viðtölum og var heppinn þar sem að blaðamenn voru illa undirbúnir og gátu ekki séð þegar hann var að bulla .
  • Hann hefur á þessum tíma ekkert gert svo maður sjái til að vinna með stjórnvöldum að lausnum heldur hafa orð hans og athafnir komið aftan að Stjórnvöldum og hann vísvitandi verið að grafa undan þeim til að auka sínar vinsældir. 
  • Ætli að Icesave samningur síðasti hefði í raun ekki sparað okkur peninga í ljósi aukinna fjárfestinga hér og betira lánshæfismats. A.m.k. hefði hann ekki held ég kostað okkur krónu vegna þess að þrotabúið á fyrir rúmlega því hann hefði kostað okkur
En aðalega er hann búinn að vera hér í embætti í 16 ár og komið nóg.
mbl.is 66% vilja nýjan forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll; Magnús Helgi !

Vertu ekki að kvaka þetta; drengur.

Rama IX. Thailandskonungur; hefir setið frá árinu 1946 - og er hvergi á förum, úr sínu embætti, nema ellin verði honum yfirsterkari, að lokum.

Reyndar; er Thailand Erfðakonungdæmi - Malaysía; aftur á móti, er Kjörkonungdæmi, svo fram komi, einnig.

Á seinni árunum; hefir Ó.R. Grímsson ekkert staðið sig illa, skilst mér á vinum mínum, úr röðum Lýðveldissinna, Magnús minn, sbr. sjálfsagða andstöðuna, við óverjandi heimtufrekju Breta og Hollendinga, á höndur Íslendingum, nýverið.

Sjáum fyrir okkur; Bandaríkjamenn - ábyrgjast spilaskuldir Las Vegas fíklanna, eða þá; Frakka, gagnvart Monte Carló rugludöllunum, ágæti Kópavogs búi.

Með kveðjum; vestur yfir fjallgarð /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 24.3.2012 kl. 20:20

2 identicon

Ólafur samþykkti einnig lög um það hvernig gengislánin skyldu reiknuð aftur í tímann.

Hann hefur verið sterkur að "verja" hagsmuni þjóðarinnar út á við, en ekki inn á við.

Þegar hann skrifar undir óvinsæl lög, þá er það rikisstjórninni að kenna.  Þrátt fyrir að hann þarf að skrifa undir sem "öryggisventill".

Enginn er fullkominn.  Mér finnst hann hafa staðið sig ágætlega.  Hann hefði samt sem áður átt að samþykkja Icesave þegar stór hluti þingmanna samþykkti. 

Það er auðvitað hægt að deila um það.

En enginn á að vera 20 ár forseti í lýðræðisríki.  Enginn einstaklingur í lýðræðisríki á að vera það mikilvægur.

En ætli ég kjósi ekki Ólaf, ég verð, því ég lofaði vini mínum að kjósa hann ef hann myndi bjóða sig aftur fram.

Stefán (IP-tala skráð) 24.3.2012 kl. 20:57

3 Smámynd: Gunnlaugur I.

Ég studdi Ólaf Ragnar frá upphafi sem forseta.

Í heildina hefur hann staðið sig mjög vel, enda afburða vel greindur og klár.

En vissulega gerði hann sín mistök eins og fjöldi annarra ráðamanna sem létu útrásar bankaglæponana villa sér sýn um stund eins og Ingibjörg Sólrún og Björgvin G. og reyndar flestir ráðamenn íslensku þjóðarinnar því miður gerðu líka.

Ólafur Ragnar bar þó öfugt við þau, alls enga stjórnarfarslega eða stjórnsýslulega ábyrgð á athöfnum þessa þotuliðs.

Gunnlaugur I., 24.3.2012 kl. 21:17

4 identicon

Gunnlaugur, já hann ber enga ábyrgð.  Af hverju?

Hann skrifar undir öll lög sem Alþingi samþykkir en án ábyrgðar.  Hann getur alltaf sagt að Alþingi hafi samþykkt lögin.

Hann var eins og aðrir og því ætti hann að víkja.

Að vera vitur eftir á , eins og með Icesave, er ekki nógu gott.

Hann hefur einnig samþykkt allt það sem núverandi ríkisstjórn hefur samþykkt, nema Icesave.

En eins og ég sagði, þá verð ég að kjósa hann.  Er búinn að selja atkvæðið.

Ég held að ég verði að melda mig hjá þér þegar ég fer næst til Spánar.  Ég held að við munum eiga góðar samræður um heim og geim:)

Stefán (IP-tala skráð) 24.3.2012 kl. 21:24

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

það er algjör mýta að ÓRG hafi ,,varið hagsmuni íslands" í einhvejum viðtölum hist og her. Alveg fráleitt.

Hann hefur nátúrlega skaðað hagsmuni Íslands og grafið undan trúverðugleika landsins. Sem er = skaði.

þessi vitöl sem hann hefur verið að asnast í eru algjörlega tilgangslaus en gera bara landið hlægilegt.

Ennfremur er eg ekki alveg að sjá hvað nákvæmlega fólki finnst hann gera vel í margnefndum viðtölum. það er eins og fólk ætlist til að spyrjandinn fari að rífast við kallinn þegar hann bullar sem mest. Gerist ekkert þannig. Td. í samb. við icesaveskuldarmálið, þá talaði kallinn út og suður og sló úr og í og orðræða hans var í heild algjör merkingarleysa og tím steypa. Spyrjendurnir létu bara þar við sitja vegna kurteisi sem er siður erlendis. það er eins og íslendingar td. skilji ekki breska kurteisi. Bretar eru svo kurteisir - að manni krossbregður í samskiptum við þá ef maður er ekki vanur því. Ekki hægt að lýsa því vegna þess að slík kurteisi þekkist ekki í íslensku hefðinni.

það sem skiptir máli með ÓRG og hans vafstur í kringum viðskiptajöfra sem icesaveskuld var afleiða og framhald af er - að það er ekki hægt að finna einn ráðandi mann í Evrópu eða vestrænum heimi sem tekur undir með ÓRG í hans þrugli. Ekki einn. það er það sem skiptir máli. það að einhver nöttkeis útí heimi og einhverjir samsærissmiðir nefni ÓRG se sína fyrirmynd - er einfaldlega ekkert relevant. því miður. Eða man fólk eftir því einni hinna mörgu kjánalegu icesaveskuldaratkvæðagreiðslu hérna þegar sumir innbyggjarar hérna trúðu því að það mundi verða alsheimsbylting? Haha fólk trúði þessu sumt. Að þessi atkvæðagreiðsla mundi skipta einhverju máli fyrir heimsbyggðina hvorki meira nér minna. Heimsbyggðina! Náttúrulega bara djók. Fólk er að láta þjóðrembingsöfgarnar blinda sér sýn og hlaupa með sig í gönur.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 24.3.2012 kl. 21:47

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það getur hver sem er kallað þennan eða hinn samsæris ehv. Engan Íslending hef ég séð verja Ísland á fjölmennum fundi, tuga erlendra blaðamanna (v/landhelgisútfærslunnar) ,eins og einmitt Ólaf Ragnar.Hann var ekki forseti þá, heldur ungur ofurhugi. Látið ykkur ekki detta í hug að nokkur Íslendingur sé ósnortinn,eftir þessa alheimskreppu. Það er því ekkert einkennilegt við að allskonar sjónarmið komi fram. Það sem einum finnst vitlaust,finnst öðrum snjallt. Þess vegna þurfum við opin skoðannaskipti,nokkuð sem núverandi stjórn lagði áherslu á í upphafi. Við spyrjum að leikslokum,enn eiga bombur eftir að springa,sem betur fer líkhamlega skaðlausar. Góða nótt!

Helga Kristjánsdóttir, 25.3.2012 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband