Leita í fréttum mbl.is

Væri gaman að vita hvað fólk vill í staðinn.

Nú hafa tugir ríkisstjórna verði hér við völd sem hafa stefnt að því að hafa aga hér á efnahagsmálum en engum tekist það hingað til. Hér hefur verið sveifla á gengi verðbólga og gjaldeyrishöft hafa verið hér viðloðandi mest allan lýðveldistíman.

Hér hafa tiltölulega fámennar stéttir nær alræðisvald. Kannaði það um daginn og komst að því t.d. að bændabýli hér eru minnir mig milli 4 og 5000 og þau ráða hér öllu matarverði ásamt milli liðum. Auk þess sem við styrkjum þau um 15 milljaðra á ári. Útgerðamenn eru kannski 3 þúsund í mesta lagi og í raun aðeins um 20 til 30 fyrirtæki sem eiga um 75% kvótans. þannig að það gætu verið kannsi 10 til 15 þúusndmanns sem eru að vinna í þessum 2 greinum og ráða hér bara öllu. Og með ógurlegum áróðrsherferðum og flokkunum sínum 2 eru búin að telja Íslendinga á það að ESB sé ógurlegt skrýmsli sem langar til að éta okkur með húð og hári. Og almenningi dettur ekki í hug að biðja um raun hæf dæmi um þetta. 

 En hverng væri að einhver spyrði þessa menn hvaða leiðir þeir hefðu til að koma hér á stöðugleika og auka velferð.  Það þýðr ekki að vísa bara í virkjanir og stóriðju því að í hverri stóriðjum þá erum við ekki að tala um nema 400 störf föst. Og orkan okkar er takmörkuð og við þegar búin með meira en helming af virkjanlegri orku nú á 50 árum í nokkur álver og stóriðju og það rafmagn verður ekki notað í annað næstu 50 árin því að þeim er tryggð orka til 30 til 40 ára í einu og með möguleikum á framleggingu. Með þessum hraða sem hefur verið hér síðustu áratugi verðum við búin með alla virkjanlega orku innan 20 ára. Nema Gullfoss og nokkra verndaða staði. Og öllum svona verkefnum fylgir verðbólga og svo atvinnuleysi í kjölfarið. 

Þessir gömlu valdaflokkar boða okkur framtíð sem byggir á stöðunni sem var hér upp úr 2000. Þar sem verður viðvarandi verðbólga, verðtrygging. Minni á að síðast þegar að framsókn og sjálfstæðisflokkur tóku við þá hikuðu þeir ekki að setja hér staðgreiðslu upp í 42% . Það yrði áfram svona hátt matvælaverð og háir tollar á innfluttri matvöru. 

Með samning við ESB gefast svo ótalmörg tækifæri á að endurskipuleggja hluti hjá okkur en það vilja þessir flokkar ekki og fólk á eftir að átta sig á því ef að þessir flokkar komast til valda að ýmsilegt sem fólk var ósátt við hér áður verður endurvakið.

 Kópavogi 27. apríl 2012


mbl.is Mikill meirihluti vill ekki í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað fólk vill fá í staðinn? Jafnvægi í ríkisfjármálum, leggja Samspillunguna niður, endurskoða EES samning án hans hefði aldrei orðið það efnahagshrun sem hér varð, evrópsk spilling innflutt af samspillingu í gegnum EES samning.

Meiri samkeppni á matvælamarkaði sem bónusfeðgar ESB sinnaðir lögðu undir sig og afhentu síðan hrægömmum Evrópusambandsins ( kröfuhöfum)

Afnema verðtryggingu og vaxtaokur berjast við þau vandamál innanlands enginn lausn að afhenda teknókrötum í Brussel völdin og yfirráð yfir landhelginni sem gerði okkur að einni ríkustu þjóð heims miðað við hausatölu áður en efnahagsböðlar Evrópusambandsins fóru hér ránshendi um.

Íslenskt sjálfstæði og fullveldi með möguleikum á viðskiptum við hvaða þjóð sem er án þess að fara í gegnum brussel.

Niður með Samfylkinguna!

Örn Ægir (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 20:12

2 identicon

Er það ekki svona jafnvægi í fjármálum, að lögreglumenn fái auknar launagreiðslur á kostnað hæstaréttadómara ?

JR (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 20:25

3 identicon

Magnús..............VAKNAÐU MAÐUR!

http://mbl.is/frettir/erlent/2012/04/25/hrun_esb_ordid_ad_raunhaefum_moguleika/

anna (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 21:08

4 identicon

Það mætti halda að Magnús sé búinn að þamba nokkrar könnur eins og hann heldur á myndinni.

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 21:44

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

Já tek undir með Önnu og öðrum hér að ofan, þetta er vonlaus bárátta og sundrar aðeins þjóðinni enn meir.

Vaknaðu Magnús.

ESB og EVRU helsið er dauðadæmt !

Þjóðin þarf á því að halda að skynsamt fólk eins og þú hættir nú þessu vonlausa ESB trúboði !

Gunnlaugur I., 27.4.2012 kl. 21:46

6 Smámynd: Sigurjón

Sælir.

Í Grikklandi (sem er búið að vera ESB-land síðan 1981) hafa menn lengi reynt að koma skikki á efnahagsmálin, en það þýðir ekkert þegar þjóðfélagið er ekki með á nótunum.  Nú eru Grikkir í skítnum og þó hafa þeir Evru og eru í ESB. Hvernig útskýrir þú hvernig Ísland á að ganga í sambandið og allt verður gott hér á skeri smákónga og einkavinavæðingar Maggi? Nei, það gengur ekki. Þeir sem vilja stöðugleika verða því miður að flytja til norðurhluta ESB. Það þýðir ekki að flytja til suðurhlutans, vegna þess að þar ríkir einfaldlega ekki stöðugleiki, eins og dæmin sanna. Ég mæli með því að þú reynir að finna þér vinnu í Danmörku, Þýzkalandi, Svíþjóð eða Austurríki Maggi.

Hins vegar er gaman að segja frá því að í Noregi og Sviss (einnig Liechtenstein) ríkir líka stöðugleiki (þrátt fyrir að vera án ESB og Evru), þannig að þar er líka hægt að setjast að í leit sinni að stöðugleika. Athugaðu þetta Maggi.

Bið ég svo að heilsa öllum hérna með kærum kveðjum.

Sigurjón, 27.4.2012 kl. 22:22

7 identicon

Eitthvað þarf að gera því ljóst er að Íslendingar einir og sér ráða ekki við að koma hér á stöðugleika. Hvort það er ESB eða eitthvað annað veit ég ekki en íslenskir stjórnmálamenn munu aldrei hafa þann aga sem þarf til að koma málum í lag, alveg sama í hvaða flokki þeir eru.

Guðmundur (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 22:26

8 identicon

Grikkir hafa verið í skítnum allavegana frá síðustu heimstyrjöld. Þeir lugu sig inn í EVRU samvinnuna. Þetta er vitað mál að Grikkir hafa aldrei verið annað en latir og enn meir latir. Svo er spurningin hvort ESB vilji á annað borð hafa væluskjóður eins og íslendinga innan síns sambands? Hér hefur alltaf hver höndin verið uppi á móti annari. Eilífðar verðbólga, verðtryggð lán og hæsta matarverð í Evrópu. Kannski að Noregur sé eitthvað hærri.

Jóhann (IP-tala skráð) 28.4.2012 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband