Leita í fréttum mbl.is

Hvað er eiginlega að mönnum?

 Nú skulu þingmenn þá skýra út fyrir okkur hverjir aðrir eiga þá að borga þessa skatta? Af hverju grein sem hefur áður rukkað  14% vsk. getur það ekki núna þegar gengið hefur fallið um helming? Afhverju þessi gren sem vissi að lækkun vsk. niður i 7% lætur nú eins og þetta komi á óvart? Eins væri gamana að vita hversu víða verð fyrir næsta sumar t.d. er komið erlendis og hvort að þar gerist aldrei að verð hækki. Mig minnir að á flestum stöðum séu fyrirvarar nema að maður staðgreiði við pönntun. 

Nú hefur komið í ljós skv. fréttum að í ferðaþjónustu er einna mest um svarta starfsemi sem lýtur að því að komast hjá að borga skatta. 2007 var viðisauki lækkaður á gistiþjónustu. Nú er meirihluti þingmanna á móti því að hækka á þessari grein virðisaukan upp í 14%. Það verðu því nauðsynlegt að þessir sömu þingmenn bendi þá á leiðir til að ná þessum peningum inn í Ríkiskassan í staðinn

Eins að skýra út fyrir okkur af hverju nær allir fjárfestar eru tilbúnir að kaupa nærri hvaða hús sem er og breyta í hótel. Ef að þessi grein standur á þvílíkum brauðfótum að hún þarf að svindla á sköttum, getur ekki þrátt fyrir gengisfall rukkað inn vsk. sem þeir vissu að yrði endurskoðaður í þessu ári. 

Hvaða tök hefur hún á þingmönnum Eins grein sem borgar yfir höfuð lágmarkslaun er það æskilegt að mylja undir hana og þá á kostnað hverra? Einhver þarf að borga. Ekki ætlum við að reka ríkið með halla enda getum vð það ekki. 

Bara í fréttum í dag eru hugmyndir um griðarlegar fjáfestingar í hótelum m.a. Laugarvegur 77 sem hugmyndin er að verði Hótel  Niceland  og svo hótel upp á 88 herbergi í Grímsnesi.


mbl.is Styðja ekki 14% skatt á ferðaþjónustuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrirvarinn var of skammur, eins og Guðmundur Steingrímsson bendir réttilega á. En vitaskuld á þessi atvinnugrein ekki að búa við einhver sérkjör til langframa. Mætti hækka vask-inn um t.d. 3 prósentustig núna og síðan 5 á ári næstu þrjú árin. En þetta þarf að liggja fyrir með góðum fyrirvara.

Útlendingar eru nefnilega ekki eins og Íslendingar almennt, sem láta bjóða sér svona hækkanir möglunarlaust.

Badu (IP-tala skráð) 28.11.2012 kl. 19:51

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það þarf að send alla Samfylkinguna á námskeið hjá Ríkisskattstjóra.Þú virðist ekki skárri en hitt Samfylkingarliðið Magnús, með að halda það að fyrirtækin borgi virðisaukaskattinn.Ég ráðlegg þér næst þegar þú ferð út í búð að skoða strimilinn sem þú færð þegar þú ert búinn að borga þar, stendur skýrum stöfum að það ert þú sem borga virðisaukaskattinn.Það er ábyrgarhluti að láta mann eins og þig hafa mannaforráð,mann sem gerir sér ekki grein fyrir jafn einföldum hlutum.Verra er þó að fjármalaráðherrar Samfylkingarinnar átta sig ekki á því heldur.

Sigurgeir Jónsson, 28.11.2012 kl. 20:29

3 identicon

Það skiftir útgerðina og álverin engu máli hvort VSK er 7%, 14% eða 25,5% !

-Þessi fyrirtæki fá allann útlagðan VSK endurgreiddan og þurfa ekki að leggja á VSK þegar afurðirnar eru seldar úr landi.

-Ferðaþjónustan þarf hinsvegar að selja VSK inná heimsmarkað og ríkið fær miljarða af ferðaþjónustunni á meðan aðrar útflutningsgreinar skila ekki krónu af þessum skatti. Nú er seinasta tækifærið til að gera þessa breytingu fyri árið 2014.

2013 er í raun frágengið og verðlagt og út í hött að hrófla við verðum á þessum tímapunkti

Dúddi Begg (IP-tala skráð) 28.11.2012 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband