Leita í fréttum mbl.is

Jæja þarf að éta þetta ofan í mig.

Ét hér með allt sem ég hef sagt um Icesave ofan í mig og viðurkenni að þessi leið sem Árni Páll markaði að taka upp markvisst samstarf við stjónarandstöðuna og Indefence um málsvörn var rétt. Og skilað okkur árangri.

Frábær niðurstaða fyrir okkur skulduga þjóðina. 

Í tilkynningu utanríkisráðuneytisins segir:

Dómur EFTA-dómstólsins í Icesave- málinu felur í sér að Ísland er sýknað af kröfum ESA um að vera lýst brotlegt við EES-samninginn. Dómstóllinn hafnar því að íslensk stjórnvöld hafi brotið gegn tilskipun um innstæðutryggingar eða mismunað innstæðueigendum. Það er mikið ánægjuefni að málstaður Íslands hafi orðið ofan á í Icesave-málinu og með niðurstöðu EFTA-dómstólsins er lokið mikilvægum áfanga í langri sögu.

Ísland hefur frá upphafi haldið til haga þeirri lagalegu óvissu sem verið hefur um hvort ríki beri ábyrgð á greiðslu lágmarkstryggingar til innstæðueigenda og lagt þunga áherslu á mikilvægi þess að fá úr því skorið fyrir dómstólum. Á því voru hins vegar ekki raunhæfir möguleikar fyrr en Eftirlitsstofnun EFTA ákvað að skjóta samningsbrotamáli sínu til EFTA-dómstólsins.

Með dóminum er lokið samskiptum við Eftirlitsstofnun EFTA í Icesave-málinu. Lagaleg niðurstaða liggur fyrir og ekki er gert ráð fyrir frekari eftirmálum vegna þess af hennar hálfu. Málið hefur verið einkar erfitt viðureignar bæði innanlands og í erlendum samskiptum og olli meðal annars miklum töfum í framvæmd efnahagsáætlunar stjórnvalda. Nú er Icesave-málið ekki lengur fyrirstaða við endurreisn íslensks efnahagslífs.

Mikilvægt er að halda því til haga að greiðslur úr þrotabúi Landsbankans munu halda áfram óháð niðurstöðu EFTA-dómstólsins. Virði eigna þrotabúsins er nú metið á 1.517 milljarða króna sem er um 200 milljörðum króna umfram forgangskröfur sem nema 1.318 milljörðum króna. Af þessum forgangskröfum eru 1.166 milljarðar vegna Icesave-innstæðureikninga en um 150 milljarðar króna vegna heildsöluinnlána m.a. frá sveitarfélögum, líknarfélögum o.fl.  sem líka hafa fengið greitt. Úr búinu hafa nú þegar verið greiddir 660 milljarðar króna upp í forgangskröfurnar eða um 50% af heildarfjárhæð þeirra. Af því hafa um 585 milljarðar króna runnið til greiðslu upp í kröfur vegna innstæðna á Icesave-reikningum. Það er fjárhæð sem samsvarar röskum 90% af þeim hluta sem bresk og hollensk stjórnvöld lögðu út vegna lágmarkstryggingar.

Gert er ráð fyrir að Icesave-kröfurnar greiðist að fullu af  réttum skuldara þeirra, þrotabúi Landsbankans. Setning neyðarlaganna haustið 2008 þar sem innstæðum var veittur forgangur á almennar kröfur leiðir til þessarar niðurstöðu.

 


mbl.is Ísland vann Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn J Þorsteinsson

Eg hef nu altaf haft ta skodun ad madur sem vidurkennir ad haf rangt fyrir ser se  meiri madur en sa sem reinir ad strøgla afram,flott hja ter Magnus       Tegar tad er sagt ta er got ad geta lagt lok a tetta mal,en tvi mydur ef madur tekkir politik a Islandi rett ta verdur tetta ospart notad i kosningabarattuni tvi mydur

Þorsteinn J Þorsteinsson, 28.1.2013 kl. 10:58

2 Smámynd: Mofi

Þú færð prik frá mér fyrir að segja þetta :)

Mofi, 28.1.2013 kl. 10:59

3 identicon

Nú hlýtur Steingrímur að vera pirraður, hann fékk séns á að gera líf okkar Íslendinga ömurlegt fyrir alla í landinu eins og í ekta kommaríki með fyrsta icesave samningnum sem var algjör svaka díll... Vona bara að fólk hafi vit fyrir því hverju núverandi ríkisstjórn ætlaði að koma okkur í og hugsi út í þetta í næstu kosningum!

Vertu svo bara tilbúinn að troða ESB þvælunni ofan í þig líka ;)

Aron Gunnars (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:01

4 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Þú færð prik fyrir það

Jón Aðalsteinn Jónsson, 28.1.2013 kl. 11:06

5 identicon

Óska öllum hér til hamingju með niðurstöðuna, sem og Íslandi sem þjóð.

Hafði mínar efasemdir en þetta borgaði sig og eiga allir sem stóðu vaktina alla leið þúsund þakkir skildar fyrir að koma þjóðinni loks út úr þessu skammdegi sem hér hefur ríkt undanfarin fimm ár.

Tim Ward og Ólafur Ragnar eru menn dagsins ef ekki ársins, ekki nokkur spurning.

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:07

6 identicon

Sæll Magnús Helgi; sem oftar - sem og aðrir gestir, þínir !

Þú ert maður að meiri; að viðurkenna þín stóru mistök, gagnvart þessum málum.

En; eftir stendur að : Jóhönnu Sigurðardóttur - Bjarna Benediktsson - Steingrím J. Sigfússon, og aðra áhangendur Breta og Hollendinga, ætti að gera landræka - UM ALDUR OG ÆFI, síðuhafi góður.

Með kveðjum; úr Árnesþingi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:10

7 identicon

Það verður gaman að sjá svipinn á ríkisstjórninni í hádegisfréttum í dag. Skyldu þau skammast sín nóg til að segja af sér?

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:23

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Minni á að það var Árni Páll sem kallaði saman alla aðila eftir að seinni samningurinn var feldur. Hann kallaði að borðinu Indefence og aðra aðila og tóku upp víðtækt samstarf um málsvörn.  Og Össur tók við málinu þegar að það fór í dómsmál.  Held að allir aðilar séu sammála um að vel hafi verið haldið á málnu eftir að það var kært til EFTA dómsstólsins.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.1.2013 kl. 11:27

9 Smámynd: Sigurður Alfreð Herlufsen

Þú átt heiður skilið fyrir auðmýkt þína gagnvart þessari stórkostlegu niðurstöðu, sem er svo jákvæð fyrir Ísland.

Sem betur fer höfðu þeir sigur, sem trúðu á málstað Íslands og gerðu það svo rækilega, að stofna samtök á fyrstu stigum málsins, þegar alls ekki var ljóst hvað var raunverulega hið rétta í málinu.

Ég óska þér sem öðrum til hamingju með þessar lyktir málsins.

Sigurður Alfreð Herlufsen, 28.1.2013 kl. 11:32

10 Smámynd: Jón Sveinsson

Tek undir neð Sigurði Alfreð og segi til Hamingju Íslendingar

Jón Sveinsson, 28.1.2013 kl. 11:35

11 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Þú skalt ekki reyna að þakka Árna Páli og Össuri þessa niðurstöðu því ef þeir hefðu einhverju ráðið hefði þetta mál ALDREI farið svona langt.

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 28.1.2013 kl. 11:43

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það gerir nú samt stjórnarandstaðan og Indefence. Þ.e. að Árni Páll hafi tekið við málinu og gjörbyllt því. M.a. komið á þessu málflutningsteymi sem vann þetta mál sem í sátu fulltrúar allra þessara hópa. Hlustaðu á fréttir. En um leið þá voru örugglega mörg mistök gerð í uppi þessa máls.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.1.2013 kl. 12:01

13 Smámynd: Jóhann Elíasson

Skrif þín gera þig að meiri manni og þú átt heiður skilinn fyrir orð þín..

Jóhann Elíasson, 28.1.2013 kl. 12:37

14 Smámynd: Theódór Norðkvist

Átt heiður skilinn Magnús, fyrir þetta. Gleðjumst öll, þetta er sigur allrar þjóðarinnar ekki bara þeirra sem héldu fram þeim málstaðnum sem var dæmdur sigurinn. Allir munu njóta góðs af þessu og þetta ætti að senda skýr skilaboð til bankabraskaranna, að þeir geti ekki treyst að skattgreiðendur þrífi upp skítinn eftir þá.

Theódór Norðkvist, 28.1.2013 kl. 13:03

15 identicon

Til hamingju Magnús, bæði með niðurstöðuna og auðmýktina.

Viðbrögð forsætisráðherra þíns hlýtur að sýna þér hvaða mann hún hefur að geyma. Núna má ekki leita að eða benda á sökudólga en hún hefur hins vegar verið dugleg að leita að og benda á sökudólga hrunsins. Þannig hefur hún unnið markvisst að því að kljúfa þjóðina í herðar niður. Jóhanna fór á pólitíska ruslahauga fyrir mörgum árum og nú hlýtur þú að sjá það betur.

Björn (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 13:11

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tek undir með fleirum hér Magnús, þú ert svo sannarlega maður að meiri og til hamingju við öll.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2013 kl. 14:00

17 identicon

Alveg sammála Björn, þessi kerling er bara algjör hálfviti!

Aron Gunnars (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 14:05

18 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Tek undir með Ásthildi, þú ert svo sannarlega maður að meiri.

Til hamingju öll.

Guðni Karl Harðarson, 28.1.2013 kl. 14:15

19 identicon

Heill þér , þú ert maður að meiru, annað en forysta ríkistjórnarinnar.

Kjartan (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 14:18

20 Smámynd: Mofi

Væri gaman að sjá Jóhönnu og Steingrím segja að þau höfðu rangt fyrir sér...

Mofi, 28.1.2013 kl. 14:19

21 identicon

Gott hjá þér Magnús!

Jón Logi (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 14:51

22 identicon

Ég neyðist víst til að hringja í Steinbít og biðja hann um að splæsa í eina Diet Coke.

Jón Násker (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 16:40

23 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þú átt heiður skilið fyrir að sjá að þú hafðir ekki rétt fyrir þér í þessu IceSave ferli.

Þú hefur orðið meiri maður fyrir þennan pistil, en ef að þú hefðir ekki sagt neitt.

Til hamingju Magnús Helgi fyrir þetta.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 28.1.2013 kl. 18:05

24 identicon

Ég gafst upp á því á sínum tíma að segja þér þetta. En núna er þetta klárt.

Núna þarf að koma með nýja stjórnarskrá og hætta að kjósa fjórflokkinn. Þá er Íslandi endanlega borgið.

Evrópusambandið er ónauðsynlegt ef fjórflokkurinn fer frá. Gæti hinsvegar verið ill nauðsin ef það tekst ekki.

Allir vita sem eru ekki flokksbundnir að fjórflokkarnir eru bara valdamafíur.

Már (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 19:44

25 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Þú er drengur sannur, Magnús.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 28.1.2013 kl. 20:49

26 identicon

Niðurstaðan er mikið fagnaðarefni fyrir alla íslendinga. Fólk verður nú samt aðeins að róa sig niður í árásum, og gera sér aðeins grein fyrir undir hvers konar skrúfustykki landið varð sett undir af "vinaþjóðum" og alþjóðargjaldeyrissjóðnum á ögurstundu. Getið þið sagt með vissu að önnur ríkistjórn hefði gert eitthvað öðruvísi?? Ég efast um það. Svona eftirá að hyggja  fengum við bestu mögulegu lausn á málinu, samningsvilji stjórnvalda tryggði okkur áframhaldandi lánagreiðslur, á meðan forsetinn gat leyft sér það sem stjórnvöld höfðu ekki kost á, og synjað frumvarpinu.  Þetta er það sem þeir kalla "having a cake and eating it too" Til hamingju!

Atli (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 21:47

27 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Magnús Helgi,

Vonandi skrifar þú annan svona pistil þegar ESB verður fellt í þjóðaratkvæði? ;>)

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 29.1.2013 kl. 17:33

28 identicon

Já Maggi gamli sjóari síðuskrifari,það er ansi margt sem þú mátt og átt eftir að éta ofan í þig.

Númi (IP-tala skráð) 29.1.2013 kl. 20:41

29 identicon

sammala þer Numi

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 29.1.2013 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband