Leita í fréttum mbl.is

Til hamingju félagshyggjufólk og vinstra fólk á Íslandi!


Nú hefur okkur tekist að koma helmingaskiptaflokkunum til valda á ný. Og nærri því án þess að þeir þyrftu að gera neitt.  Þetta er árangur 4 ára þar sem að hver höndin hefur verið upp á móti annarri í þessum hóp.
  • Þingmenn hafa jú farið þar fremstir í hópi. Hlaupið undan merkjum vegna t.d. ESB umsóknar sem þó alltaf stóð til að þjóðinn tæki ákvörðun um.  Eins þá hafa þeir beilað undan erfiðum verkum á ákvörðunum og frekar hlaupið úr flokkunum.
  • Stuðningsmenn Vg og Samfylkingar hafa eins verið eins og ég veit ekki hvað. Áhrifaríkir álitsgjafar, bloggarar og aðrir hafa verið hnýtandi í ríkisstjórnina vegna einhverja atriða sem bæði ríkisstjónr réð ekki við og eins vegan mála sem skiptu ekki svo miklu máli.
  • Svo þessi árátta félagshyggju manna að stofna heilu framboðin um sín séráhugamál sem áttu ekki hljómgrun eða aðrir flokkar voru þegar að bjóða upp á.  Þetta skilaði hvað um 15% af dauðum atkvæðum sem nýttust Framsókn og Sjálfstæðismönnum.
  • Nær allir utanaðkomandi sem telja að miðað við aðstæður hafi stjónvöld hér staðið sig mjög vel síðustu 4 ár. En nú þegar að loks sá til sólar þá tóku vinstri- og félagshyggjufólk hana af lífi og færðu Framsóknarmönnum og Sjálfstæðismönnum árangurinn til að leika sér með. 
  • Menn hafa ekki getað leyft stjórninni að njóta neins af þeim afrekum sem hún vann. Menn hirtu ekki einu sinni um að verja góðuverkin, heldur horfðu á stjórnvöld rægð, niðurlægð og rangfærð án þess að lifta hendi til að verja hana. Ekki einu sinni Alþingismenn flokkana sumir skiptu sér almennilega af því. 
  • Ætla ekki að minnast á ríkisstjónina sjálfa og hvernig hún hefur á köflum ekki borið við að verja sig. 
  • Svo þessi smákóngaháttur og sundrung og "vita betur" tilhneigin skapaði um 8 til 9 flokka á þessum væng sem sköpuðu um 15% af dauðum atkvæðum. 
Svo nú fær Íslenska þjóðin það sem hún á skilið og sérstaklega félagshyggjufólk. Nú geta kannski menn andskotast skoða vinnubrögð sín næstu árin til að þetta komi aldrei aftur fyrir. Það þarf að sameigna flokksbrotin og ná saman um stærstu málin og stefnu og svo afgreiða hvernig þau mál sem menn eru ósammála um eru afgreidd. Svo verður þessi foringjadýrkun að hverfa. Það eru flokksmenn sem eiga að ráða en ekki fá einhverja tilbúna pakka frá forystunni. Stefnan á að ráðast af félögum í flokknum og engar ákvarðanir á að taka stórar án þess að flokksmenn séu spurðir. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ætli það hafi nú ekki verið þannig Magnús að félagshyggjufólk sem kaus SF og VG 2009 hafi trúað því að það væri að kjósa yfir sig félagshyggjustjórn, en hafi ekki alvegs séð þá draumsýn raungerast síðustu 4 ár. Ég hugsa að það skýri að einhverju leyti hvers vegna vinstri vængurinn er tvístraður eftir síðasta kjörtímabil.

Annars sýnist mér að núna jafnvel eftir að úrslit eru orðin ljós að það sé ennþá langt í það að SF-liðar séu tilbúnir til þess að horfast í augu við eigin ábyrgð á niðurstöðunni. 

Seiken (IP-tala skráð) 28.4.2013 kl. 13:49

2 identicon

,,Annars sýnist mér að núna jafnvel eftir að úrslit eru orðin ljós að það sé ennþá langt í það að SF-liðar séu tilbúnir til þess að horfast í augu við eigin ábyrgð á niðurstöðunni. "

Hvað er formaður samfylkingarinnar að reyna segja núna þegar hann er spurður ?

Jú, kjósendur misskildu um hvað kosningarnar áttu að snúast um ?

Samfylkingin með Árna Pál sem formann verður áfram úti á túni !

Kjósendur vit ekki neitt, ég einn veit þetta allt !

JR (IP-tala skráð) 28.4.2013 kl. 14:30

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Hvað? Ertu ekki hrifinn af nýju félagshyggjustjórninni?

"Þetta skilaði hvað um 15% af dauðum atkvæðum sem nýttust Framsókn og Sjálfstæðismönnum."

Írónían er að þeir breyttu reglunum til að halda sér við stjórn og nýju fólki frá.

Ætli þá hafi grunað að það kæmi þeim í koll? Held ekki.

"Nær allir utanaðkomandi sem telja að miðað við aðstæður hafi stjónvöld hér staðið sig mjög vel síðustu 4 ár."

They have been misinformed.

"En nú þegar að loks sá til sólar þá tóku vinstri- og félagshyggjufólk hana af lífi og færðu Framsóknarmönnum og Sjálfstæðismönnum árangurinn til að leika sér með."

Hvaða árangur? Eini árangurinn af 4 ára setu þeirra er að fólk fór að líta á D&B sem mikla felsara.

"Menn hafa ekki getað leyft stjórninni að njóta neins af þeim afrekum sem hún vann."

Hvaða afrekum? Hærri skuldum? Landflótta? Minni iðnaði? Eru það afrek til að stæra sig af?

"Menn hirtu ekki einu sinni um að verja góðuverkin,"

Það er illmögulegt að verja það sem ekki er til.

"Svo nú fær Íslenska þjóðin það sem hún á skilið og sérstaklega félagshyggjufólk."

Félagshyggjufólk getur ekki annað en unnið.

"Svo verður þessi foringjadýrkun að hverfa."

En hún er svo sósíal.

Framtíðin er mjög sósíaldemókratísk, félagi. Ekki kvarta þó hún sé ekki í réttum litum.

Ásgrímur Hartmannsson, 28.4.2013 kl. 17:17

4 identicon

Engin atkvæði falla dauð nema þeirra sem mæta ekki á kjörstað. Þessi orðræða er ósamræmanleg fjölmenningarlegu samfélagi sem leggur áherslu á verðmæti fjölbreytileikans fyrir heildina. Að segja atkvæði til minni flokka "dauð" jafngildir því að kasta skít í minnihlutahópa. Og pólítískir minnihlutahópar eiga sama tilverurétt og etnískir eða menningarlegir í siðuðu samfélagi. Fjöldi vinstrimanna nennti ekki á kjörstað afþví þessi heilaþvottur um hin "dauðu" atkvæði höfðu áhrif á þá. Annars væri Dögun á þingi, svo og Flokkur heimilanna. Þekki persónulega marga stuðningsmenn þessara flokka, og er stuðningsmaður hins fyrrnefnda, sem slepptu því bara að mæta á kjörstað afþví þeir tóku mark á þessu andlýðræðislega bulli um "dauð atkvæði". Dauðu atkvæðin dóu svo aðallega afþví fjölmiðlar misnotuðu aöstöðu sína til að koma eigin fólki að en hunsuðu nýju framboðin. Píratar fengu ekki að mæta í viðtöl hjá Stöð 2 þegar þeir voru komnir hátt yfir Vinstri Græna í skoðanakönnunum í ákveðnum kjördæmum. Það er ekkert eðlilegt við það. Dögun, sem ég styð, Lýðræðin og fleiri sem áttu möguleika fengu ekkert skárri meðferð. Þetta kallast skoðanakúgun, fasismi og vanvirðing fyrir skoðun annarra, fjölbreytileika mannlífsins og þar með lýðræðinu í heild sinni. Og slíkt er andstætt vinstri hugsjóninni og það er þessi andlýðræðislega hægri-fasista-slikja sem birtist í orða notkun eins og "dauð atkvæði" sem hefur aflað Samfylkingunni svo mikillar óvildar. Ekkert atkvæði er dautt nema það sem ekki verður til, því heima er setið. Jafnvel þeir sem kjósa að skila auðu eða ógildu eiga virðingu skillið fyrir að gera það sem þeir telja rétt og sinna lýðræðislegri skyldu sinni. En kosningaþátttaka í ár var sérlega dræm út af hjalinu heilalausa um hin "dauða atkvæði" sem þýðir að, eins og þeir sögðu í Animal Farm, þá séu sumar skoðanir "jafnari en aðrar, og minnihlutinn eigi bara að hlýða og þegja frekar en kjósa þá sem honum hugnast best. Svoleiðis hugarfar er andstæða sannrar jafnaðarmennsku og uppsker bara það hatur sem er ástæða uppsveiflu hægri flokkanna á Íslandi, og kemur í endanum mest í kollinn á þeim sem eru haldnir því, og þar á eftir þeim sem eru í flestu samherjar þeirra og samverkamenn.

Dagur (IP-tala skráð) 28.4.2013 kl. 17:18

5 identicon

Ég skal svo persónulega lofa þér og þínum, afþví ég hef nógu breiða sýn á samfélagið til að vita um hvað ég er að tala, að báðir stjórnarflokkarnir hefðu náð að hífa sig verulega upp hefðu bara óákveðnir farið á kjörstað, en ekki látið heilaþvo sig af umræðu Samfylkingarinnar um "dauð atkvæði". Margir hugsa sig um áður en þeir skila auðu eða ógildu. Fleiri ákveða sig í kjörklefanum. Eða þannig var það áður en þið löttuð fólk frá því að mæta á kjörstað með að svívirða atkvæði þeirra sem "dauð", afþví þau séu ekki hluti af meirihlutanum, eins og fasistum myndi sæma betur en meintum jafnaðarmönnum. Vaninn er sterkur í manninum og þegar fólkið hefði einu sinni mæt á staðinn hefðu margir kosið ykkur af vana og ákveðið að gefa ykkur eitt tækifæri enn. Margir bitrir og vonsviknir stjórnarsinnar ákváðu að sitja heima. Margir sem hefðu kosið ykkur í klefanum. Sum atkvæði til nýju flokkanna hefðu líka farið til VG í staðinn, þarna í óákveðninni í kjörklefanum, það er engin spurning. Takk enn og aftur Samfylkingarmenn, fyrir uppbyggilega og greindarlega orðræðu sem skilar sér í lýðræðislegra samfélagi. Þið getið þakkað ykkur bróðurpart þeirra sem sátu heima. Ekki skrýtið svo sem, ykkar eigin forsætisráðherra, fyrst allra ráðherra Íslands lýsti því yfir að hún ætlaði sjálf kannski ekkert að kjósa í mikilvægri kosningu. Slíkt er árás á lýðræðið og fyrirlitlegt. Síðan heilaþvær ykkar heimskulega Stöð 2 og visir.is fjöldann frá því að hafa áhuga á stjórnmálum og heldur skoðunum nýrra framboða sem hvetja menn til nógrar umhugsunar til að alla vega KJÓSA, þó það væri bara gömlu flokkana, með stanslausu gaspri um ekki neitt og andlýðræðislegum vinnubrögðum sínum. Takk Samfylkingin! Takk!

Dagur (IP-tala skráð) 28.4.2013 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband