Leita í fréttum mbl.is

En samt hafa lánin heimila í Hollandi ekki hækkar og greiðslubirgði lækkað. Þeir eru jú með Evru!

En svoleiðis má sko ekki skoða hér. Hér var tekin upp króna 1920. Hún hefur síðan stöðugt tapað verðgildi sínu og verðbólga verið hér viðvarandi ásamt háum vöxtum. Sem og að hér hafa verið gjaldeyrishöft sennilega í 70 af 90 ára sögu krónunar. Og í 20 til 30 ár þurftum við að búa við skömmtun og skömmtunarseðla því við áttum engan gjaldeyri. En nei fólk vill ekki sjá að semja um inngöngu í ESB. Það vill áfram hafa það þannig að ef við fullvinnum vörur t.d. kjöt og fisk þá lenda þeir í tollum. Því er okkur ill mögulegt að þróa hér fullvinnslu og auka störf.  Og eins þá vilja hingað engir koma nema til að nota orku sem þeir fá á gjafverði svo þeir fáist hingað. Nota orkuna í að umbreyta hráefni sínu í söluvöru og flytja svo aftur út og fullvinna hana þar.  Eftir sitja hér 2 til 3 þúsund störf, smá gjaldeyrir og orkuver sem borga sig upp á kannski 40 árum í stað þess að vera uppgreidd eftir 15 til 20 ár ef við fengjum eðlilegt verð fyrir okruna.
mbl.is Holland komið út úr samdrætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

He he he...góður pistill hjá þér...hver er framtíðarsýn Framsóknar sjallana...jú vera áfram með krónu, höft og torfkofa....

Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 14.11.2013 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband