Leita í fréttum mbl.is

Frosti er náttúrulega farinn að slaga upp í Vigdísi!

Frétt af RUV:

Aldrei stóð til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Þetta segir Frosti Sigurjónsson þingmaður Framsóknarflokksins. Forsætisráðherra talaði ítrekað um þjóðaratkvæðagreiðslu í aðdraganda kosninga og eftir að stjórn var mynduð.

„Ég held að það sé engin spurning að það þurfi að leyfa almenningi að koma að þessu,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Silfri Egils, 20. janúar árið 2013, fjórum mánuðum fyrir kosningar. 

Í Kastljósi Sjónvarps 11.febrúar 2013 var Sigmundur spurður hvort það stefndi ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Jújú. Miðað við þá stöðu sem er uppi í pólitíkinni. Fylgi flokka og svona. Það hlýtur að stefna í það,“ svaraði Sigmundur Davíð.

„Ég er alveg til í að hafa kosningu um þetta strax eftir kosningar. Ef það er það sem menn vilja og ná saman um það.,“ sagði Frosti Sigurjónsson, þá frambjóðandi til þings fyrir Framsóknarflokkinn, í Silfri Egils 10.febrúar 2013.

Frosti var þá spurður hvort framsóknarmenn vildu þjóðaratkvæðagreiðslu þá til að skera úr um áframhaldið. „Ef áhuginn myndi snúast við. Segjum að kannanir sýndu að þeir sem vilja ganga inn í Evrópusambandið séu meira en helmingur þjóðarinnar, þá ætti að gera þjóðaratkvæðagreiðslu,“ svaraði Frosti.

Frosti segir í dag að Framsóknarflokkurinn hafi sett fram loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu til að tryggja að þjóðin yrði spurð ef ríkisstjórnarflokkur myndi vilja halda áfram aðildarviðræðum. Ekki til þess að spyrja hvort viðræðum skyldi hætt. „Sem sagt, hefðum við lent með flokki sem vildi halda áfram, þá myndum við standa á þessu loforði okkar.“

Þetta hefði getað átt við hefðu framsóknarmenn myndað ríkisstjórn með Samfylkingu. „Við hefðum nú væntanlega reynt að sannfæra Samfylkingu um að halda ekki lengra, þá hefðum við reynt að segja við þá: Eigum við ekki að leggja þetta fyrir þjóðina? Við hefðum farið þá leið já. Og um það snerist þessi orðræða um þjóðaratkvæði í raun? Algjörlega, já.“

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að hlé verði gert á aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þeim ekki haldið áfram nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. „Að sjálfsögðu kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu. En menn hljóta við ákvörðun um tímasetningu slíks að taka inn í reikninginn aðstæður,“ sagði Sigmundur Davíð á Laugarvatni 22. maí 2013. „Við sögðum að við myndum aldrei ganga í Evrópusambandið nema að undangenginni kosningu. Og við ætlum ekkert að ganga í Evrópusambandið þannig að það þarf enga kosningu. Þetta er alveg lógískt,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins í þættinum Sunnudagsmorgni, 19. janúar 2014. 

Frosti metur það svo að það verði engin kosning. „Ég meina, þannig lögðum við upp. Ég meina, fólk verður að átta sig á að það var kosið síðastliðið vor.“

Sneru þá öll ummæli Framsóknarmanna um þjóðaratkvæðagreiðslu í aðdraganda kosninga einungis að þeim möguleika að flokkurinn myndi enda í ríkisstjórn með öðrum flokki sem styddi aðild að Evrópusambandinu? „Já, það er minn skilningur. Algjörlega,“ segir Frosti. „Og skilningur allra sem voru á þeim fundum þar sem þessi stefna var sett fram.“ Aðspurður hvort honum hafi þótt þessi skilningur ná að skila sér til kjósenda segist hann ekki geta dæmt um það. „Ég tók eftir því að þeir sem eru fylgjandi aðild, voru mjög áfram um það að reyna að misskilja þetta.“ Orðalagið hafi verið ákveðinn varnagli. 

Er nema von að maður mætir reglulega niður á Austurvöll

 

Viðraði vel til mótmæla

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Lengi getur Samfó lfað í voninni.En það mun ekki duga til.Það gerðist í gærmorgun að horfa mátti upp á Samfó berstripaða með allt niðurumsig.Björt framtíð sveik Samfó.Guðmundur Steingrímsson steig í pontu og sagðist styðja tillögu VG að viðræðurnar yrðu slegnar af, en kosið yrði innan þriggja ára hvort taka bæri þær upp aftur.Næst komu píratar upp og sögðust líka styðja tillögu VG um að viðræðurnar yrðu slegnar af.Þar með stóð Samfó á brókinni, brjóstahaldaralaus.Og ekki var hún falleg þannig á sig komin.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 28.2.2014 kl. 13:38

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Nei Maggi nú er nóg komið af Samfylkingar-skandölum. Umsókninni verðum við að skila,enda til hennar stofnað með þvinguðum aðgerðum. Evrópuambandið er ekki beint árennilegt eins og það hamast í Úkraínu. Það heldur áfram í yfirgangi allstaðar þar sem það telur sig hafa ítök. Það er mál til komið að klára þetta núna,það hefur aldrei verið lofað atkv.greiðslu,nóg er þetta frumhlaup SF.búið að kosta.

Helga Kristjánsdóttir, 28.2.2014 kl. 14:09

3 identicon

Frosti reyndi að selja hugmynd sem engum datt í hug fyrir kosningar. Kom út eins og auli. Helga og Geiri ná þvî ekki því miður.

Hörður (IP-tala skráð) 28.2.2014 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband