Leita í fréttum mbl.is

Hvernig er hægt að taka svona bloggara alvarlega!

Var að lesa blogg eftir Jón Val Jensson áðan eftir að hafa rekist á tengil á það á facebook. Þar segir hann:

Samanlagt fylgi Samfylkingar (5,2%), VG (0,7%) og Bjartrar frt. (0,6%) í 1187 manna könnun á vef Útvarps Sögu, sem birt var í dag, var 6,5%, en með Pírötum (9,6%) 16,1%. Framsókn og flugvallarvinir slógu öllum við með 401 atkvæði eða 33,8%. Sjálfstæðisflokkur var með 24,4% (ríkisstjórnin þannig með traustan meirihluta), en næststærsti hópurinn var þó sá, sem var síðasti kosturinn sem menn gátu merkt við: "Annað", með 305 atkvæði, 25,7%.

Vinstri menn verða eflaust fljótir að vefengja þessa skoðanakönnun eins og fleiri sem sýna fráhvarf fólks frá vinstrimennskunni.

Finnst honum það skrítið að einhver véfengi svona niðurstöðu?  Til að byrja með er þetta ekki skoðanakönnun sem slík heldur frekar flipi á síðunni hjá Útvarpi Sögu þar sem að menn geta leikið sér að vild að greiða atkvæði á netinu. Fann t.d. könnun þar sem gerð var rétt fyrir síðustu kosningar til borgarstjórnar og þar voru um 41% fylgi við að Sveinbjörg Birna yrði Borgarstjóri. Eins þá finna könnun fyrir síðustu kosningar þar sem að Samfylkingin átti að fá 5% og Framsókn 33,8%.

Þessi maður bloggar út í eitt um hvað ESB séu vondir, vinstri menn séu vondir, hvað múslímar séu hræðilegt fólk og hvað kristni er góð. Og vitnar því til stuðnings í margar áttir en held að menn sem nýta könnun á vefsíðu Útvarps Sögu sem heimild um stöðu mála séu bara gjörsamlega ómarktækir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Hann hefur sjálfur ekki meiri trú á þessu en svo, að hann hefur lokað fyrir athugasemdir.

Vésteinn Valgarðsson, 30.9.2015 kl. 19:37

2 identicon

Þetta er fámennur hópur sértvitringa sem hlustar alltaf á Útvarp Sögu. 

Síðast þegar Frjáslyndi flokkurinn bauð fram fékk hann meirihluta. Allir vita hvernig það fór.

Trausti (IP-tala skráð) 30.9.2015 kl. 19:51

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Hva ? Þetta var á útvarpi Sögu- virtasta útvarpi landsins. Ég hef heyrt að Kristilegi flokkurinn hafi komist á blað í þessari könnun með 0,00 % atkvæða. En ég sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Jósef Smári Ásmundsson, 30.9.2015 kl. 20:33

4 identicon

Þetta er kynlegur kvistur. Það er oft óborganlegt að lesa skrifin hans. Og trú hanns á skoðanakönnunum Útvarps Sögu er mikil.

Sigurður Helgi Magnússon (IP-tala skráð) 30.9.2015 kl. 21:31

5 Smámynd: Tryggvi Thayer

Eigum við að prófa að standa fyrir utan Hallveigarstíg 1 og gera sömu könnun?

Tryggvi Thayer, 1.10.2015 kl. 11:54

6 identicon

Gamla konan sem Símahrellirinn (lesist sem JVJ) hringdi hér í um árið, til að fá að setja hana á lista til stuðnings ÓRG, hlustar stundum á Sögu. Tuðið í gömlu konunni þegar maður kemur í heimsókn, kemur upp um hvað hún var að hlusta á og eina ráðið er þá að stilla yfir á RÚV. 

thin (IP-tala skráð) 1.10.2015 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband