Leita í fréttum mbl.is

Mér leiðist svona léttvæg rök eins og Vilhjálmur notar!

Maðurinn ferlega barnalegur í sinni röksemdarfærslu. Hvað á hann t.d. við með IKEA? Nú ætti hann sem lögreglumaður fyrrverandi að vita að fólk má ekki fara með áfengi út af veitingastöðum. Og börn mega hvorki selja né kaupa áfengi. En held að í mörgum matvöruverslunum séu afgreiðslufólk sem er langt undir 20 ára aldri. Þau eru jafnvel að afgreiða sígarettur oft til einstaklinga sem eru félagar þeirra eða án þess að spyrja um skilríki. 

Ekki það að þetta kæmi til með að há mér að vín yrði til sölu út um allt. En held að margir gætu átt í erfiðleikum með það. Nokkur atriði:

  • - Vilhjálmur talar mikið um að nota eigi forvarnir til að draga úr hættu á aukningu á neyslu við þetta. Bendi á að árangur sem náðst hefur í t.d. tóbaki er einmitt að stórum hluta til fengin með að fela tóbak sem mest. Þannig má það ekki sjást. Það gæti orðið erfitt með áfengi út af því hvað fer mikið fyrir þeim pakkningum
  • - Vilhjámur virðist ekki gera sér grein fyrir því að stór hluti starfsmanna í verslunum er um eða undir 20 ára. Og af reynslu veit ég að þar geta krakkar keypt sér tóbak þó þau séu undir 18 ára aldri bæði af vinum og vegna þess að tóbakið er selt af krökkum sem eru ekki 20 ára og kunna ekki við að spyrja um skilríki. Eins held ég að búðir yrðu að hækka verð á matvöru ef þau þyrftu að tryggja að allir starfsmenn á kössum væru yfir 20 ára.
  • - Vilhjálmur talar stíft um að áfengi sé jú selt á veitingarhúsum. En skv. reglum má fólk ekki fara með það áfengi út af staðnum.
  • - Kári benti á að ef menn eru á móti því að ríkið reki ÁTVR þá sé þeim í lófalagið að selja það. Annað hvort einstakabúiðir eða í heilu lagi.
  • Svo talar hann um að áfram yrði bannað að auglýsa áfengi í búðum. Halló heldur hann að það yrði ekki farið framhjá því. Það er gert í dag og hvað heldur hann að verði þegar að eigendur verslana vilja eðlilega fá aukinn hagnað af vörum sem þeir selja.
  • - Það kom fram í máli Vilhjálms að þetta mál fyrir hann snýst helst um að hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um að vera ekki að reka fyrirtæki eins og Isavia, RUV, ATVR og fleiri og þetta sé fyrstu skrefin. Og þar með snýst þetta ekki um hag fólksins heldur hag fjárfesta!
  • - Kári sagðist hafa fyrir því heimildir að Hagar hefðu samið frumvarpið fyrir Vilhjálm og hafði m.a. alþingismenn fyrir þeim upplýsingum.

mbl.is „Fara alkóhólistar ekki í IKEA?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hagar munu einfaldlega vera með hærra verð og minna úrval en vínbúðirnar og þeim verður öllum lokað. Sérverslanir með vín verða í mesta lagi 1 á höfuðborgarsvæðinu

Grímur (IP-tala skráð) 17.1.2016 kl. 17:56

2 identicon

Nóg græða þessar verslunarsamsteypur hér á landi í fákeppninni.  Á að afhenda þeim áfengissöluna líka?

Jóhannes (IP-tala skráð) 17.1.2016 kl. 17:59

3 identicon

Ég vona að Vine coolers komi til landsins.  Sakna þeirra frá BNA þar sem ég drekk ekki bjór.  Þar sem áfengi var í öllumú verslunum og þar sem viðskiptavinir voru kortaðir ef þeir litu fyrir að vera yngri en 35 ára ;)  Það var ekki leið að komast út úr venjulegum verslnum með áfengi þegar maður var undir lögaldri.  En Íslendingar eru klárari en BNA menn LOL. Já eða þannig.

Linda (IP-tala skráð) 18.1.2016 kl. 02:41

4 identicon

"Sakna þeirra frá BNA" það vantar líka ótrúlega margar vörur í hillur matvörubúðanna hér á landi því Hagar flytja bara inn það sem þeir græða mest á - það er mikil peningalykt af þessu bjórfrumvarpi

BNA (IP-tala skráð) 18.1.2016 kl. 06:08

5 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það hafa aldrei verið færð haldbær rök fyrir breytingu á núverandi sölukerfi á áfengi, hvar ÁTVR veitir góða þjónustu. Pottþétt er að þjónustan versnar með einkavæðingu, hvar gróðasjónamiðið verður eina keppikeflið.

Smásöluálagning ÁTVR er 12% á sterku áfengi og 18% á bjór og léttu víni undir 22%.

Það segir sig sjálft að einkarekin áfengissala mun ekki sætta sig við svo litla álagningu, því mun verðið stórhækka. Hvernig samrýmist það umhyggju Vilhjálms fyrir hagsmunum neytenda?

Verðið mun hækka því meir sem lengra dregur frá Reykjavík því flutningskostnaðinum verður bætt ofaná verðið. Í dag er dreifingarkostnaðurinn innbyggður í verðið sem er það sama í öllum verslunum ÁTVR, um land allt.

Af hverju berst Vilhjálmur ekki fyrir frelsi einstaklingsins til fiskveiða og beitir sér af hörku gegn þeirri einokun og fákeppni sem þar ríkir? Er það vegna þess að þar ræður ríkjum sama einkahagsmuna sjónarmiðið og hann vill innleiða í áfengissölunni? Það er greinilega ekki sama frelsi og frelsi.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 18.1.2016 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband