Leita í fréttum mbl.is

Af hverju stofna menn félög á Tortóla?

Sko eins og sumir láta í fjölmiðlum og á netinu þá tala þeir eins og það sé bara ósköp eðlilegt að stofna félög á Tortóla. Svona svipað og stofna bankareikning í banka.  Það getur náttúrulega ekki verið.

  • Ef svo væri þá mundu menn einmitt gera það stofna reikninga eða kaupa skuldabréf hér á lendi enda eru þau með miklu hærri vöxtum en almennt gerist í heiminum.
  • Menn stofna náttúrulega til félaga á Tortóla til að græða á.
  • Þeir stofna félag en flytja þangað enga peninga heldur fjárfesta þeim annarstaðar m.a. á Íslandi. Sbr fyrir hrun þegar þeir "lánuðu bönkunum peninga í gegnum þessi félög.
  • Staðreyndin er að menn stofna fyrirtæki í Tortóla yfirleitt til að fela peninga. Eða til að græða á óstöðugleika krónunnar, eða hvorutveggja. Og þegar menn segjast borga hér skatta af þessu þá er það brandari. Ef menn væru ekki að fela þar arðinn sinn og upphæðir þá mundu þeir bara stofna reikninga í Noregi eða Bretlandi. Það er auðséð að menn eru að stofna þessi fyrirtæki í löndum þar sem reglur eru litlar sem engar og eftirlit lítið sem ekkert.

Svo nær allir sem hafa komið að stofnun fyrirtækja á Tortóla er að því til að þurfa ekki að borga skatta af þeim á Íslandi. Og bankarnir héldu þessu að fólki. Hér áður faldi fólk svona peninga í Sviss og færðu þá úr landi með því sem var kallað "hækkun í hafi".

Ég er ekki að segja að það þurfi að upplýsa um alla þessa aðila sem við vitum þó að eru einhver þúsund (bara 600 í þessum leka frá einni lögfræðiskrifstofu í Panama), en það á að tryggja að svona geti ekki gerst aftur?  Það er hægt að setja lög og reglur sem taka á því að menn komist ekki upp með þetta.

Svo er rétt að benda á að margir þessara aðila eru ekki einu sinni með lögheimili á Íslandi og borga því engan tekjuskatt og útsvar hér sjálfir. En búa samt hér og þyggja hér þjónustu sveitarfélaga. Held að allir stærstu fjárfestar svei mér þá hafi lögheimili utan landsins.  Þannig að menn þurfa ekki að taka Dorrit  sérstaklega fyrir (samt óheppilegt)

P.s. smá viðbót:

„Aflandsvæðingin hefur tvímælalaust haft mjög slæm áhrif. Það en nánast sama hvar drepið er niður fæti þá koma í ljós slæm áhrif. Auðvitað hafa menn fyrst og fremst horft á skattahliðina og þá staðreynd að svona félög eru í mjög mörgum tilfellum notuð til að komast hjá skattgreiðslum. Stundum beinlínis ólöglega en stundum með einhverjum flækjum sem standast nú ítrustu próf lögfræðinna þótt þau séu ekki siðleg. Það þýðir þá auðvitað bara að þeir sem eru með breiðustu bökin þeir eru þá ekki að borga sinn skerf við að halda samfélaginu uppi. Það er auðvitað afleitt. Þeir sem lenda í því að þurfa að borga, venjulegt launafólk sem getur ekki komið sínum tekjum undan skatti með svona trikkum finna auðvitað fyrir því.“ Sjá hér eða hlusta http://ruv.is/frett/aflandsvaeding-og-helsjukt-samfelag


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónsson

Ef ég fer til Tortóla og eyði 10 milljónum í mellur og bús þá er það í lagi en ef ég kaupi fyrirtæki í Panama þá er það siðlaust samkvæmt siðapostulum vinstrahjarðarinnar. Og það á að vera siðlaust vegna þess að það opnar á mögulega skattsvik, skattsvik sem eru möguleg hvort sem er íslandi.

Sko, ef þú át pening Magnús, það er að segja, peninginn sem er til útborgunnar á launaseðlinum þínum og búið er drag af skatta félagsgjöld og annað, þá ræður þú hvað þú gerir við hann svo lengi sem það er innan ramma laga og öðrum að skaðlaus.

Guðmundur Jónsson, 28.4.2016 kl. 11:10

2 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það er vert að hafa í huga að það eru aðeins félög sem eru stofnuð/skráð á Tortola. Þar á eyju mun víst ekki vera bullandi erlendur atvinnurekstur, en einhverja þóknun fá þó eyjabúar fyrir vistunina.  (Líkt og Isnic gerir út á)
Þessi félög geta síðan keypt/stofnað fyrirtæki víða um heim, þ.e. fjárfest í atvinnurekstri þar sem vænlegast er og geymt hagnaðinn í alþjóðabönkum þar hentugast er.
Feluleikur með peninga, oftast ránsfeng, er svo allt annað mál.

 

Kolbrún Hilmars, 28.4.2016 kl. 13:01

3 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Góð spurning Magnús. Það er eflaust til fleira en eitt svar við henni en ef leitað er að orsökum má nefna eitt mjög veigamikið atriði:

Skattar.

Sindri Karl Sigurðsson, 28.4.2016 kl. 21:01

4 identicon

Forverar VG og Samfylkingarinnar samþykktu eitt mesta ógæfuverk í líðveldisögunni þegar þeir samþykktu lög um frjálst framsal á kvótanum, sameign þjóðarinnar sem var afhent án endurgjalds 1991, sem er skílaust brot á 72.gr Stjórnarskrárinnar. Á síðustu áratugum hafa fjölmargir þessara aðila sem fengu sameignþjóðarinnar án endurgjalds, selt þessa sömu sameign þjóðarinnar frá sér til hæstbjóðanda fyrir hundruðir miljóna, ef ekki miljarða, og margir flutt þessa miklu fjámuni úr landi, og vafalítið margir í skattaskjól.Og nú segja þeir sem til þekkja, að stórhluti þessara fjármuna hafi skilað sér heim aftur í genum fjárfestingarleið Seðlabankans þar sem mönnum hefur verið boðin 20% virðisaukning, en talið er að 72 miljarðar hafi verið fluttir heim í gegnum fjárfestingarleið Seðlabankans með 17 miljarða virðisaukningu. Og ef þetta eru sömu nöfnin sem koma fram í Panamaskjölunum mun leikurinn æsast til muna, og allt er þetta í boði þingmanna sem þú Magnús kannast við.

Jón Ólafur (IP-tala skráð) 28.4.2016 kl. 22:46

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það verður að taka á þessu með ströngum lögum og best væri að gera það í samhengi stærri svæða, td. í samhengi við ESB.

Það geta vissulega verið raunhæfar ástæður til að stofna slík félög eins og bent hefur verið á td, í orkuveitu og Landsvirkjun.

En það sem félög á slíkum svæðum gefa færi á er einkum þrennt mundi ég ætla:  

1. Hægt er að leyna peningum fyrir barasta öllum, maka, skatti etc.  

2.  Það gefur líka möguleika að leyna raunverulegu eignarhaldi.  Hægt að kaupa gervimenn í stjórn og þar með hægt að komast framhjá reglum um hámarkseignarhald vissra aðila o.s.frv.

3. Í íslensku samhengi skiptir líka máli stöðugleiki.  Þ.e.a.s. að þessi aflandssvæði nota stöðugleika sem agn fyrir aðila frá óstöðugum svæðum.  

Almennt um efnið og umræður.  Bent er á ofar að peningarnir séu ekkert endilega geymdir á Tortóla heldur félagið.

Það er vissulega rétt þó peningarnir geti alveg verið þar líka í einhverjum banka, að mínu mati.

En það er hægt að átta sig á flækjunni sem þetta bíður uppá, að gervistjórnendurnir eru í raun í Panama, stofna félag á Tortóla. Það liggur fyrir og núna opinbert.  Það eru bara sömu mennirnir alltaf í stjórn í mörgum fyrirtækjumm.  Það hljómar fyrst eins og einhver brandari, - en þannig er það.

Ok. það sem gerist síðan er að gervistjórnendurnir útbúa leynilegan samning þar sem raunverulegum eiganda eða einhverjum aðila er veittur aðgangur að félaginu  og sá ræður hvaða fjármálagerningar fara þar fram.

 Gervistjórnendunum er alveg sama hvað gerist.  Á sumum aflandseyjum, og Bresku Jómfrúreyjar eru frægar fyrir það, þá þurfti ekki einu sinni að skila ársreikningi!  Það segir ákveðna sögu.

En sagan endar ekiert endilega þarna.  Það er hægt að fá gervistjórnendurna til að stofna reikning á enn öðru Aflandssvæði, td. Kook eyjum, og þangað er hægt að færa peninga úr félaginu á Tortóla, allt án þess að nokkur viti nokkurntíman.

Segir sig sjálft að þetta gefur svo færi á misnotkun, að þetta gengur ekki.  Var bara einhver draumsýn nýfrjálshyggjunnar að þetta gengi.  Peningaleg útópía.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 29.4.2016 kl. 00:47

6 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ps.  Svo ætluðu framsóknarmenn að stofna svona hér!  Það er bara ekkert í lagi með þessa menn.  Það var nú eitt loforð þeirra.  

Ómar Bjarki Kristjánsson, 29.4.2016 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband