Leita í fréttum mbl.is

Væntanlegt forsetakjör! Kjósið eitthvað annað en Davíð! Takk fyrir

Svona bara til að segja það. Þá held ég að flestir viðurkenni að Davíð sem jú forsætisráðherra hér frá 1991 til 2004 og síðan utanríkisráðherra fram til þess að hann skipaði sig Seðlabankasjóra hvað 2006 er arkitektin að því ástandi hér sem varð á þessum tíma þar sem að bankarnir voru nær alfarið einkavinavæddir og fengu algjört frjálsræði til að sækja í erlent fjármagn Og svona almennt var beislunn sleppt af öllu og menn sleppu sér bara almennt. Þannig að staðan hér 2008 var að stórm hluta Davíð og vinum hans að kenna. Og áætlanir gerðu ráð fyrir að enn meira frelsi og menn talandi m.a. um að gera Ísland að aflandseyju.

En í alvöru krakkar erum við að reyna að endurvekja stöðuna sem leiddi til hruns eða ætlum við að reyna eitthvað annað. Til þess að hér verði einhverjar breytingar er náttúrulega galið að ætla að kjósa mann sem sem hefur lengist haldið um valdataumana hér samfellt. Til þess að breyta einhverju þarf nýtt fólk.

OK ef þið viljið ekki kjósa Guðna af hverju ekki Höllu! nú eða Andra Snæ. Jafnvel nokkrir aðrir valkostir af fólki sem var ekki í stjórnmálum á meðan að Ísland sökk!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Auðvitað á fólk að velja þann sem forseta sem því hugnast best.  En svona af því að þér finnst gamall stjórnmálamaður frágangssök, þá reyndist okkur einn slíkur betri en enginn þegar á reyndi.  :)

Kolbrún Hilmars, 2.6.2016 kl. 12:59

2 identicon

Það er í lagi þó að Davíð fái 14-20% fylgi. Ef hann fær minna tjúllast hann algjörlega og mun ausa úr skálum reiði sinnar á síðum Morgunblaðsins kröftugar en nokkru sinni fyrr.

Ég mæli þó alls ekki með að menn kjósi hann af hreinni meðvirkni. Þeir sem kjósa hann auk sérhagsmunaseggjanna eru óupplýst fólk sem fylgist ekkert með.  

Þetta er fólkið sem Hannes sagði svo eftirminnilega að hefði engan áhuga á pólitík og vildi lata aðra ráða atkvæði sínu. Það vildi bara græða á daginn og grilla á kvöldin. 

Ásmundur (IP-tala skráð) 2.6.2016 kl. 21:53

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

hmm - kolbrún hver er "þá reyndist okkur einn slíkur betri en enginn þegar á reyndi" þessi?    

Rafn Guðmundsson, 2.6.2016 kl. 23:05

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Davíð er fyrst og síðast íslands einasta vörn,rétt eins og fyrirrennari hans. Guðni verður aldrei forsetinn minn.      

Helga Kristjánsdóttir, 3.6.2016 kl. 01:10

5 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Þegar Jóhanna Sigurðardóttir (kattasmali) og Steingrímur Jóhann Sigfússon (hin fláráði), buðu okkur, ófrávíkjan lega,að borga Icesave þá venti Ólafur R. Grímsson sínu kvæði í kross og snéri baki við fláræði og kattarsmölun og gaf okkur íslendingum færi til að segja okkar álit.

Allir vita hvernig það fór í tvígang, en sá fláráði og kattarsmalinn höfðu enga greind og þar af síður siðferðisþroska til að segja af sér.    

Hrólfur Þ Hraundal, 3.6.2016 kl. 06:49

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Er þessi hroki smitandi sem að Guðni Th. er með?

Pistilhöfundur lítur á kjósendur sem einhverja krakka sem er hægt að segja hvað þeir eiga að kjósa, enda notar pistilhöfundur "En í alvöru krakkar...."

Sannir Íslendingar kjósa ekki opin landamæri og ESB sinnan Guðna Th. sem lítur niður á kjósendur, sem ekki eru með háskólagráðu og sér þá sem ómentaðan lýð.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 3.6.2016 kl. 19:07

7 identicon

Ruddaskapur, þjóðremba, Icesave og ESB draga niður fylgi Davíðs enda virðist hann og stuðningsmenn hans hafa ekkert annað til málanna að leggja. Lítilsháttar fylgisaukning í upphafi hefur nú stöðvast og snúist við.

Það er að sjálfsögðu ekkert við það að athuga þó að menn hafi viljað semja um Icesave í stað þess að taka gífurlega áhættu. Engu breytir um það þó að við slyppum með skrekkinn í þetta sinn.

ESB hefur verið mikill fengur fyrir aðildarþjóðirnar. Það myndi jafnvel enn frekar eiga við um Ísland vegna hættulegs ónýts gjaldmiðils sem kostar okkur amk 100-200 milljarða á ári. 

Ásmundur (IP-tala skráð) 4.6.2016 kl. 17:18

8 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Er ekki ESB atvinnupenninn Ásmundur mættur, það er farið að ganga svo langt að ég er hættur að lesa athugasemdir sem hann skrifar, enda ekkert nýtt þar á nálinni. ESB er best allt fer til andskotans nema að Ísland hlaupi inn í brennandi hús, so to speak.

Það eru flestir sem hafa heilbrigða hugsun að verða ljóst, að ESB er að hruni komið. Það eru aðallega þrjár ástæður fyrir hruni ESB:

1. Evran er að sliga niður allt atvinnulíf, jafnvel í Þýskalandi.

2. Opin landamæri eru að sliga niður velferðarkerfi ESB ríkjanna.

3. Spillingin innan ESB í Brussel, Strassburg, Lúxemborg og hvar sem ESB möppu dýrin hreiðra um sig. Má þar nefna sérréttindi möppudýrana svo sem frítt húsnæði, enga tekjuskatta, fría skóla fyrir möppudýra ungana etc. etc. Enda hafa reikningar ESB ekki verið endurskoðaðir í mörg ár.

En sannir Íslendingar kjósa ekki opin landamæri og ESB sinnan Guðna Th. sem litur niður á kjósendur sem ekki eru með háskólagráðu og telur þá ómentaðan lýð.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 4.6.2016 kl. 18:02

9 identicon

Jóhann, við erum tala um forsetaframboðið, ekki ESB.

Ég var aðeins að benda á hve fáránlegt það er að telja það Guðna til foráttu sem forseta að hann hefði hugsanlega stutt ESB-aðild þegar samningur lægi fyrir.

Hafandi ekkert að segja til stuðnings Davíð vekja upp grunsemdir um að heilaþvottur ráði atkvæði þínu. 

Sama má segja um ótrúlega fáfræði þína um efnahagsástandið í þeim ESB-löndum sem við berum okkur saman við. Það er miklu betra en á Íslandi. 

Ásmundur (IP-tala skráð) 4.6.2016 kl. 19:52

10 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ég neiddist til að lesa athugasemdir þínar við þennan pistil Ásmundur ESB atvinnupenni af því að ég sá nafnið mitt í síðustu athugasemd.

Hver skrifar í byrjun athugasemdar "Ruddaskapur, þjóðarremba, IceSave og ESB dregur niður fylgi Daviðs..." og svo aftur í sömu athugasemd "ESB hefur alltaf verið mikill fengur fyrir aðildarþjóðÍranar."

Ert þú ekki að draga ESB inn í umræðuna Ásmundur ESB atvinnupenni ég sé ekki annað.

En ég ættla að minna þig á Ásmundur ESB atvinnupenni; sannir Íslendingar kjósa ekki opin landamæri og ESB sinnan Guðna Th. sem lítur niður á kjósendur sem eru ekki með háskólagráðu og telur þá ómentaðan lýð.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 4.6.2016 kl. 20:16

11 identicon

Enn heldurðu áfram án þess að hafa neitt að segja til stuðnings Davíð.

Ert auk þess uppvís að skorti á lesskilningi með því að skilja ekki að merking orða fer eftir samhenginu.

Kemur ekki á óvart enda of flókið fyrir flesta Davíðsmenn eins og reynslan sýnir.

Ásmundur (IP-tala skráð) 4.6.2016 kl. 20:55

12 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Sorrý Ásmundur ESB atvinnupenni, ég kýs ekki Davið.

Góða Gáfaða Fólkið (GGF)eins og þú Ásmundur ESB atvinnupenni, þetta hlýtur að vera smitandi að vera með hroka og líta niður á fólk og  telur alla sem ekki eru sammála þér sem ómentaðan lýð eins og Guðni Th. gerir. Venjulega er það nú svo að þegar að það gerist, þá er GGF komið í rökþrot málefnaleg um málefnið.

En svo að þú gleymir því ekki þá ættla ég að minna þig einu sinni enn Ásmundur ESB atvinnupenni; sannir Íslendingar kjósa ekki opin landamæri og ESB sinnan Guðna Th. sem lítur niður á kjósendur sem ekki eru með háskólagráðu og telur þá ómentaðan lýð.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 4.6.2016 kl. 22:06

13 identicon

Þú ert nú meiri kjáninn, Jóhann. Svarar athugasemdum sem þú segist aldrei lesa og reynir svo að komast upp með ruglið með þöggunartilburðum til varnar eigin kjánaskap.

Ásmundur (IP-tala skráð) 5.6.2016 kl. 07:38

14 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Hver er maðurinn sem lítur iðnir á fólk sem er ekki sammála honum?

Mér dettur helst í hug að hér sé Össur Skarpheðinsson á ferð einu sinni enn, undir dulnefni. Ritstílinn er mjög svipaður og hjá Skeggja sem skrifar oft á mbl.is blogginu og Össur hefur viðurkennt að hann sé að skrifa undir Skeggja nafninu. En eitt er á hreinu að Ásmundur er ESB atvinnupenni.

Það sýnir ekki mikin manndóm að hrauna yfir fólk undir dulnefni, það er eitt gott orð fyrir svoleiðis fólk "gúngur."

En sennilega er ég að eiða dýrmætum tíma að ræða við einhverja gufu sem enginn veit hver er, en Ásmundur; sannir Íslendingar kjósa ekki opin landamæri og ESB sinnan Guðna Th. Sem litur niður á kjósendur sem ekki hafa háskólagráðu og telur þá ómentaðan lýð.

Kveðja frá Houston 

Jóhann Kristinsson, 5.6.2016 kl. 14:38

15 identicon

Eru Sannir Íslendingar að fyrirmynd Sannra Finna? Er þetta öfgahægri flokkur?

Þeir sem hallast til vinstri í stjórnmálum eru aldrei leynilegir leigupennar fyrr ákveðinn málstað. En hægri menn sjá slíka leigupenna í hverju horni og koma þannig upp um sjálfa sig.

Hvers vegna þarftu að vita hver er á bak við nafnið? Er það til að stunda persónulegar árásir ekki bara í netheimum heldur einnig í raunheimum?

Ásmundur (IP-tala skráð) 5.6.2016 kl. 17:46

16 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ásmundur hér í athugasemdum undir þessum pistli, þá er það þú sá eini sem ert með persónulegar árásir í athugasemdum. 

Sannir Finnar hef ég ekki hugmynd um, enda kemur mér ekkert við hvað gerist í Finnlandi af því að ég er ekki skattgreiðandi í Finnlandi. En vonandi eru Sannir Finnar á móti opnum landamærum og ESB.

En aftur á móti; sannir Íslendingar kjósa ekki opin landamæri og ESB sinnan Guðna Th. sem lítur niður á kjósendur sem eru ekki með háskólagráðu og telur þá ómentaðan lýð.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 6.6.2016 kl. 13:25

17 identicon

Rökstudd gagnrýni og tilvísanir í staðreyndir flokkast ekki undir persónulegar árásir. Skítkast og tilhæfulausar aðdróttanir eru hins vegar persónulegar árásir gagnvart þeim sem fyrir þeim verða.

Guðni hefur aldrei talað um ómenntaðan lýð. Hann notaði orðið fávís sem hefur allt aðra merkingu enda geta þeir sem hafa langa skólagöngu verið fávísir og þeir sem hafa litla skólagöngu verið vel að sér.

Þar að auki notaði Guðni "fávís lýðurinn" í slíku samhengi að ljóst var að hann var ekki að halda því fram að almenningur væri fávís. 

Ásmundur (IP-tala skráð) 7.6.2016 kl. 11:22

18 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Össur (Ásmundur) bara að lesa það sem Guðni Th. Hefur sagt og skrifað, það er búið að ræða þetta og skrifa um þetta undanfarnar vikur.

Maður eins og Guðni Th. sem að hélt því fram ásamt félögum sínum í Háskólaelítunni sem gargaði í öllum fjölmiðlum að hér færi allt til andskotans og Ísland yrði eins og Kúba Norðursins og Norður Kórea ef ekki yrði gengið að Svavars IceSave samningnum og gengið í ESB.

Guðni Th. sem sagði að landið ætti að ganga undir IceSave samningana, jafnvel þó svo að Íslendingar hefðu ekki efni á að greiða skuldirnar að sögn Guðna Th. Spurningin er; af hverju að skrifa undir samning sem ekki væri hægt að standa við, að sögn Guðna Th. Auðvitað er svarið þá var eina leiðin að komast út úr þeim skuldum var að ganga í ESB. En nú vita menn betur, það hefði farið fyrir Íslandi eins og Grikklandi.

Þetta vita ælir kjósendur sem að fylgjast eitthvað með og það er furðulegt ef kjósendur vilja selja fullveldi Íslands fyrir fáeinar evrur.

Svo heldur þú því fram að Guðni Th. verðskuldi að kjósendur setji hann í forsetaembættið og Guðni Th. er þá kominn í þá stöðu að skrifa undir sölu íslenska fullveldisins þegar þingið kemur því í gegnum þingið, eins og vildi fyrir fáeinum mánuðum, það er nú ekki lengra síðan.

Guðni Th. hefur yfirleitt skrifað og talað að niður til íslensku þjóðarinnar eins og til dæmis þegar hann hefur fjallað um landhelgisdeiluna, þorskastríðið svo kallaða, þetta er staðreynd, bara að lesa það sem Guðni Th. hefur sagt og skrifað. 

Það eru engar persónulegar árásir að benda á hvað Guðni Th. hefur sagt og skrifað þá og nú.

Þess vegna  er það að; sannir Íslendingar kjósa ekki opin landamæri og ESB sinnan Guðna Th. sem lítur niður á kjósendur sem eru ekki með háskólagráðu og telur þá ómentaðan lýð.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 8.6.2016 kl. 17:03

19 identicon

Óskaplegt bull er þetta í þér. Þú ert jafnvel orðinn verri en ósannindamaðurinn Davíð sem er illilega afhjúpaður í grein í Fréttablaðinu í morgun.

Guðni hefur að sjálfsögðu aldrei sagt að "hér færi allt til andskotans og Ísland yrði eins og Kúba Norðursins og Norður Kórea ef ekki yrði gengið að Svavars IceSave samningnum og gengið í ESB".

Ef þú virkilega telur þig vita þetta ættirðu að koma með með hlekki á þessi ummæli. Annars dæmast þau dauð og ómerk.

Ummæli Guðna voru hins vegar þess eðlis að ljóst var að þar fór skarpur maður sem vildi fara fram með aðgát en ekki taka óþarfa áhættur af hreinum glannaskap. Slíkan mann þurfum við sem forseta.

Það fylgir meira fullveldisafsal EES-samningnum en ESB-aðild, Það er því galið að óttast aðild af þjóðernisástæðum.

Svo myndi ég ráðleggja þér að hætta að tala um "sanna Íslendinga" í hverri athugasemd. Það grefur undan trúverðugleika þínum og vekur upp grunsemdir um að þú sért rasisti.

Ásmundur (IP-tala skráð) 9.6.2016 kl. 08:11

20 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þakka fyrir rasista stimpilinn, það er heiður að fá þann stimpil frá þér Ásmundur.

En það kemur ekkert til með að þagga niður í mínu rit og tjáningarfrelsi, þó svo að þú telur mig rasista.

Sannir Íslendingar kjósa ekki opin landamæri og ESB sinnan Guðna Th., sem lítur niður á kjósendur sem hafa ekki háskólagráðu og telur þáomentaðan lýð.

Jóhann Kristinsson, 12.6.2016 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband