Leita í fréttum mbl.is

Ert þú rasisti?

Margir hér á blogginu og samfélagsmiðlum móðgast rosalega þegar orð þeirra eru sögð vera rasísk.

Svona t.d. "Mér er ekki illa við útlendinga þ.e. ef þeir eru eins og ég haga sér eins og ég og tala Íslensku. Annars geta þeir bara verið heima hjá sér."  Svona létum við um miðja síðustu öld gagnvart þeim sem voru með annan húðlit en við. Við komum svona fram við fatlað fólk. Þ.e. komum þeim fyrir utan þéttbýlis þar sem fólk þurfti ekki að horfa á þau. Þannig komum við fram við t.d. þá hermenn sem voru dökkir á hörund upp á Keflavíkurflugvelli. Og þannig koma og tala margir um múslima í dag. Þó það sé ljóst að allir þeir múslimar sem hér búa hafa verið hið besta fólk og bara unnið hér og starfað ef það hefur fengið tækifæri til þess.

En svo er hópur fólks sem reynir að tengja þetta fólk við hryðjuverkamenn og geðsjúklinga í útlöndum.

En fyrir fólk sem lætur sovna um leið og það segist ekki vera rasistar þá er er rétt að benda t.d. á þessa skilgreiningu:

"

Kynþáttahatur er að finna til andúðar á tilteknum hópi fólks sem skilgreindur er út frá kynþætti. Kynþáttahatur liggur oft þjóðernisátökum til grundvallar.

kynþáttahatur er sú hugmynd að kynþættir mannkyns séu eðlisólíkir og eru þá sumir kynþættir taldir öðrum æðri. Vísindaleg kynþáttahyggja er söguleg undirrót rasisma en hann birtist oftast sem kynþáttahatur eða kynþáttafordómar og getur leitt til mismununar á grundvelli kynþáttar. Greinarmunur er gerður á kynþáttahatri og útlendingaótta þótt hvort tveggja geti farið saman en útlendingaótti er andúð eða styggð gagnvart útlendingum eða framandi menningu, án kerfislegrar hugmyndafræði. Í daglegu tali er orðið rasismi notað um hverskyns mismunun gagnvart útlendingum, byggða á arfbundnum, útlitslegum, menningarlegum .[1] Þá hefur orðið hversdagsrasismi einnig verið kynnt til sögunnar „til að sýna fram á hvernig kerfisbundinn rasismi endurnýjast að miklu leyti í gegnum rútínu eða hversdagslega hegðun, sem tekin er sem sjálfsögð í daglegu lífi“.[2]"

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að fólk móðgist aðallega út af því að góða fólkið kann ekki skilgreininguna á rasista, jafnvel þó að það lesi og jafnvel skrifi sjálft hver skilgreiningin sé.

Andúð á íslam er t.d. ekki rasismi, enda er íslam fasísk pólitísk hreyfing, og pólitísk gagnrýni getur aldrei verið rasismi. Hitt er þó skiljanlegt að vinstrimenn, góða fólkið, brjálist þegar hoggið er að íslam, enda er hoggið nálægt vinstrimennsku.

Og í leiðinni, vinstrimenn, góða fólkið, hefur aldrei viljað svara því, af hverju sú hræsni stafar, að ganga gleðigöngur niður Laugavegi allra vesturlanda, en styðja síðan miskunarlausa kúgun múslima á hommum. 

Reyndar mættu þeir útskýra af hverju þeir eru svona hrifnir af fasískum og ofstækisfullum öfgahreyfingum múslima.

En það mega menn vita, að þessum spurningum verður ekki svarað, hvorki á þessu bloggi né öðrum svipuðum. Hitt er svo víst, að nýtt blogg verður skrifað hér bráðlega um rasisma. Og það verður ekki minnst á íslam eða múslima yfir höfuð, heldur dregnar fram gamlar sögur um meinta andúð Íslendinga á svörtum hermönnum á Keflavíkurflugvelli.

Hræsni, nafn þitt er Magnús.

Hilmar (IP-tala skráð) 13.8.2016 kl. 03:38

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Gòdur Hilmar! 

Helga Kristjánsdóttir, 13.8.2016 kl. 04:57

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það er ekkert að því að vilja standa vörð um hvíta kynstofninn; það er vel hægt að gera það án þess að bera hatur til annarra kynstofna.

Við höfum alltaf valmöguleika í okkar lífi.

Hverja við veljum sem vini, í vinnu eða veitum íslenskan ríkisborgararétt.

Jón Þórhallsson, 13.8.2016 kl. 09:27

4 identicon

Það hefur alla tíð verið blautur draumur frjálshyggjunnar að hafa ótakmarkað aðgengi að ódýru vinnuafli.  Og ekki er það verra að geta flutt það til heimalandsins í stað þess að þurfa að flytja framleiðsluna til útlanda. Frjálshyggjan hefur nú fengið öflugan stuðnig við frjálshyggjuna frá vinstra liðinu sem er svo upptekið af því að sýnast víðsýnt og umburðarlynt að það fattar ekki að fjölmenningin er fyrst og fremst frjálshyggjan holdi klædd.  Annað hvort eru þetta nytsamir sakleysingjar eða, það sem er líklegra, einfaldlega vitleysingar.

Varðandi flóttamenn þá er rett að pistlahöfundur svari því hvort hann sé samþykkur því að hingað komi milljón flóttamenn.  Ef svo er þá er hann vitleysingur.  Ef ekki þá er hann auðvitað rasisti, hræddur við útlendinga og fullur af fordómum.

Bjarni (IP-tala skráð) 13.8.2016 kl. 09:57

5 identicon

Semsagt. Fjölmenningin tryggir jafnt og gott framboð af láglaunavinnuafli og er þar komin skýringin á af hverju þetta er látið viðgangast. Góða fólkið/háværi minnihlutinn gamnar sér við að kalla hófstillta meirihlutann rasista.

GB (IP-tala skráð) 13.8.2016 kl. 10:42

6 identicon

Hugsaði nákvæmlega eins og Hilmar þegar ág las þetta blogg.

Nú á að breyta umræðunni um eitthvað allt annað heldur

en vandmálið sem er ISLAM.

Góða fólkið vill bara sjá "Nýju fötin keisarans", en þegar

reynt er að benda á að fötin séu viðbjóðsleg, þá

eru þeir sem það reyna kallaðir rasistar.

Aumkunarvert.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 13.8.2016 kl. 11:49

7 Smámynd: Jón Þórhallsson

Nú ætti kastlósið að beinast að Degi borgarstjóra:

=Hefur hann ennþá 51% borgarbúa á bak við sig tengt nýrri múslima-mosku í sogamýrinni?

Jón Þórhallsson, 13.8.2016 kl. 11:59

8 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Jú, rétt ábending.  Fullt af fólki er í afneitun á því að það sé rasistar.   Og það kemur vel fram hjá ofsa-hægri genginu.

Furðulegt lið þetta ofsa-hægra gengi og merkilegt að venjulegir hægrimenn skuli ekki hafna þessu.  Afneita þessum ofsaskap og reka svona fólk frá sér.

En framsóknarflokkurinn er allur undrlagður af slíkum rugludöllum og sjallaflokkur er að verða lítið skárri.

En þetta eru svo sem hverfandi flokkar, búnir að vera, trausti rúnir með allt niðrum sig, kallagreyin.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 13.8.2016 kl. 12:24

9 Smámynd: Elle_

Skringilegur og öfugsnúinn pistill, eins og við var að búast.  Skilur hann nokkuð sjálfur hvað hann er að meina? 

Elle_, 13.8.2016 kl. 12:28

10 identicon

Nú er góða fólkið risið upp á afturfæturnar, og kallar alla aðra, sem er á annari skoðun, rasista, fólk sem vill fara eftir Stórnarskrá þjóðarinnar, 65.gr"konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna" óumdeilanlegt að hjá múslimum, að konur njóta ekki jafns réttar á við karla, og eru kúaðar á mörgum sviðum, þannig að þessi trúarbrögð, ef trúarbrögð skal kalla, standast ekki þau skilyrði sem stjórnarskráin gerir. 63.gr"allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins, þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða alsherjarreglu" Barnagiftingar, umskurður unglingsstúlkna, og handar missir fyrir þjófnað, getur seint talist, gott siðferði,eða fallið undir alsherjarreglu á Íslandi. Því á að banna Islamstrú á Íslandi, og allar Moskubyggingar,því fyrr því betra. Þetta eru tveir gjörólíkir menningarheimar, sem eiga enga samleið,hafa aldrei gert , og munu aldrei gera. Ef Múslimum tekst ekki að byggja upp siðuð samfélög, sem þeir geta búið í geta kristnir lítið, í því gert. og best væri að Múslimar haldi sig sem mest heima hjá sér.

Jón Ólafur (IP-tala skráð) 13.8.2016 kl. 13:02

11 Smámynd: Elle_

Illa við útlendinga?  Óttast útlendinga?  Hverjum er eiginlega illa við eða óttast alla útlendinga?  M.ö.o. allan heiminn fyrir utan Ísland?  Fáránleg fullyrðing. Getur manni ekki verið illa við og óttast Íslending?  

Gegn hvaða fólki er hinn fordæmandi pistill Magnúsar skrifaður?  Voru ekki allir sem vildu ekki yfirtöku ESB yfir landi okkar kallaðir útlendingahatarar með útlendingafóbíu af Magnúsi og hans nótum?  Mannskemmandi vitleysa. 

Elle_, 13.8.2016 kl. 14:02

12 identicon

Nú er góða fólkið búið að gera sér grein fyrir, að það er búið að tapa rökræðunni,og stígur upp á afturlapirnar, og kallar alla aðra sem hafa aðra skoðun, Rasista, og í stað þess að lesa 65. og 63gr. Stjórnarskrárinnar, vitnar það í Gamlatextamentið og Mósesbók, guð forði oss frá því að þetta fólk fái nokurntíman að stjórna landinu.

Halldór Guðmundsson (IP-tala skráð) 13.8.2016 kl. 18:24

13 identicon

kynþáttahatur er sú hugmynd að kynþættir mannkyns séu eðlisólíkir og eru þá sumir kynþættir taldir öðrum æðri. 

Það er bara eitt vandamál hjá þér, Magnús. Það er að þessi skilgreining er tóm vitleysa. Það er engann veginn nauðsynlegt að hata einn né neinn bara út á það að fólk sé ólíkt. Enn fremur er engann veginn nauðsynlegt að telja suma "æðri" en aðra bara vegna þess að við séum ekki eins. Það er jafnvel hægt að halda því fram að það fari ekki saman að hata annað fólk og að telja suma "æðri" en aðra - hvað svo sem það merkir. Sem sagt, hér er um að ræða eftirfarandi staðhæfingar:

 1. "Það er eðlilegt að hata aðra kynþætti".

 2. "Mismunandi kynþættir eru ólíkir".

 3. "Sumir kynþættir eru 'æðri' en aðrir".

Alveg óháð sannleiksgildi þessara hugmynda, er ekkert tvennt af þessu nauðsynlega eitthvað sem er rökfæðilega tengt. Taktu líka eftir því að hugtakið "ólíkir" er eitthvað sem fellur undir hlutbundin hugtök, á meðan "æðri" fellur undir gildishugtök, og réttlæting á hatri fellur undir (neikvæða) didaktík. Þarna er á ferðinni rökvilla - maður ruglar ekki saman gildum og didaktískum rökum annars vegar og hlutbundum atriðum sem heyra undir rannsóknir hins vegar.

Sannleikurinn er sá að skilgreiningin á rasisma hefur breyst í timanna rás. Upprunalega var það skilgreint þannig að kynþættir voru taldir ólíkir. Illu heilli var það síðan (órökrétt) notað til þess að réttlæta hatur, út frá þeim (órökréttu) forsendum að sumir voru "æðri" en aðrir. En það er ekki gáfulegra en það að halda að Anna sé "æðri" en Baldur bara vegna þess að hún er ekki nákvæmnlega eins og Baldur, eða vegna þess að hún hefur e.t.v. hærri greindavísitölu, eða eitthvað annað í þeim dúr, svo að hún gat orðið læknir og hann "bara" verkamaður. Né heldur er nauðsynlegt að segja að Dr. Anna eigi að hata Baldur.

Þótt leiðindagaurar hafi gegn um tíðina notað þá rökvillu að tengja þetta saman, merkir það ekki að þeir sem telja sig "and-rasista" eigi heimild til þess að gera slíkt hið sama. Því stundum erum við ólík, og stundum skiptir það máli:

http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/9780129

 

Ethnic differences in drug disposition and response.

Interindividual variability in drug response is a well-recognized problem resulting in both undertreatment and overtreatment of individuals receiving similar doses of drugs, with the potential for lack of therapeutic effect and for drug toxicity. The potential that interethnic differences might contribute to such interindividual variability in drug response has recently been recognized. Such interethnic differences in drug response may be due to either altered drug disposition or altered drug sensitivity among races at similar drug concentrations. In turn, such racial differences in drug disposition may be related to genetic or environmental factors, which are often difficult to separate.

Ætlar þú að halda því fram að þessir rannsóknarmenn séu rasistar, Magnús? Ef svo er, ætlast þú til þess að fólk af ólíkum kynþáttum fái ekki að nota ólík lyf sem henta þeim best? Nema þá að sú hugmynd að við séum ekki eins sé ekki bara rétt, heldur siðferðislega nauðsynleg, enda er góð heilsugæsla háð henni. Ekki þarf að "hata" neinn til að sjá það.

Egill Vondi (IP-tala skráð) 13.8.2016 kl. 19:26

14 identicon

Rasistar verða að standa undir því að þeir séu rasistar. Það er rasismi að neita að leysa alvarlegan vanda fólks vegna kynþáttar.

Rasismi er miklu hættulegri en íslam eins og sagan sýnir. Múslímar á Íslandi hafa ekki verið til neinna vandræða. Þvert á móti hafa þeir leyst aðkallandi vanda og auðgað mannlífið.

Það virðist lítið hafa breyst frá seinni heimsstyrjöld þegar íslensk stjórnvöld ráku gyðinga unnvörpum úr landi út í opinn dauðann.

Ásmundur (IP-tala skráð) 15.8.2016 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband