Leita í fréttum mbl.is

Jæja ætli þessi hafi verið í Þjóðfylkingunni?

Nei kannski ekki! En hefði ekki komið mér á óvart.

Í frétt­inni kem­ur fram að fórn­ar­lambið sem nafn­greind­ur er í þýsk­um miðlum, Al­ex­and­er B., hafi setið í ró­leg­heit­un­um í lest­inni þegar sessu­naut­ur hans hafi upp úr þurru verið kallaður Bin Laden af Íslend­ingn­um. Íslend­ing­ur­inn hafi haldið áfram að hrópa að sessu­naut Al­ex­and­ers, ung­um manni frá Mið-Aust­ur­lönd­un­um, að hann ætti að kalla „Alla­hu Ak­b­ar“ og setja sprengj­una í gang.

Á vef BZ er Íslend­ing­ur­inn sagður hafa verið drukk­inn í lest­inni og að hann hafi reynt að espa farþega lest­ar­inn­ar upp á móti unga mann­in­um. Al­ex­and­er B. reyndi þá að stíga inn í, greina þýsku miðlarn­ir frá, en þá hafi Íslend­ing­ur­inn ráðist á hann.

Virt­ist sem að átök­un­um væri lokið þegar Íslend­ing­ur­inn beit þriðjung úr eyra Al­ex­and­ers og hrópaði að hon­um á ensku: „Ég drep þig!“ 

Svona ruglukollar er best geymdir í gæsluvarðhaldi eins og þessi er víst í Þýskalandi í dag.


mbl.is Íslendingur beit bút úr eyra manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Af hverju dettur þér í hug, að þessi brjálaði nazisti eða blindfulli kjáni sé í Íslenzku þjóðfylkingunni?

Við í ÍÞ erum siðmenntað fólk sem leggur ekki í vana sinn að hata fólk né að bíta af því eyrað!

Líttu bara á útifund okkar, þöglu mótmælin fyrir framan Alþingishúsið 15. ágúst sl. Þar létum við ykkur kratana um það að vera með öskur og aðhrópan og trommuslátt og að ráðast á gamlan verkalýðsforingja á áttræðisaldri með eignaspjöllum og valdbeitingu.

Hvernig hagið þið ykkur þá í þýzkum lestum?!

Jón Valur Jensson, 28.9.2016 kl. 00:18

2 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Jón Valur, Þið í íslensku þjóðfylkingunni eruð nefnilega ekki siðmenntað fólk, það er langt í frá að vera raunveruleikinn. Þið gerið útá hatur, áróður og tóma dellu sem á uppruna sinn í áróður og réttlætingu stóru heimsveldana þegar þau voru að ræna og skipt Afríku á milli sín á 18 og 19 öldinni (og öðrum hlutum heimsins, því má ekki gleyma).

Svo lengið sem þið gerið útá þjóðrembu, kynþáttahyggju og öfgatrú (kristni) þá eruð þið ekki siðmenntað fólk.

Jón Frímann Jónsson, 28.9.2016 kl. 00:58

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

hmm - vonandi á jvj myndir af þessu "öskur og aðhrópan og trommuslátt og að ráðast á gamlan verkalýðsforingja á áttræðisaldri með eignaspjöllum og valdbeitingu." eða er þetta bara ........

Rafn Guðmundsson, 28.9.2016 kl. 01:04

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, þetta er allt satt, Rafn. Tromman var barin þarna, nálægt styttunni af Jóni Sigurðssyni, hjá stórum ESB-fána þessa óþjóðlega liðs.

Vitnisburður verkalýðsleiðtogans er til staðar. Hann lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna og kveinkaði sér ekki þegar skiltið var rifið úr höndum hans þannig að flísar fóru í hann úr spýtunni sem hann hélt í. Konan, sem gerði þetta, réðst aftan að honum og mörg vitni að þessu, líka þegar hún stjörnuóð hljóp með skiltið út í runna og hoppaði á því. Hún skuldar ÍÞ framleiðsluverðið á skiltinu.

JFJ hefur lengi lagt fæð á mig á netinu, vegna trúar minnar og gagnrýni minnar á Evrópusambandið og útsendara þess, en ofurást hans á því fyrirbæri hefur verið óvíræð. Sama er ekki lengur að segja um Jón Baldvin, sjá hér:  Jón Baldvin Hannibalsson: stefna Evrópu­sambandsins "allsherjar-disaster"

Jón Valur Jensson, 28.9.2016 kl. 01:43

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og evrókratarnir og Salmann Tamimi og Gunnar Waage líka voguðu sér að slá hring utan um Þjóðfylkingarmenn og gesti þeirra, þ.m.t. roskið fólk og þjóðrækið, og úthrópðu það: "Fasistar, fasistar!"

Jón Valur Jensson, 28.9.2016 kl. 01:54

6 identicon

Valur;eg er ekki ad segja ad allir sem eru i thjodfylkingunni seu rasistar, en ef thu heldur ad innan ykkar studningshops leynist ekki baedi rasistar og nynasistar, ad tha ert thu afskaplega barnalegur

hilmar (IP-tala skráð) 28.9.2016 kl. 07:01

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú hefur ekkert fyrir þér um það, bara getgátur út í loftið. ÍÞ þókknast ekki rasistum með því að fordæma rasisma. Við sýnum það líka í verki að vilja fá fólk af ýmsum þjóðernum og úr fjarlægustu heimshlutum á listana okkar. Og einn af oddamönnum á listum Íslensku þjóðfylkingarinnar, Gústaf Níelsson, segir:

"Til Íslands hafa komið og flust fjölmargir útlendingar, hafa bara gerst góðir Íslendingar, unnið hér og stofnað fjölskyldur, það er enginn að amast við þessu fólki, fullt af þessu fólki er búið að vera hér áratugum saman og hefur aðlagast fullkomlega, en að flytja hingað inn múslima í stórum stíl sem í grunninn fyrirlíta lifnaðarhætti okkar," það sé allt annað mál, og hér orðar hann það róttækt fyrir þig:

"Hvað erum við að ala þennan snák við okkar brjóst?, þetta er náttúrlega bara fráleitt, ég hef stundum kallað þetta að menn vilja gera minkinn að alidýri," segir Gústaf.

En "Hilmar" hefði gott af að lesa bækurnar eftir norsku blaðakonuna Hege Storhaug, mikla vinstri konu og kvenréttinda, sem fór að kynna sér skelfilegt hlutskipti margra múslimastúlkna sem flutzt hafa til Norðurlandanna, sem og kvenna í Pakistan og víðar. Tvær bókanna hafa verið þýddar á íslenzku: Dýrmætast er frelsið - innflytjendastefna og afleiðingar hennar (Bókafélagið Ugla, Rv. 2008, 359 bls.) og Þjóðaplágan Íslam (Rv. 2016).

Jón Valur Jensson, 28.9.2016 kl. 09:04

8 identicon

Otharfi ad hlaupa i svona mikla vörn Jon,

thetta er mjög einföld logik:

Nynasistar eru til, baedi her a meginlandi og a Islandi,

their eru mjög thjodernissynnadir.

Thid erud tjodernissinnadasti flokkurinn sem er i bodi i dag,

thar af leidandi er thad mjög logist ad aetla ad medal ykkar studningsmanna seu amk nokkrir nynasistar.

madur tharf nu ekki ad staldra vid lengi inn a spjallsidu ykkar og svo Stjornmalaspjallinu til ad sja ummerki um thetta.

en ther ad segja by eg i hverfi med um 60% innfleytjendahlutfall;flestir muslimar.

eg tharf ekki ad lesa neina hraedsluarodursbok til ad sja hvernig raunveruleikinn er.

ps.

eg er ekki vanur ad skrifa nafnid mitt innan gaesalappa, thannig ad thu aettir ekki ad gera thad heldur.

hilmar (IP-tala skráð) 28.9.2016 kl. 09:16

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Ég hef nokkrar áhyggjur af því að þjófylkingarmenn fari að haga sér svona hér.

Eg hef sérstaklega áhyggjur af því eftir að hafa hlustað á própaganda á ónefndri utvarpsstöð hér í bæ.

En málið er viðkvæmt og menn vilja þöggun.  Það má ekkert segja um þetta lið. 

Ómar Bjarki Kristjánsson, 28.9.2016 kl. 13:02

10 identicon

IÞ menn eru rasistar og ekkert annað. Allt þetta lygi um Islam og múslima og innflytendur segir allt. Hatur er í stefnuskrá IÞ 

Salmann Tamimi (IP-tala skráð) 28.9.2016 kl. 18:15

11 identicon

Nú er ég ekki í Þjóðfylkinguni. En þetta þykir mér heldur merkilegt, að sjá menn kvarta undan "þöggun" í þágu ÍÞ og "hatri" á meðal þeirra þar sem það er rétt nýlega farið að minnast á flokkinn á annað borð í fjölmiðlum nema þá og því aðeins til að mála skrattann á vegginn. Ég fæ ekki séð að það hefur verið annað en þöggun í garð ÍÞ frekar en í þágu ÍÞ. Auk þess þætti mér gaman að vita hvaða "lygar" Salmann er að tala um.

Þetta er sérstaklega skondið með tilliti til þeirrar þöggunar sem er orðin vanaföst varðandi eðli þeirrar vaxandi spennu meðal þjóðarbrota í Evrópu - því það sem Góða Fólkið neitar að skilja að spennan er afleiðing fjölmenningar sjálfrar, ekki þeirra sem vara við henni.

Hilmar: Þó að vissulega er hægt að finna öfgamenn í alls kyns hópum, hljóta menn að sjá að slík rök séu tvíeggjað sverð sem getur sært til dæmis anarkista og Múslima líka.

Egill Vondi (IP-tala skráð) 28.9.2016 kl. 21:41

12 identicon

ja, hvað er að atarna, er ekki guðfræðingurinn og frambjóðandinn farin að gera þarfir sínar yfir skoðanir annnara hér líka.

Minni bara á, svona úr því að frambjóðaninn er að gera lítið úr mótmælum og háværum , þá rifjum við þetta upp:

https://www.youtube.com/watch?v=Wb384dW0-nA

Jón Valur, hvernig er það, ef þú nærð á þing, þá munt þú líklega ekki fá mikinn tölvupóst, því þú er búinn að útiloka ansi marga á þínu blogg svæði, þannig þá búast líka við því þegar á þing er komið.

Mikil er skömm Þjóðfylkingarinnar af svona frambjóðendum...

Sigfús (IP-tala skráð) 29.9.2016 kl. 08:32

13 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jón Valur Jensson vill dauðarefsingar, þó hann neiti fyrir það núna, vegna þess að hann skilur þó allavega hversu skammarlegt það er í skraut-auglýsingabækling flokksins.

Og hann hefur líka fullyrt að Þjóðfylkingin sé fyrst og fremst sjávarútvegsflokkur. Samt er þetta flokkslið að skreyta sig með "umhyggju" fyrir eldri borgurum, ("og öryrkjum")?

Á fundinum í gær í Háskólabíó, þá sýndi Jón Valur yfirgang, frekju og agaleysi með að virða ekki ræðutíma, og komst upp með það furðu lengi. Helgi P (frímúrara-skemmtikraftur), og frúin sem stjórnaði fundinum með honum létu það eftir honum.

En þegar duglega baráttukonan og öryrkinn Helga Björk ætlaði að koma með spurningu, þá kom sú gamla gráa, og hreinlega reif af henni míkrófóninn?

Mér ofbauð frekjugangurinn í þessu liði sem stjórnaði fundinum, og gerði lítið úr öryrkjum á þennan svívirðilega hátt.

Þvílíkt eldri ("betri")-borgaralið!

Það skein í gegn hjá þessum Gránu-herdeildarliðum, að það á að leggja aðaláherslu á að berjast fyrir enn betri kjörum, fyrir þá lífeyrisþega og borgara, sem nú þegar hafa það betra en margir.

Öryrkjar fá ekki einu sinni að tjá sig, hvað þá meir? Það kom afhjúpandi vel í ljós í gærkvöldi, hjá þessum gömlu gráu og freku stjórnendum og sumum frekum, sem tjáðu sig í pallborði.

Það var bein sending á netinu frá fundinum. Ég var að hugsa um að fara á fundinn, en var fegin að hafa setið heima, fyrst öryrkjar voru bara lítillækkaðir og útilokaðir. Það andaði köldum kveðjum frá sumum þarna. Maður er nógu niðurdregin af að geta ekki tekið þátt í atvinnulífinu, þó maður sé ekki að láta svona frekju-gránur draga sig enn meir niður.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 29.9.2016 kl. 13:00

14 Smámynd: Jón Valur Jensson

Af hverju þarft þú að LJÚGA hér upp á mig, Anna Sigríður?

Jú, ég skal segja þér af hverju: Ástæðan er sú, að ég var þér vanþókknanlegur með því að gera eina athugasemd við þokuhugsun þína í æðimörgum, óorþódoxum athugasemdum þínum um trúmál, þar sem sveimhugur og Schwermerei einkennir tjáða afstöðu þína, ekki trúnaður við orð Nýja testamentisins, og rökfesta þín er af raunalega takmörkuðu tagi. Síðan heldurðu endalaust áfram í sama stíl og gerir lesandann leiðan á svo þarflausum og sykursætum, ofurtilfinninganæmum innleggum.

Og það kalla ég LYGI hjá þér að rita: "Jón Valur Jensson vill dauðarefsingar," því að sem almenn fullyrðing er það röng lýsing á afstöðu minni, og ég hef jafnan sagt og ritað, að ég vilji ekki dauðarefsingar á Íslandi; einungis í allra verstu tilvikum fjöldamorða (T. McVeigh, A.B. Breivik) og þjóðamorða (Pol Pot, nazista-sakborningarnir í Nürnberg) hef ég talið rétt, að viðkomandi hlytu dauðadóm, eins og raunar flestir meðal jarðarbúa munu hugsa og þar með talinn drjúgur hluti kristinna manna, enda setja viðkomandi sig þá ekki yfir orð Guðs í I.Mósebók 9,6. En það á hins vegar Anna Sigríður létt með, og er það hennar vandamálaflækja, ekki sízt vegna hennar Schwermereis!

Svo rembistu við það hér að affæra margt frá fundinum í Háskólabíói þetta liðna miðvikudagskvöld. Ofraun var þér, að eg fengi 2 mín. + örlítið meira en 1 mín. til að tala þar, á sama tíma og Bjarni Ben. fekk hins vegar a.m.k. 20 mín. fyrir sig og sinn flokk!

Talandi um Helgu Björk gengur ASG algerlega fram hjá því, að hún fekk míkrófóninn til að bera fram eina spurningu, enda fundinum að verða lokið, en hún tók sér bessaleyfi til að halda honum með valdi, meðan hún hélt þar langa skammarræðu! Menn skoði bara upptöku frá fundinum.

Og rangt er, að öryrkjar hafi ekki fengiðp að tjá sig. Inga Sæland við hlið mér, úr Flokki fólksins, upplýsti t.d., að hún væri öryrki; og samt var hún glæsilegasti ræðumaður kvöldsins.

Það voru gerð afgerandi mistök í fundarstjórn: að leyfa ýmsum meintum spyrjendum (m.a. Bryndísi Víglundsdóttur, sr. Halldóri í Holti og Helgu Björk) allt of langt ræðuhald í stað spurninga og að koma þannig í veg fyrir að fleiri fengju að bera upp spurningar. Svo var það líka skipulagsleysi að kenna að leyfa það, að nánast allr spurningar færu til Bjarna Be., á meðan fulltrúar 11 annarra flokka fengu flestir að halda sér saman, af því að fundarstjórnendum fannst ekki taka því að hafa neinn annan hátt á. Ennfremur varð einn spyrjandi þarna sér til skammar með ósæmileg óhróðurstali um BB.

Jón Valur Jensson, 30.9.2016 kl. 00:38

15 Smámynd: Jón Valur Jensson

Afsakið óyfirfarnar ásláttarvillur!

Jón Valur Jensson, 30.9.2016 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband