Leita í fréttum mbl.is

Smá fróðleikur um hælisleitendur kafli 2

Fólk er að sífellt að æsa sig yfir að hælisleitendur fái húsnæði og um 10 þúsud á viku til framfærslu á meðan mál þeirra er klárað. Svo ruglar fólk kosnaði sem ríkið heur á hverjum einstakling sem er jú rúmlega 200 þúsund á mánuði en þar inní er leiga á húsnæði og þjónusta sem þeim er skaffað.

  • Hælisleitendur fá ekki Íslenska kennitölu og mega því ekki vinna hér. Þeir mega ekki gera neina samninga og því gætu þeir ekki skaffað sér húsnæði. Þeir mega ekki gista hjá vinum því þá detta þeir út úr hælisumsóknarferlinu.
  • Það er ótrúlegt hvernig þeir sem ala á hatri gegn þeim afbaka staðreyndir.
  • Svíar eru löngu búnir að viðurkenna að hælisleitendur hjá þeim er orðinn meiri en þeir ráða við með góðu móti og eru farnir að gera eins og við að reyna að hraða afgreiðslu málana.
  • Þegar talað um Arnarholt, Bifröst, hótel og fleiri staði þá láta sumir eins og þar búi fólk við alsnægtir, En þetta er aðeins húsnæði sem einkaaðilar leigja útlendingastofnun. Þarna hafa viðkomandi herbergi einn eða fleiri í hverju og t.d. á  flestum þessu stöðum líður fólki örugglega ekki vel lokuð að mestu af langt út úr. Svona svipað og fangelsi.
  • En þetta fólk er samt tilbúið að láta bjóða sér þetta því þaðan sem þau koma bíður þeirra fleatra ekkert nema hörmungar.
  • Þó þau séu send héðan þá halda þau áfram að leita sér að varanlegri búsetu einhverstaðar fyrir sig og fjölskyldu sína sem hýrist hugsanlega í flóttamannabúðum eða á stríðssvæði.
  • Auðvita væri það tilraunarinnar virði að t.d. þjóðir heims styrktu Jórdaníu til að halda utan um fleiri flóttamannabúiðr en ríki heims þau gera það bara ekki. Það er þannig t.d. í Jórdaníu að þar eru flóttamenn um það bil 35% af fólkfjöldanum í dag. Og meira en helmingur ekki skráður þar.
  • Það er flott hjá anstæðingum flóttamann að tala um að aðstoða fólkið nær sínum heimalöndum en gera svo ekkert í því
  • Fólk af erlendu bergi brotið má ekki t.d. hjálpa ættingjum með því að skaffa þeim vinnu og húsnæði hér á landi því þau fá ekki kennitölu ef farið er sú leið. Heyrði einmitt af Sýrlendingi sem hér hefur búíð í áratugi rekur fyrirtæki og vildi svo gjarnan bjóða bróðour sínum hingað og hann mundi sjá um hann varðandi húsnæði og vinnu. En það má ekki.  Bróðir hans fær ekki landvistarleyfi.
  • Þess vegna er ómaklegt þegar flólk er að skjóta á Elsku Egló og sjálfboðaliðana sem þar buðu sig fram. Þeir geta aðstoðað Kvótaflóttamenn og gera það. En hælisleitendur má ekki einu sinni heimsækja nema einstaka aðilar frá Rauðakrossinum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja, enn ein færslan. Þú ert athafnasamari en ég, Magnús.

Alltént:

Það er ótrúlegt hvernig þeir sem ala á hatri gegn þeim afbaka staðreyndir.

Hvaða staðreyndir ert þú að tala um, Magnús? Og hvers vegna ert þú enþá að tala um "hatur"? Getur ekki verið að hér sé um að ræða heilbrigða skynsemi og ábyrgð gangvart egin samfélagi?

Svíar eru löngu búnir að viðurkenna að hælisleitendur hjá þeim er orðinn meiri en þeir ráða við með góðu móti og eru farnir að gera eins og við að reyna að hraða afgreiðslu málana.

Nákvæmnlega rétt, Magnús. Og þess vegna eigum við að taka mið af þeirra mistökum svo að við lendum ekki í sama veseninu.

Auðvita væri það tilraunarinnar virði að t.d. þjóðir heims styrktu Jórdaníu til að halda utan um fleiri flóttamannabúiðr en ríki heims þau gera það bara ekki. Það er þannig t.d. í Jórdaníu að þar eru flóttamenn um það bil 35% af fólkfjöldanum í dag. Og meira en helmingur ekki skráður þar.

Það að við gerum ekki eitthvað sem er tilrauninar virði merkir ekki það að við eigum í staðinn að gera eitthvað heimskulegt, bara til þess að gera eitthvað.

Það er flott hjá anstæðingum flóttamann að tala um að aðstoða fólkið nær sínum heimalöndum en gera svo ekkert í því

Og hvað ætlastu til af okkur? Við stjórnum ekki á Alþingi, og þar með ekki fjárlögum, illu heilli.

Fólk af erlendu bergi brotið má ekki t.d. hjálpa ættingjum með því að skaffa þeim vinnu og húsnæði hér á landi því þau fá ekki kennitölu ef farið er sú leið. Heyrði einmitt af Sýrlendingi sem hér hefur búíð í áratugi rekur fyrirtæki og vildi svo gjarnan bjóða bróðour sínum hingað og hann mundi sjá um hann varðandi húsnæði og vinnu. En það má ekki.  Bróðir hans fær ekki landvistarleyfi.

Að sjálfsögðu ekki! Menn eiga ekki bara að geta komið hingað til þess að veita fjölskyldum sínum landvistarleyfi, ertu genginn af vitinu?

Þess vegna er ómaklegt þegar flólk er að skjóta á Elsku Egló og sjálfboðaliðana sem þar buðu sig fram. Þeir geta aðstoðað Kvótaflóttamenn og gera það. En hælisleitendur má ekki einu sinni heimsækja nema einstaka aðilar frá Rauðakrossinum.

Það er alls ekki ómaklegt. Menn buðu fram hjálp til að monta sig yfir góðmennsku sinni á netinu, og með þeim afleiðingum að pólitískur þrystingur leiddi til nýrra og illa ígrundaðra útlendingala, sem og að fleiri leita hingað en ellegar væri. En þegar á hólminn er komið kemur í ljós að fólk er ekki að bjóða fólki heim til sín, og komufólki er holað niður eins og þú hefur sjálfur bent á. En kostnaðurinn er samt farinn að hækka umtalsvert! Lítum svo aðeins á annan punkt sem þú skrifar.

Þegar talað um Arnarholt, Bifröst, hótel og fleiri staði þá láta sumir eins og þar búi fólk við alsnægtir, En þetta er aðeins húsnæði sem einkaaðilar leigja útlendingastofnun. Þarna hafa viðkomandi herbergi einn eða fleiri í hverju og t.d. á  flestum þessu stöðum líður fólki örugglega ekki vel lokuð að mestu af langt út úr. Svona svipað og fangelsi.

Einmitt: hér er um að ræða einkaaðila sem fá tækifæri til þess að græða pening á kostnað skattgreiðenda. Á meðan fá pólitíkusar fjöður í hattinn fyrir góðmennsku sína, og gagnlegir bjánar fá að berjast fyrir "réttsýnini". Hins vegar er ljóst að ef við myndum í raun reyna að hjálpa fólki í heimalöndum sínum, myndu flerir fá aðstoð en ef við bjóðum þeim hingað, og félagsleg spenna á milli þjóðarbrota myndi ekki vaxa.

En skítt með það, það verður að berja sér á brjóst og saka aðra um "hatur", það er miklu einfaldara og veitir mönnum nauðsynlega réttsýniskennd.

Egill Vondi (IP-tala skráð) 8.10.2016 kl. 15:28

2 identicon

Hver ekki vestrænn "innflytjandi" kostar norska skattgreiðendur 4 milljónir norskra króna. . Minnst 50 milljónir isk miðað mið SSB, - hagstofu Noregs.

Jonasgeir (IP-tala skráð) 8.10.2016 kl. 18:24

3 identicon

Á Íslandi ríkir trúfrelsi, samkvæmt Stjórnarskrá, en Stjórnarskráin hafnar trúarbrögðum sem eru andstæð Stjórnarslrá. 65,gr janfnrétti kynjanna, því er ekki til að dreyfa hjá Múslimum, því á að banna Islam og allar Moskur á Íslandi.

Jón Ólafur (IP-tala skráð) 8.10.2016 kl. 22:47

4 identicon

Ekki veit ég hvaða geðveiki það er, að vilja skjóta undan okkur fæturna með óheftum innflutningi fólks.
Og þó. Verkamannaflokkurinn í Bretlandi viðurkenndi að hann stóð fyrir innflutningi á atkvæðum, í þeirri von að Íhaldsflokkurinn kæmist ekki til valda aftur. Með þessu lagði flokkurinn grunninn að Brexit. Skýringin gæti verið sú sama á Íslandi, þar sem kratar eru að deyja út.

En eitt veit ég, sem blogghöfundur veit líka, að fæstir þeirra sem kallaðir eru flóttamenn, eru flóttamenn, og enn færri eru þeir sem rekja ættir sínar til Sýrlands. Langflestir sem sækja um svonefnda vernd, eru efnahagsflækingjar frá Balkanskaganum, sem hafa frétt að þessum málum sé stjórnað af idjótum á Íslandi, sem er mikið í mun að skilja skattborgara frá peningunum sínum. 

Hilmar (IP-tala skráð) 9.10.2016 kl. 01:22

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Kannast við stílinn hans Hilmars,skynsamur og alltaf yfir máta málefnalegur og góður. Verður alltaf hughægra þegar hann mætir.

Helga Kristjánsdóttir, 9.10.2016 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband