Leita í fréttum mbl.is

Flokkur fólksins keppist nú við að bjóða flokksmenn Þjóðfylkingar í sínar raðir

Fyrirgefið en ef Flokkur fólksins er að bjóða fólki úr Íslensku Þjóðfylkingunni í lið sitt, segir það okkur ekki að þau ætla að taka við sem útlendingahatursflokkur landsins?


mbl.is Draga framboð sín til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Magnús Helgi - sem og aðrir gestir, þínir !

Magnús síðuhafi !

Það er ágætt: að þú skulir upplýsa almenning, um þinn innri mann, með þínu fjandsamlega viðhorfi til Ingu Sæland og flokks hennar:: Flokks fólksins, sem þú getur vart dulið, með þínu tilskrifi, að þessu sinni.

Hún Oddný þín (Harðardóttir) - og ykkar kratanna, var nú svo andskoti dugleg, meðfram Mél- Ráfunum Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni, AÐ MYLJA undir Banka Mafíuna, á árunum 2009 - 2013, með liðsstyrk einhverra mestu óþverra þessa lands, Sýslumanna skoffínanna, sem teljast reyndar eiga að lemjast og lemstrazt, fyir liðveizluna við lögfræðinga úrhrök Banka svindlaranna, í þjófnuðum þeirra, á almanna eigum.

Það var ekki amalegur arfur: sem þau Jóhanna og Steingrím ur J., ásamt Oddnýju 1/2 velgju, skenktu þeim Sigmundi Davíð og Bjarna, til áframhaldandi lúskrunar á heimilum og fjölskyldum þessa vesala lands:: Vorið 2013:: arfur, sem þeir og vinir þeirra í áframhaldi fjárplógs- og rána starfsemi Banka Mafíunnar búa enn að, í dag.

Áður - en þú hnýtir frekar, í hina kjarkmiklu og drenglunduðu Ingu Sæland og hennar fólk, ættir þú að ígrunda betur, hvað 6 faldi flokkurinn á þinginu, hefir mörg mannslíf á samvizkunni, einnig.

Útlendingahatur: gasprar þú, sem aðrir vinstri vitleys ingar og miðju- moðs, á meðan við bjóðum velkomna:: Hindúa frá Indlandi og Sri Lanka t.d. / sem og Bhúddatrúarmenn frá Víetnam og Thaílandi t.d.:: fólk, sem er EKKI að troða okkur um tær, með sínum siðvenjum og trúarbrögðum, eins og plágu hyski Múhameðs villimanns og siðspillings, vinar þíns, Magnús minn.

Mikið andskoti - ertu annarrs Glámskyggn, á veraldarsöguna, síðuhafi ''knái''.

Tek fram: að ég er óflokksbundinn með öllu / hefi aldrei stutt Íslenzku þjóðfylkinguna né mun gera, þar sem ég er jú, talsvert hugmyndafræðilega upp á kant, við Gunnlaug Ingvarsson NATÓ og EFTA sinna, þó svo, ég haldi áfram að meta Gústaf Níelsson að öllum þeim verðleikum, sem hann á skilið - afbragðs Sagnfræðingur, sem skemmtilegur útvarps maður, ekki síður.

Á meðan - þið kratarnir eltið ólar, við gælur : Unnar Brár / Óttars Proppé / Ólafar Nordal og Eyglóar Harðardóttur, að ógleymdri Katrínu Jakobsdóttur:: til Múhameðska rumpu lýðsins, er vart að vænta trúverðugrar fylgisaukningar, meðal almennra landsmanna, sem fyrir löngu eru búnir að sjá svik ykkar og pretti, ekki hvað sízt, árin 2009 - 2013 !

Flokkur fólks: Ingu Sæland, stendur jafnréttur uppi, eftir ykkar löðurmannlegu skeinur, Magnús Helgi Björgvinsson !!!

Með kveðjum af Suðurlandi þó - en fremur snubbóttum til Magnúsar Helga síðuhafa og skoðanasystkina hans, að þessu sinni /    

  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.10.2016 kl. 21:47

2 identicon

Óttalegt rugl er þetta í þér Óskar Helgi. Það sem þú segir er ekki í neinu samhengi við innlegg síðuhafa, bara einhverjar getgátur og brigzl út í loftið og aftur til baka.

Magnús Már (IP-tala skráð) 13.10.2016 kl. 22:05

3 identicon

Sælir - að nýju !

Magnús Már !

O: jú, einfaldlega er þetta sannferðug lýsing mín, á hentistefnu- og skíthauga vinnubrögðum ykkar kratanna, hvað sem máttleysislegum andsvörum þínum líður.

Sagan vottfestir það - því miður.

Með sömu kveðjum - sem seinustu /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 13.10.2016 kl. 22:58

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Inga Sæland, frænka lögfræðingsins Péturs Gunnlaugssonar frammaígrípandi, á karlaveldis-Sjálfstæðisflokks-stöðinni Útvarpi Sögu?

Ég sé ekki muninn á Sjálfstæðisflokknum, Þjóðarflokknum og Flokki Fólksins, miðað við það sem ég hef hingað til heyrt í þessu flokkaliði.

En þeir eru víst hættir, þessir tveir (lömbin þagna)-karlrembingar. Frekja, yfirgangur og einræðistilburðir eru helstu opinberlega augljósu styrkleikar þessara rembinga, sem kæfa allt í kringum sig. Held þeir ættu að halda sig bara við stórfiska-kallaleik í félaginu Heimsýn.

M.b.kv 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.10.2016 kl. 00:03

5 identicon

Komið þið sæl - sem fyrr !

Anna Sigríður !

Í Guðanna bænum: ekki, ekki fara að blanda NATÓ sorp klúbbnum Heimssýn inn í þessa umræðu, komizt þú hjá því, fornvinkona góð.

Hræsni Heimssjáenda (Heimssýnar liðsins)- er öllum auðsæ, sem vilja. Samtök: sem þykjast berjast gegn inngöngu í Heimsvaldasinna klúbbinn ESB oft nefnt Fjórða ríkið, en kjósa að hanga eins og Hundar á roði, á áframhaldandi aðild, að : EFTA - NATÓ, að ógleymdri aðildinni að EES svika samningum, þeirra Jóns Baldvins Hannibalssonar og Dvaíðs Oddssonar, forðum.

Svo - ekki sé gleymt einnig:: Schengen slysinu, sem auðveldar flæði Múhameðska innrásarliðsins hingað til lands, undir yfirskininu kunna::: ''flóttamenn og hælis leitendur'' sem öllum er kunnugt, sem sjá vilja.

Ígrundaðu vel: mín orð, Anna mín Sigríður.

''Flóttamanna'' straumurinn - er orðinn atvinnuvegur ýmissa preláta Rauða krossins, þeirra Þóris Guðmundssonar, líkt og Samfylkingar - Pírata gerpanna, og Óttars Proppé safnaðar ins, sem víða má finna í núverandi þingflokkum !

Með sömu kveðjum - sem öðrum, og áður /    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.10.2016 kl. 00:35

6 identicon

Til að upplýsa ykkur ágæta fólk, ef þið hafið þá einhvern áhuga á því, þá í fyrsta lagi er enginn frá Flokki Fólksins að mínu viti, á veiðum eftir þjóðfylkingarfólki og í öðru lagi er ég að frétta það hér að ég sé eitthvað skyld Pétri Gunnlaugssyni. Það væri þá líka gaman að vita hvernig ég tengist honum Anna Sigríður. 

Með góðri kveðju

Inga Sæland

Inga Sæland (IP-tala skráð) 14.10.2016 kl. 09:15

7 identicon

Óheiðarleiki krata kemur í bakið á þeim enda sekkur móðurskipið sem steinn.

Pakkakíkir (IP-tala skráð) 14.10.2016 kl. 10:36

8 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Magnús, veist þú til þess að FF hafi verið að reyna að fá til sín fólk úr ÍÞ?

Vésteinn Valgarðsson, 14.10.2016 kl. 12:11

9 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæl kæra Inga Sæland. Það var nú virðingarverðasta og útskúfaðasta konan á Útvarpi Sögu, sem upplýsti það í beinni útsendingu á sinni fyrrverandi Útvarp-Sögu stöð, að þú værir frænka Péturs Gunnlaugssonar.

Ég trúi í einlægni minni, að Arnþrúður Karlsdóttir segi einungis það sem hún veit hverju sinni að er satt og rétt.

En Arnþrúður fær nú orðið færri tíma á stöðinni heldur en frænka Péturs Gunnlaugssonar-lögfræðingurinn og co?

Er það ekki eitthvað umhugsunarvert kæra strandakona, Inga Sæland mín?

Ég á víst sjálf umhugsunarverðan ættaranga að rekja til Strandanágrennis þíns uppruna Inga Sæland. Ásamt uppruna frá öðrum ríkjum.

Ekki láta lögfræðinginn frænda  þinn plata þig á vígvöll pólitískra leðjuslagsmála, á meðan Forseti Hæstaréttar Íslands stjórnar áfram öllu á sama hátt á Íslandi, eins og hingað til.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.10.2016 kl. 23:49

10 identicon

Hún er skrýtin þessi fyrirfram geiðsla vaxtabóta, til næstu 5 ára. þó maður standist kröfurnar um vaxtabætur, nýkomin úr námi, getur maður verið kominn í hóp hátekjumanna næstu 5 árin en samt á maður rétt til vaxtabóta, meira en það búin að fá vaxtabæturnar fyrir fram til næstu 5 ára, Magnús þannig að þið ætlið að greiða hátekjumönnum vaxtabætur, er það ekki heldur mikið í lagt.

Jón Ólafur (IP-tala skráð) 15.10.2016 kl. 21:37

11 identicon

Jón Ólafur, ég geri ráð fyrir að ef þú getur ekki endurgreitt fyrirframgreiddar vaxtabætur með vaxtabótum verðir þú að endurgreiða þær úr eigin vasa. Hefurðu ástæðu til að ætla annað? 

Ásmundur (IP-tala skráð) 16.10.2016 kl. 16:47

12 identicon

Ólafur Helgi er ekki einn um að ásaka Jóhönnu og Steingrím um að hafa dregið taum fjármálastofnana á kostnað almennings.

Slíkar yfirlýsingar sýna hins vegar ótrúlega lítinn skilning á því sem hér gerðist í hruninu.

Skilningsleysið felst ekki síst i því að sjá ekki mikilvægi þess eftir hrun að stofna nýja banka með öruggan rekstrargrundvöll. Nýtt bankahrun hefði einfaldlega riðið okkur að fullu.

Skilningsleysið felst einnig í því að skilja ekki að kröfuhafar bankanna áttu rústir gömlu bankanna sem nýju bankarnir voru reistir á. Þessar rústir voru metnar á mun lægra verði en óháð matsnefnd hafði áður metið þær á.

Íslendingar hefðu aldrei komist upp með að ræna þessum rústum af kröfuhöfunum ekki síst vegna þess að áður höfðu þeir fært mörg þúsund milljarða frá kröfuhöfum til innistæðueigenda með neyðarlögum.

Mikill vöxtur nýju bankanna eftir stofnun þeirra er vísbending um hve vel tókst til við endurreisnina efir hrun. Fyrir það eiga Jóhanna og Steingrímur hrós skilið

Hagnaðurinn var fyrst og fremst aukið verðmæti eignar vegna vellukkaðrar endurreisnar ríkisstjórnarinnar en ekki rekstrarhagnaður. Ríkið naut góðs af i arðgreiðslum sem stór eigandi.

Árangur Jóhönnu og Steingríms var frábær og vakti heimsathygli. Íslenski molbúar urðu þess hins vegar ekki varir og kusu auðmenn yfir sig.

Ásmundur (IP-tala skráð) 16.10.2016 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband