Leita í fréttum mbl.is

Olíuhreinsunastöð umhverfisvæn?

Var að horfa á fréttir í Sjónvarpinu í kvöld og sá þá myndir af svona olíuhreinsunarstöð, Ég verð nú að segja að ég persónulega vildi ekki hafa svona mannvirki nálægt mér og helst ekki hér á landi. Þessi mannvirki í sjálfu sér eru menngun.

oliuhreinsun

Það þarf enginn að segja mér að af svona starfsemi sé ekki mikil mengun og mengunarhætta. 

BAL-22

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ætli að fiskeldi og olíuhreinsunarstöð yrði ekki sannfærandi tvíeyki í Arnarfirði?

Ég er að velta fyrir mér hvort glórulausari hugmyndir en þessi hafi litið dagsins ljós á opinberum vettvangi. 

Árni Gunnarsson, 26.8.2007 kl. 00:27

2 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Er í grundvallaratriðum óssamála þér Magnús minn og vísa til
bloggsíðu minnar um þetta þar sem ég hef fjallað þó nokkuð um
þetta þar . Hef og mun hins vegar ALDREI skilja t.d okkar háttvirta iðnaðarráðherra. Hann vill á næsta ári LEITA að olíu, væntanlega til að FINNA hana og VINNA. Hins  vegar má ekki HREINSA hana. Og nú mun vera ekki síður mengun af vinnslu hennar en hreinsun.  SKIL ALLS EKKI SVONA TVÍSKINNUNG. Svo hitt. Þið sem agnúast hvað mest út í þetta notið EKKI SÍÐUR benzin og vörur unna úr olíu en við hin. Hvað er þá málið ef ákveðinir aðilar eru tilbúnir til að byggja
slíka stöð og skaffa henni viðeigandi land og starfsumhverfi ?
Hvers konar afturhalds forræðishyggja er þetta eiginlega ?

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.8.2007 kl. 13:43

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þú ert held ég að misskilja olíuleitina. Það eru erlend fyrirtæki sem leita að olíunni gegn því að fá að dæla henni upp gegn gjaldi til okkar. Olíuhreinsunarstöðinn er jú hugsuð til þess að vinna olíu frá Rússlandi og ekki til að vinna olíu frá okkur. Þetta eru rússnesk fyrirtæki sem ætla að flytja olíu sem þeir eru að dæla upp annarstaðar og vinna svon hér. Aðal menngunarhættan er að olíuhreinsunarstöðinni sjálfri, umskipun olíunar og svo siglingu stórra (minnst hundraðþúsund tonna) um þrönga firði hér.

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.8.2007 kl. 14:37

4 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Í báðum tilvikum eru þetta erlendir fjárfestar sem koma að
málum. Bæði að vinnslu og hreinsun eins og leitinni. Þessi olíuhreinsunarstöð yrði kjörin líka til að vinna okkar olíu finnist  hún.
Raunar rökrétt framhald af okkar vinnslu. Hún er fjármögnuð af Rússum, Bandaríkjunum og aðilum í Evrópu. Er búinn að svara þetta með
siglingahættuna á mínu bloggi og vísa til þess. Þannig Magnús minn.
Það er allt jákvætt við þetta, og sem Vestfirðingur segi ég að nú sé
röðin komin að okkur eftir stöðnun undanfarinna ára og bara kreppu
ef fram heldur sem horfir......

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 26.8.2007 kl. 14:45

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Mér finnst þetta viðhorf minna mjög á hugsunarhátt sem var ríkjandi í sjávarútvegi hér á síðustu öld. Þar voru jafnvel byggð heilu þorpin eins og Djúpavík í hring um stóra verksmiðju sem bræddi heil ósköp af síld. Það var ekkert hugsað um t.d. að með því að moka svona upp út sjónum þá kláraðist síldin.

Ef að yrði umhverfisslys t.d. strand í Djúpinu þá yrðu afleiðingarnar gífurlegar. Eins fólk veit þá erum við ekki búin til að takast á við það. Eins þá má ekki gleyma að olíuhreinsunarstöð á einum stað á Vestfjörðum bjargar ekki allri byggð. Bendi á að á Austfjörðum eru það ýmis byggðalög sem í engu njóta þessa framkvæmda sem þar hafa staðið yfir.

Held það væri happadrýgra að hvetja íslensk fyrirtæki til að starfa á þarna fyrir Vestan með skattaafslætti og stuðningi. Sér í lagi hátækni fyrirtæki.

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.8.2007 kl. 22:14

6 identicon

Æ, kommon.  #"Þessi mannvirki í sjálfu sér eru mengun."

Þetta er bara skoðun sem ekki er hægt að ræða neitt um.

Ég sé ekki betur en að þú sért að kvarta örlitlu síðar, sirka 3 færslum síðar yfir háu bensínverði. Gæti verið að það myndi lækka ef þú hefðir hreinsistöðina rétt hjá? Er það jafnvel smuga?

Kann annars ágætlega við sumar færslur hér, en tilfinningasemi er oftast vond. Hjá þér rétt einsog öðrum.

Er járnblendið ljótara en álverið? eða er hæstiréttur ljótari en kringlan? Ef svarið er já við báðu, er þá betra að efla lögfræðistéttina en verslunarmenn, eða eigum við að fókusera á vélfræðingana?

Síðasta klausa er jafngáfuleg umrædd færsla.

Þrándur (IP-tala skráð) 1.9.2007 kl. 23:12

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég á fullt af myndum í tölvunni hjá mér af olíuhreinsunarstöðvum og verða að segja að þær eru með afbrigðum ljótar. Ég er annsi hræddur um að við fengjum nú lítið af þessu bensíni vinur því að öll olía fer á markað. Þú veist vonandi að þetta er olía frá Rússlandi sem stefnt er að vinna hér. Og héðan fer hún á markað. Þannig að við fáum ekki ódýrari olíu fyrir vikið. Það skapast störf viðurkenni ég en bendi á að það er andstaða í flestum vestrænum löndum við að fá svona vinnslustöðvar. Noreigur t.d. hreinsar ekki alla sína olíu sjálfur. Ég held að fólk gleymi dálítið þarna fyrir Vestan hversu mikil hætta skapast þegar svona stór skip 100 þúsund tonn væru siglandi þarna nokkrum sinnum á viku full af olíu. Fólk ætti minnstakosti þarna að þekkja válind veður

Magnús Helgi Björgvinsson, 1.9.2007 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband