Leita í fréttum mbl.is

Byrjar þessi barlómur aftur hjá þessu fólki

Það er bara eins og fólki sé fyrirmunað að skilja að borga eins og Reykjavík þróast ekki eðlilega með flugvöll innan við kílómeter frá miðbæ Borgarinnar.

Og innan við Kílómeter frá Ráðhúsi Reykjavíkur, Alþingi og fleiri stöðum og flugvélar í flugtökum og lendingum fara yfir miðju bæjarins.. Flugvöllurinn hefur þegar gert það að verkum að byggð í næsta nágreni hefur ekki þróast með eðlilegum hætti. Þessi völlur meira að segja hefur áhrif á hversu hátt megi reisa hús.

Bendi á að flugvélar koma til með að fljúga yfir nýja tónlistarhúsið líka. Það eins gott að það verði vel hljóðeinangrað.

Finnst það alveg makalaust að fólk utan að landi geti ekki sett sig í spor þeirra sem eru að reyna að gera borgina lífvænlegri.

Síðan er gott að benda þessu fólki á að flugvöllurinn verður a.m.k. þarna til 2024 eða í 16 ár í viðbót þannig að fólk ætti kannski að slappa aðeins af.


mbl.is VG í Skagafirði mótmælir flutningi Reykjavíkurflugvallar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi þetta er óttlegt bull þetta með "eðlilega þróun borgarinnar". Er Tjörnin þá ekki hindrun í vegi eðlilegrar þróunnar borgarinnar? Væri ekki eðlilegast að þurrka hana upp og byggja á þessu verðmæta landi? Hvað með Miklatún, Öskjuhlíð eða Laugardal? Sóun á landi sem hindrar eðlilega uppbygginu borgar? Hvað með sjálfa strandlengjuna? Staðsetning miðborgar úti á nesi heftir auðvitað eðlilegan vöxt borgarinnar, hugsa sér allt gæðalandið undir sjávarmáli sem verktakarnir fara á mis við. Flugvöllurinn í Vatnsmýri er þar sem hann og þar verður hann á meðan land byggist, það er bara eins og hver önnur staðreynd sem á að taka mið af við skipulagningu borgarinnar. Það er ekkert til sem heitir "eðlileg þróun byggðar", menn vinna bara úr því sem þeir hafa á hverjum stað.

Bjarki (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 15:44

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bjarki  þú ert þá að halda því fram að Flugvöllurinn sé náttúruperla og útivistarsvæði eins og þau sem þú tiltekur. Og þetta þessar flugbrautir séu almennt að nýtast Reykvíkingum.

Bendi á að svo hefur tognað úr borginni að t.d. frá að það eru 15 til 20 km. frá úthverfum og til miðborgarinnar. Og jafnvel legnra ef við förum að taka Kjalanes með.

Ef að svona heldur áfram án þéttingar nær miðbænum þá verður svipað langt fyrir þá sem yst búa að komast í bæinn og að keyra til Keflavíkur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.8.2008 kl. 16:54

3 identicon

Flugbrautirnar nýtat Reykvíkingum betur en nokkuð útivistarsvæði, hundruðir þeirra hafa beina eða óbeina atvinnu af tilvist þeirra og margir þeirra nota þjónustuna sem þær bjóða uppá. Það eru ekki bara landsbyggðarmenn sem eiga erindi í borgina, borgarbúar eiga líka oft erindi út á land. Þar að auki taka brautirnar sjálfar og öryggissvæði þeirra ekki svo mikið land, hægt er að endurskipuleggja völlinn þannig að heilmikið landsvæði losni til bygginga. Það hefur ekki verið gert þar sem andstæðingar vallarins líta svo á að með því yrði völlurinn festur í sessi um alla eilífð.

Til þess að stöðva útþennslu byggðar á höfuðborgarsvæðinu þarf eitthvað annað og meira að koma til en að nokkur þúsund manns fái heimili í vatnsmýri, það er ekki nema dropi í hafið.

Bjarki (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 18:02

4 Smámynd: Valur Stefánsson

"Bendi á að flugvélar koma til með að fljúga yfir nýja tónlistarhúsið líka. Það eins gott að það verði vel hljóðeinangrað."    Heldur þú virkilega að vélarnar fljúgi það lágt að það heyrist inn í húsið?  Nei það heyrist hærra í bílaumferðinni um Kalkofnsveg heldur en í rellunum í loftinu.

Valur Stefánsson, 26.8.2008 kl. 20:10

5 identicon

Anna: Ég hefði nú haldið að hátt olíuverð myndi frekar festa völlinn í sessi. Það gerir innanlandsflugið samkeppnishæfara við bílinn vegna ferðalaga á milli landshluta og það er langt til Keflavíkur. Eðlilegri viðbrögð við háu eldsneytisverði væru að meira flug flyttist frá Keflavík til Vatnsmýrar.

Bjarki (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 20:53

6 Smámynd: Frosti Heimisson

Svooo rétt þetta með eldsneytisverðið!... Ættum við að fara að keyra auka 50 km. til að komast í flug (sem þarf svo í öllum tilfellum að fljúga lengri vegalengd en áður?!  Það er ekkert Anna sem bakkar orð þín upp!

Frosti Heimisson, 27.8.2008 kl. 00:09

7 identicon

Frosti: Það sparast milljónir ef ekki tugir milljóna ekinna km árlega með minnkuðum akstri fólks frá úthverfum Reykjavíkur til vesturhluta borgarinnar ef 15 þús manna byggð kemur í Vatnsmýri. Þetta kemur til með styttri vegalengdum, betri möguleikum fólks til að nota aðra kosti en einkabílinn, s.s. strætó eða hjóla

Auk þess mun þetta minnka umferðarhnútana á Miklubraut og Kringlumýrarbraut mjög mikið. Flestir vilja búa nálægt vinnustað sínum og þeir eru langflestir vestan Kringlumýrarbrautar.

Orku- og tímasóun (með löngum vegalengdum) og mikill kostnaður við endalausa byggð á nýjum úthverfum eru líka mjög góð rök gagnvart þessum flugvelli. Hins vegar vil ég ekki fá hann burt strax því ég er hræddur um að skipulagsyfirvöld muni hann nýjan Grafarvog eða Norðlingaholt þar og þannig gjörsamlega klúðra þessu skipulagstækifæri.

Skil ekki þessa þörf fyrir fólk af landsbyggðinni að þurfa endilega að lenda í miðborginni. Eiga allir erindi þangað eða keyra allir beint í Hafnarfjörð að heimsækja ættingjana?

Atli (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 00:45

8 identicon

Ókei, kannski ekki tugir milljóna, full mikið kannski, en pottþétt milljónir

Atli (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband