Leita í fréttum mbl.is

Það eru farnar að berast furðulegar sögur frá bönkunum.

Þetta bréf gegnur nú ljósum logum á netinu.

Yfirmaður áhættustýringar Kaupþings tapaði 2 milljörðum (mest tekið að láni) og allar skuldir hreinsaðar við hann og mörg hundruð aðra bankastarfsmenn sem tóku lán frá 10-1000 milljónir til að kaupa hlutabréf,sumir fengu sér cruiser 100 jeppa, fjármögnuðu heimsreisur og lúxusheimili. Allar skuldir hreinsaðar upp svo þeir geti hafið störf í nýju ríkisbönkunum okkar. Rökin sem FME og ráðamenn færa fyrir þessu er að það sé ómögulegt að manna yfirmannastöður í nýju bönkunum nema þetta sé gert, því lögum samkvæmt mega gjaldþrota einstaklingar ekki starfa fyrir banka!!! Fyrir mér er þetta stríðsyfirlýsing við okkur venjulegu borgarana í þessu landi sem erum flest með lán í þessum bönkum. Ef skuldir og sukk þessara óreiðumanna eru sópaðar útaf borðinu þá vil ég að það sama gangi yfir alla!!!!!! tugþúsundir töpuðu stórum hluta af sparnaði sínum, tugþúsundir venjulegra hluthafa í bönkunum töpuðu öllu sínu.... ég gæti haldið endalaust áfram... ég hef aldrei reiðst eins mikið á ævi minni og þegar ég heyrði þetta.

Þetta er hámark spilingarinnar og hvet ég ykkur til að hafa samband við sem flesta og beina reiði ykkar að þingmönnum okkar. Þetta endar með ofbeldi annars.“



Og þetta las ég á blogginu hennar Oddnýjar Sturludóttur:

Nú hefur dómsmálaráðherra falið ríkissaksóknara að gera skýrslu um stöðu og starfsemi íslenskra peninga- og fjármálastofnana á tímamótum í rekstri þeirra og eignarhaldi. Skýrsluhöfundar eiga að afla staðreynda um starfsemi bankanna og fyrirtækja í þeirra eigu og tilfærslu eigna, einkum á síðustu mánuðum starfseminnar. 

Ríkissaksóknarinn Valtýr Sigurðsson og fyrrverandi ríkissaksóknari Bogi Nilsson stýra gerð skýrslunnar og efnisöflun. 

Valtýr á son. 

Sá sonur er forstjóri Exista hf. sem er stærsti hluthafi Kaupþings hf., hann er líka stjórnarformaður Vátryggingafélags Íslands hf., Lýsingar hf., Líftryggingafélags Íslands hf., Íslenskrar endurtryggingar hf., Exista Invest ehf. og Exista Trading ehf. Meðal annars.

Bogi á líka son. 

Sá sonur er forstöðumaður á lögfræðisviði Stoða hf. Hann er jafnframt stjórnarformaður og fer með prókúru fyrir Stoðir Capital ehf., Stoðir Eignarhaldsfélag ehf., Stoðir Finance ehf. og FL Bayrock Holdco ehf. Meðal annars. 

Hafa menn ekkert lært? Þarf íslenska þjóðin ekki á því að halda núna að þessi mikilvæga skýrsla verði unnin af þeirri almestu fagmennsku sem völ er á? 
Svo er þessi færsla hjá Pétri á http://eyjan.is/hux/
Þegar litið er yfir ríkisstjórnarborðið kemur í ljós að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og yfirmaður ríkissaksóknara, er tengdafaðir Hreiðars Más Guðjónssonar, lykilstjórnanda í viðskiptaveldi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Eiginmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra er Kristján Arason, sem var yfirmaður einkabankaþjónustu hjá Kaupþingi. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra er svili Sigurðar G. Guðjónssonar, sem sat í stjórn Glitnis. Geir H. Haarde forsætisráðherra er stjúpfaðir Borgars Þórs Einarssonar, sem starfaði í lögfræðideild Landsbankans. Eiginkona Geirs, Inga Jóna Þórðardóttir, sat sem kunnugt er í stjórn FL Group en sagði sig úr stjórninni 2005 af ástæðum sem enn eru að miklu leyti óljósar.
Þetta sýnir að fullþörf er að fara ofan í kjölin á öllum þessum málum og rannsaka málin vel og þá þarf að finna menn sem ekki hafa tengsl við þessa banka. Held að það sé nauðsynlegt að þeir komi erlendis frá.

mbl.is Árás á fullveldi þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Að sjálfsögðu ber að rannaka allt vel með aðkomu erlendra aðila. Það hefur Björn Bjarnason m.a. sagt. En svona upphrópanir eru bara dæmigerðar í íslensku þjóðfélagi. Hér þekkja allir alla og allir eru meira og minna skyldir.... einhvernveginn. Það er mjög auðvelt að finna tengsl á milli manna hér á landi og mun auðveldara en í öðrum löndum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 3.11.2008 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband