Leita í fréttum mbl.is

Hjartanlega sammála Geir. Frekar sveltum við!

Það er ekki nokkrum bjóðandi ef að Bretar geta haft svo mikil áhrif á IMF að þeir ætli að skilyrða lánið. Þá frekar sveltum við. Það verður að fara að láta heiminn vita af þessu að Bretar ætli að gera okkur 316 þúsund einstaklinga líða fyrir það að fjármálaeftirlit þeirra fylgdist ekki betur með fyrirtækjum sem voru að hirða inneignir fólks í Bretlandi.

Þeir hljóta að gera sér grein fyrir að landið stendur ekki undir þessu. Ef þeir halda svona áfram þurfum við ekkert við þá að eiga fyrr en dómar hafa fallið í þessum málum.

  • Engan Breskan her hingað í loftrýmiseftirlit.
  • Hótum úrsögn úr NATÓ
  • Semjum við Rússa um loftrýmiseftirlit hér.
  • Rekum sendiherra þeirra úr landi

Ef að þeir beita IMF til að kúga okkur þá gerum við heiminum ljóst að við getum ekki starfað með IMF og  lýsum ábyrgð á hendur Breta ef að ástand mála verður þannig að við líðum verulegan skort og fátækt.

Og að lokum fer ég þess á leit að við sækjum um aðild að ESB


mbl.is Við hættum frekar við lánið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Mér líst vel á þetta hjá þér.

Versta er að ef við hleypum öllu í bál og brand þá versnar örugglega enn meir gjaldeyrisstaðan hjá okkur. Við erum í svo djúpum skít að við getum varla hreyft okkur. 

Ég samdi reyndar aðgerðaráætlunina "Þórður Kakali" og geturðu lesið um hana á blogginu hjá mér.

En málið er það að ef við fáum jafn harðar aðgerðir frá Bretum aftur eins og þegar þeir gengu frá Kaupþingi og voru með fáránlegar yfirlýsingar í fjölmiðlum þá gæti lán eins og t.d Japan og Póllandi verið út úr myndinni.

Það versta er líka að Íslendingar einbeittu nánast öllum kröftum útrásar sinnar til Bretlands þannig að maður er eiginlega skíthræddur við að þeir þjóðnýti t.d. Baug og Bakkavör. En á móti kemur að við getum eiginlega ekki selt þessar eignir núna því þá fæst ekkert fyrir þær. Þannig að við erum í vægast sagt slæmum málum. 

Við þurfum bara setja í gang atburðarrás eins og við séum alveg orðinn sturluð, setjast niður og ræða við Rússa um kjarnorkukafbáta herstöð á Keflavík. Það myndi heldur betur gefa Bretum spark í rassinn og hver veit þá nema kaninn fari eitthvað að ýta á Bretana til að drullast til að leysa þessi mál. 

Jón Gunnar Bjarkan, 8.11.2008 kl. 07:16

2 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Með úrsögn úr NATO eða hótun um það, því miður þá hefur það ekkert að segja lengur að mínu mati. Við erum algjörir þiggjendur í NATO, eina herlausa þjóðin í varnabandalagi.

Eini staðurinn sem við getum í raun lýst okkar hlið á málinu er innan NATO. Og jú og EFTA sem er algjört útjaðrar batterí í Evrópu núna og hefur enga þýðingu. 

Það væri aldeilis gott að hafa núna mann inn í ráðherraráði ESB og þingmenn í brussels til að geta hamrað á þessu máli. 

Jón Gunnar Bjarkan, 8.11.2008 kl. 07:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband