Leita í fréttum mbl.is

Kristinn H Gunnarsson sagði einmitt það sem mér finnst.

Það er nú hálf skrítið að mér fellur oft vel við skoðanir Kristins H Gunnarssonar "Sleggjunar" Hann hikar ekki ef hann hefur ákveðnar skoðanir á hlutunum. Jafn vel þó þær stangist á við flokkana sem hann hefur verið í eða annað.

Í kvöld má lesa eftirfarandi á heimasíðu hans.

Atkvæðaskýring í atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á ríkisstjórnina, sem fram fór á Alþingi í dag.

Kjarninn er sá að mörg verk þarf að vinna á næstu vikum sem ekki þola bið. Þau eru vandasöm og finna þarf bestu eða skárstu lausnina á skömmum tíma. Kosningar munu einungis koma í veg fyrir þau verk engum til góðs. Upplýsa þarf allt er snertir bankahrunið til þess að almenningur geti lagt mat á ástæður þess og ábyrgð þeirra sem að málinu koma. Það er forsenda uppgjörs í kosningum.



Virðulegi forseti.

Það er verkefni stjórnvalda, sérstaklega kjörinna fulltrúa þjóðarinnar, næstu mánuði að vinna að endurreisn fjármálakerfisins og tryggja fjárhag heimilanna og fyrirtækja landsmanna.

Það er verkefni stjórnvalda að sjá til þess að orsakir bankakreppunnar verði rannsakaðar og upplýstar og greindur þáttur hvers og eins og ábyrgð hans, þannig að almenningi verði gert kleift að taka yfirvegaða ákvörðun í alþingiskosningum í kjölfarið og getur valið milli stjórnmálaflokka, sem hver um sig ber fram svar sitt og stefnu.

Það er verkefni stjórnvalda að virða réttarríkið og tryggja sanngjarna málsmeðferð og traustar upplýsingar.

Samþykkt tillögunnar og þingkosningar nú mun færa vinnu stjórnvalda frá lausn aðsteðjandi vanda yfir til baráttu um hylli kjósenda, þar sem þjóðarhagur víkur fyrir flokkshagsmunum.

Tillagan er fjarri því að vera tímabær og ég segi því NEI

Og eins er ég sammála því sem kemur fram á  Orðinu  á götunni

Orðið á götunni er að það hafi verið fljótfærni af stjórnarandstöðunni að leggja fram tillögu um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og kosningar á þessum tímapunkti. Spádómar um að tillagan mundi þjappa stjórnarliðinu saman gengu eftir. Hugmyndir um að einhverjir ráðherrar og þingmenn Samfylkingarinnar mundu greiða atkvæði með stjórnarandstöðunni rættust ekki og voru ákaflega óraunsæjar. Eini liðhlaupinn við atkvæðagreiðsluna var úr röðum stjórnarandstæðinga sjálfra, þegar Kristinn H. Gunnarsson snerist gegn tillögunni.

Orðið á götunni er að það hafi einnig verið misráðið að stefna að þingrofi um áramót og kosningum strax í febrúar. Þetta hafi verið óraunsæ áætlun hvernig sem á málið sé litið; hefði spillt jólahátíðinni, veðurfars vegna séu febrúarkosningar óheppilegar og svo gæfist ekki nægur tími til að klára þau mál sem þarf að klára í þinginu fyrir áramót.

Orðið á götunni er að það hefði bæði verið skynsamlegra að bíða með tillöguna og miða framkvæmdina við vormánuði. Nú þegar Alþingi er búið að hafna þingrofi og kosningum er hætt við að andófshreyfing almennings dofni þar sem líkur á því að enn sé hægt að knýja fram kosningar hafa minnkað.

Ég vill að það verði kosið en ekki fyrr en í vor og jafnvel ekki fyrr en í haust.

 


mbl.is Láti sig hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Greyið er búinn að fatta það að hann fer ekki á þing fyrir xF og ætlar því að biðla til Samfylkingarinnar um þingsæti. Hann var jú áður flokksbróðir einkavinavæðingarfrúarinnar í BD hryllingsstjórninni.

Guðmundur Auðunsson, 25.11.2008 kl. 15:27

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Hann er búinn að vera í fýlu út í frænda sinn Guðjón Arnar síðan hann var látinn hætta sem þingflokksformaður.   Hann er annað líklega  á leiðini í Samfylkinguna.

Sigurður Þórðarson, 29.11.2008 kl. 01:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband