Leita í fréttum mbl.is

Hörður hefur þú hugsað þetta?

Þetta framistaða  Harðar og co er náttúrulega frábært. Ekki ætla ég að setja út á það. Það er aftur boðskapurinn sem endurspeglast í orðum Harðar á hverjum fundi þegar hann fær fólk til að svara spurningum sem og inntakið í öllum ræðum sem fluttar eru þarna sem vakti hjá mér eftirfarandi pælingar:

Hörður hrópar:

Viljum við stjórn Seðlabanka burt?

Undir það get ég tekið.

Viljum við stjórn fjármálaeftirlist burt?

Það gæti líka verið sterkur leikur en samt kannski ekki klókt nú þegar að verið er að breyta bönkunum undir stjórn þess.

Viljum við spillingaröflin burt?

Hvað á Hörður við? Á ekki að finna út hverjir það eru? Á kannski að senda bara alla burtu sem reka hér stærri fyrirtæki sem kannski hafa einhver tengsl inn í þessa banka og hafa verið að taka lán og fjárfesta. Verða þá kannski engir hér eftir sem hafa burði til að fjárfesta og stofna fyrirtæki? Hvað gerum við þá?

Viljum við stjórnina burt?

Hvað telur Hörður að hann græði á því. Er hann að tala um bara núna á stundinni og hvað tekur þá við? Verður hér ekki stjórnarkreppa þar sem engu verður komið í verk og kemur til með að seinka möguleikum okkar á að komast út úr þessari kreppu.

Viljum við kosningar?

Hvað á Hörður við? Á að boða til kosninga strax? Hvað mundi það þýða? Yrðu ekki allir flokkarnir í því að klambra saman kosningaloforðum sem hljóða upp á gull og græna skóga en engin búinn að skoða afleiðingar loforðanna? Erum við ekki búin að fá nóg af svoleiðis? Flokkar lofa öllu fögru en hafa ekkert skoðað afleiðingarnar. Man fólk ekki eftir 90% lánum og keppni flokkana um skattalækkanir og annað sem við nú þurfum að súpa seiðið af.

Væri ekki skynsamlegra að bíða aðeins um sinn. Leyfa flokkunum að setjast yfir sín mál og marka sér stefnu. Þar sem að flokkarnir ákvæðu

  • hvaða sýn þeir hefðu til framtíðar
  • hvaða leiðir eigi að fara
  • hvaða atriðum þurfi að gæta að
  • hvað þeirra leið mundi kosta þjóðina

Af hverju ættum við að kjósa núna akkúrat. Þetta mundi þýða að öll orka flokkana færu í prófkjör og síðan kosningabaráttu. Þar mundu allir keppast við að bjóða betur en hinn. Enginn hefði tíma til að skoða hvað þeirra loforð mundu kosta og reyndar sennilegt að kosningaloforðin yrðu hönnuð á auglýsingastofu. Eins endurtek ég að við verðum að rannsaka þessa spillingu og meinta spillingu áður en við rekum alla sem við náum í. Og er ekki verið að vinna í að koma þessu á.

Minni fólk á að þegar fyrirtæki verður gjaldþrota er skipaður skiptastjóri og það tekur marga mánuði að ganga frá því. Jafnvel ár.  Ísland varð í raun gjaldþrota og fólk vill að við ruppum þessu af á nokkrum vikum. Held að það gæti orðið okkur dýrt.

 


mbl.is Segir góða stemningu á mótmælafundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Carl Jóhann Granz

Góð grein hjá þér, afar vanhugsað.

Alger lágmarkskrafa er að fá að sjá niðurstöðu rannsókna áður en gengið er til kosninga, þá allavega getum við tekið heilsteyptari ákvörðun út frá því.

Þetta er líka bara þannig að fólk er reitt af góðri ástæðu og vill láta vita af því, en það gerir sér ekki endilega grein fyrir því ennþá hverju það er raunverulega að mótmæla. Það kemur seinna.

Carl Jóhann Granz, 29.11.2008 kl. 18:59

2 identicon

En þeir ætla ekki að rannsaka! Þeir ætla að setja eigin menn í nefndina sem á að rannsaka þá. Sjáið þið það ekki? Hæstarréttardómara? Vitið þið hvernig þeir eru skipaðir? Hugsið drengir.

Rósa Halldórsdóttir (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband