Leita í fréttum mbl.is

Bara að benda andstæðingum ESB aðildarviðræðna á góða grein

Var að lesa þessa grein eftir Jón Sigurðsson fyrrverandi formanns framsóknar. Hann hefur skoðað þessi mál mjög vel. Æi nenni ekki að kubba hana niður heldur fá hana lánaða í heild.:

Markaðurinn, 31. des. 2008 06:00

Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins: Víðtæk þjóðleg samstaða


Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins.

Margir andmæla hugmyndum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. En þeim fjölgar sem sjá ástæðu til að kanna málið betur og vilja láta reyna á möguleika þjóðarinnar með aðildarviðræðum við ESB. Ef marka má blaðaskrif andmælendanna eru sterkar líkur á víðtækri þjóðlegri samstöðu í aðildarviðræðum.

Andmælendur leggja áherslu á fullveldi íslensku þjóðarinnar. Um þetta munu langflestir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB sammála. 50. gr. nýs aðalsáttmála ESB gerir ráð fyrir fortakslausum einhliða úrsagnarrétti aðildarríkis. Þetta ákvæði mætir fullveldiskröfu þjóðarinnar. Það er allt annað mál að stjórnarskrá geri ráð fyrir möguleika á sértæku skilyrtu valdaframsali í fjölþjóðasamstarfi. Um þetta hefur verið rætt áratugum saman í tengslum við þátttöku okkar í Evrópuráðinu, Norðurlandaráði, Atlantshafsbandalaginu og stofnunum Sameinuðu þjóðanna.
Andmælendur leggja áherslu á að útlendingum verði ekki hleypt til veiða inn í íslenska landhelgi. Væntanlega eru flestir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB sammála þessu, eða a.m.k. að slíkt sé á einhliða valdi Íslendinga í beinum tímabundnum og sértækum samningum. Samkvæmt reglu ESB um stöðug hlutföll koma engir útlendingar til greina við úthlutun fiskveiðiheimilda í landhelgi Íslands.

Andmælendur leggja áherslu á að Íslendingar einir ráði stjórnkerfi fiskveiða á Íslandsmiðum. Þrátt fyrir mjög skiptar skoðanir um kvótakerfið munu mjög margir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB sammála þessu. Samkvæmt nálægðarreglu ESB er tilhögun fiskveiðistjórnunar sérmál hvers aðildarríkis.

Andmælendur leggja áherslu á að útlendingar geti ekki keypt ráðandi hluti í útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum á Íslandi. Margir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB eru þessu sammála. Ákvæði 299. gr. í aðalsáttmála ESB, sem er 349. gr. í nýjum aðalsáttmála, gera ráð fyrir víðtækri sérstöðu og sjálfræði heimamanna á Madeira, Kanaríeyjum og Azoreyjum í sjávarútvegi og landbúnaði. Ákvæði í aðildarsamningi Möltu og aðildarsamningi Finna vegna Álandseyja hníga í þessa sömu átt. Þarna og víðar eru gildandi fordæmi innan ESB sem skynsamlegt er að nýta í hugsanlegum aðildarsamningi Íslands.

Andmælendur leggja áherslu á óskoruð yfirráð Íslendinga yfir orkuauðlindunum. Áður nefnd ákvæði um Madeira, Kanaríeyjar, Azoreyjar, Möltu og Álandseyjar hafa fullt gildi sem fordæmi í þessu efni einnig. Og þessi ákvæði gera ráð fyrir því að heimilt sé að hindra útlendinga frá því að kaupa eða yfirtaka fyrirtæki í öðrum greinum einnig eða fasteignir, lóðir og landareignir. ESB býður fram margvísleg slík fordæmi sem sjálfsagt er að nýta í aðildarsamningi. Trúlega eru mjög margir stuðningsmenn aðildar Íslands að ESB sammála þessu.

Ofarnefnd ákvæði um eyjasamfélög snerta einnig fæðuöryggi íbúanna. Og ESB hefur lengi lagt áherslu á strangar heilbrigðisreglur um matvælaflutninga. Víðtæk samstaða ætti því að geta náðst um brýnustu hagsmuni landbúnaðarins.

Andmælendur vara við oftrú á tímabundin aðlögunarákvæði eða undanþágur. Væntanlega eru allir Íslendingar sammála um þetta. Þeir málsþættir sem hér hafa verið nefndir benda eindregið til þess að víðtæk þjóðleg samstaða geti náðst í aðildarviðræðum Íslendinga við Evrópusambandið.

 


mbl.is Umsókn í þjóðaratkvæði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vandamálið við reglu ESB um hlutfallslegan stöðugleika er einmitt það að hún er regla ESB - sem ESB getur breytt þegar því sýnist.

Norðmenn reyndu tvisvar að fá regluna bundna inn í aðildarsamning til öryggis en í hvorugt skiptið tókst það. Það myndi nefnilega teljast stór undanþága frá sjávarútvegsstefnunni (þar sem ESB á að ráða henni) og stórar undanþágur eru ekki veittar.

ESB-aðild er ekki hlaðborð.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband