Leita í fréttum mbl.is

Þá er ekkert eftir! Förum af stað i aðildarviðræður

Á heimasíðu fastanefndar ESB gagnvart Íslandi og Noregi er þetta sagt í styttra máli

Af www.esb.is

"Joe Borg svarar spurningu fréttamanns um Ísland og sjávarútvegsstefnu ESB
Á blaðamannafundi 22. apríl þar sem grænbók framkvæmdastjórnarinnar um sjávarútvegsstefnu ESB var kynnt, var Joe Borg, sjávarútvegsstjóri ESB spurður útí hugsanlega aðildarumsókn Íslands og samninga um sjávarútvegsmál. Borg svaraði því til að ef Ísland sækti um, myndi það hitta fyrir samstarfsaðila í framkvæmdastjórninni sem væri tilbúinn að ræða á jákvæðan hátt lausnir sem gætu tryggt íslenskum sjávarútvegi sömu aðstæður í framtíðinni eins og nú, innan ramma sameiginlegrar stefnu. Myndband af svari Borg má finna hér undir "EC press conference Borg". "


mbl.is Viss um að lausn fyndist á sjávarútvegsmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lausnir byggðar á sérþarfareglugerðum eru ekki trygging.

Það er af eða á.

Annað hvort ætla menn að sækja sérþarfareglugerð eða tryggingu. Samfylkingin þarf að fara að svara þessu.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 13:51

2 Smámynd: Guðbergur Egill Eyjólfsson

Ef það þarf ekki meira en svona frétt til þess að fólk haldi að allt verði í lagi varðandi okkar helstu auðlynd þá er fokið í flest skjól skynseminnar. Maðurinn endar mál sitt á því að segja að auðvitað yrði samkomulagið að vera innan ramma sjávarútvegsstefnu ESB. Það þýðir að það er ekki samið um eitt né neitt nema á forsendum ESB ekki Íslands.

Guðbergur Egill Eyjólfsson, 30.4.2009 kl. 14:12

3 identicon

Förum í aðildarviðræður og sjáum hvað kemur út úr þeim. Við hvað eru menn hræddir? Þjóðin mun ráða þessu á endanum hvort sem er.Ef allt er ómögulegt við ESB þá kemur það fram í aðildarviðræðum fyrr ekki sama hvað afturhaldsöflin og hræðslukórinn segir.

Ína (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 14:18

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og hvað með það Guðbergur ef hægt er að semja um þetta innan heildarstefnunar. Við erum að tala um að þarna fer yfrimaður sjávarútvegsstefnu ESB! Og ef hann telur að þeir geti komið til móts við okkur innan stefnu ESB þá er það bara fínt og á að láta á það reyna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.4.2009 kl. 14:21

5 identicon

Heildarsetefna ESB þýðir m.a að allt endanlegt forræði yfir fiskveiðimálum yrði í Brussel. M.ö.o yrðu sérþarfareglugerðirnar okkar ekkert sem stæðist eitt pennastrik þar suðurfrá.

Það sem meira máli skiptir er að reglugerðirnar þyrfti að reyna á fyrir Evrópudómstólnum. Hann getur dæmt þær ógildar þótt þær séu hluti af aðildarsamkomulagi svo lengi sem ekki er um að ræða fyrirvara inni í aðildarsáttmálanum sjálfum en það er ekki í boði.

Sterkustu varnirnar gegn kvótahopi sem hafa haldið fyrir Evrópudómstólnum eru í Bretlandi og þær eru hriplekar.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 14:38

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta er sagt:

ESB mun úthluta kvóta í íslenskri lögsögu eftir eigin kerfi

Rétt er:
ESB hefur engin afskipti af kvótakerfum aðildarríkjanna, svo framanlega sem ekki er mismunað á grundvelli þjóðernis. Sum aðildarríki hafa framseljanlegar aflaheimildir önnur ekki. Íslensk stjórnvöld munu áfram úthluta kvóta eftir því kerfi sem Alþingi og ríkisstjórn ákveður.

Þetta er sagt:

Eftirlit á miðunum mun versna, þar sem eftirliti hjá ESB er ábótavant

Rétt er:
Eftirlit er á ábyrgð strandríkja í ESB, sem þýðir að íslenska landhelgisgæslan mun áfram bera ábyrgð á eftirliti á miðunum. Hlutverk ESB er einungis að tryggja að eftirlitið uppfylli lágmarkskröfur ESB.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.4.2009 kl. 14:53

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sorry það klipptist helmingur af færslunni burtu. Ég nenni varla að endursegja hann en það gekk út á sérstöðu okkar sem felst í því að Sjávarútvegur er stór þáttur í útflutningi okkar ólíkt öllum öðrum ESB löndum. Eins að okkar fiskistofnar eru ekki sameiginlegr neinu ESB ríki. Og eins að landfræðilega erum við með sérstöðu þar sem við eigum ekki land að neinu öðru ESB ríki. En ofangreint er einmitt orsök sameignlegrar stjórnar ESB á sjávarútvegi.

Ég held að þar sem að sjávarútvegur okkar með tekjur sem hlaupa á kannski 150 milljörðum ætti ekki að vera til þess að ESB lokaði á alla okkar möguleika. Og eins að það mundi verða lítil fórn fyrir þá að koma á móts við okkur. Fyrri athugasemd er coperuð af www.samfylking.is

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.4.2009 kl. 15:00

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Og Hans það er hægt að vera með úrtölur og túlkanir út í það óendanlega en staðreyndir fást ekki nema með samningaviðræður.

Magnús Helgi Björgvinsson, 30.4.2009 kl. 15:01

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Já já, í rauninni hefur þetta alltaf verið vitað hjá þeim sem nenna að kynna sér mál.

Einn til þrír And-Sinnar hafa hins vegar ekki burði eða vilja til að kynna sér eitt né neitt í þessu máli og munu alltaf koma af fjöllum.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 30.4.2009 kl. 15:01

10 identicon

Rétt eins langt og það nær. En athugaðu:

"...svo framanlega sem ekki er mismunað á grundvelli þjóðernis".

ESB veiðir rúmlega tvöfaldan ársafla Íslendinga á 88.000 skipum. Flotinn er mjög illa nýttur og niðurgreiddur með styrkjum. Laun sjómanna og fiskvinnslufólks eru víða lægri en hérna. Kvótahopp er staðreynd (vegna þess m.a að það er ekki hægt að setja beinar þjóðernistakmarkanir). Þetta er viðurkennt í Grænbókinni (hérna, pdf-skjal neðst til hægri). Kerfið er hriklekt.

2+2 gera 4. Sama hversu mikið menn kann að langa í evru.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 15:04

11 identicon

Það liggja annars ansi margar staðreyndi í þessu máli fyrir. Ef þú skilur þær ekki núna þá skilur þú þær ekkert betur eftir aðildarumsókn.

Nema að hugmyndin sé að semja um að nýtt lagakerfi taki gildi í ESB .

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband