Leita í fréttum mbl.is

Furðuleg líking!

Til að byrja með þá er ekki um þjóðnýtingu að ræða þar sem að þjóðin á þetta? Svo er furðulegt að maðurinn reiknar með að skuldirnar lækki ekki. Hverskonar lán er hann að taka? Leyfi mér að efast um að nokkur banki hafi lánað útgerðum lengur en til nokkurra ára.

Þetta er líka furðulegt að líkja veiðiréttindum við húsnæði. Bendi þessum manni að ólíkt kvótaeigendum þá borgar íbúðaeigandi bæði þeim sem seldu húsið sem og ríkinu og sveitarfélagi greiðslur í formið fasteignargjalda. Auk þess eru íbúðarhús ekki atvinnurekstur.

Hvað mundi þessi sami maður segja ef að nokkrir Íslendingar mundu fá allar virkjanir hér á landi og sitja að öllum tekjum af henni? Og ef hann vildi kaupa af þeim orku þá gætu þeir okrað á honum og selt´/leigt honum orku á miklu hærra verði en þeir fengu hana á?


mbl.is „Eigandinn heldur áfram að borga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skoðum þessa myndlíkingu svo hún eigi betur við raunveruleikann.

Ég fæ úthlutað húsi frá ríkinu sem ég flyt inn í, húsið er leigufrítt og ég fæ að nota það að vild.

Dag einn ákveð ég að veðsetja húsið sem ég er í svo ég geti fengið mér nýjar innréttingar.

Nú bý ég í húsi sem ég er með leigufrítt sem ég hef tekið lán útá(heimski banki að vita það ekki).

Dag einn er bankað hjá mér og þá stendur þar maður frá ríkinu. Hann segir mér að það þurfi fleiri að hafa afnot af húsinu. Ég hafi enn afnot af meirihlutanum en með tíð og tíma mun ég ekki hafa frítt húsnæði lengur.

Núna eru menn í íbúðinni sem ég hef slegið eign minni á og tekið lán með veði tjáðri eign. Þeir borga leigu en ekki ég.

Innann skamms verð ég í þeirra sporum nema hvað að bankinn vill fá veð fyrir lánunum sem ég tók út á húsið sem ég átti ekki.

Heimski banki að gefa mér lán án þess að skoða málið, ég fer bara á hausinn.

Hinnsvegar munu hinir sem borga leigu getað keypt upp eignirnar sem ég keypti fyrir lánið frá bankanum.

Óskar Steinn Gunnarsson (IP-tala skráð) 23.5.2009 kl. 20:38

2 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Amen!

Ásgeir Rúnar Helgason, 23.5.2009 kl. 21:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband